Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Page 12
12 Nærmynd 23. apríl 2012 Mánudagur
Á
sgeir Þór Davíðsson, betur
þekktur sem Geiri á Goldfin-
ger, varð bráðkvaddur á heim-
ili sínu aðfaranótt föstudags.
Geiri hefur verið mikið til um-
fjöllunar í fjölmiðlum vegna umsvifa
sinna og þátttöku í skemmtanalífinu,
og þá einna helst fyrir rekstur sinn á
nektardansstaðnum Goldfinger sem
var stofnaður árið 1999. Áður hafði
hann rekið Maxims, auk þess sem
hann var umsvifamikill í ýmiss kon-
ar viðskiptum og kom hann meðal
annars að margvíslegum verslana- og
veitingarekstri.
Mikill Kópavogsbúi
Ásgeir fæddist í Reykjavík árið 1950
og var yngstur fimm barna hjónanna
Davíðs Guðmundssonar og fyrri
konu hans Önnu Pálsdóttur. Foreldr-
ar hans skildu þegar hann var á öðru
ári og faðir hans kvæntist Guðmundu
Helgadóttur frá Haukadal í Dýrafirði
og átti með henni fimm börn. Móðir
hans giftist Helga Ólafssyni og eignuð-
ust þau son saman og átti Ásgeir því
stóran systkinahóp. Hann ólst upp í
Kópavogi hjá móður sinni og Helga og
var alla tíð mikill Kópavogsbúi.
Bergljót Davíðsdóttir, hálfsystir Ás-
geirs, segir að hún hafi fyrst kynnst Ás-
geiri vel þegar hann útvegaði henni
vinnu á Hótel Borg þegar hún var þrett-
án ára. Þá var Ásgeiri í matreiðslu námi
og var í læri á hótelinu. „Hann var of-
boðslega góður við mig og við vorum
mikið saman á þessum árum. Svo fór
hann á sjóinn þar sem hann var lengst
af bryti hjá Landhelgisgæslunni þar
sem hann var vel liðinn.“
Á sjónum kynntist Ásgeir Kristínu
Helgadóttur sem hann síðar kvænt-
ist og átti með henni fjögur börn.
Þau skildu síðar. „Á þessum árum rak
hann verslunina Kjöt og fisk sem síðar
varð Seljakjör. Þegar þau skildu flutti
hann til Spánar og rak þar bar í þrjú
ár. Þar kynntist hann breskri konu og
eignaðist með henni dóttur sem hann
hefur alltaf verið í góðu sambandi við,“
segir Bergljót. Eftir að hann flutti aftur
heim stofnaði hann krána Skipperinn
en færði sig svo yfir í Hafnarstræti og
rak Hafnarkrána sem varð síðar nekt-
arstaðurinn Maxims. „Á Hafnarkrána
kom mikið af undirmálsfólki og Geiri
var alltaf ótrúlega góður við það. Það
var alveg með eindæmum hvað hann
var alltaf góður,“ segir hún.
Seinna kvæntist Ásgeir Jaroslava
Davíðsson og eignuðust þau dóttur
en þau skildu fyrir stuttu. Auk þess átti
Ásgeir dóttur með Evu Lind Björns-
dóttur. Hann skilur því eftir sig sjö
börn.
Stoltur af upprunanum
Bergljót segir hann hafa verið mikinn
fjölskyldumann og afar ættrækinn.
Ásgeir var af Álftmýringaætt og Gils
Guðmundsson sagnfræðingur hefur
ritað talsvert um Álftmýringa og seg-
ir þrennt sem einkenni karlmenn af
þeim ættboga; hraustir og miklir að
burðum, sérstaklega vel gefnir og með
fallega rithönd og ákaflega drykkfelld-
ir. „Geiri var stoltur af því að vera af
þessari ætt,“ segir Bergljót. Hún segir
einnig að hann hafi verið vinmargur
og átt vini í efstu stigum þjóðfélagsins,
jafnt sem vini í lægstu stigum. Undir-
málsmenn hafi leitað til hans og hann
hafi gefið þeim peninga. Það séu því
ófáir sem Ásgeir hafi hjálpað til við að
koma undir sig fótunum.
Aðspurð hvað fjölskyldunni hafi
fundist um starfsemina sem Ásgeir
rak segir hún að til að byrja með hafi
hún verið efins um það en hún hafi
síðan áttað sig á því að þetta voru bara
viðskipti. Hún fullyrðir að Ásgeir hafi
ekki stundað neitt ólöglegt. „Kannski
hann hafi í lífinu dansað á grárri línu,
en ég fullyrði að hann fór aldrei yfir
hana. Hann hélt sig alltaf réttu megin
við hana og var afskaplega góður við
stelpurnar sem unnu hjá honum.“
Glaður en lokaður
Hún lýsir Ásgeiri sem hjartastórum
manni með breiðan faðm sem var
sannur vinur vina sinna. „Hann lét
aldrei á sig fá hvað aðrir sögðu um
hann og var alltaf glaður með smit-
andi hlátur. Hann var þó lokaður og
vildi ekki tala um sorglega hluti. Ég
veit að hann fann til heilsuleysis fyr-
ir tæpu ári, en það þýddi ekkert að
spyrja hann nánar, sagðist vera við
hestaheilsu.“ Hún segir að eftir skiln-
aðinn hafi vinir hans fundið breytingu
á Ásgeiri. „Eins og oft vill verða við
slíkar aðstæður gefa menn í og líklega
hefur hann drukkið meira en áður.“
Hún hafi fundið að hann var ekki eins
lífsglaður og áður.
Fráfall Ásgeirs kom henni vissu-
lega ekki á óvart þar sem margir í ætt-
inni hafi farið á sama hátt. Faðir þeirra
dó með sama hætti sem og systkini
hans. „Þetta er ættgengt. Þetta fólk
lifði hratt og naut þess að lifa en lést
fyrir aldur fram.“
Hefur vakið umtal síðustu árin
Ásgeir hefur vakið umtal síðustu árin
og sem dæmi má nefna þegar hann
mætti í Hörpu með hóp kvenna á
James Bond-tónleika. Það fór mik-
ið fyrir þeim og þau sögð hafa truflað
tónleikana. Eins þegar hann tók upp
hanskann fyrir Egil Einarsson þegar
hann var kærður fyrir nauðgun. Þá
var hann meðal gesta í umtöluðu VIP-
partíi sem haldið var á síðasta ári.
Í fyrra birtist frétt um að Ásgeir ynni
að því að opna spilavíti hér á landi.
Hann var sagður í leit að heppilegum
meðfjárfestum og sterkir fjárfestar frá
Austur-Evrópu hafi sýnt verkefninu
áhuga. Þar sem spilavíti eru ólögleg á
Íslandi var markmið Ásgeirs að opna
svokallaðan einkaklúbb en lögin ná
ekki yfir slíka starfsemi.
Stefndi blaðamönnum
Ásgeir fór nokkrum sinnum í mál við
blaðmenn en árið 2008 sýknaði hér-
aðsdómur blaðamann og ritstjóra
Vikunnar af skaðabótakröfu Ásgeirs
vegna umfjöllunar blaðsins um nekt-
ardans. Jafnvel þó hann hafi verið
ósáttur við skrif þeirra þá sagði hann í
viðtali við DV að þetta risti ekki djúpt.
Því til sönnunar bauð hann ritstjóra
Vikunnar og öðrum blaðamönn-
um blaðsins í níu ára afmælisveislu
Goldfinger.
Ári seinna voru þó blaðamenn-
irnir Jón Trausti Reynisson og Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir dæmd til
að greiða honum 800 þúsund krón-
ur í skaðabætur með dráttarvöxtum.
Ásgeir stefndi þeim vegna ummæla
sem skrifuð voru í tímaritið Ísafold
um veitingastaðinn Goldfinger.
Fylgjandi nektardansi
og löglegu vændi
Ásgeir var óhræddur við að segja
skoðun sína á nektardansi og var
ósáttur við þá ákvörðun að banna
slíkan dans hér á landi árið 2010.
„Mér finnst þetta bölvaðar kvígur sem
láta kjósa sig á þing til að mótmæla
forræðishyggjunni og standa svo ekki
upp til að verja málstaðinn. Það er
helvíti hart að þurfa að skoða hverj-
um menn eru giftir áður en maður
kýs þá. Þetta virðist allt vera ákveðið
bara við eldhúsborðið heima,“ sagði
hann í samtali við Pressuna.
Fyrr á þessu ári tjáði Ásgeir skoð-
un sína á vændi eftir útsendingu á
þætti Sölva Tryggvasonar og sagð-
ist vilja hafa allt uppi á borðinu, að
vændi yrði gert leyfisskylt og að eftir-
lit ætti að vera með því. „Það er kom-
inn tími til að íslenskir karlmenn
berji í borðið og neiti að sætta sig við
þessa meðferð. Hér á stríðsárunum
var illa farið með íslenska karlmenn
sem sátu afskiptir úti á Austurvelli
meðan konurnar voru á Borginni að
dansa við bandaríska dáta. Á hurð-
unum voru stórir miðar þar sem
sagði að aðgangur væri bannaður
fyrir íslenska karlmenn,“ sagði Geiri í
samtali við Pressuna.
Fjörkálfur umkringdur
fögrum fljóðum
Þrátt fyrir að hafa verið umdeildur
mátti sjá hve breiðan vinahóp hann
hefur átt á myndbandi sem var gert í
tilefni afmælis hans. Þar komu fram
nokkrir landskunnir menn og óskuðu
Ásgeiri til hamingju með daginn.
„Þvílíkur stórhöfðingi og fjörkálf-
ur,“ sagði Hermann Gunnarsson um
frænda sinn og bætti við að Ásgeir
væri kvennaljómi og Hugh Hefner
og fleiri slíkir væru smástrákar mið-
að við Geira. „Njóttu dagsins umvaf-
inn fallegum fljóðum.“
Geir Jón Þórisson, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, ósk-
aði einnig Ásgeiri til hamingju með
daginn. „Kæri vinur, þú stendur
þig vel í þessu og berð aldurinn vel.
Vegni þér vel og farðu vel með árin
sem framundan eru og Guð blessi
þig vinur.“ Gunnar í Krossinum og
Guðni Ágústsson sendu honum
einnig kveðju til tilefni afmælisins.
Ásgeir átti vini í öllum lögum
þjóðfélagsins en það má glöggt
sjá á Facebook-síðu hans þar sem
fjölmargir minnast hans. Þar á
meðal eru Jón stóri, Inga á Nasa,
Kristmundur Axel, Björgvin Páll
Gústavsson, Ásdís Rán, Sigga Lund,
Sveinn Andri Sveinsson og Jógvan
Hansen.
Illugi Jökulsson minnist Ásgeirs
á Facebook-síðu sinni en þar segir:
„Ég var messagutti á varðskipinu
Baldri fyrir margt löngu og þá var
Geiri kokkurinn um borð. Hann var
bráðhress og fjörugur og mikill vin-
ur vina sinna. Hvað sem karríer hans
síðan líður, þá hef ég alltaf minnst
þessa káta yfirmanns míns fyrir 35
árum með hlýhug.“
„Hann dansaði
á grárri línu“
n Geiri á Goldfinger bráðkvaddur nSjómaðurinn sem varð súlustaðakóngur
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Á Hafnarkrána
kom mikið af und-
irmálsfólki og Geiri var
alltaf ótrúlega góður við
það. Það var alveg með
eindæmum hvað hann
var alltaf góður.
Ásgeir Þór Hann var
umdeildur maður en vinir
og fjölskylda segja hann
hafa haft stórt hjarta.
f. 25. janúar 1950
d. 19. apríl 2012
Ásgeir Þór
Davíðsson