Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Page 15
Erlent 15Mánudagur 14. maí 2012
Snéri á þjófinn
É
g vissi að ég þyrfti að gera þetta.
Annars myndi ég aldrei sjá hjólið
aftur,“ segir Bandaríkjamaðurinn
Danny Lesh sem ákvað á dögun-
um að taka lögin í sínar hendur. Lesh
varð fyrir því óláni að hjólinu hans var
stolið í New York um þarsíðustu helgi,
en hann greiddi 75 þúsund krón-
ur fyrir það þegar hann keypti það.
Lesh ákvað að svipast um eftir hjól-
inu á vinsælum uppboðsvefsíðum á
borð við eBay og Craigslist. Og það var
einmitt á vefsíðu Craigslist sem Lesh
kom auga á hjólið sitt nokkrum dög-
um eftir að því var stolið. Lesh þekkti
hjólið strax enda hafði hann límt á það
nokkra límmiða sem þjófurinn virðist
ekki hafa haft fyrir að taka af.
Lesh hafði samband við seljand-
ann sem vildi einungis fá 100 dali, eða
rúmar tólf þúsund krónur fyrir hjólið.
Hann sagðist vilja skoða hjólið og þeir
ákváðu að mæla sér mót svo Lesh gæti
skoðað gripinn betur. Lesh spurði selj-
andann hvort hann mætti prófa hjólið
með því að hjóla stuttan hring. Lesh
tók af stað og kom ekki aftur.
„Þegar ég hafði ekki skilað mér
hringdi hann í mig og hótaði að
hringja í lögregluna,“ segir Lesh
hlæjandi. Þegar hann kom heim
setti hann inn skilaboð á Craigslist
þar sem hann varaði við viðkomandi
seljanda. Hann segir að fólk þurfi
að hafa varann á gagnvart dýrum
vörum sem seldar eru mjög ódýrt á
netinu. Miklar líkur séu á að um þýfi
sé að ræða.
Náði hjólinu Lesh ætlaði svo sannarlega ekki að láta þjófinn komast upp með að stela hjólinu.
n Danny Lesh stal hjólinu sínu af þjófnum
D
avid Simpson, 24 ára Breti
sem situr nú fangelsi í Mið-
Afríkulýðveldinu grunaður
um átján morð, gæti ver-
ið fórnarlamb samsæris
heimamanna. Simpson var hand-
tekinn fyrir sex vikum þegar hann
gekk fram á átján sundurskorin lík
í frumskógum Mið-Afríkulýðveld-
isins. Simpson heldur því fram að
hann hafi verið handtekinn þegar
hann tilkynnti líkfundinn til yfir-
valda. Simpson er eigandi fyrirtækis
sem skipuleggur veiðiferðir í Afríku
en meðeigandi fyrirtækisins, Svíinn
Erik Mararv, var einnig handtekinn
grunaður um verknaðinn. Breska
blaðið The Daily Mail greindi frá
því um helgina að mögulegt væri að
hópur heimamanna hefði reynt að
klína sök á þá félaga.
Litlar sannanir
„Heimamenn hafa líklega reynt að
koma sökinni á þá. Annaðhvort af
því að þeir (Simpson og Mararv)
komu í veg fyrir að þeir stunduðu
ólöglegar veiðar á svæðinu eða af
því að þeir fengu ekki vinnu fyrir fyr-
irtækið eða voru reknir frá því,“ seg-
ir heimildarmaður The Daily Mail.
Blaðið hefur einnig eftir heimildum
sínum að þær sannanir sem lögregla
búi yfir séu einungis byggðar á fram-
burði heimamanna.
Simpson og Mararv hefur nú ver-
ið haldið í fangelsi í rúmar sex vikur
við skelfilegar aðstæður. Verði þeir
fundnir sekir gætu þeir átt dauða-
dóm yfir höfði sér.
Algjör martröð
Blaðamaður The Daily Mail náði tali
af Simpson í síðustu viku og í sam-
talinu hélt hann fram sakleysi sínu.
Hann er í fangaklefa með hátt í 80
öðrum föngum og lýsti reynslu sinni
sem algjörri „martröð“.
„Þetta er fáránlegt. Það vita allir
að ég kom ekki nálægt þessu. Þeir
vita að þetta voru menn á vegum
Konys,“ sagði Simpson í viðtalinu.
Vitað er til þess að menn á vegum
skæruliðaforingjans Josephs Kony,
leiðtoga samtakanna Andspyrnu-
hers drottins, hafi haldið til á svip-
uðum slóðum og líkin fundust.
„Af því að ég er hvítur þá hljóta
þeir að telja að ég sé ríkur. Þegar þeir
handtóku mig hefði ég getað borg-
að milljón evrur til að fá að ganga
laus gegn tryggingu – og það er al-
gjörlega út í hött. Ég veit ekki hvað
mun gerast. Þetta er algjör martröð.
Ég sef á gólfinu og fæ ekki einu sinni
teppi til að breiða yfir mig eða dýnu
til að liggja á. Ég vil bara að þetta taki
enda,“ sagði Simpson í viðtalinu.
Peter Simpson, faðir Davids,
segist hafa miklar áhyggjur af syni
sínum. „Hann segist geta sofið en
ég veit ekki hvaða áhrif þetta mun
hafa á hann til lengri tíma litið,“ seg-
ir Peter.
Hafðir fyrir rangri sök
n David Simpson og Erik Mararv hugsanlega fórnarlömb samsæris í Mið-Afríkulýðveldinu„Heimamenn hafa
líklega reynt að
koma sökinni á þá.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Veiðimaður Simpson starfrækir fyrirtæki
í Afríku ásamt félaga sínum, Svíanum Erik
Mararv sem einnig er í haldi lögreglu.
Gæti fengið dauðadóm David Simpson gæti átt dauðadóm yfir höfði sér verði hann
fundinn sekur um morðin.