Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 15
Erlent 15Mánudagur 30. apríl 2012
Vantar þig stuðning við bak eða háls? Góðan kodda
eða jafnvel bara góða sessu í traktorinn eða í stólinn?
Sessur
Stuðningur við bakið, nokkrir styrkleikar
og stærðir. Sætissessur í vélina
eða bara heima. Mjúkar og þola vel bleytu.
Stuðningsborð
Auðvelt að þrífa
Veitir góðan stuðning
Stuðningskragi
Veitir góðan stuðning við háls
Góður í bílinn og í flugvélina
Hnépúði
Góður við hnéóþoli á næturnar
Koddi
Fínir koddar með svampfyllingu
bæði fyrir heimili og ferðaþjónustu
Útivistarkoddi
Þolir vætu, góður í útileguna
Vörurnar er auð
velt að þrífa,
Sessurnar eru va
tnsheldar
Saumastofan
BUST
Símar 453 8091, 862 7017
NÝ
PR
EN
T
Slitsterkt efni
Eldflaugar gæta
ÓlympíulEikagEsta
n Húsþök verða notuð sem eldflaugapallar
B
resk stjórnvöld virðast ætla
að ganga langt til að tryggja
öryggi þeirra sem fylgjast
með eða keppa á Ólympíu
leikunum í London sem
fram fara í sumar. Kannaðir hafa
verið möguleikar á því að koma fyr
ir eldflaugum á þökum íbúðarhúsa
í grennd við staði þar sem Ólymp
íuviðburðir fara fram. Íbúar á þess
um stöðum hafa fengið sent kynn
ingarefni þar sem þeim er sagt frá
í stuttu máli að þeir megi búast við
að hermenn og vopnaðir lögreglu
menn hafi aðsetur í nánd við heim
ili þeirra.
Bretar virðast ætla að gera allt sem
í þeirra valdi stendur til að tryggja að
ekki verði gerð neins konar hryðju
verkaárás á leikana í sumar. Aðgerðir
bresku lögreglunnar á föstudag þykja
gefa mynd af viðbúnaðinum í kring
um Ólympíuleikana.
Með eldflaugar á þakinu
Ekki virðist vera eining á meðal
íbúa í London um þennan mikla
viðbúnað lögreglunnar. Hafa íbú
ar í nánd við Ólympíuleikvanginn
sjálfan gagnrýnt að þurfa að búa
við stöðuga nærveru hermanna
og hættuna á því að eldflaug verði
skotið af húsþökum þeirra. „Tónn
inn er bara að þetta sé frábært og
að við séum heppin, en þetta er alls
ekkert eðlilegt. Þetta er ekki eitt
hvað sem fólk á að þurfa að þola,“
segir Brian Whelan, íbúi í blokk
sem verður notuð sem eldflauga
skotpallur, í samtali við breska
blaðið The Guardian.
„Ég hef skoðað þetta á netinu
og ég held að þetta sé ekki eitthvað
sem má skjóta upp í fjölmennu
hverfi eins og Tower Hamlets,“ seg
ir Whelan og vísar til eldflauganna
og hverfisins sem hann býr í. Varn
armálaráðuneyti Bretlands hafði fá
svör þegar blaðamaður The Guardi
an leitaði eftir skýringum á hvernig
ákvörðunin var tekin um að setja
upp eldflaugarnar og af hverju.
Sérþjálfaðir
lögreglumenn á vakt
Þetta er þó ekki það eina því breska
lögreglan sýndi styrk sinn í umsátri
sem myndaðist á föstudag fyrir utan
byggingu á Tottenham Court Road í
hjarta London. Þar hafði maður ráð
ist inn og hótað að sprengja sig. Við
brögð lögreglunnar vöktu athygli en
umtalsverður fjöldi sérþjálfaðra og
vopnaðra lögreglumanna tók sér
stöðu fyrir utan bygginguna. Breska
blaðið The Daily Mail gerir því
skóna að aðgerðir bresku lögregl
unnar á föstudag og sá styrkur sem
hún sýndi þá sýni hversu vel lög
reglan er undirbúin fyrir Ólympíu
leikana.
Meðal sérsveita bresku lögregl
unnar sem voru í viðbragðsstöðu
á föstudag var CO19sveit lögregl
unnar. Þá sérsveit skipa sérþjálfað
ir lögreglumenn sem ekki klæðast
óeirðabúningum, eru sérstaklega
vel vopnaðir og hafa hlotið mikla
þjálfun, þar á meðal hjá breska
hernum. Þar að auki var hefðbundin
sérsveit lögreglunnar, klædd óeirða
búningum og vopnuð hríðskota
byssum.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Þetta
er alls
ekkert eðlilegt
n Karabína svo að
auðveldara sé að
draga sérsveitar-
mann í burtu ef
hann slasast og
getur ekki gengið.
n Glock SLP 9 mm
skammbyssa sem
geymir 17 skot.
n Lambhúshetta til
að koma í veg fyrir
að sérsveitarmenn-
irnir þekkist.
n Samskiptabúnaður með
öruggri línu svo hægt sé að
tala við aðra í sérsveitinni.
n Skothelt
vesti.
n Sérstaklega
styrkt títaníum-úr
sem vinsælt er
meðal sérsveitar-
manna í hernum.
n Skot fyrir Heckler and
Koch G36 hríðskota-
byssu sem geymir
25 skot. Sérsveitar-
maðurinn á myndinni
er ekki með byssuna en
venjulega halda sér-
sveitarmenn á henni.
n Önnur Glock SLP
9 mm skammbyssa
sem geymir 17 skot.
Vopnaðir sérsveitarmenn
M
y
n
d
r
eu
te
r
S