Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2012, Síða 4
593 milljóna afskrift
hjá félagi guðjóns
4 Fréttir 28. mars 2012 Miðvikudagur
Ungir smálánaþegar
n Aðeins 0,2 prósent yfirdráttarlána eru hjá fólki undir tvítugu
M
ikill munur er á aldursdreif
ingu í viðskiptamannahópi
smálánafyrirtækja og stóru
viðskiptabankanna. Í svör
um við fyrirspurn DV segir Íslands
banki að 0,2 prósent þeirra sem eru
með yfirdráttarlán hjá bankanum
séu 18 eða 19 ára. Hjá smálánafyrir
tækjunum er þessi aldurshópur
með níu prósent af öllum lánum.
Svipaðar reglur gilda um þá sem fá
yfirdráttarlán og þá sem geta fengið
smálán þó einhver munur sé á
þeim.
Reglur smálánafyrirtækjanna
eru í meginatriðum þrjár. Að fólk sé
ekki á vanskilaskrá eða í greiðsluað
lögun, að fólk sé með virkan síma
og að fólk eigi ekki útistandandi lán
hjá fyrirtækjunum. Ekki er annað
að sjá en að þessar reglur komi ekki
í veg fyrir að fólk geti tekið lán hjá
nokkrum mismunandi smálána
fyrirtækjum á sama tíma. Hámarks
lán hjá hversu smálánafyrirtæki eru
mismunandi en þau eru allt upp í
hundrað þúsund krónur.
Ekki er tekið tillit til þess í þessum
samanburði hversu há lán einstak
lingar eru með hjá fyrirtækjunum.
Það er hægt að fá talsvert hærri yfir
dráttarlán hjá viðskiptabönkunum
en hjá smálánafyrirtækjunum.
Kostnaðurinn sem neytandi þarf að
greiða vegna smálánanna er þó um
talsvert meiri en kostnaðurinn við
yfirdráttarlán. Vextir af smálánum
geta verið allt upp undir 600 pró
sent á ársgrundvelli samanborið við
11,60 prósent vexti yfirdráttarlána á
ársgrundvelli.
adalsteinn@dv.is
E
ignarhaldsfélag í eigu Guðjóns
Más Guðjónssonar, sem yfir
leitt er kenndur við hugbúnað
arfyrirtækið Oz, skilur eftir sig
tæplega 600 milljóna skuldir
sem ekkert fæst upp í. Félagið heitir 7
jarðir ehf. og hélt utan um fasteign á
Skálholtsstíg 7. Húsið gengur yfirleitt
undir nafninu Næpan. Þetta kem
ur fram í Lögbirtingablaðinu. Guð
jón segist halda fasteigninni þó að
eignarhalds félagið sé farið í þrot. Ar
ion banki var stærsti kröfuhafi eignar
haldsfélagsins.
Guðjón segir aðspurður að eftir
efnahagshrunið 2008 hafi lán eignar
haldsfélagsins stökkbreyst og að hann
hafi ekki getað staðið í skilum með af
borganir af því. Orðið sem Guðjón
notar til að lýsa láninu er að það hafi
verið „ónýtt“. Hann segir að orðið hafi
úr að Arion banki fór fram á að félagið
yrði tekið til gjaldþrotaskipta vegna
skulda þess. Þessi mikla skuldsetning
félagsins er þó tilkomin út af öðrum
fjárfestingum en bara fjármögnun
inni á húsinu, að sögn Guðjóns. Hann
vill ekki greina frá því hvaða öðrum
fjárfestingum félagið stóð í.
Húsið á Skálholtsstíg er tæpir 500
fermetrar að stærð og er fasteignamat
þess tæpar 80 milljónir. Guðjón hef
ur átt húsið í gegnum ýmis félög allt
frá árinu 1998. Guðjón býr á efri hæð
hússins og hefur gert síðastliðinn ára
tug.
Heldur húsinu
Guðjón segir að lendingin í málinu
hafi orðið sú að Arion banki veitti
honum lánafyrirgreiðslu sem hvílir á
honum sjálfum. Hann færði eignar
haldið á húsinu á Skálholtsstíg frá
eignarhaldsfélaginu og yfir á sjálfan
sig. Þetta gerðist í lok nóvember sam
kvæmt fasteignaskrá. Guðjón greiðir
af þessum lánum sem hvíla á húsinu.
„Ég reikna með að vera að að borga af
því láni næstu 40 árin,“ segir Guðjón.
Guðjón segir að hann hafi unnið
að því í samstarfi við Arion banka að
endurfjármagna lánin sem hvíldu á
húsinu og að hann viti ekki betur en
að bankinn sé sáttur við niðurstöð
una í málinu. Guðjón segir að skipta
stjóri þrotabús 7 jarða ehf. hafi ekki
gert neinar athugasemdir við upp
gjörið á milli hans og bankans.
Þórir Skarphéðinsson, skiptastjóri
þrotabúsins, segir að færslan á hús
inu frá félaginu og yfir á nafn Guð
jóns hafi verið gerð með vitund Ar
ion banka. Hann segir aðspurður að
kannað hafi verið hvort færslan á hús
inu hafi verið í samræmi við lög um
gjaldþrotaskipti og að niður staðan
hafi verið að ekki hafi verið þörf á að
bregðast við. Þórir segir að skiptum
á félaginu hafi lokið án deilna á milli
Arion banka og Guðjóns.
Ekkert ósiðlegt
Guðjón segir að hann hafi ekki fengið
neina sérmeðferð í bankanum og að
uppgjörið hafi verið heiðarlegt. „Hér
er verið að vinna heiðarlega að upp
gjöri og endurfjármögnun. Hér er síð
ur en svo sérmeðferð á ferðinni held
ur verið að endurfjármagna ónýtt lán,
eftir stökkbreytingu, sem er sett í þrot
í samráði við bankann og það endur
fjármagnað með sínum ábyrgðum og
almennum markaðskjörum.“
Guðjón segir ekkert ósiðlegt við
viðskiptin. „Það er enginn ósiðlegur
gjörningur þarna sem ég er að reyna
að fela.“ Niðurstaðan í málinu er því
sú að Guðjón heldur húsinu á Skál
holtsstíg og greiðir af nýju láni frá
Arion banka sem á því hvílir. Arion
banki afskrifar svo kröfuna sem bank
inn átti vegna skuldar eignarhalds
félagsins sem sett hefur verið í þrot og
gengið hefur verið frá skiptum á.
n Heldur húsi á Skálholtsstíg n Segir viðskiptin hafa verið í samráði við Arion
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Það er enginn
ósiðlegur gjörn-
ingur þarna sem ég er að
reyna að fela.
Ekkert ósiðlegt Guðjón segir ekkert
ósiðlegt við viðskiptin sem gera honum
kleift að halda húsinu á Skálholtsstíg.
Ris og fall Oz
Oz var hugbúnaðarfyrirtæki sem Guðjón
Már Guðjónsson byggði upp ásamt Skúla
Mogensen á tíunda áratugnum. Oz var
stofnað árið 1989 og hefur Guðjón alltaf
verið kenndur við fyrirtækið. Þeir Guðjón
og Skúli stýrðu félaginu næstu tíu árin.
Margir Íslendingar fjárfestu í hlutabréfum
í Oz á þessum tíma og unnu um 250
manns hjá fyrirtækinu þegar mest var.
Uppgangur fyrirtækisins leiddi til þess
að Oz skrifaði undir samning við sænska
farsímafyrirtækið Ericson árið 1996 sem
metinn var á um milljarð króna. Meðal
þess sem Oz vann að þróun á þá var sam-
skiptahugbúnaður sem kallaðist iPulse
sem Guðjón sagði, í viðtali við Frétta-
blaðið 2009, að kynni að hafa verið fyrir-
rennari samskiptaforritsins MSN. Þegar
netbólan sprakk árið 2001 fór Oz á hliðina
líkt og mörg önnur fyrirtæki sem störfuðu
á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni.
Margir af hluthöfum Oz töpuðu háum
fjárhæðum á falli fyrirtækisins, bæði
einstaklingar og lögaðilar, eins og sveitar-
félög og fyrirtæki. Stærsti kröfuhafi Oz,
Landsbankinn, tók fyrirtækið yfir árið
2002 vegna rekstrarerfiðleikanna – sama
ár og bankinn var seldur til Björgólfsfeðga
– og voru leifarnar af fyrirtækinu síðar
seldar aftur til Skúla Mogensen.
Auðvelt aðgengi Ungt fólk hefur tiltölu-
lega gott aðgengi að lánsfé en það getur
reynst þeim dýrt. Mynd BrAgi Þór JósEfsson
Þrotabúið
vildi húsið
af mömmu
Munnlegur málflutningur í máli
þrotabús Stefáns H. Hilmars sonar,
fjármálastjóra 365 og fyrrver
andi fjármálastjóra Baugs, gegn
félaginu Vegvísi ehf. fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðju
dag. Þrotabúið krefst þess að fá til
sín fasteign að Laufásvegi 68, en
um er að ræða heimili Stefáns og
Friðriku Hjördísar Geirsdóttur.
Móðir Stefáns er stjórnarmaður og
eigandi Vegvísis. Málflutningi var
frestað í upphafi mánaðar vegna
veikinda lögmanns þrotabúsins
eins og DV greindi frá en málið
snýst um að þann 18. september
2008 seldi Stefán Vegvísi húsið
að Laufásvegi 68 fyrir 150 millj
ónir króna. Félagið átti að taka
við greiðslu áhvílandi veðskulda
upp á tæpar 85 milljónir króna og
greiða Stefáni lokagreiðslu upp á
rúmar 65 milljónir ári síðar.
Íslandsmet
kvenna
í blóðgjöf
Sigrún Edvardsdóttir náði þeim
áfanga fyrst íslenskra kvenna í Blóð
bankanum að gefa 100 blóðgjafir.
Sigrún hefur verið reglulegur gestur
í blóðbankanum, en hún hefur
einnig gefið blóðflögur reglulega og
því getað gefið oftar en konur gera
almennt. Í þakklætisskyni fékk Sig
rún páskaegg og bók frá bankan
um. Sigrún bætist í hóp fjölmargra
blóðgjafa í bankanum sem hafa
gefið 100 sinnum, en hingað til hafa
aðeins karlmenn skipað þann hóp.
Konur geta gefið blóð þrisvar sinn
um á ári en karlar fjórum sinnum.
Gefi einstaklingar blóðflögur, líkt
og Sigrún hefur gert, geta þeir gefið
oftar. Þegar Blóðbankinn sendi út
neyðarkall fyrir um tveimur vikum
létu landsmenn ekki sitt eftir liggja
og komu um 500 einstaklingar í
bankann á tveimur dögum. Til þess
að hindra að slíkt neyðarástand
skapist er þó mikilvægt að fólk leggi
leið sína reglulega í bankann, en
bankinn þarf um 70 blóðgjafa á dag.
Heldur húsinu Guðjón heldur
húsinu á Skálholtsstíg 7 en eignar-
haldsfélagið sem átti það er orðið
gjaldþrota og skilur eftir nærri 600
milljóna króna skuldir. Mynd sigtryggur Ari