Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Síða 6
6 Fréttir 14. maí 2012 Mánudagur
Ósáttir við framsetningu
n Sjálfstæðisflokkurinn gerir athugasemd við ársreikning Reykjavíkurborgar
V
ið umræðu um ársreikn-
ing Reykjavíkurborgar 2011
gerðu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins athuga-
semdir við framsetningu reiknings-
ins, sem að þessu sinni er settur
upp án skýrs samanburðar við upp-
haflega fjárhagsáætlun borgarinn-
ar. Í tilkynningu sem borgarstjórn-
arflokkur Sjálfstæðisflokksins sendi
frá sér kemur fram að borgarfulltrú-
ar telji að vafi leiki á því hvort slík
framsetning standist sveitarstjórn-
arlög, sem skýrt kveða á um það að
ársreikningur skuli settur fram með
þeim hætti að endanleg niðurstaða
fjárhagsáætlunar sé borin saman
við upphaflega áætlun. Í tilkynn-
ingunni segir að þar sem meiri-
hlutinn gat ekki staðfest að þessi
villandi framsetning stæðist um-
rædd lög tilkynntu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins við afgreiðslu
reikningsins að þeir myndu leita
álits innanríkisráðuneytisins á mál-
inu.
„Það er nauðsynlegt að fá úr
því skorið hvort framsetning árs-
reikningsins standist lög eða ekki.
Við höfum margítrekað gert at-
hugasemdir við það að reikningur-
inn sé settur upp með þeim hætti
að næstum ómögulegt sé að bera
hann saman við þær áætlanir sem
hann á að byggja á. Ársreikningar
borgarinnar hafa ekki verið sett-
ir fram með þessum hætti í langan
tíma og með ólíkindum að meiri-
hlutinn skuli standa að slíkri aftur-
för í upplýsingagjöf, þrátt fyrir ný
og skýrari lög um ársreikninga frá
síðasta hausti. Slík framsetning er
ekki aðeins villandi og vond þeg-
ar kemur að því að skoða stöðu og
þróun fjármála sveitafélaga, held-
ur brýtur hún beinlínis gegn því
markmiði laganna að ársreikning-
ar séu aðgengilegir og auðvelt sé að
bera saman upphaflegar áætlan-
ir og endanlega niðurstöðu,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn, í tilkynningu.
É
g svara ekkert upp á það,“ seg-
ir Jóhannes Jónsson, kenndur
við Bónus, þegar hann spurð-
ur um eignarhaldið á félaginu
Moon Capital S.á.r.l. í Lúxem-
borg sem er stærsti einstaki hlut-
hafi fjölmiðlafyrirtækisins 365.
Samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu 365 er félagið í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur, tengdadóttur Jóhann-
esar, og er hún sögð eiga 90 prósent
af hlutafé félagsins í gegnum ýmis
eignarhaldsfélög. Ingibjörg er eig-
inkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
sem verið hefur aðaleigandi 365 síð-
astliðin ár.
Fjölmiðlamaðurinn Ingimar Karl
Helgason vakti athygli á leyndinni
yfir eignarhaldinu á Moon Capital á
bloggsíðu sinni fyrir skömmu.
Misræmið
Svar Jóhannesar er þeim mun sér-
stakara þar sem fram hefur kom-
ið í fjölmiðlum að hann hafi verið
eigandi að 50 prósenta hlut í fær-
eysku verslanakeðjunni SMS í gegn-
um eignarhaldsfélagið Apogee sem
aftur var í 100 prósenta eigu Moon
Capital í Lúxemborg. Hann seldi
hlut sinn í SMS í mars síðastliðnum.
Jóhannes getur því ekki hafa átt hlut
í SMS í gegnum Apogee, dótturfélag
Moon Capital, án þess að hafa einn-
ig verið í hluthafi í 365 á sama tíma.
Jóhannes hefur hins vegar aldrei
verið sagður vera hluthafi í 365 op-
inberlega.
„Það er ekki rétt“
Þegar Jóhannes er spurður að því
hvort hann eigi hlutabréf í 365 neit-
ar hann því hins vegar, þrátt fyrir að
það geti ekki staðist á sama tíma að
hann hafi átt SMS í gegnum Apogee
og Moon Capital án þess að eiga líka
hlut í 365. „Það er ekki rétt. Ég ætla
ekki að segja þér það. Þetta er prívat-
mál.“
Þegar Jóhannes er spurður að
því hvort hann hafi ekki átt eignirn-
ir í Færeyjum í gegnum Apogee og
Moon Capital sem seldar voru fyrir
skömmu segist hann hafa átt þær „að
hluta til“. Aðrir aðilar en Jóhannes
áttu þá eignirnir í Færeyjum á móti
honum.
Spurður hvernig á þessu misræmi
standi segist Jóhannes ekki ætla að
ræða það. „Ég mun ekki svara þér
neinu með þetta.“
Upplýsingarnar til
fjölmiðlanefndar
Jóhannes lýsir þeirri skoðun sinni
að almenningi á Íslandi komi það
ekki við hverjir eigi Moon Capi-
tal. Blaðamaður segir Jóhannesi þá
að starfandi sé sérstök fjölmiðla-
nefnd sem eigi að óska eftir upplýs-
ingum um eignarhald fjölmiðla frá
fyrirsvarsmönnum þeirra. Á heima-
síðu fjölmiðlanefndar kemur fram
að Ingibjörg Pálmadóttir ráði yfir 90
prósentum af hlutafé 365, þar af eru
43,5 prósent A-hlutabréf í gegnum
Moon Capital S.á.r.l. Þessar upplýs-
ingar virðast ekki vera réttar ef marka
má eignarhald Jóhannesar yfir Apo-
gee og færeysku eignunum í gegnum
Moon Capital. Fjölmiðlanefnd hefur
hins vegar engar heimildir til að leita
réttra upplýsinga um eignarhald fjöl-
miðla láti einstaka fjölmiðlar þeim í
té misvísandi eða rangar upplýsing-
ar.
DV sendi spurningu um eignar-
haldið á Moon Capital til Ingibjarg-
ar Pálmadóttur, meints aðaleiganda
365, og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
eiginmanns hennar. Ingibjörg svar-
aði ekki spurningu blaðsins um hver
ætti Moon Capital. Það gerði Jón Ás-
geir Jóhannesson hins vegar með eft-
irfarandi hætti: „Konan mín er fjár-
hagslega sjálfstæð og var það löngu
áður en ég kynntist henni eins og al-
þjóð veit. Upplýsingar um eigend-
ur 365 liggja fyrir á netinu sjá hér að
neðan um eignarhald.“
Jón Ásgeir neitar því að upplýsa
um hver eigi Moon Capital. Fjár-
festirinn svaraði ekki spurningu DV
um málið þegar nánari skýringa á
eignarhaldi Moon Capital var leit-
að.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Ingibjörg sögð eiga 90 prósent í 365 n Jóhannes á í stærsta hluthafa 365„Konan mín er
fjárhagslega
sjálfstæð og var það
löngu áður en ég kynntist
henni eins og alþjóð veit.
eignarhald á 365
leyndarhjúpur um
Neita að upplýsa Jóhannes átti
eignir í Færeyjum í gegnum hlut-
hafa sem hann seldi nýverið. Hann
neitar því þó að hann eigi í 365.
Villandi „Það er nauðsynlegt að fá
úr því skorið hvort framsetning árs-
reikningsins standist lög eða ekki,“
segir Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Leturprent
fékk afslátt
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt prentsmiðjuna Leturprent
til að greiða Skjánum rúmlega
hálfa milljón króna fyrir kostun á
þættinum The Office sem sýndur
var á Skjá einum. Samningur um
að Leturprent kostaði þáttinn var
undirritaður í september 2009
þegar Skjár einn var enn í opinni
dagskrá fyrir alla. Samningur-
inn kvað meðal annars á um að
auglýsingar frá Leturprenti væru
sýndar fyrir og eftir hvern þátt. Eft-
ir að samningurinn var undirrit-
aður barst forsvarsmönnum Let-
urprents bréf þar sem fram kom
að til stæði að breyta Skjá einum
þannig að stöðin yrði áskriftar-
stöð. Dagskráin yrði því lokuð
þeim sem ekki væru með áskrift.
Þetta voru forsvarsmenn Letur-
prents ekki sáttir við og töldu að
gildi auglýsinga fyrirtækisins yrði
lítið sem ekkert eftir breytinguna.
Skjárinn fór fram á að Leturprent
myndi greiða eina milljón króna.
Héraðsdómur dæmdi fyrirtækið
hins vegar til að greiða rúmlega
hálfa milljón króna, eða 530 þús-
und krónur. Því má segja að Letur-
prent hafi í raun fengið afslátt eftir
að Skjár einn varð að áskriftarstöð.
Gaf upp kenni-
tölu bróður síns
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt nítján ára karlmann í níu
mánaða fangelsi fyrir umferðar-
og skjalabrot og rangar sakargiftir.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa
ekið bifreið án þess að hafa öðlast
ökuréttindi frá höfuðborgarsvæð-
inu að verslun Olís á Selfossi.
Í umrætt skipti bar bifreiðin
skráningarnúmer annarrar bif-
reiðar. Þegar lögregla stöðvaði
akstur bifreiðarinnar gaf maður-
inn upp nafn og kennitölu bróður
síns og kom því þannig til leiðar að
hann var sakaður um ofangreinda
háttsemi. Þá var maðurinn einnig
ákærður fyrir að hafa í annað skipti
ekið bifreið án þess að vera með
ökuréttindi.
Maðurinn játaði brot sitt fyrir
dómi en hann hefur áður gerst sek-
ur um refsiverða háttsemi. Dóm-
urinn yfir manninum er skilorðs-
bundinn til tveggja ára.
Stunginn með
hníf á Laugavegi
Tilkynnt var um líkamsárás á Lauga-
vegi í Reykjavík um áttaleytið á
laugardagskvöld, en þar var maður
stunginn með hníf. Hann var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild. Árásar-
maðurinn var enn ófundinn síðdegis
á sunnudag.
Á ellefta tímanum á laugardags-
kvöld var maður handtekinn eftir að
hafa ógnað fólki á veitingahúsi við
Laugaveg með hnífi. Starfsmaður á
staðnum fékk skurð í lófann þegar
hann afvopnaði manninn. Árás-
armaður flúði af vettvangi en var
handtekinn stuttu seinna.
Þá var stúlka skorin í andliti við
veitingastað í Bankastræti um fimm-
leytið að morgni sunnudags. Hún
var flutt á slysadeild.
Síðan var maður handtekinn í
Grófinni á sunnudagsmorgun eftir
að hann sló tvær stúlkur í andlitið.