Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 3
Fréttir 3Mánudagur 30. apríl 2012 Mikill stuðningur við þjóðaratkvæði enda Sjálfstæðisflokks eru þeirrar skoðunar. Hjá kjósendum annarra flokka og þeirra sem eru óákveðn- ir fer hlutfall þeirra sem telur nauð- syn að endurskoða stjórnarskrána lægst í 80 prósent en mest er þörfin talin hjá kjósendum Hreyfingarinn- ar, eða 93 prósent. Fáir hafa kynnt sér málið náið Allavega tvær kannanir sem gerðar hafa verið varpa ljósi á hversu vel almenningur telur sig hafa kynnt sér ferlið við breytingu á stjórnar- skránni. Árið 2010 gerði Capacent könnun á þekkingu fólks til fyrir- komulags stjórnlagaþingskosning- anna. Rúmlega þriðjungur kvaðst þá þekkja fyrirkomulagið vel eða fullkomlega, fimmtungur hvorki vel né illa, en tæplega 46 prósent sögðust þekkja fyrirkomulagið illa eða alls ekki. Tæpu ári síðar gerði MMR könnun á því hvort almenn- ingur hefði kynnt sér frumvarpið. Í könnuninni kom fram að rúmlega helmingur þeirra sem tóku afstöðu hafði ekkert kynnt sér frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnarskrár, eða 53,1 prósent. Hér er um tvær ólík- ar kannanir að ræða, sem mæla ekki afstöðu til sama hlutar. Ann- ars vegar er um þekkingu á kosn- ingafyrirkomulagi að ræða og hins vegar þekkingu á tillögum stjórn- lagaráðs. Væntanlega hafa þessi hlutföll tekið einhverjum breyt- ingum frá því að kannanirnar voru gerðar. Þær ættu þó að gefa ein- hverja mynd af áhuga almennings á að taka virkan þátt í endurskoðun stjórnarskrárinnar. n Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára. Svarfjöldi: 870 einstaklingar. Dagsetning framkvæmdar: 12.-17. apríl 2012. Eftir flokkum Stuðningur við tillögur stjórnlagaráðs miðað við stuðning við stjórnmálaflokka Hefur þú kynnt þér frumvarpið? Meirihluti styður 66,1% vill að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá 86% vilja að ný stjórnarskrá Íslands innihaldi ákvæði um að náttúruauðlindir séu þjóðareign 44,6% vilja óbreytt ákvæði um þjóðkirkju, miðað við núverandi stjórnarskrá 84,2% vilja persónukjör í meira mæli en nú er í kosningum til Alþingis 77,4% vilja að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt 86,9% vilja að ákveðinn fjöldi kjósenda geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu Heimild: MMR – 27. apríl 2012 Afstaða almennings Framsóknarflokkur Já 38,5% 61,5% Nei Sjálfstæðisflokkur Já 27,1% 79,2% Nei Samfylkingin Já 94,8% 5,2% Nei Vinstri-grænir Já 91,5% 8,5% Nei Aðrir flokkar Já 95,7% 4,3% Nei Óákveðnir/skila auðu Já 77,1% 22,9% Nei H ei M il d : M M R n Já n Nei 33,9% 66,1% n Já n Nei 46,9% 53,1% Heimild: Könnun MMR um hug almennings til atkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að breyttri stjórnarskrá. Spurt var: „Vilt þú að tillögur Stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá? Niðurstöður sýna sýna fjölda þeirra sem tóku afstöðu. 54.9% prósent tóku afstöðu aðrir svöruðu ekki eða vildu ekki gefa upp sína skoðun.“ n Verði ekki haldin n Verði haldin og ráði úrslitum n Verði haldin og sé leiðbeinandi 24,7% 47,7% 27,6% Tæpur helmingur vill að atkvæða- greiðslan ráði úrslitum Heimild: Könnun MMR til afstöðu almennings á hlutverki þjóðaratkvæðagreiðslu vegna tillagna stjórnlagaráðs. Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Svarfjöldi: 818 einstaklingar. Dagsetn- ing framkvæmdar: 15.–18. ágúst 2011. Heimild: Könnun MMR frá 12 september 2011. Spurt var: „Hefur þú kynnt þér frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár?“ A ron Pálmi Ágústsson, fyrr- verandi refsifangi í Tex- as í Bandaríkjunum, þarf í næstu viku að svara til saka í fjársvikamáli sem lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu hefur höfðað gegn honum. Eftir því sem DV kemst næst á málið ræt- ur sínar að rekja aftur til ársins 2010 þegar minnst þrjú hótel á höfuð- borgarsvæðinu kærðu Aron Pálma til lögreglunnar fyrir að hafa gist á hót- elunum án þess að greiða fyrir. Þrjú hótel kærðu DV sagði frá hótelmálinu í ágúst 2010 en þá var greint frá því að meint brot hafi verið framin á Hótel Borg, Hótel Holti og Plaza-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Þá fékkst það staðfest hjá Ómari Smára Ármanns- syni aðstoðaryfirlögregluþjóni að kærurnar þrjár væru til rannsókn- ar. Snorri Valsson, móttökustjóri á Hótel Holti á þeim tíma, sagði í samtali við DV að Aron Pálmi hefði þegið ýmsa þjónustu á hótelinu án þess að greiða fyrir. DV greindi frá því að brot Arons Pálma væru þess háttar að hann hefði ýmist stungið af frá reikningum eða ekki átt fyrir þeim daginn eftir. „Ég veit til þess í gegnum samskipti okkar við önnur hótel að viðkomandi hefur farið á mörg önnur hótel. Þegar við áttuð- um okkur á þessu mynstri þá höfð- um við samráð um að sjá til þess að þetta gerðist ekki aftur. Það eiga all- ir að sjálfsögðu að greiða fyrir þjón- ustuna og sem betur fer er þetta sjaldgæft. Þegar svona kemur upp tökum við það föstum tökum. Þetta er meira en við getum sætt okkur við án þess að tilkynna það til lögreglu,“ sagði móttökustjórinn í samtal við DV um málið þá. Átt erfitt uppdráttar Þriðjudaginn 8. maí næstkomandi verður ákæra lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu á hendur Aroni Pálma vegna fjársvika þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Eftir því sem DV kemst næst snýst málið um meint hótelsvik. DV hefur ekki náð í Aron Pálma vegna málsins. Aron Pálmi virðist hafa átt erfitt með að fóta sig eftir að hann var lát- inn laus úr fangelsi í Texas þar sem hann var aðeins þrettán ára gamall dæmdur til þungrar refsingar fyr- ir kynferðisbrot gegn ungum dreng. Hann var áberandi í fjölmiðlum hér á landi eftir að hann var látinn laus en hefur undanfarin misseri látið lít- ið fyrir sér fara. DV hefur sagt frétt- ir af árangurslítilli atvinnuleit hans á undanförnum árum og þá viður- kenndi hann að þurfa að safna dós- um og flöskum til að ná endum sam- an um hver mánaðamót. aron PálMi fyrir dóM n Ákærður fyrir fjársvik n Stakk af frá hótelreikningum„Þetta er meira en við getum sætt okkur við án þess að tilkynna það til lögreglu Í slæmum málum Aron Pálmi var kærður til lögreglu fyrir að svíkja gistingu og þjónustu út úr hótelum í Reykjavík. Ákæra verður þingfest í héraðsdómi í næstu viku. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is K arolinska-sjúkrahúsið í Stokk- hólmi hefur krafist þess að ferðaskrifstofan All Iceland fjar- lægi tafarlaust af vefsíðu sinni staðhæfingu þess efnis að „hið heims- fræga Karolinska Institute“ hafi hafið rannsóknarprógramm til að staðreyna góð áhrif detox-meðferðar Jónínu Benediktsdóttur. Auglýsingin hefur verið tekin niður en í henni stóð að rannsóknir Karolinska-sjúkrahússins reyndist Detox heilsuhótelunum á Ís- landi mikill stuðningur. „Þetta er bara rógur“ Jónína Benediktsdóttir segist ekki hafa aðkomu að málinu og segist aldrei hafa sett fram fullyrðingu um að detox- meðferð hennar sé studd rannsókn- um Karolinska-sjúkrahússins. „Þetta er bara einhver rógur sem mér kemur ekki við. Þetta hlýtur að hafa verið mis- skilningur forsvarsmanna þessa fyrir- tækis. Reyndar veit ég til þess að það er verið að vinna rannsókn á detox- meðferðum, það er íslenskur læknir, doktor Ásgeir Helgason, sem vinnur hjá Karolinska-sjúkrahúsinu. Ég hef bara það að segja að detox-meðferðir mínar hafa sýnt góðan árangur í fjölda ára og eru studdar fjölmörgum rann- sóknum.“ engin rannsókn var gerð Frá Karolinska bárust hins vegar svör frá Claes Keisu, upplýsingafulltrúa sjúkrahússins. „Ferðafyrirtækið All Icelend segist hafa fengið upplýsingarnar frá fyrr- verandi eiganda Detox-hótelsins, Jón- ínu Benediktsdóttur. Hún hefur nú selt reksturinn. Þegar haft var samband við All Iceland sögðust þeir hafa fengið rangar upplýsingar. Þeir brugðust við með því að taka detox-ferðatilboðið af heimasíðu fyrirtækisins. Fyrir mörgum árum hafði Jónína samband við íslenskan lækni sem er prófessor við sjúkrahúsið. Hún bað hann um að framkvæma rannsókn á Detox-meðferð sinni. Hann kynnti fyrir henni matsform fyrir sjúklinga hennar til að fylla inn í. Engin rann- sókn var gerð. Þegar ég talaði við hann í gær hafði hann ekki minnstu hug- mynd um að Detox-hótel settu fram staðhæfingar í nafni sjúkrahússins.“ Auglýsing fjarlægð n Vitnað í rannsókn sem aldrei var gerð Rógur og misskilningur Jónína Benediktsdóttir segir málið byggt á mis- skilningi. Hún hafi aldrei vitnað í rannsóknir Karolinska-sjúkrahússins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.