Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 14. maí 2012 Mánudagur
L
eið Bully á hvíta tjald-
ið var þyrnum stráð.
Krakkar sem leggja í
einelti og hinir eldri
sem láta það viðgangast
eru ekki með neitt hagsmuna-
bandalag, stórfyrirtækjastyrki
eða PR-fulltrúa til að verja
sinn málstað svo hvað veldur?
Nei, styrinn hefur staðið
um aldurstakmark heimilda-
myndarinnar og þótt lend-
ing hafi náðst í áhorfsbanni
yngri en 13 eru margir ennþá
gáttaðir á framferði kvik-
myndaeftirlits Bandaríkjanna.
Vestanhafs verður gríðarlegur
púritanismi og forsjárhyggja
þess valdandi að það sem á að
vernda almenning hefur ítrek-
að þveröfug áhrif.
Klassískt er þegar banda-
rískir rapparar tala gegn eitur-
lyfjaneyslu í tónlist sinni en í
útvarpsvænu útgáfunum kemst
það ekki til skila því orðin sem
ná yfir helstu eiturlyfin eru á
bannlista. Hér birtist mynd um
þjóðþrifamál sem allir ættu að
geta sammælst um. En kvik-
myndaeftirlitið bandaríska
vildi banna myndina yngri en
17 ára vegna orðalags krakk-
anna sem um ræðir. Myndin
fjallar um einelti meðal krakka
á aldrinum 12 til 16 sem væru
þá ekki í stöðu til að sjá alvar-
leika ofbeldis af þessu tagi.
Ég veit ekki með Kanann en á
Norðurlöndum eru alls kyns
viðbragðsáætlanir sem þarf
að halda áfram að endurbæta,
virkja og deila með heiminum.
Sterk herferð sem ég man eftir
sem unglingur gekk út á nauð-
syn þess að krakkar sæju rétt-
lætið í því að standa upp fyrir
samnemendur sína. Því eins og
fram kemur í myndinni gengur
ofbeldið ekki upp ef krakkar
standa upp fyrir hver annan
vitandi af afleiðingum af slíku.
Barinn og stunginn með
blýöntum
Orðalagið sem krakkarnir
nota er raunverulegur hluti af
lífi þeirra og að sjá það í slíkri
heimildamynd gerir það ekki
sjarmerandi á neinn hátt.
Þessi viðbrögð hinna eldri er
vandamál rétt eins og sést í
myndinni hvernig skólayfir-
völd og foreldrar gera oft illt
vera með röngum viðbrögð-
um. Í upphafi sjáum við fjöl-
skyldu Tylers nokkurs segja frá
aðdraganda þess að hann tek-
ur sitt eigið líf í kjölfar eineltis.
Myndin rímar frá fyrstu mín-
útu við íslenskan veruleika,
samanber þann topp af ísjaka
sem við sáum í Sandgerði ný-
verið. Myndin fer síðan í sögu
krakka um gervöll Bandaríkin
sem ráðþrota upplifa ofbeldi
upp á hvern dag. 12 ára Alex er
steríótýpa stráks sem verður
fyrir einelti, hann er fyrirburi,
minni en aðrir, það er auðvelt
að gera grín að útliti hans og
hann ver sig ekki. Matnum
hans er rænt, hann er tækl-
aður, barinn og stunginn með
blýöntum. Hann virðist vera
búinn að gefast upp.
Býður ógeðinu birginn
Að búa í kolrugluðu Biblíu-
beltinu og koma út með kyn-
hneigð sína gerir enn eitt við-
fangsefnið að fórnarlambi, en
málið er að sú neitar að gerast
fórnarlamb og býður ógeð-
inu birginn. En síðan birt-
ist Ja´Maya, ósköp venjuleg
stelpa nema yfir burðagóð í
skóla og íþróttum. Hún verður
einnig fyrir einelti og sýnir
hversu tilviljanakennt það
er að verða skotspónn. Hún
samþykkir ekki árásirnar og
grípur til örþrifaráða sem hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir
hana. Viðbrögð krakkanna eru
oftast ekki rétt enda eru þau
meira ráðþrota en skólayfir-
völd. Í hugum fórnarlamba
eineltis sem hafa verið svikin á
þennan hátt er oft ekkert eftir
annað en að drepa sjálfan sig
eða aðra eins og við höfum
séð ítrekað í skólum Banda-
ríkjanna. Fjöldamorðin í
Columbia-skólanum fyrir þó-
nokkru voru hrikalegt dæmi
um afleiðingar af einelti.
Við erum orðin vön sí-
aukinni upptöku af lífi okkar,
eftirlitskamerum, mynda-
vélasímum og svo framvegis.
Þetta skapar kjöraðstæður fyrir
heimildamyndagerð og Lee
Hirsch fylgist náið með ofbeld-
inu. Hann segir að eftir ákveð-
inn tíma hafi enginn kippt sér
upp við nærveru myndavélar-
innar. Rammi myndarinnar er
ekki í neinum frumlegheitum
en maður upplifir nógu mikinn
hita umfjöllunarefnisins svo
þess gerist ekki þörf. Því mynd-
in lýsir vel upp vandamálið, við
sjáum aðstandendur skipu-
leggja sig og detta í gang með
lausnir. Við fáum von og sjáum
jákvæðu punktana í lífi krakk-
anna. Alex er sérstakur og verð-
ur fyrir grófasta eineltinu en
hann er heill og góður strákur.
Hann refsar ekki yngri systur
sinni, yngri krökkum, dýrum
eða lætur líðan sína bitna á
öðrum sem er svo algengt í
þessari stöðu. Skólayfirvöld
horfa í gegnum vandamálið,
pabbi hans er skilningslítill,
kennir honum hálfpartinn um
og setur hann í ábyrgð fyrir
litlu systur sína. Fái Alex að
þroskast og dafna getur hann
áttað sig á því að það er gott að
vera sérstakur og geta valið sér
vini sem eru ekkert endilega í
laginu eins og rugby-leikmenn,
geta farið í skikkjur, Star Wars-
búninga, hlutverkaspil og notið
velgengninnar sem ófá fórnar-
lömb eineltis hafa náð seinna
meir í lífinu. Mörg stærstu nöfn
okkar tíma eru þeirra sem hafa
orðið fyrir ofbeldi af þessu tagi
en náð að stækka af því, nýtt
sér reynsluna og það að geta
sett sig í spor annarra sem
verða fyrir ofsóknum. Marg-
verðlaunaður leikstjóri þess-
arar myndar varð sjálfur fyrir
einelti. En það eru aðrir sem yf-
irgáfu okkar heim áður en þeir
náðu að skila slíku af sér. Sama
hvernig á það er litið, þá er það
tap allra. n
Einelti hefði jafnvel
drepið þessa mynd
„ Í hugum
fórnarlamba
eineltis sem hafa
verið svikin á þennan
hátt er oft ekkert
eftir annað en að
drepa sjálfan sig.
Erpur
Eyvindarson
Bíómynd
Bully
IMDb 7,0 RottenTomatoes 87% Metacritic 74
Leikstjóri: Lee Hirsch.
Handrit: Lee Hirsch, Cynthia Lowen.
99 mínútur
Alex Alex er sérstakur
og verður fyrir grófasta
eineltinu en hann er
heill og góður strákur.
Tilviljanakennt og gróft Já Maya, ósköp venjuleg stelpa nema yfirburðagóð í skóla og íþróttum. Hún verður
einnig fyrir einelti og sýnir hversu tilviljanakennt það er að verða skotspónn. Hún samþykkir ekki árásirnar og grípur til
örþrifaráða sem hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hana.
Lee og Alex Margverðlaunaður
leikstjóri þessarar myndar varð
sjálfur fyrir einelti. Hér er hann með
Alex, einni hetju myndarinnar.
„Matnum hans
er rænt, hann er
tæklaður, barinn og
stunginn með blýönt-
um. Hann virðist vera
búinn að gefast upp
Lægra verð
fyrir 13–16 ára
Sigur Rós ætlar að koma
fram á Iceland Airwaves á
þessu ári en það eru heil 11
ár síðan hún kom síðast fram
á tónlistarhátíðinni. Strák-
arnir eru með nýja plötu í
bígerð sem kemur út þann
28. maí. Þeir munu spila
þann 4. nóvember sem er á
sunnudegi og á seinasta degi
hátíðarinnar. Sigur Rós vill
gera vel við unglinga á aldr-
inum 13–16 ára því þeir fá
miðann á tónleikana á ein-
ungis 1.000 krónur á meðan
venjulegt miðaverð er 5.900
krónur. Þessir ódýru miðar
fyrir unglingana verða ein-
ungis seldir í Brimi á Lauga-
vegi gegn framvísun skilríkja
og er takmarkað magn miða
í boði. Miðasala hefst 16. maí
klukkan 12 á hádegi.
Síðasta
ballið á
Nasa
Páll Óskar hefur gert mörg
Eurovision-kvöldin ógleym-
anleg á Nasa við Austurvöll
og ætlar hann að gera það
núna á laugardaginn í hinsta
sinn. Hann ætlar að halda
Euro vision-ball í allri sinni
dýrð með blöðrum, glingri
og bombum og spila bestu
Eurovision-lög sögunnar,
bæði gömul og ný. Margir
gestir koma fram með honum,
Selma Björns, Hera Björk, Ein-
ar Ágúst, Stefán Hilmarsson,
Helga Möller og fleiri. Þetta
verður í síðasta skipti sem
hægt er að gleyma sér á dans-
gólfinu á Nasa áður en staðn-
um verður lokað og hótel sett
á þennan reit í borginni.
Valgeir og
gestir í Hofi
Það verður eflaust æðisleg
stemning í Hofi á miðviku-
dagskvöldið þegar Valgeir
Guðjónsson ásamt hljóm-
sveit og gestum mun halda
tónleika.
Valgeir
er einn af
virkustu
laga- og
textahöf-
undum
dægur-
lagatón-
listar sem
Ísland
hefur alið af sér. Á tónleikun-
um munu vinsælustu perlur
Valgeirs hljóma og gestirnir
verða ekki af verri endan-
um. Má þar nefna Diddú,
Ragnhildi Gísladóttur og
Jakob Frímann Magnússon.
Hljómsveitina skipa svo Ás-
geir Óskarsson á trommur,
Tómas Tómasson á bassa,
Jón Ólafsson, hljómborð og
söngur, Stefán Már Magn-
ússon, gítarar og raddir, og
Eyjólfur Kristjánsson, gítar
og söngur.