Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 27
Fólk 27Mánudagur 30. apríl 2012 Spaugstofan stefnir á Everest n Pálmi Gestsson er kominn með fjallgöngubakteríuna B róðir minn kveikti í mér. Ég hef alltaf gengið eitt- hvað en hann dró mig út í þetta að fullu,“ segir leik- arinn Pálmi Gestsson sem er duglegur að ganga á fjöll. Pálmi er í gönguhópnum Hugrúnar- hópnum sem gengur saman upp á eitt fjall í viku undir leið- sögn Hugrúnar Hannesdóttur. Í vikunni verður það Úlfarsfell en uppáhaldsfjöllin hans Pálma eru flest fyrir vestan. „Traðarhyrna er í mestu uppáhaldi en ég er meira og minna alinn upp í því fjalli. Þar var minn leikvöllur og róló. Í sjálfu sér á ég ekkert uppá- haldsfjall hér fyrir sunnan en ég fer mikið upp á Esjuna. Það er handhægast og þægilegast. Og mátulega erfitt,“ segir Pálmi sem er farinn að mæla tímann sinn upp á fjöllin. „Það er ekk- ert aðalatriði og ég er alls ekki að leggja áherslu á að flýta mér í fjallgöngum. Í gær setti ég samt persónulegt met þegar ég fór upp á Þverfellshornið á innan við klukkutíma. Ég var nokkuð ánægður með það. Enda seg- ir það svolítið til um hvernig formið er á manni.“ Pálmi, sem er frá Bolungar- vík, hefur látið hafa eftir sér að hann leiti vestur til að núllstilla sig. Aðspurður segir hann fjall- göngurnar hafa sömu áhrif og Vestfirðirnir. „Það er afstress- andi og heilandi að ganga á fjöll þótt ég sé enginn öfga fjall- göngumaður. Ég hef samt gam- an af þessu og hef gert meira í seinni tíð. Fjallganga er áhrifa- ríkasta líkamsrækt sem ég hef kynnst en fyrir utan líkams- ræktina sjálfa er svo stórkost- legt fyrir andann og líkamann að anda að sér ferska loftinu og njóta útsýnisins.“ Pálmi segir félagana í Spaug- stofunni lengi hafa dreymt um að fara saman í gönguferð að grunnbúðum Everest-fjalls. „Það er draumur okkar á milli. Siggi er gamall göngugarpur, jöklafari og hjálparsveitarmað- ur og Kalli gengur líka. Ég veit að vísu ekki hvort Örn sé mikið að fara að hlaupa á fjöll.“ Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SE DISEL 09/2006, ekinn 104 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, 20“ felgur, skjárinn ofl. Verð 5.990.000. Raðnr. 322117 - Jeppinn er í salnum! HYUNDAI TUCSON 4X4 LUX 10/2007, ekinn 88 Þ.KM, bensín, sjálf- skiptur, leður, vindskeið, filmur ofl. Verð 2.490.000. Rnr.321992 - Jepplingurinn er á staðnum! FORD F150 SUPER CAB HARLEY- DAVIDSSON 4WD 02/2006, ekinn 76 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Mjög flott eintak! Verð 3.330.000. Raðnr. 284091 - Pikkinn er á staðnum! BMW 530D 12/2003, ekinn 241 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, nýtt lakk. Verð 3.390.000. Raðnr. 282173 - Sá þýski er á staðnum! AUDI A4 SEDAN 1,8T S-LINE 10/2007, ekinn 56 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.990.000. Raðnr.118051 - Bíllinn er á staðnum! TOYOTA LAND CRUISER 120 VX 12/2005, ekinn 111 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, vindskeið, filmur ofl. Tilboðsverð 4.590.000. Raðnr.250041 -Jeppinn fallegi er á staðnum! VW TOUAREG V6 01/2006, ekinn aðeins 66 Þ.km, sjálfskiptur, leður, lúga ofl. Verð 3.490.000. Raðnr. 250105 - Jeppinn er á staðnum! MMC PAJERO DID 3.2 38“ breyttur Árgerð 2004, ekinn 177 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 4.390.000. Raðnr.118312 - Jeppinn stóri er á staðnum! TOYOTA HILUX DOUBLE CAB D/C, SR 35“ 02/2008, ekinn 38 Þ.km, 3,0l dí- sel, sjálfskiptur. Verð 5.390.000. Raðnr. 282006 - Pallbíllinn er á staðnum! KAWASAKI VN900 CUSTOM SPECIAL EDITION 04/2010, ekið 4 Þ.km, lítur út sem nýtt! Verð 1.350.000. Raðnr.284281 - Hjólið er í salnum! FORD MUSTANG Árgerð 1965, V8 289cc, sjálfskiptur. Raðnr. 282066 - Sá flotti er í salnum! FORD EXPLORER LTD 4X4 Árgerð 2006, ekinn 86 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.390.000 Tilboðsverð 2.790.000. Raðnr.283890 - Jeppinn er á staðnum! Tek að mér Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Funahöfða 1, 110 Reykjavík S. 567 4840 www.hofdahollin.is Minkapels til sölu, ný yfirfarinn Upplýsingar í síma: 898-2993 Beinteinn. Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti- vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur ,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690 Fjör hjá dætrunum D ótturfélagið á Lauga- vegi var með opnun- arpartí síðastliðið fimmtudagskvöld en verslunin var opnuð formlega á föstudaginn. Þær Oddný Jóna Bárðardóttir og Kristín Ásta Matthíasdóttir eiga búðina sem selur kven- föt. Fjölmargir kíktu í veisluna og skoðuðu vöruúrvalið. n Dótturfélagið opnað á Laugaveginum Dæturnar Þær Kristín Ásta Matthíasdóttir og Oddný Jóna Bárðardóttir eru dæturnar að baki Dótturfélaginu. MynDir aníta elDjárn Skoðuðu úrvalið Þær Íris Tara og Michelle kíktu á úrvalið í búðinni. Gylltu kisurnar Erna Margrét Oddsdóttir, Hafdís Þorleifsdóttir og Jana Maren Óskarsdóttir sem allar starfa í Gyllta kettinum kíktu í partíið. Sætar mæðgur Eydís var heppin því mamma hennar splæsti á hana útskriftardressi í Dótturfélaginu. Stuð Anna Brá sá um fjörið í veislunni. tískupinnar Hallur og Baddi voru í stuði í opnunarteitinu. Bræður Pálmi og Þórarinn Gestssynir ganga reglulega saman á fjöll.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.