Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Side 19
Neytendur 19Mánudagur 23. apríl 2012
Auðveldari
gluggaþvottur
S
ól hækkar á lofti og allt í
einu tökum við eftir því hvað
gluggarnir eru skítugir eft-
ir veturinn. Það eru mörg
ráð til um hvernig sé best að
þrífa gluggana en nokkur þeirra má
finna á Politiken.
Fyrst af öllu er að velja rétta tím-
ann í verkið. Það er vel hægt að þrífa
gluggana í sólskini en það er þó
betra að byrja á skuggahlið hússins.
Þvoðu því glugga á vesturhlið húss-
ins á morgnana og austurhlið eft-
ir hádegi. Ef þú ert svo óheppin að
það sé frost þann dag sem þú hugðist
þvo gluggana þá er gott að setja smá
spritt í í vatnið. Það vinnur á móti
frosti.
1 Skoðaðu karmana
Það fyrsta sem skal gera er að skoða
gluggakarmana. Það er ekki oft sem
þú ert svo nálægt þeim svo nú er til-
valið tækifæri til að kanna ástand
þeirra. Athugaðu hvort einhverja
myglu sé að finna eða annað sem
þarf að fjarlægja. Myglan kemur fram
sem svört húð eða slikja á glugga-
körmunum og er hún fjarlægð með
til dæmis brúnsápu eða ródaloni.
2 Varaðu nágrannana við
Áður en þú ferð að sulla með vatn og
sprauta út um allt er gott að athuga
hvort nágrannarnir séu með opna
glugga og vara þá við.
3 Sparaðu sápuna
Byrjaðu á því að fylla fötuna af vatni.
Ef gluggarnir eru mjög skítugir eða ef
þú vilt spara sápuna þá er gott ráð að
fylla eina fötu með sápuvatni og aðra
með hreinu vatni. Þá má skola tusk-
una í hreina vatninu eftir hverja rúðu
og þá þarf einungis að skipta um
vatnið öðru hvoru. Passaðu að hafa
ekki of mikla sápu í vatninu.
4 Sápaðu vel
Þvoðu rúðuna með tuskunni að ofan
og niður. Passaðu að fara út í öll horn.
5 Skafðu rúðuna vel
Taktu gluggasköfuna og dragðu hana
eftir rúðunni með þeirri tækni sem
þér finnst henta best. Þú nærð best-
um árangri með því að skafa aðeins
yfir blauta fleti. Ef þú ferð yfir þurra
fleti myndast rendur og þú getur á
endanum eyðilagt sköfuna.
6 Pússun
Þegar þú hefur lokið við að skafa
skaltu nota þurra tusku til að pússa
rúðuna. Notaðu mjög rakadrægan
klút í hornin. Mikilvægt er að skipta
reglulega út klútnum og því ráð er
vera með nokkra við höndina. Þar
sem þeir þurfa að vera rakadrægir er
ekki mælt með nýjir, ónotaðir klútar
seú notaðir né heldur nýþvegnir með
mýkingarefni í.
7 Þurrkaðu eftir þig
Þegar gluggarnir eru orðnir þurrir
er gott að skoða gluggakarmana vel
og passa að ekki sé neinn raki til
staðar. Vatn getur eyðilagt karmana
ef það fær að liggja óáreitt á þeim
og því mikilvægt að þurrka bleyt-
una.
7 Slappaðu af og njóttu sólarinnar.
Verkfærin
Það þýðir lítið að ráðast í allsherjar
gluggaþvott ef þú ert ekki með réttu
tækin og tólin. Þetta skaltu taka til áður
en þú byrjar:
n Gluggaskafa: Helst með beittri
gúmmírönd. Reyndu að finna sköfu eins
og fagmenn nota, hún virkar best.
n Vertu með eina eða tvær fötur:
Mundu að velja fötu sem er þægileg í
meðförum.
n Klútur til að sápa með: Tuska,
svampur, viskastykki eða annað því
um líkt.
n Þú þarft sápu: Hægt er að nota flestar
sápur en forðast ætti litaðar sápur og
þær sem eru með ilm. Séu gluggarnir
mjög skítugir má setja örlítið ammoníak
í vatnið.
n Vatn: Kalt eða volgt.
n Þurrku: Þurra tusku, viskastykki eða
annað því um líkt.
n Átta ráð um gluggaþvott, áhöld og aðferðir
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hreinir gluggar Á vorin
koma skítugir gluggar í ljós.
Mynd: PHotos.coM
Dragðu úr hættu á sykur-
sýki með morgunmat
n Einungis tæplega helmingur íslenskra karlmanna borðar morgunmat daglega
Fólk í yfirvigt er í meiri hættu
n Sykursýki II er algengust hjá eldra
fólki og er stundum kölluð fullorðins-
sykursýki, eða áunnin sykursýki. Hún
mælist þó í æ meira mæli hjá yngri
einstaklingum í yfirvigt og því hefur
lífsstíll okkar afgerandi áhrif. Samtök
sykursjúkra gáfu út bæklinginn Matur
og sykursýki árið 2009 en þar segir
að flestir sjúklingar með sykursýki II
séu of þungir. Markmið meðferðar við
sykursýki II sé að ná eðlilegum gildum
blóðsykurs og blóðfitu og að þyngdin
verði sem næst kjörþyngd.
n Á lyfja.is má finna fróðleik um
sykursýki en þar segir að rétt mataræði
sé undirstaðan í meðferð á sykursýki
og margir sem séu með sykursýki II eru
meðhöndlaðir eingöngu með breyttu
mataræði. Lögð er áhersla á ríkulega
neyslu á kolvetnum og trefjum, lág-
marksneyslu á sætindum og takmark-
aða fituneyslu. Æskilegt sé að borða
magurt kjöt, alifugla, fisk, egg og magra
osta. Einnig að borða gróft brauð, hrís-
grjón, pasta og kartöflur, borða mikið af
grænmeti á hverjum degi, velja fitulitlar
mjólkurafurðir, ferska ávexti og forðast
sykur í daglegri fæðu en auk þess þurfi
að fara varlega í áfengi. Mikilvægt sé að
ná þyngd niður ef fólk er yfir kjörþyngd.
Finnur þú fyrir þessum einkennum?
n Einkenni sykursýki II geta verið lúmsk
en hér eru helstu einkennin samkvæmt
heimasíðu embættis landlæknis. Þar
er fólk hvatt til að hafa samband við
lækni ef það hefur þessi einkenni og fá
blóðsykurinn mældan:
n 1. Þorsti
n 2. Tíð þvaglát
n 3. Sjóntruflanir
n 4. Kláði í nára eða fótum
n 5. Þreyta
þyngdina varðar,“ segir Vilhjálmur í
samtali við DV.
ofþyngd og hreyfingarleysi
Í skrifum sínum bendir Vilhjálmur
á að fáar ógnir séu jafn alvarlegar
heilsu manna í dag og sykursýkin
sem hefur tugfaldast í tíðni á síð-
astliðnum áratug. Hann segir að
of hár sykur í blóði sé miklu hættu-
legri en kólesterólið og að sykur-
sýkin tengist ofþyngd og hreyfing-
arleysi föstum böndum, slæmu
mataræði, fátækt og skorti á félags-
legum úrræðum. „Sjúkdómur sem
síðan veldur öðru fremur alvarleg-
ustu sjúkdómunum í þjóðfélaginu
í dag, eins og til dæmis heilablóð-
föllum, hjarta- og æðasjúkdóm-
um, háum blóðþrýstingi, nýrna-
sjúkdómum, blindu, alvarlegum
sýkingum og taugasjúkdómum.
Sjúkdómum sem ættu í eðli sínu
fyrst og fremst af vera aldurs-
bundnir við fullorðna, en sem börn
með sykursýkina geta líka feng-
ið,“ segir Vilhjálmur Ari á heima-
síðu sinni. Hann segir einnig að
greind sykursýki í dag sé sjúkdóm-
ur sem sé aðeins eins og toppur á
ísjaka af miklu stærra þjóðfélags-
legu vandamáli. Þar sem marg-
falt fleiri séu vangreindir eða með
forstig sjúkdómsins sem boði ekki
gott. Hann segir að tíðni sykursýki
eigi eftir að margfaldast miðað við
tölur sem við sjáum í dag að öllu
óbreyttu. Aðallega vegna vaxandi
fjölda fólks sem á við ofþyngd að
stríða og er jafnvel þegar komið
með fyrstu einkenni skerts sykur-
þols. Nokkuð sem læknar í heilsu-
gæslunni eru þegar farnir að sjá í
dag í vaxandi mæli.