Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Side 16
Sandkorn
K
onur eru hvergi í heiminum
sterkari en á Íslandi. Meiri-
hluti ráðherra er konur, for-
sætisráðherrann er kona,
helsti trúarleiðtoginn er kona
og nú stefnir allt í að forsetinn verði
líka kona. Á Íslandi er það sannara en
nokkurs staðar annars staðar að kon-
ur geta allt. Það var hins vegar með
áherslu á kvenkynið sem kyn fórnar-
lambsins sem aðstandendur Hörpu
ákváðu að merkja konum 20 fatlaðra-
stæði í bílastæðakjallara sínum.
„Konur hafa fulla ástæðu til að
vera hræddar á yfirgefnum bílastæð-
um eða í bílastæðahúsum,“ skrifaði
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, baráttu-
kona gegn kynferðisofbeldi, um stæð-
in. „Kannski ættum við frekar að velta
fyrir okkur þeim forréttindum karla
sem felast í því að vera óhræddir við
að verða fyrir árás kynferðisbrota-
manns – jafnvel þótt þeir séu einir á
ferli síðla kvölds.“
Í samhengi þessarar umræðu er
kvenkynið ekki aðeins flokkað sem
fórnarlambskynið, heldur er karlkyn-
ið sett í annan flokk, ýmist sem ger-
endur eða óhultir. Ekki fórnarlömb.
Karlmenn eru oftar fórnarlömb
árása en konur, þannig að skiptingin
liggur ekki svona. Það er þó augljós-
lega annars konar og oft minna var-
anlegt tjón að verða fyrir öðru líkam-
legu ofbeldi en kynferðislegu.
Rökin fyrir því að setja sérstök
kvennastæði voru tvenns konar. Ann-
ars vegar hin raunverulega hætta sem
konur væru í, að þær yrðu fyrir kyn-
ferðislegri árás á meðan þær gengju
úr bílnum í tónleikasalina, og hins
vegar til að sefa ótta þeirra við slíka
árás. „Konur eru oft óöruggar og líður
illa í slíkum húsum og þessum stæð-
um því gjarnan komið fyrir nálægt
inngöngum,“ útskýrði einn af hönn-
uðum bílastæðakjallarans.
Kynferðisbrot eru oftast framin
af þeim sem þekkja fórnarlambið,
fremur en af óþekktum árásaraðila
sem bíður í skuggasundi. Það hafa
ekki fundist nein dæmi um kynferð-
isárásir í bílastæðahúsum á Íslandi,
þótt það megi ekki útiloka. Færa mætti
sömu rök fyrir sérstökum bílastæð-
um fyrir konur annars staðar, til að
minnka tímann sem þær þurfa að vera
á svæðinu þar sem þær eru ekki taldar
óhultar.
Ímyndum okkur sérstök bílastæði
fyrir kynþætti, þar sem hugmyndin er
að stytta gönguleiðir þeirra úr bílum
í hús, svo það verði síður ráðist á þá.
Þótt það sé fallega hugsað eru það
ógnvænleg skilaboð. Það er óvíst hvort
öryggistilfinning kvenna aukist við
það að staðfesta og útmála ótta þeirra
með því að setja kynjamerki kvenna
á bílastæðin. Það undirstrikar að þar
séu þær öruggari í þessum stæðum,
en um leið að þær séu í hættu annars
staðar. Þetta eru skilaboð um að það
sé ástæða til að óttast, ástæða til að
hlaupa úr bílnum inn í hús.
Hættan á kynferðisbrotum er
raunveruleg, en að búa til bíla-
stæði fyrir annað kynið sem mögu-
leg fórnarlömb er ekki að ráðast á
vandamálið sjálft. Þetta elur á ótta og
staðalímyndum. Þetta er ekki jafn-
rétti. Andstaðan við kvennastæði
varð þess valdandi að stjórnendur
Hörpu ákváðu að breyta þeim í fjöl-
skyldustæði. Kannski var andstaðan
að hluta til vegna þess að Íslendingar
sjá ekki ástæðu til að skilgreina kon-
ur sem fórnarlömb á opinberum
svæðum. Þetta er spurning um við-
horf. Hér eru konur biskupar, forsetar,
fótboltamenn og forsætisráðherrar,
en ekki sérstök fórnarlömb umfram
aðra.
Karl í atvinnuleit
n Nú þegar Karl Sigurbjörns-
son er að hætta sem biskup
við fremur lítinn orðstír
velta menn fyrir sér hvað
hann taki sér næst fyrir
hendur. Kenningar hafa
verið uppi um að hann vilji
gerast vígslubiskup á Hólum
í Hjaltadal en það er ekki
staðfest. Aftur á móti hefur
Kristján Björnsson, sóknar-
prestur í Vestmannaeyjum,
boðið sig fram til embættis-
ins. Hugsanlega mun hann
berjast um embættið við
Karl.
Davíð líka dæmdur
n Í Sandkorni á dögunum
var fjallað um alla þá sjálf-
stæðismenn úr Eimreiðar-
hópnum
sem hlotið
hafa dóma.
Gleymdist
þar að nefna
að sjálfur Dav-
íð Oddsson,
þáverandi
forsætisráðherra, var dæmd-
ur fyrir meiðyrði um Jón
Ólafsson athafnamann sem
hann líkti við þjóf og talaði
um sem mesta skattsvikara
Íslandssögunnar. Voru um-
mæli forsætisráðherra dæmd
dauð og ómerk. Dómurinn
stendur óhaggaður.
Hjartaáfall Loga
n Logi bergmann Eiðsson hef-
ur undanfarið verið í Bítinu
á Bylgjunni ásamt Kolbrúnu
Björnsdóttur.
Þykir Logi á
köflum hafa
farið á kost-
um í morg-
unsárið. Á
föstudag lýsti
hann því þeg-
ar hann vaknaði með sáran
verk fyrir brjósti. Fór hann
þegar á bráðamóttöku þar
sem læknar lögðust á eitt við
að styrkja lífslíkur hans. Þrátt
fyrir ítarlegar rannsóknir
kom ekkert í ljós. Sjálfur upp-
götvaði hann síðar að dóttir
hans á það til að sparka í
svefni og hann var marinn.
Strætó-
bílstjóralegur
n Borgarfulltrúinn Gísli
Marteinn Baldursson var í dá-
litlum bobba þegar upplýst
var í Bítinu á Bylgjunni að
hann hefði
sagt um Karl
Gústaf Svía-
konung að
hann væri
strætóbíl-
stjóralegur.
Logi Berg-
mann Eiðsson rifjaði upp um-
mælin. Hófst þá mikið yfir-
klór hjá Gísla þar sem hann
reyndi að sannfæra fólk um
að hann hefði ekki verið að
niðurlægja strætóbílstjóra
heldur að tala niður kóng-
inn sem hefði klæðst eins og
strætóbílstjóri.
Ég hafði tilfinn-
ingu fyrir því
Kristrún Ösp sá svip á barninu sem minnti hana á Svein Andra. – Lífið
Fórnarlambavæðing„Þetta eru
skilaboð um
að það sé ástæða
til að óttast
T
akmarkið er að ekkert barn
verði fyrir ofbeldi og að ekkert
barn vaxi úr grasi með þeim
hætti að það beiti aðra ofbeldi.
Ég hef trú á því að það sé hægt. Það
gerist ekki á einni nóttu, heldur með
því að halda alltaf áfram og gef-
ast aldrei upp. Því bundinn er sá er
barnsins gætir.“ Þannig mæltist Höllu
Gunnarsdóttur í ávarpsorðum þegar
þrír ráðherrar, mennta- og menn-
ingarmálaráherra og velferðarráð-
herra, auk mín sem innanríkisráð-
herra, undirrituðu samning til þriggja
ára um átak til vitundarvakningar um
kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Verkefnisstjórn ráðuneytanna þriggja
hefur verið skipuð til að ýta átakinu úr
vör og er Halla fulltrúi innanríkisráðu-
neytis og jafnframt formaður stjórnar-
innar.
Vitundarvakning um ofbeldi
Samningurinn er liður í aðgerðum
stjórnvalda vegna yfirstandandi full-
gildingar á sáttmála Evrópuráðsins
um varnir gegn kynferðislegri mis-
notkun og misneytingu gegn börnum.
Samningurinn felur í sér að efnt verði
til vitundarvakningar um málefnið og
fræðslu beint að almenningi, réttar-
kerfinu, fólki sem starfar með börnum
og síðast en ekki síst, að börnunum
sjálfum. Með fyrirvara um samþykki
Alþingis um fjárveitingar gildir hann
til þriggja ára. Á þessu ári verður 25
milljónum króna varið til vitundar-
vakningarinnar og áætlað er að verja
16 milljónum á ári næstu tvö árin.
Á árum áður lágu ofbeldisbrot
gegn börnum í þagnargildi. Íslending-
um var tamt að líta svo á að kynferðis-
legt ofbeldi væri aðeins til úti í hinum
stóra heimi, ekki á litla Íslandi, þar
sem allir þekkja alla. Þetta var ekki
rétt. Kynferðislegt ofbeldi þrífst á Ís-
landi eins og í öðrum samfélögum og í
óhugnanlega miklum mæli.
Að taka í útrétta barnshönd
Ég hef stundum sagt frá því þegar ég
sótti ráðstefnu í Rómarborg á vegum
Evrópuráðsins. Þar komu fram ung-
menni sem sjálf höfðu mátt þola kyn-
ferðislegt ofbeldi í æsku og sögðu sína
sögu sína. Sérlega minnisstæður varð
mér ungur, franskur maður, sem sagði
frá þrautagöngu við að fá mál sitt tekið
fyrir dóm og þeim erfiðleikum sem
hann þurfti að ganga í gegnum meðan
á málsmeðferð stóð. Hann sagði frá
árangurslausum tilraunum sínum til
að biðja „kerfið“ um hjálp. Ekkert svar,
engin viðbrögð, enginn sem tók í út-
rétta hönd hans.
Í framhaldinu varð mér ljóst
hve mikilvægt það væri að efna til
umræðu við fulltrúa réttarkerfisins
– einnig hér á landi – um hvort og
hvernig tekið væri í leitandi útrétta,
barnshönd sem bæðist hjálpar; vær-
um við nægilega vel vakandi?
Aðkoma innanríkisráðuneytisins
að vitundarvakningunni er meðal
annars að koma á framfæri reglum
um barnvinsamlegt réttarkerfi, en að
baki þeim reglum býr sú hugmynda-
fræði að réttarkerfi þurfi að laga sig að
þörfum barna, ekki öfugt. Réttarkerfin
voru ekki upphaflega byggð upp með
þarfir barna í huga. Þau eru heimur
hinna fullorðnu, heimur formlegheita,
sem börn geta átt erfitt með að skilja.
Litið er til Íslands sem fyrirmyndar
í þessum efnum vegna stofnunar og
starfsemi Barnahúss, sem er sérstak-
lega sett upp til að taka í hina útréttu
barnshönd.
Gegn andvaraleysi
í mannréttindamálum
Reyndar eru íslensk stjórnvöld að
reisa baráttufána á sviði mannrétt-
indamála almennt. Það er ekki laust
við það hér á landi sem víðar í hinum
iðnvædda heimi að andvarlaeysis hafi
gætt varðandi mannréttindamál. Þá
afstöðu einkennir eins konar blanda
af sofandahætti og sjálfumgleði, ekki
ólíkt því sem var þegar brot gegn
börnum voru aðeins talin geta átt sér
stað einhvers staðar langt í burtu, ekki
hér heima. Síðan móðgast menn og
fyllast vandlætingu þegar við erum
gagnrýnd fyrir þær brotalamir sem hjá
okkur kunni að vera að finna.
Í síðustu viku ræddi ríkisstjórnin
aðkomu Íslands að mannréttindasátt-
málum, þau lög og reglur sem gilda
og síðan hvort samræmi væri í orðum
og framkvæmd. Hér erum við ekki
ein á báti. Nánast alls staðar í lönd-
unum sem okkur eru nátengdust fer
nú fram umræða um þessi efni. Þar á
meðal er rætt um framtíð Mannrétt-
indadómstóls Evrópu. Eitt hundrað og
sextíu þúsund mál bíða nú afgreiðslu
dómsins. Sumar þjóðir vilja takmarka
umfang dómstólsins og draga úr vægi
hans. Aðrar vilja efla hann og styrkja.
Í þeim hópi er Ísland. Enda má full-
yrða að Evrópudómstóllinn hafi haft
jákvæð áhrif á þróun réttarfars á sviði
mannréttindamála í aðildarríkjum
Evrópuráðsins og á það sannarlega
við um Ísland.
Með sama hætti hafa alþjóðlegir
sáttmálar um mannréttindamál bein
áhrif á stöðu mannréttindamála hér
á landi. Vitundarvakningin sem nú
er ýtt úr vör er hluti af fjölþjóðlegu
átaki, undir merkjum Evrópuráðsins,
um varnir gegn kynferðislegu ofbeldi
gegn börnum. Réttindi barna eiga –
eins og önnur mannréttindi – að vera
óbundin af landamærum. Ekkert barn
á að þurfa að lifa við ofbeldi. Það er
markmiðið og þangað förum við, skref
fyrir skref.
Bundinn er sá er barnsins gætir
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 30. apríl 2012 Mánudagur
Hrunið var
að skella á
Skúli Mogensen varð milljarðamæringur sömu helgi og Íslandi hrundi. – DV
„Réttindi
barna eiga
– eins og önnur
mannréttindi –
að vera óbundin
af landamærum
Kjallari
Ögmundur
Jónasson
Leiðari
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is