Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Qupperneq 29
www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Fólk | 29Mánudagur 11. apríl 2011 Smirnoff á forsíðunni Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison úr Glee: Ó skarsverðlaunaleikkonan Gwyneth Paltrow og Matthew Morrison úr þáttunum Glee reyndu að láta lítið á sér bera þegar ljósmyndarar komu auga á þau í Lundúnum í síðustu viku. Gwyneth reyndi að hylja andlit sitt með klút og Matthew lagðist flatur í aftur- sætið á bílnum sínum til að fela sig fyrir ljósmyndurum. Gwyneth og Matthew voru að koma út af fimm stjörnu hótelinu Grosvenor House klukkan tvö aðfaranótt föstu- dags þegar myndirnar voru teknar. Þau léku á saman í þáttunum Glee nýlega en þar áttu persónur þeirra í ástarsam- bandi. Hinir ýmsu miðlar hafa velt þeirri spurningu upp hvort samband þeirra Gwyneth og Matthews sé rómantískt en Gwyneth er gift Chris Martin, söngvara Coldplay. Eru það þó einungis getgátur enn sem komið er og í raun hefur ekk- ert komið fram sem styður þær nema þessi hittingur þeirra og feluleikurinn í kringum hann. Bara vinir? Feluleikur Gwyneth Paltrow hylur andlit sitt og Matthew reynir að fela sig í aftursætinu á bílnum sínum. Matthew Morrison og Gwyneth Paltrow Skilaði ástin sér út fyrir handritið að þáttunum? L eikkonan Sara Rue hefur á undanförnum árum verið í miklu líkamsræktarátaki. Hún hefur misst ein 25 kíló og hef- ur aldrei verið í betra formi á ævinni. Sara notaðist við hið svo- kallaða Jenny Craig-plan en nú situr hún fyrir í baðfataauglýsingum. „Ef einhver hefði sagt við mig fyrir ári að ég yrði í baðfataauglýs- ingum á landsvísu þá hefði ég talið þann sama einstakling ruglaðan.“ Sara segist skilja konur vel sem þora ekki á ströndina þar sem þær vilja ekki fara í baðföt. „Ég -skammaðist mín fyrir útlitið en það kom sá tíma- punktur að ég fékk nóg af því að kílóin væru það sem skilgreindu mig og ég gerði eitthvað í málunum.“ 25 KÍLÓ FARIN Sara Rue er stolt af líkama sínum: Sara Rue Hefur gert það gott í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum. KYN- ÞOKKA- FYLLSTA KONAN Lesendur Esquire völdu Katrinu Bowden úr 30 Rock: L esendur tímaritsins Esquire magazine völdu leikkonuna Katrinu Bowden kynþokkafyllstu konu í heimi í nýlegri könnun. Blaðið stend- ur fyrir könnuninni á ári hverju en að þessu sinni skiluðu sér tvær milljónir atkvæða. Katrina skaut mun frægari konum ref fyrir rass. Má þar nefna Kim Kardashian, Rihönnu, Megan Fox, Beyoncé, Katy Perry og Brooklyn Decker sem hreppti titilinn í fyrra. Katrina leikur aðstoðar- konu Liz Lemon í gaman- þáttunum 30 Rock. Hún hefur slegið í gegn í hlut- verkinu en Katrina telur að kynþokkafullur klæða- burður hennar í þáttunum hafi eflaust rakað inn at- kvæðum. Katrina Bowden Leikur í þáttunum 30 Rock. Kynþokkafull Katrina í myndatöku Esquire. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.