Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Page 29
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Fólk | 29Mánudagur 11. apríl 2011
Smirnoff á
forsíðunni
Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison úr Glee:
Ó
skarsverðlaunaleikkonan
Gwyneth Paltrow og Matthew
Morrison úr þáttunum Glee
reyndu að láta lítið á sér bera
þegar ljósmyndarar komu
auga á þau í Lundúnum í síðustu viku.
Gwyneth reyndi að hylja andlit sitt með
klút og Matthew lagðist flatur í aftur-
sætið á bílnum sínum til að fela sig fyrir
ljósmyndurum.
Gwyneth og Matthew voru að koma
út af fimm stjörnu hótelinu Grosvenor
House klukkan tvö aðfaranótt föstu-
dags þegar myndirnar voru teknar. Þau
léku á saman í þáttunum Glee nýlega
en þar áttu persónur þeirra í ástarsam-
bandi.
Hinir ýmsu miðlar hafa velt þeirri
spurningu upp hvort samband þeirra
Gwyneth og Matthews sé rómantískt en
Gwyneth er gift Chris Martin, söngvara
Coldplay. Eru það þó einungis getgátur
enn sem komið er og í raun hefur ekk-
ert komið fram sem styður þær nema
þessi hittingur þeirra og feluleikurinn í
kringum hann.
Bara vinir?
Feluleikur Gwyneth Paltrow hylur
andlit sitt og Matthew reynir að fela
sig í aftursætinu á bílnum sínum.
Matthew Morrison
og Gwyneth Paltrow
Skilaði ástin sér út fyrir
handritið að þáttunum?
L
eikkonan Sara Rue hefur á
undanförnum árum verið í
miklu líkamsræktarátaki. Hún
hefur misst ein 25 kíló og hef-
ur aldrei verið í betra formi
á ævinni. Sara notaðist við hið svo-
kallaða Jenny Craig-plan en nú situr
hún fyrir í baðfataauglýsingum.
„Ef einhver hefði sagt við mig
fyrir ári að ég yrði í baðfataauglýs-
ingum á landsvísu þá hefði ég talið
þann sama einstakling ruglaðan.“
Sara segist skilja konur vel sem þora
ekki á ströndina þar sem þær vilja
ekki fara í baðföt. „Ég -skammaðist
mín fyrir útlitið en það kom sá tíma-
punktur að ég fékk nóg af því að
kílóin væru það sem skilgreindu mig
og ég gerði eitthvað í málunum.“
25 KÍLÓ
FARIN
Sara Rue er stolt af líkama sínum:
Sara Rue Hefur gert
það gott í hinum ýmsu
sjónvarpsþáttum.
KYN-
ÞOKKA-
FYLLSTA
KONAN
Lesendur Esquire völdu
Katrinu Bowden úr 30 Rock:
L
esendur tímaritsins
Esquire magazine
völdu leikkonuna
Katrinu Bowden
kynþokkafyllstu
konu í heimi í nýlegri
könnun. Blaðið stend-
ur fyrir könnuninni á ári
hverju en að þessu sinni
skiluðu sér tvær milljónir
atkvæða.
Katrina skaut mun
frægari konum ref fyrir
rass. Má þar nefna Kim
Kardashian, Rihönnu,
Megan Fox, Beyoncé, Katy
Perry og Brooklyn Decker
sem hreppti titilinn í fyrra.
Katrina leikur aðstoðar-
konu Liz Lemon í gaman-
þáttunum 30 Rock. Hún
hefur slegið í gegn í hlut-
verkinu en Katrina telur að
kynþokkafullur klæða-
burður hennar í þáttunum
hafi eflaust rakað inn at-
kvæðum.
Katrina Bowden
Leikur í þáttunum
30 Rock.
Kynþokkafull
Katrina í myndatöku Esquire.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur