Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Síða 26
26 | Fólk 11. apríl 2011 Mánudagur
Hárið frumsýnt á Akureyri um næstu helgi:
Leikararnir búa saman í kommúnu
Æfingar á Hárinu ganga vel en
frumsýnt verður um næstu helgi.
Fjöldinn allur af íslensku listafólki
tekur þátt í sýningunni en flestir
aðalleikararnir eru búsettir á höfð-
uborgarsvæðinu en gista saman
í einhvers konar kommúnu með-
an á æfingum stendur. Meðal leik-
ara í Hárinu eru Magni Ásgeirsson,
Matthías papi Matthíasson, Ólöf
Jara Skagfjörð, Erna Hrönn Ólafs-
dóttir, Pétur Örn Guðmundsson
úr hljómsveitinni Buffi, Jana María
Guðmundsdóttir og Ívar Helgason.
„Við fengum bara íbúð fyrir okk-
ur með fjórum herbergjum,“ seg-
ir Ívar Helgason söngleikjaleikari.
„Ég var sneggstur að taka sóló-
herbergið, við settum Pétur og
Magna í kjallarann, við hliðina á
þvottavélinni og þurrkaranum og
stelpurnar þurfa að deila tveimur
hjónaherbergjum.“ Í myndasafni
sýningarinnar á Facebook má sjá
skemmtilegar myndir úr komm-
únunni en svo virðist vera sem
allir kunni vel við sig á Akureyri.
Leikararnir geta þó flogið á milli
Akureyrar og höfuðborgarsvæðis-
ins um helgar og þegar hlé er gert
á æfingum. Leikararnir hafa þegar
eytt þremur vikum saman í komm-
únunni en alls stendur æfingaferlið
yfir í fjórar vikur. Aðeins níu sýning-
ar verða á Hárinu en sýningin verð-
ur aðeins sýnd yfir páskana. Leikar-
arnir munu þó líklega engu að síður
ná góðum tengslum eftir að hafa
búið saman í heilan mánuð.
Sýningin verður sýnd í menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri en það
er Silfurtunglið sem stendur fyrir
sýningunni. Áhorfendur geta val-
ið um að sitja annaðhvort í hefð-
bundnum sætum í kringum sviðið
eða í lautinni, þar sem áhorfendur
koma sér þæginlega fyrir á tepp-
um og púðum í nánd við leikarana
í sýningunni. Á vefsíðu sýningar-
innar segir að lautin sé fyrir þá sem
vilja upplifa „Woodstock“-stemn-
ingu. „Þetta er yndislegt og ég hef
sjaldan verið í jafngóðum hópi,
bæði gæðalega séð og manneskju-
lega séð, í verkefni,“ segir Ívar sem
segir samskipti og samvinnu ganga
vel og býst hann ekki við öðru en að
það skili sér inn í sýninguna.
adalsteinn@dv.is
Misjöfn við-
brögð
Icesave-kosningarnar á laugardag og
niðurstöður þeirra fóru misvel í fólk á
Facebook. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
leikkona setti til að mynda þennan
Facebook-status inn hjá sér þegar úrlitin
voru ljós: „Skrúbbídúúú, ......skrúúúb-
bííííííídúúúúúú, við erum öll á leiðinni
til Tooooooorrtúúúúúlúúúúúúúú.
Skrúúúúúbbbbíííííídúúúú, skrúbbííííídúú-
úúúúú .....“ Magnús Jónsson, leikari
og söngvari, var hins vegar meira að
hugsa um allar stöðuuppfærslurnar sem
myndu fylla Facebook næstu vikuna:
„Tapsára statusvikan er að hafin.
Grrrrrrrreeat!“
Sáttur við
æviStarfið
Þórir Guðmundsson leikari er í burðar-
hlutverki í ruslóperunni Strýhærða Pétri
sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Sýning
hefur fengið góðar viðtökur áhorfenda
sem og gagnrýnenda og Þóri virðist líða
vel í hlutverkinu sínu. „Stundum er ævi-
starfið erfitt og maður efast um sumt
sem maður hefur valið sér á lífsleiðinni.
En svona kvöld eins og þetta....Þá er
enginn efi,“ skrifar hann Facebook-síð-
una sína. Þórir er tiltölulega nýgenginn
til liðs við Borgarleikhúsið eftir að hafa
starfað mest við Þjóðleikhúsið síðan
hann kom heim frá Noregi, þar sem hann
lærði leiklist.
Góður andi Ívar Helgason segir hópinn vinna vel saman. Mynd Hárið / Facebook
H
annes Smárason, fjárfestir
og fyrrverandi aðaleigandi
Flugleiða og FL Group, kom
til landsins síðdegis á laug-
ardaginn með flugi frá London. Fjár-
festirinn, sem búsettur er í Barcelona
á Spáni um þessar mundir, flaug
hingað til lands með lággjaldaflug-
félaginu Iceland Express frá Gatwick,
samkvæmt heimildum DV. Vera
Hannesar um borð í flugvélinni og í
Leifsstöð vakti talsverða athygli sjón-
arvotta enda er Hannes með þekkt-
ustu og umdeildustu kaupsýslu-
mönnum landsins.
Heimildir DV herma að Hann-
es hafi komið hingað til lands til að
vera viðstaddur fermingu sonar síns.
Hannes á drenginn með Steinunni
Jónsdóttur, dóttur Jóns Helga Guð-
mundssonar í Byko, en þau voru gift
á sínum tíma eins og frægt er orðið.
Jón Helgi og Hannes voru viðskipta-
félagar og áttu saman um 32 prósenta
hlut í Flugleiðum í gegnum félagið
Oddaflug. Upp úr þessu viðskipta-
sambandi þeirra slitnaði árið 2004
þegar hjónaband Hannesar og Stein-
unnar endaði og fjárfestirinn hóf
samband við þáverandi einkaritara
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Í kjölfar
skilnaðarins keypti eignarhaldsfélag
Hannesar, Primus, hlut fjárfesting-
arfélags Jóns Helga, Straumborgar, í
Oddaflugi og stóð Hannes eftir sem
stærsti einstaki hluthafi Flugleiða.
Upp úr þessu eignarhaldi Hann-
esar á Flugleiðum bjó hann til fjár-
festingafélagið FL Group sem síðar
var aðskilið frá flugrekstri félagsins.
Hannes stýrði FL Group á nokk-
uð djarfan og áhættusækinn hátt
og keypti meðal annars hlutabréf
í nokkrum erlendum flugfélögum
eins og American Airlines, Easy Jet
og Sterling áður en honum var ýtt úr
forstjórastóli félagsins í árslok 2007.
Hlutabréf FL Group höfðu þá fallið
gríðarlega í verði og má segja að ís-
lenska efnahagshrunið hafi í reynd
byrjað með þessu verðfalli á bréfum
FL Group.
Eftir að Hannes hætti sem for-
stjóri FL Group spurðist ekki mikið
til hans fram að hruni enda hefur
hann verið búsettur erlendis síð-
an þá. Fyrst bjó Hannes með konu
sinni og börnum í Notting Hill-
hverfinu í London en í fyrra flutt-
ust þau búferlum til Barcelona á
Spáni. Ekki er vitað af hverju Hann-
es ákvað að flytja til Barcelona.
Hannes hefur ekki gefið nein-
um íslenskum fjölmiðli kost á við-
tali við sig eftir bankahrunið 2008
og nær ómögulegt er að ná í hann
til að spyrja hann út í viðskipti
hans fyrir og eftir hrunið. Sömu-
leiðis hafa ekki birst margar nýjar
ljósmyndir af Hannesi í íslensk-
um fjölmiðlum frá hruninu. Ljós-
myndir af Hannesi Smárasyni,
líkar þeim sem teknar voru af hon-
um í Leifsstöð á laugardaginn við
komuna til landsins, eru því afar
sjaldséðar.
Hannes kom til landsins
n Útrásarvíkingurinn var í Leifsstöð
á laugardaginn n kom til landsins
frá London n býr í barcelona á Spáni
n kom í fermingu sonar síns n Var
stærsti hluthafi Flugleiða
með Iceland express
„Vera Hannesar um
borð í flugvélinni
og í Leifsstöð vakti tals-
verða athygli sjónarvotta.
Frá London Hannes kom til landsins
með Iceland Express frá Gatwick-flugvelli í
London um klukkan fjögur á laugardaginn.
Í einkaerindum Ástæðan fyrir komu Hannesar til landsins er ferming sonar hans.