Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Blaðsíða 22
L itríkur, kaótískur og persónulegur. Þannig lýsir Hörður Sveinsson eigin stíl en hann hefur vakið athygli fyrir ljós- myndir sínar af poppmenningu á Íslandi. Hann hefur myndað þekktustu tónlistarmenn og hljómsveitir landsins, á tón- leikum, fyrir kynningar og blöð auk þess sem hann hefur tekið af þeim portrettmyndir. Nú stendur yfir sýning á verkum hans í Skotinu í Ljós- myndasafni Reykjavíkur. Titill sýningarinnar er Tónaflóð en hann vísar til þess mikla fjölda mynda sem Hörður hefur tekið, þess fjölda listamanna sem hann hefur myndað og síðast en ekki síst til hinnar miklu grósku sem er í ís- lenskri tónlist. Hörður segir að það hafi verið fyrir tilviljun að hann sérhæfði sig í að taka myndir af tónlistarfólki. „Það gerðist bara óvart. Ég var alltaf á tónleikum og tók myndavélina alltaf með. Á endanum fóru hljóm- sveitir að biðja mig um að taka myndir af sér.“ Hann fór líka að vinna sem blaðaljósmyndari og þar var hann alltaf settur í verkefni sem sneru að tónlistarlífinu og sótt- ist eftir því að fá að fara á tónleika. Eins var hann að vinna á Mónitor sem var aðallega tónlistarblað. „Ég hef mikinn áhuga á tónlist og þetta byrjaði eiginlega út frá því. Yfirleitt er líka skemmtilegra að mynda listamenn því þeir eru til í meira flipp en flestir, en þeir eru auðvitað misjafnir eins og annað fólk og sumir eiga það alveg til að vera hundleiðin- legir. Mér finnst skemmtilegra að taka myndir af skemmtilegu fólki. Mér fannst líka mjög gaman að mynda Rassa Prump og Trabant og skora á þá að koma aftur saman. Eins og FM- Belfast liðum og þeim sem eru í Retro Stefson.“ Plötuumslag sem hann gerði með þeim er í miklu uppáhaldi. „Þetta var náið samstarf á milli mín, hljóm- sveitarinnar og grafísks hönnuðar og mér fannst takast vel til. Hugmyndin var sú að þau væru á bát úti á sjó en þetta var allt handgert og svo hann- aði Guðmundur Jörundsson búninga sem voru litríkir og flottir. En svo eru margar uppáhalds á sýningunni líka. Ég reyndi samt að velja myndir með það í huga að þær væru flottar á vegg því þessar myndir voru flestar teknar fyrir blöð eða á tónleikum og þá gilda allt önnur lögmál en þegar þú ert að búa til listaverk. Annars fer það rosa- lega mikið eftir myndinni hvað gerir hana góða, yfirleitt er það bara að það er eitthvað að gerast í henni og að hún sé falleg. En mér finnst pínu erfitt að sýna myndirnar mína svona sem listaverk, því ég geri það sjaldan,“ segir Hörður brosandi. „Ég er bara svo heppinn að vinna sem ljósmyndari og geta unnið við það sem mér finnst skemmtilegt, hitta nýtt fólk á hverj- um degi og reyna að vera skapandi og gera eitthvað nýtt. Það er krefjandi en mér líkar það. Þú þarft að þjálfa augað og reyna að ná því besta á hverjum stað.“ Að lokum hvetur hann alla til þess að koma og sjá sýninguna. „Það eru svo fáir sem fara á þetta safn, Ljós- myndasafn Reykjavíkur, en það er ekki bara skemmtilegt heldur er það einnig merkilegt og það er synd að það viti ekki fleiri af því. Svo það ættu allir að drífa sig.“ ingibjorg@dv.is 22 Menning 30. apríl 2012 Mánudagur Reykjavík Music Mess Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí næstkomandi. Hátíð er haldin á Faktorý Bar og Kex Hosteli. Meðal þeirra sem koma fram eru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Jarse frá Finnlandi, My Bubba & Mi frá Danmörku, Cheek Mountain Thief, Leg- end, Úlfur og fleiri. Miðasala hefst 4. maí en frítt verður inn á þá viðburði sem fara fram á Kex Hostel. Jóel á Kex Saxófónleikarinn Jóel Páls- son kemur fram á næstu tónleikum djasstónleikarað- arinnar á Kex Hostel Skúla- götu, þriðjudaginn 1. maí. Á tónleikunum kemur fram kvartett Jóels Pálssonar en auk Jóels skipa hann þeir Ey- þór Gunnarsson, Valdimar K. Sigurjónsson og Matthías Hemstock. Þeir flytja þekkt djasslög og líka frumsamið efni. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og aðgangur er ókeypis. Aukatón- leikar Ný- danskrar Uppselt er á fyrirhugaða af- mælistónleika hljómsveitar- innar Nýdanskrar í Hörpu þann 22. september næst- komandi. Því hefur verið bætt við aukatónleikum þennan sama dag klukkan 23. Einnig verða tónleikar í menningarhúsinu Hofi á Akureyri 29. september. Ein- valalið tónlistarfólks kemur fram með Nýdanskri til að fagna 25 ára afmæli þeirra. Það á meðal Högni Egils- son, Sigríður Thorlacius, KK, Svanhildur Jakobsdóttir og fleiri góðir. Skemmtilegast að mynda listamenn n Hörður Sveinsson ljósmyndari heldur sýningu á myndum sínum Tónaflóð Tónlistaráhuginn varð til þess að Hörður hefur óvart sérhæft sig í því að taka myndir af tónlistarmönnum. Hann er nú með sýningu á verkum sínum. Mynd sigTryggur ari Myndar þekkta tónlistarmenn Retro Stefson (fyrir ofan) og FM Belfast eru meðal þeirra hljómsveita sem Hörður hefur myndað. Hann kann best við að mynda listamenn. M ér finnst það alls ekki endurspegla þá upplif- un sem ég hef af mínu heimaþorpi,“ sagði fé- lagi minn um Þorpið sem Bubbi Morthens og Mugison flytja á samnefndri plötu Bubba. Þetta var, held ég, sextánda umræðan sem ég hef átt um þetta lag og þeim hefur fjölgað eftir því sem fleiri heyra það. Við sem sátum þetta aprílkvöld og ræddum sýn Bubba á hið dæmigerða þorp vorum ekki sammála um hana. „Rétt upp hönd sem býr ennþá í þorpinu sem hann ólst upp í!“ kallaði einn á meðan umræðan stóð sem hæst. Engin hönd fór á loft í tíu manna hópi. Fleiri úr mínum nánasta vina- hópi, sem allur kemur af lands- byggðinni, hefðu getað verið þarna en samt hefði engin hönd farið á loft. Þessi óvísindalega könnun varpaði ljósi á stað- reynd málsins er varðar þennan hóp, unga fólkið er fyrir sunnan að dreyma, gamla fólkið varð eftir heima. Hér vil ég vera Nöturleg er sú staðreynd sem Bubbi og Mugison syngja um í þessu lagi en hún stenst að mörgu leyti þó hún eigi ekki al- gjörlega við allt það sem er að gerast á landsbyggðinni. Það magnaða við þetta lag er að það hafa nánast allir skoðun á því, slæma sem góða, og oftast beinist sú skoðun að textanum. Menn fara í mikla vörn þegar Bubbi syngur um afskaplega leiðinlegan raunveruleika, fólksfækkun á landsbyggðinni og horfna tíma. Þetta er sannkallaður lands- byggðarblús en þó er blásið kjarki í brjóst með von um að þorpið hjarni við. „Hér vil ég vera hér á ég heima,“ syngja félagarnir að lokum og er ósk- andi að allir fái jöfn tækifæri til að láta þann draum rætast, hvar svo sem heima er. ansi mögnuð En víkjum að plötunni sem er ansi mögnuð þegar litið er til þess að tæpt ár er síðan Bubbi gaf út síðustu plötu sína, Ég trúi á þig. Þá söng Bubbi um hásk- ann sem fylgir ástinni, biðraðir og feitar stelpur. Núna er það þverskurður af hinu dæmigerða þorpi og konubloggarinn sem Bubbi syngur um. Það er magn- að að hugsa til þess hve þétt platan er miðað við hve stutt er síðan hann gaf út plötu síðast. Á plötunni eru klassísk Bubba- lög sem aðdáendur hans ættu að geta fellt sig við sem og hinn almenni hlustandi. Af lögum á plötunni situr eitt afgerandi eftir í huga mér. Fjórtán öskur á þykkt heitir það og tekst Bubba einna best upp í því lagi þegar kemur að texta og melódíu. Óskin, Ballaðan um bræðurna og Skipstjóravalsinn eru einnig lög sem fengu mig til að staldra við og hlusta ögn betur. Að öðru leyti siglir þessi plata lygnan sjó. Fagmennin sem leika með Bubba á þess- ari plötu setja smekklegan svip á hana og skila henni ljúflega í höfn. Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Tónlist Þorpið Bubbi Morthens Útgefandi: Sena. Tegund: Popp. Sannkallaður landsbyggðarblús ansi mögnuð plata „Af lögum á plötunni situr eitt lag afgerandi eftir í huga mér. Fjórtán öskur á þykkt heitir það og tekst Bubba einna best upp í því lagi þegar kemur að texta og melódíu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.