Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 19
Neytendur 19Mánudagur 14. maí 2012
Slepptu
Skaðlegu
efnunum
E
ld
sn
ey
ti
Algengt verð 257,3 kr. 256,9 kr.
Algengt verð 257,1 kr. 256,7 kr.
Höfuðborgarsv. 257.0 kr. 256.6 kr.
Algengt verð 257,3 kr. 256,9 kr.
Algengt verð 259,4 kr. 256,9 kr.
Melabraut 257,1 kr. 256,7 kr.
Frábær þjón-
usta og ódýr
n Lofið að þessu sinni fær bíla-
verkstæðið Max 1 í Jafnaseli en DV
fékk eftirfarandi sent frá ánægðum
viðskiptavini: „Þar á bæ greindu
menn bilun og hringdu svo til að
lýsa upp á krónu kostnaði
við fyrirhugaða viðgerð.
Mætti með bílinn daginn
áður en skoðun og viðgerð
höfðu verið bókuð.
Þeir tóku bílinn strax
og luku viðgerðinni
samdægurs. Frábær
þjónusta og ódýr.“
Evran dýrari
um borð
n Lastið að þessu sinni fær Ice-
land Express en flugfarþegi sendi
eftirfarandi; „Ég var í flugi með
Iceland Express og keypti mat og
drykk í vélinni. Ég var aðeins með
evruseðla á mér og það sem ég
vil fá að lasta er að félagið tekur
um 10 prósenta þóknun fyrir að
taka á móti evruseðlum, það er að
segja gengið á íslensku krónunni
um borð er 150 krónur á evruna,
í stað 165 króna. Það sem ætti að
kosta 10 evrur kostar því 11 evrur.
Ástæðan fyrir þessu er að sögn
flugfreyju að það kostar svo mikið
að fara með evruseðla í bankann.“
Heimir Már Pétursson, upp-
lýsingafulltrúi Iceland Express, út-
skýrir að bankarnir
taki þóknun fyrir
að skipta erlendri
mynt. „Þannig
er kaupgengið á
evru hjá Lands-
bankanum í Leifs-
stöð í dag 157 krónur en
sölugengið 167 krónur.
Ég efast um að þetta sé
eitthvað öðruvísi hjá öðrum flug-
félögum,“ segir hann.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
n Þvotta- og hreinsiefni innihalda mörg efni sem eru skaðleg heilsu og náttúru
B
örn eru viðkvæmari fyr-
ir þvotta- og hreinsiefnum
en fullorðnir. Slík efni skilja
alltaf eftir sig leifar í um-
hverfinu. Smábörnum er
hættara við að fá leifarnar á og í sig
þar sem þau skríða um á gólfum og
því mikilvægt að takmarka hreinsi-
efnin á heimilinu. Það er því mik-
ilvægt að nota slík efni hóflega og
takmarka þau í umhverfi barnanna.
DV hefur áður fjallað um skaðleg
efni í snyrtivörum en það eru fleiri
vörur sem við kaupum og eru á
heimilum okkar sem eru varasöm,
sér í lagi fyrir börnin. Þar á meðal
eru þvotta- og hreinsiefnin og fyrst
og fremst skal árétta að geyma slík
efni ávallt á stað þar sem börn ná
ekki til. Umhverfisstofnun heldur
úti vefnum graenn.is þar sem finna
má mikinn fróðleik um skaðleg efni
í umhverfi okkar og hvernig við get-
um komist hjá því að nota þau.
Bakteríudrepandi efnin óþörf
Á graenn.is segir að þvottaefni inni-
haldi sum hver efni sem safnast
fyrir í náttúrunni og séu afar slæm
þar sem flest hreinsiefni enda í nið-
urföllunum og þar með úti í um-
hverfinu. Þá er nefnt sem dæmi að
gólfsápur innihaldi mismunandi
bón- og vaxefni og aðrar vörur efni
til að fjarlægja bón- og vax. Þessar
vörur séu framleiddar til að vernda
gólf fyrir sliti og gera þrifin auðveld-
ari en þau innihaldi efni sem geti
haft afar slæm áhrif á umhverfið.
Ýmsar aðrar hreinsivörur inni-
haldi bakteríudrepandi efni sem
geti valdið lyfjaóþoli hjá bakteríum.
Slík efni ætti því að nota í algjöru
lágmarki enda óþarfi að nota slík
efni á heimilinu.
Ilmefni í þvottaefnum eru óþörf
samkvæmt upplýsingum á síðunni.
Í þvottaefnum eru efni sem losa
óhreinindi en oftast eru sett ilmefni
sem geta valdið ofnæmi. Það sama
á við um mýkingarefni sem eru alls
ekki nausynleg við þvotta og ætti
helst ekki að nota.
Gott er að velja þvotta- og
hreinsivörur sem merktar eru
Svaninum en það er opinbert nor-
rænt umhverfismerki. Yfir 6.000
vörur og þjónustumerki bera nú
Svansmerkið og því ættu neytend-
ur að finna þá vöru sem þeir þurfa
sem ber merkið.
Notið minna!
Góð leið til að minnka áhrif hreinsi-
efna á heimilum er einfaldlega að
nota minni skammta. Hægt er að
prófa sig áfram með því að minnka
skammtinn hægt og rólega og
halda sig við þann minnsta skammt
sem gefur góðan árangur. Á Íslandi
er vatnið steinefnasnautt („mjúkt“)
en minna þvottaefni þarf í slíkt vatn
en í steinefnaríkt („hart“) vatn.
1 Sparaðu pening Skiptu dýra hreinsiefninu út fyrir edik. Það má
nota sem mýkingarefni, gluggahreinsi og
margt fleira.
2 Hreinn ofn Settu bökunarplötu með álpappír í botninn á ofninum.
Þá þarftu ekki að þrífa hann eins oft.
3 Óhreinn örbylgjuofn Settu nokkrar sítrónusneiðar í vatnsskál
og settu hana í örbylgjuofninn. Láttu
hann ganga í um það bil 10 mínútur. Þegar
tíminn er liðinn þarftu rétt að strjúka yfir
ofninn með
rakri tusku.
Óhreinindin
nánast leka
af og lyktin
verður fersk.
4 Kók í klósettið Til að hreinsa klósettið að innan og ná föstum
óhreinindum úr skálinni má hella gömlu
Coka-Cola í skálina og láta standa í
nokkra tíma. Skálin verður glansandi fín
á eftir.
5 Haltu sturtuhengi hreinu Settu hengið á nokkurra mánaða
fresti í bleyti í blöndu af fimm dl af vatni
og 1/4 dl af ediki.
6 Skínandi kopar Tómatsósa gerir koparinn hreinan. Smyrðu
tómatsósu á koparhlutinn og láttu liggja
á í 10 mínútur. Skolaðu sósuna svo af með
vatni og nuddaðu hlutinn með bómull.
7 Vond lykt í ísskápnum Ef það er vond lykt í ísskápnum,
jafnvel eftir að hann hefur verið þrifinn,
er gott ráð að setja skál með kaffikorgi
í ísskápinn í sólarhring. Súra lykt má
fjarlægja með því að smyrja skápinn að
innan með súrmjólk eða jógúrt. Þurrkið
af með vatni eftir sólarhring. Athugið að
þrífa einnig affallið þar sem lyktin gæti
stafað frá því.
8 Matt parket Blandið smáræði
af ediki saman við kalt
vatn og skúrið. Parketið
verður glansandi fínt
á eftir.
9 Rykfallin hljóðfæri Ná má ryki úr gítar með því að setja
hnefafylli af þurrum hrísgrjónum inn í
kassann gegnum opið. Hristið varlega.
Snúið gítarnum við og hellið grjónunum
á dagblað.
10 Óhreinar innstungur Svartar rákir á innstungum, sem
fara ekki af með vatni og sápu, er hægt
að hreinsa með strokleðri.
11 Ryk á raftækjum Tölvur og sjónvörp draga til sín ryk
en það þarf ekki sérstök efni
til að koma í veg fyrir það.
Strjúktu heldur af tækj-
unum með blöndu af volgu
vatni og ediki.
12 Hreinsið gólf-teppi Hægt er að gefa teppi
ferskt útlit á ódýran og vistvænan hátt
með því að strá á það vænum skammti
af matarsóda. Látið liggja í korter og
ryksugið svo vel. Teppið verður hreint,
öll meindýr eru á bak og burt og lyktin af
teppinu verður betri.
13 Heimatilbúinn rúðuvökvi Blandið saman glæru
ediki við vatn og setjið í
úðabrúsa. Edik klýfur fitu
og nær fram góðum gljáa.
Strjúkið yfir með krumpuðu
dagblöðum. Prentsvertan
eykur gljáann.
14 Hreinsun ljósa Slökkvið ljós áður en perurnar eru þvegnar.
Notið klút til að taka utan um peruna ef
þið getið ekki beðið lengi. Sniðugt er að
setja nokkra vanilludropa í klútinn þegar
þið strjúkið yfir hana. Þegar kveikt er á
perunni eftir þrifin leggur ljúfan ilm um
herbergið.
15 Dökkir pottar Ef álpottar eru orðnir
dökkir að innan má lýsa
þá með því að sjóða í þeim
sterka ediksblöndu eða
sykuríkan mat á borð við
lauk, sítrónusafa, rabarbara
eða eplahýði. Látið álpotta ekki liggja í
vatni og geymið ekki í þeim matarleifar.
15 gömul og góð húsráð
Hérna koma hreinsiefnin ekki við sögu
Skaðleg efni
í þvotta- og mýkingarefnum
PFOA og PFOS Gerviefni sem einnig
eru notuð til að gefa ýmsum vörum þá
eiginleika að hrinda frá sér bæði vatni og
fitu. Þau brotna mjög hægt niður í nátt-
úrunni og geta safnast fyrir í lífkeðjunni.
Xylene Ilmefni sem er ofnæmis-
valdandi og brotnar mjög hægt niður í
náttúrunni.
Siloksan Brotnar hægt niður og
safnast því fyrir í lífríkinu. Ekki er mikið
vitað um langtímaverkun efnisins.
Muskxylen Gerviilmefni sem
brotnar hægt niður og safnast fyrir í
náttúrunni. Þannig getur það náð háum
styrk í dýrum og mönnum. Það er talið
geta valdið krabbameini og er mjög
eitrað lífverum í vatni.
Börn og
skaðleg efni
Þegar kaupa skal sjampó handa
börnunum er mikilvægt að skoða
innihald vörunnar og athuga hvaða efni
eru í henni. Best er að velja vöru sem
inniheldur ekki ilmefni.
Sápa og sjampó eru
ekki nauðsynleg þegar
ungbörn eru böðuð
heldur er hreint vatn
nóg. Það á í raun ekki
að nota sjampó fyrr en
barnið fær almennilegt
hár og þá einungis þegar
það er nausynlegt. Þvoðu hár barnsins
í mesta lagi tvisvar í viku og notaðu
lítið af sápu. Mikilvægt er að skola vel
af barninu. Næring er í langflestum
tilfellum ekki nauðsynleg og er varasöm
þar sem flestar slíkar innihalda meira af
skaðlegum efnum en sjampó.
Margar húðvörur sem ætlaðar eru
börnum og ungbörnum innihalda efni
sem eru bæði skaðleg umhverfinu og
heilsunni. Húð barna er viðkvæm og
þarf ekki á mikið af kremum að halda.
Mikilvægt er að skoða innihaldslýsingu
vörunnar. Vörur sem bera Svansmerkið
geta innihaldið ilmefni en þó ekki þær
sem ætlaðar eru börnum. Athugið að
ilmefni geta verið ofnæmisvaldandi.
(forbrugerkemi.dk)
Reynslan hefur sýnt að fólki hættir
til að nota allt of stóra þvottaefna-
skammta. Með minni skömmtum
fer minna af efnum út í umhverfið
og á sama tíma sparast peningar
sem er gott fyrir heimilisbókhaldið.
Veljið Svans- eða umhverfis-
merktar vörur!
Við framleiðslu á Svansmerktum
vörum er tekið tillit til bæði heilsu
og umhverfis. Vörurnar innihalda
eins lítið af hættulegum efnum og
unnt er að komast af með og við
framleiðslu þeirra er losun á hættu-
legum efnum og gróðurhúsaloft-
tegundum í lágmarki.
Geymið þar sem
börn ná ekki til!
Hættulegustu efnin eiga að vera
merkt með hættumerki á appel-
sínurauðum grunni. Allar vörur
merktar á þann hátt á að geyma þar
sem börn ná ekki til. Jafnvel þótt
umbúðirnar séu með loki sem börn
eiga ekki að getað opnað, þá er ekki
alveg hægt að treysta á að þeim tak-
ist það ekki.
Notið trefjaklúta!
Á síðustu árum hafa komið fram
nýjar vörur sem draga úr þörfinni
á hreinsiefnum. Klútar, moppur og
aðrar vörur úr örþráðum nýta yfir-
borðsspennu til að draga í sig ryk
og óhreinindi og eru algjörlega án
hreinsiefna. Til eru margar tegund-
ir af klútum fyrir mismunandi teg-
undir af óhreinindum. Engin hættu-
leg efni eru í þeim, en hins vegar
eru notuð efni við framleiðsluna,
til dæmis litarefni, sem geta verið
skaðleg heilsu og umhverfi. Stund-
um innihalda svona klútar silfur en
það hefur bakteríudrepandi áhrif.
Silfur getur verið skaðlegt fyrir um-
hverfið og getur valdið því að bakt-
eríur verða ónæmar fyrir sýklalyfj-
um. Það er gott ráð að forðast alveg
að kaupa klúta sem innihalda silfur
sem ætti að vera auðvelt vegna þess
að þeir eru sérstaklega merktir.
Heimild: graenn.is
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hreinisvörur Við notum mikið af
hreinsivörum á heimilinu en það er
hægt að þrífa án þeirra.
MYND PHOTOS.cOM
Varhugaverð
hjörtu
Neytendastofa vekur athygli á
blárri hjartalaga lyklakippu með
ljósi sem forvarnarverkefnið
Blátt áfram seldi í herferð sinni
og söluátaki dagana 4. til 6. maí
síðastliðinn. Neytendastofu
hafa borist ábendingar frá neyt-
endum þar sem þeir benda á að
varan geti verið hættuleg. Við
nánari skoðun stofnunarinnar
á vörunni kom í ljós að lykla-
kippan sem er úr mjúku plasti
fer auðveldlega í sundur og falla
þá út fjórir smáhlutir: tvær raf-
hlöður, ljósapera og vír, sem
geta skapað hættu, einkum fyrir
ung börn. Þetta kemur fram á
heimasíðu Neytendastofu.