Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Síða 8
8 Fréttir 14. maí 2012 Mánudagur
Ó
lafur Ragnar Grímsson, for-
seti og forsetaframbjóðandi,
hóf kosningabaráttu sína
um helgina. Á sunnudags-
morgun mætti hann í viðtal
í útvarpsþættinum Sprengisandi á
Bylgjunni þar sem hann ræddi fer-
ilinn, framtíðina, baráttuna og mál-
efnin. Gagnrýndi hann harkalega
fjölmiðla og mótframbjóðanda sinn,
Þóru Arnórsdóttur, sakaði DV um
að vera viðbót við kosningabaráttu
hennar og sagði eiginmann henn-
ar, Svavar Halldórsson, hafa fengið
að misnota aðstöðu sína sem frétta-
maður á fréttastofu Ríkisútvarpsins
í áróðursskyni fyrir Þóru á meðan
framboð hennar var í undirbúningi.
Þá ræddi hann einnig um mikilvægi
þess að forsetinn væri ekki skraut-
dúkka heldur öryggisventill, mál-
skotsréttinn og möguleikann á því að
setja frumvarp að lögum um sjávar-
útvegsmál í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sagði hann jafnframt að til þess gæti
komið að forsetinn lenti í þeirri stöðu
næsta vor að skipa þyrfti utanþings-
stjórn. Sagði hann einnig að Jóhanna
Sigurðardóttir gæti ekki fyrirgefið
honum vegna Icesave-málsins og því
hefði hún talað gegn honum. Fleira
kom þar til umræðu en forsetinn hélt
baráttunni áfram um helgina.
Opnaði hann heimasíðuna olafur-
ogdorrit.is þar sem hægt er að fylgj-
ast með framboðinu, fésbókarsíðu
fyrir sig og aðra fyrir eiginkonuna,
Dorrit Moussaieff. Hann tók síðan á
móti gestum og gangandi á Lauga-
veginum þar sem blaðamaður hitti
hann fyrir og spurði nánar út í ýmis
ummæli hans í viðtalinu á Bylgjunni,
þar á meðal um fjölmiðla, en Ólaf-
ur Ragnar brást reiður við spurning-
um blaðamanns DV. Sá hluti viðtals-
ins verður birtur núna en framhald
verður í næsta blaði þar sem Ólafur
Ragnar fjallar um sýn sína á forseta-
embættið, málskotsréttinn, sjávarút-
veginn og fleira.
Stöðugur reytingur er af fólki í
kosningamiðstöðinni og forsetinn
sinnir öllum. Á meðan tekur dóttir
hans, Svanhildur Dalla, á móti blaða-
manni og ljósmyndara DV en hún er
með litla stúlku í fanginu, hana Guð-
rúnu Katrínu, átta mánaða hnátu.
Ljóst er að Ólafur Ragnar á góða að
en fleiri úr fjölskyldunni eru á staðn-
um, þar á meðal Guðrún Tinna, dótt-
ir hans, með tvíburana sem eru nú
orðnir þriggja mánaða gamlir og
eiginmaður hennar, Karl Pétur Jóns-
son. Enn er langt í kosningarnar sem
fara fram þann 30. júní og búið er að
koma upp aðstöðu fyrir börnin. Ólaf-
ur Ragnar kemur síðan að sófanum
þar sem hans er beðið, biður blaða-
mann um að skipta um sæti við sig og
viðtalið hefst.
Baráttan er hafin
Blaðamaður: Þú ert byrjaður?
Forsetinn: „Já, já, ég taldi nauð-
synlegt að gera það. Vegna þess að
kjörstjórnirnar eru byrjaðar að kalla
inn framboðslistana. Það má segja
að þetta lokaskeið sé formlega tekið
við og tímabært að hefja baráttuna.“
Blaðamaður: Þú varst búinn að
gefa það út að þú ætlaðir ekki að
koma fram í fjölmiðlum fyrr en fram-
boðsfrestur rynni út.
Forsetinn: „Nú hafa kjörstjórn-
irnar víða um land ákveðið að fá
þessa lista fyrr inn. Þannig að fram-
bjóðendur þurfa að ganga frá þess-
um framboðum með formlegum
hætti fyrr en reiknað var með í upp-
hafi þessa máls fyrir nokkrum mán-
uðum. Þá reiknaði ég með að þessi
skil yrðu um það bil sem framboðs-
fresturinn væri úti en nú vilja kjör-
stjórnir fá listana til sín áður svo þær
séu búnar að fara yfir þá áður en
formlegum fresti er lokið. Það skipt-
ir ekki höfuðmáli, það er svona viku,
tíu daga munur á því. Það er ekkert
stórmál í sjálfu sér.“
Blaðamaður: Mér fannst hart að
heyra hvernig þú talaðir um DV í út-
varpinu í morgun og mig langar að
biðja þig til að færa rök fyrir því að
DV sé í kosningaherferð fyrir Þóru.
Forsetinn: „Það er augljóst. Þú
þarft ekki annað en að fletta blaðinu
undanfarnar vikur og mánuði til
að sýna það. Við getum tekið nokk-
ur dæmi til að sýna það. Hver mað-
ur með sæmilega dómgreind sér
það auðvitað þegar þau efnistök eru
skoðuð. Auðvitað er DV frjálst að
gera það. Það er fullt af blöðum úti í
heimi sem taka afstöðu með mönn-
um og málefnum. Það er í sjálfu sér
ekkert gagnrýnivert að blöð taki af-
stöðu með einum á móti öðrum. Það
er alveg sjálfsagt að menn geri það
en menn þurfa þá að kannast við það
en ekki reyna að fela það eða láta sér
koma á óvart ef um það er fjallað.
Það var til dæmis helgarblaðsút-
tekt á mér, með frægri fyrirsögn á
forsíðu; Forsetinn sem vill ekki fara,
sem var túlkun blaðsins á mínum
orðum og gjörðum og full af nei-
kvæðum hliðum sem á engan hátt
var réttsýn túlkun. Síðan hafa verið
skrifaðir leiðarar. Síðan þessi maka-
lausa rangtúlkun á ferð minni á sjáv-
arútvegssýninguna í Brussel þar sem
mér var uppálagt að lofsyngja kvóta-
kerfið sem var algjörlega út í hött. Ég
var að tala á málþingi sem íslenskir
aðilar í samstarfi við ameríska efndu
til um gæðavottun í sjávarútvegi og
sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda. Öll
ræðan fjallaði að meginhluta um að
vernda fiskistofnana og ég rakti það
hvernig Íslendingar hafa á grundvelli
hafrannsóknastofnana og upplýs-
ingatækni getað tryggt það að fiski-
stofnunum sé viðhaldið og ræddi
mikilvægi þess að vera með alþjóð-
lega umhverfisvottun á sjávarafurð-
um. Síðan var einhver ein málsgrein
þar sem ég lýsti með skýrum hætti
þeim megindeilum sem standa um
kvótakerfið á Íslandi, annars vegar
um byggðalögin og hins vegar um
það hvort almenningur fái sann-
gjarnt mat á veiðunum. DV notaði
þetta síðan til að slá því upp að ég
hefði verið að lofsyngja kvótakerfið.
Þessi dæmi og fjölmörg önnur
á sama tíma og öll umfjöllun um til
dæmis Þóru hefur verið með jákvæð-
um brag, manneskjulegum brag og
svo framvegis. En það er ekki ég einn
sem sé þetta. Þessi ummæli sem ég
nefndi í Sprengisandi og heyrði á
förnum vegi um að DV stæði við dag-
lega viðbót við kosningabaráttu Þóru
Arnórsdóttur er bara staða blaðs-
ins og sá veruleiki sem það stend-
ur frammi fyrir. Blaðinu er frjálst að
hafa þá afstöðu en það verður líka að
hafa burði til að kannast við þá.“
„Ertu komin til
að koma í dEilur?“
n Ólafur Ragnar Grímsson segir DV vinna að framboði Þóru n „Tímabært að hefja baráttuna“„Þá get ég ekki
hjálpað þér. Ég er
búinn að segja allt sem ég
þarf að segja um þetta og
ef það dugir þér ekki eða
þú skilur það ekki þá get
ég ekkert hjálpað þér.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Hefur baráttuna Ólafur Ragnar Grímsson hóf kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar um helgina og sagði vinnubrögð fjölmiðla
alvarleg fyrir lýðræðið í landinu. Mynd sigtryggur ari
Sigtryggur Ari Jóhannsson
ljósmyndari sigtryggur@dv.is