Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Síða 15
H
ann er ekkert frábrugðinn
öðrum börnum,“ segir Vera
Yegorova, fósturmóðir níu
ára drengs, Artems Saveliev.
Einhverjir kannast eflaust
við nafn drengsins en hann komst í
heimsfréttirnar fyrir sléttum tveimur
árum þegar móðir hans, Torry Han-
sen, sendi hann einan með flugvél
til Rússlands. Torry ættleiddi dreng-
inn frá Rússlandi nokkrum mánuð-
um áður, eða í september 2009, en
gafst upp á því að ala hann upp. Hún
ákvað því að kaupa miða fyrir hann
til Rússlands og senda hann aftur
til föðurlands síns. AP-fréttastofan
hafði uppi á drengnum á dögunum
og kannaði hvað hefði á daga hans
drifið síðan móðir hans sendi hann
aleinan til Rússlands.
Aldrei aftur til Bandaríkjanna
Artem býr nú í litlu þorpi, Tomilino,
sem er skammt frá höfuðborginni
Moskvu. Þar býr Artem ásamt fleiri
börnum á fósturheimili sem Vera
Yegorova rekur.
„Nei,“ er svarið þegar blaðamað-
ur spyr hann hvort hann vilji ein-
hvern tímann fara aftur til Banda-
ríkjanna. Málið vakti mikla athygli
á sínum tíma en þegar Artem kom
til Rússlands fannst bréf sem móðir
hans hafði sent með honum. Í bréf-
inu sagði hún að forsvarsmenn mun-
aðarleysingjahælis í Partizansk, þar
sem drengurinn bjó áður en hann
var ættleiddur til Bandaríkjanna,
hefðu logið að sér. Þeir hefðu sagt að
drengurinn væri ljúfur sem lamb en
þegar á hólminn var komið hafi hann
verið „ofbeldisfullur“ og „stjórnlaus“.
Málið vakti reiði yfirvalda í Rúss-
landi og var öllum ættleiðingum frá
Rússlandi til Bandaríkjanna frestað
tímabundið. Málinu er þó ekki lok-
ið því yfirvöld í Rússlandi hafa krafið
Torry um meðlagsgreiðslur þar sem
hún er enn móðir drengsins í laga-
legum skilningi.
Talar í stuttum setningum
Í umfjöllun AP-fréttastofunnar
kemur fram að hingað til hafi rúss-
nesk yfirvöld reynt að halda hlífi-
skildi yfir drengnum. Þannig hafi
allar heimsóknir blaðamanna verið
bannaðar til þessa en á dögunum
fékk þó lítill hópur blaðamanna að
heimsækja hann. Í umfjölluninni
kemur fram að Artem sé feiminn
og fámáll. Hann segir þó í samtali
við blaðamann að erfiðasta fagið í
skólanum sé rússnesk stafsetning.
Fóstur móðir hans segir að hann
hafi þurft á margra mánaða talþjálf-
un að halda þegar hann snéri aftur
til Rússlands. Hann hafi lítið tjáð sig
þegar hann snéri til baka en í dag
sé hann allur að koma til eftir langa
og stranga þjálfun. Hann talar þó í
stuttum setningum og gengur illa í
skólanum.
Man eftir móður sinni
Á undanförnum árum hafa fjöl-
mörg rússnesk börn verið ætt-
leidd til Bandaríkjanna, eða allt
að 60 þúsund, samkvæmt umfjöll-
un AP-fréttastofunnar. Samskipti
Bandaríkjanna og Rússlands hafa
þó stirðnað á undanförnum árum,
meðal annars vegna máls Artems,
en ekki síst vegna þeirrar stað-
reyndar að sautján börn sem ætt-
leidd voru frá Rússlandi hafa dáið
vegna heimilisofbeldis í Banda-
ríkjunum.
Artem, sem er fæddur árið
2002, var tekinn af líffræðilegri
móður sinni og sendur á munað-
arleysingjaheimili þegar hann var
barn. Ástæðan var sú að móðir
hans var drykkfelld og ófær um að
sjá um hann. „Hann talar stundum
um móður sína,“ segir Yegorova.
„Hann man eftir henni,“ bætir hún
við.
Samkvæmt skýrslu Barnahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,
eru 740 þúsund rússnesk börn á
munaðarleysingjahælum í land-
inu.
Erlent 15Mánudagur 23. apríl 2012
MaMMa skilaði honuM
n Artem Saveliev aðlagast lífinu í Rússlandi eftir að móðir hans skilaði honum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
26 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
Rússar eru æfir vegna ákvörðunar
bandarískrar konu að skila sjö ára
gömlum dreng aftur til Rússlands.
Ættleiðing piltsins, Artem Saveliev,
gekk í gegn í september síðastliðin-
um og átti drengurinn sér vonir um
að geta hafið nýtt líf í Bandaríkjun-
um eftir vist á munaðarleysingja-
heimili í Partizansk, afskekktum bæ
í austurhluta Rússlands. Draumur
piltsins varð hinsvegar að martröð
þegar móðir hans, hin 33 ára gamla
Torry Hansen, ákvað að hún vildi
hann ekki lengur. Sendi hún hann
um borð í flugvél til Rússlands með
miða sem á stóð: „Ég vil hann ekki
lengur.“
Sagður ofbeldisfullur
Í bréfi sem Hansen sendi með
drengnum kemur meðal annars
fram að forsvarsmenn munaðar-
leysingjahælisins í Partizansk hafi
logið að henni þegar hún ákvað
að taka drenginn að sér. Hún hafi
fengið þau skilaboð að drengurinn
væri ljúfur sem lamb en þegar á
hólminn var komið hafi hann ver-
ið „ofbeldisfullur“ og „stjórnlaus“.
Það var í september síðastliðnum
sem pilturinn kom til Bandaríkj-
anna en Hansen býr í Tennessee.
Á dögunum fékk hún nóg og ákvað
að senda piltinn aftur til Rússlands.
Var hún búin að ráða ökumann
í Rússlandi til að keyra hann að
menntamálaráðuneyti Rússlands
þar sem forviða starfsmenn tóku á
móti honum á fimmtudaginn í síð-
ustu viku.
Líkamlegir áverkar
Málið þykir hið dularfyllsta enda
segja rússnesk yfirvöld að dreng-
urinn hafi ekki sýnt afbrigðilega
hegðun að neinu leyti síðan hann
kom til Rússlands. Drengurinn
gekkst undir rannsóknir skömmu
eftir komuna til Rússlands og að því
er fram kemur í rússneskum fjöl-
miðlum voru líkamlegir áverkar
sýnilegir á drengnum.
Málið hefur vakið mikla athygli í
Rússlandi og ekki síður Bandaríkj-
unum þar sem yfirvöld rannsaka
nú hvort móðirin hafi gerst sek
um vanrækslu gagnvart drengn-
um. Engin kæra hefur hins vegar
verið gefin út í málinu og að því
er fram kom á blaðamannafundi
vegna málsins í Tennessee fyrr í
vikunni neitar móðirin að tala við
yfirvöld nema kæra verði gefin út.
Vegna þess er lítið vitað um mála-
vexti að öðru leyti en því sem fram
kemur í bréfinu sem móðirin sendi
með drengnum. Á blaðamanna-
fundinum kom þó fram að móð-
irin eigi yfir höfði sér kæru til að
komast til botns í málinu. Hyggjast
yfirvöld rannsaka hvort eitthvað
sé hæft í fullyrðingum rússneskra
lækna um að áverkar hafi fundist
á drengnum og þá hvort einhver
tengdur drengnum hafi veitt hon-
um þá.
Ættleiðingar frystar í bili
Rússnesk yfirvöld líta málið afar
alvarlegum augum og vegna þess
hafa yfirvöld ákveðið að fresta öll-
um fyrirhuguðum ættleiðingum
frá Rússlandi til Bandaríkjanna.
Bandarísk sendinefnd er væntan-
leg til Rússlands til að ræða málið
við þarlend yfirvöld og hafa Rúss-
ar sett fram þá kröfu að nákvæmar
reglugerðir verði settar áður en ætt-
leiðingar til Bandaríkjanna verða
leyfðar að nýju. Hafa rússnesk-
ir þingmenn gengið svo langt að
krefjast þess að alfarið verði tekið
fyrir ættleiðingar til Bandaríkjanna.
Þá hefur forseti Rússlands, Dmitry
Medvedev, lýst því yfir að hann hafi
miklar áhyggjur af hag rússneskra
barna sem ættleidd eru til Banda-
ríkjanna.
SKILAÐI ÆTTLEIDDU
BARNI TIL RÚSSLANDS
Rússnesk yfirvöld hafa ákveðið að fresta öllum ættleiðingum frá Rússlandi til Bandaríkjanna. Ástæðan er sú að hin 33 ára gamla Torry Hansen ákvað að skila hinum sjö ára gamla Artem Saveliev aftur til Rússlands en Hansen ættleiddi hann í september. Var pilturinn sendur einsamall í flugvél til Moskvu.
ÆTTLEIDD BÖRN
HAFA LÁTIST Í
BANDARÍKJUNUM
Eins og fram kemur í greininni
um Saveliev óttast Dmitry Med-
vedev Rússlandsforseti um hag
ættleiddra rússneskra barna í
Bandaríkjunum. Þessi ótti virð-
ist ekki vera að ástæðulaus því
frá árinu 1996 hafa að minnsta
kosti fimmtán rússnesk börn lát-
ist vegna barsmíða eftir að hafa
verið ættleidd til Bandaríkjanna.
Þannig lést sjö ára gamall drengur
sem ættleiddur var til fjölskyldu
í Pennsylvaníu 25. ágúst 2009 af
áverkum sínum. Foreldrar hans
voru ákærðir fyrir morð af fyrstu
gráðu. Pilturinn var ættleiddur
til Bandaríkjanna þegar hann
var eins árs. Réttarhöld í málinu
standa enn yfir.
Aftur til Rússlands
Artem var sendur einsamall
um borð í flugvél sem flutti
hann til Rússlands.
Artem með Hansen Torry
Hansen sendi piltinn aftur til
Rússlands þar sem henni þótti
hann ofbeldisfullur.
Ósáttur Dmitry Medvedev hefur áhyggjur af hag rússneskra barna sem ættleidd eru til Bandaríkjanna.
HOLLYWOOD
FYLGIST MEÐ
Þó að mál Saveliev sé litið afar al-
varlegum augum, bæði af banda-
rískum og rússneskum yfirvöld-
um, hafa kvikmyndafyrirtæki í
Hollywood látið sig málið varða.
Árið 2009 kom út myndin Orphan
og lýsir hún raunum bandarískr-
ar fjölskyldu sem ættleiðir níu ára
gamla stúlku frá rússnesku mun-
aðarleysingjahæli. Í fyrstu leikur
allt í lyndi og stúlkan aðlagast fjöl-
skylduaðstæðum vel. En eftir smá
tíma fer fjölskylda stúlkunnar að
tengja saman hegðun stúlkunnar
og fjölda ótímabærra dauðsfalla
fólks sem tengist fjölskyldunni. Er
stúlkan greinilega ekki öll þar sem
hún er séð.
Til þess sem málið varðar
Ég ættleiddi þetta barn, Artem Sa-
veliev, þann 29. september 2009. Þetta
barn á við andleg veikindi að stríða.
Hann er ofbeldisfullur og er siðblindur.
Það var logið að mér og ég afvegaleidd
af forsvarsmönnum rússneska mun-
aðarleysingjahælisins vegna andlegs
ástands hans og annarra vandamála.
Starfsfólk munaðarleysingjahælisins
vissu klárlega af þeim stóru vandamálum
sem drengurinn glímir við. Samt ákváðu þeir að mistúlka vandamál hans, til
þess eins að koma honum burt.
Eftir að hafa gert mitt besta við barnið þykir mér fyrir því að tilkynna
að vegna öryggis míns, fjölskyldu minnar og vina minna vil ég ekki vera
forráðamaður barnsins lengur. Þar sem hann er rússneskur ríkisborgari skila ég honum í hendur ykkar og vil að ættleiðingin verði afturkölluð.
Bréfið sem móðirin sendi
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Umfjöllun föstudaginn 16. apríl 2010.
„Hann talar stund-
um um móð-
ur sína. Hann man eftir
henni.
Erfitt líf Artem hefur þurft að upp-
lifa margt á stuttri ævi. Hann býr nú
á fósturheimili í litlu þorpi skammt
frá Moskvu, höfuðborg Rússlands.