Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 25
Sport 25Mánudagur 14. maí 2012
2 ára
17. maí
af litlum
og miðlungs
pizzum í sal
12.–20. maí
50%
afslátt
Í tilefni af tveggja ára afmæli Italiano Pizzeria viljum
við þakka frábærar viðtökur með því að veita
Gos á 200 kr. og rautt, hvítt
og öl á 400 kr. með mat
Þú ert
velkomin(n)!
Hlíðasmára 15
beint fyrir ofan Smáralind!
55 12345
www.italiano.is
G
olfstjarnan Tiger Woods er
langríkasti íþróttamaður
heims en fullyrt er að auður
hans í heildina nemi um 107
milljörðum króna þrátt fyrir
kostnaðarsaman skilnað fyrir tveim-
ur árum. Þá hafa nafnarnir Michael
Schumacher og Michael Jordan báð-
ir ávaxtað sitt pund rækilega en þeir
koma í næstu tveimur sætum. Sá
síðastnefndi hefur þó ekki stundað
annað en golf sér til dægrastyttingar
um áraraðir.
Birti breska blaðið Sunday Times
birti sinn árlega Rich list um liðna
helgi þar sem þetta kemur fram en
listinn sá þykir einna áreiðanlegast-
ur af fjölmörgum slíkum listum sem
gerðir eru árlega. Samkvæmt honum
virðist bágt efnahagsástand á heims-
vísu lítið snerta íþróttastjörnur al-
mennt því undantekningarlítið jókst
auður velflestra ríkra íþróttamanna
verulega milli ára. Þannig reiknast
blaðamönnum Times til sem dæmi
að hundrað ríkustu íþróttamennirn-
ir í Bretlandi hafi ávaxtað sitt pund
um níu prósent á síðustu tólf mán-
uðum. Rétt tæpur helmingur þeirra
tengist knattspyrnu.
Beckham ríkastur Breta
Þannig hefur knattspyrnumaður-
inn David Beckham, sem er ríkasti
breski íþróttamaðurinn samkvæmt
listanum, hagnast duglega á liðnu
ári og eru heildareignir hans metnar
á alls 32 milljarða króna. Hann er þó
hreinn aukvisi miðað við Tiger Wo-
ods og nær ekki nema tíunda sæt-
inu yfir ríkustu íþróttamenn heims.
Hann er þó margfalt auðugri en
Wayne Rooney sem næst kemur eins
og sést á meðfylgjandi töflu. Þar eru
leikmenn Manchester United ansi
fyrirferðarmiklir en nöfn Sol Camp-
bell eða Robbie Fowler koma þó ef-
laust einhverjum spánskt fyrir sjónir.
Ferguson ekki á flæðiskeri
Sé litið til framkvæmdastjóra í ensku
knattspyrnunni er ljóst að þeir eru
ekki síður að maka krókinn fjárhags-
lega. Alex Ferguson, stjóri Manches-
ter United, er talinn eiga eignir fyrir
rúma sex milljarða króna og er rík-
astur stjóranna á Englandi. Á hæla
honum kemur fyrrverandi leikmað-
ur sama liðs, Roy Keane, sem geymir
5,8 milljarða undir sínum kodda. Þá
virðist Arsene Wenger, stjóri Arse-
nal, kunna með peninga að fara en
auður hans telst vera kringum 5,2
milljarðar króna. Landsliðsþjálfari
Írlands, Giovanni Trapattoni, vermir
fjórða sætið á lista Times.
Messi ríkari en Ronaldo
Fyrir utan Woods, Schumacher og
Jordan á heimslistanum yfir þá allra
ríkustu má þar finna nöfn gamal-
kunnra kappa á borð við Arnold Pal-
mer, Jack Nicklaus og Greg Norm-
an úr golfinu, Shaquille O´ Neal,
Kobe Bryant og Kevin Garnett úr
bandaríska körfuboltanum, Oscar
de la Hoya úr hnefaleikum og tenni-
skappann Roger Federer. Þá vekur
athygli að Leo Messi er talinn ríkari
en Cristiano Ronaldo. Heildareign-
ir Messi hingað til eru taldar nema
21,2 milljörðum króna meðan Ro-
naldo á eignir að upphæð 20,6 millj-
arðar.
Þeir ríkustu
verða ríkari
n Kreppa kemur ekkert við pyngju íþróttastjarna heimsins
10 ríkustu knattspyrnu-
menn Bretlandseyja
1. David Beckham 32 milljarðar króna
2. Wayne Rooney 9,1 milljarður króna
3. Rio Ferdinand 8,1 milljarður króna
4. Michael Owen 7,9 milljarðar króna
5. Sol Campbell 6,8 milljarðar króna
6. Ryan Giggs 6,6 milljarðar króna
7. Robbie Fowler 6,4 milljarðar króna
8. Steven Gerrard 6,3 milljarðar króna
9. Frank Lampard 6,3 milljarðar króna
10. John Terry 5,2 milljarðar króna„Þá vekur athygli
að Leo Messi er
talinn ríkari en Cristiano
Ronaldo.
Ríkur Messi Eignir Messi eru taldar nema
rúmum 21 milljarði króna.
Moldríkur Misjafnt
gengi Tiger Woods á
golfvöllum síðustu árin
og afar kostnaðarsamur
skilnaður hefur ekki snert
pyngju hans verulega.
Hann er langríkasti
íþróttamaður heims.
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar
n Tvö mörk Manchester City í uppbótartíma tryggðu liðinu titilinn