Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2012, Blaðsíða 14
A
drian Bayford, 41 árs
breskur plötusali, og kona
hans Gillian, duttu held-
ur betur í lukkupottinn í
vikunni. Þau unnu fyrsta
vinning í lottói og það enga smá
upphæð. Þau eru 148 milljónum
punda ríkari eða sem nemur 28
milljörðum íslenskra króna. Fyrstu
viðbrögð sex ára dóttur þeirra var
að spyrja hvort þau ættu nógu mik-
inn pening til að fara á Domin-
os. Þau lýsa þessu sjálf sem ógn-
vekjandi en jafnframt spennandi
breytingu. Breski vefurinn Daily
Mail greinir frá þessu.
Eignir á við Clapton
Hjónin eru nú skyndilega komin á
lista yfir ríkustu einstaklinga á Bret-
landseyjum en þeim var afhentur
vinningurinn með pompi og prakt
á hóteli í bænum Bishops Stortford
í Hertfordskíri á þriðjudag. Auð-
æfi þeirra jafnast á við auðæfi mat-
reiðsluhjónanna Jamie og James
Oliver og tónlistarmannanna Sir
Tom Jones og Eric Clapton, sem
eru einnig á téðum lista.
Gillian Bayford, sem fram til
þessa hefur starfað á næturvökt-
um við umönnun barna á spítala
í Cambridge, sagði við það tilefni
að hún gæti hugsað sér að hætta
að vinna. Nú gæfist henni kostur á
að sinna börnum sínum betur en
þau hjónin hafa unnið á sitthvor-
um tíma sólarhringsins um árabil.
Bayford, sem endurselur not-
aðar plötur, ætlar að reka verslun-
ina áfram ásamt vini sínum. Það
hafa þeir gert í 17 ár. Þeir lokuðu
reyndar versluninni á þriðjudag en
ætluðu að opna aftur á miðviku-
dag. Hann segist gera ráð fyrir því
að leggja svolítið fé í reksturinn og
auka umsvif sín.
Langar í Audi Q7
Í Daily Mail er haft eftir þeim hjón-
um að þrátt fyrir að upphæðin sé
svakalega há ætli þau ekki að um-
turna lífi sínu. Þau vilji ala upp
börnin sín á eðlilegan hátt áfram.
Þau ákváðu þó að stíga fram því
þau vildu ekki þurfa að burðast
með leyndarmálið.
Þau sögðust einnig ætla að
leggja fjölskyldu og vinum lið, fólk-
inu sem hefur stutt þau í gegnum
súrt og sætt. Gillian sagðist þó hafa
augastað á Audi Q7 lúxuskerru auk
þess sem þau hjónin ætla að kaupa
sér nýtt hús. Þá vilja börnin ferð í
Disney-land.
Vakti börnin með látunum
Adrian hafði verið að horfa á
sjónvarpið kvöldið örlagaríka,
á myndina The Bank Job, þegar
drengurinn vaknaði og grét. Gilli-
an var úti með vinkonum sínum en
kom heim þegar hann var að sinna
drengnum. Þegar hann var sofnað-
ur ákváðu þau að horfa á fréttirn-
ar í sjónvarpinu. Á borða neðst á
skjánum stóð að einn einstakling-
ur hefði unnið EuroMillions-lottó-
ið. Gillian viðurkenndi fyrir eig-
inmanni sínum að hún hefði ekki
gefið sér tíma til að kaupa miða.
„Ég ákvað, í gríni, að segja að ég
hefði gleymt að kaupa miða, en
staðreyndin var sú að miðinn var
uppi í svefnherbergi,“ segir hann.
Bæði börnin höfðu vaknað og
Gillian fór upp til þess að reyna að
svæfa þau á nýjan leik.
Adrian laumaðist upp og sótti
miðann. Því næst fletti hann tölun-
um upp í símanum sínum. „Ég
ætlaði ekki að trúa eigin augum.
Tölurnar pössuðu hver af annarri.“
Ætla að styðja góð málefni
Hann hljóp fram með látum og
kveikti ljósin á ganginum, sem
féll ekki í kramið hjá eiginkon-
unni sem var að reyna að svæfa
börnin. Hún skipaði honum að
hafa hljótt. Adrian lét þær fyrir-
skipanir sem vind um eyru þjóta
og endurtók ítrekað að þau hefðu
verið að vinna í lottóinu og væru
orðin rík. „Krakkarnir voru orðn-
ir glaðvakandi og smituðust fljótt
af gleðinni,“ sagði hann við blað-
ið. Fjölskyldan sofnaði ekki fyrr en
um klukkan tvö um nóttina.
Hjónin segjast alltaf hafa farið
vel með fé. Þau hafi ekki haft mik-
ið á milli handanna en þau hafi
ekki liðið skort. Þau hlakka hins
vegar til að geta varið meiri tíma
með fjölskyldunni. „Þessi vinn-
ingur kemur á frábærum tíma en
hann er ekki bara fyrir okkur fjög-
ur. Við ætlum að láta hann gagn-
ast allri fjölskyldunni,“ segir Gilli-
an. „Lífið verður mikið auðveldara
núna.“ Þau segjast einnig ætla að
leggja góðum málefnum lið. „Mál-
efni barna standa mér nærri svo
við munum kanna hvernig við get-
um lagt öðrum lið.“
Innrás líkleg fyrir kosningar
n Stríð gegn Íran í burðarliðnum
R
áðist Ísraelar inn í Íran má
vænta þess að árásirnar hefjist
fyrir bandarísku forsetakosn-
ingarnar í nóvember. Ray Mc-
Govern, stjórnmálagreinandi og fyrr-
verandi starfsmaður CIA, leiðir að
þessu líkum í grein á vefmiðlunum
Confortium News og Alternet. Meðal
heimildarmanna hans eru embættis-
menn í Washington sem telja ísraelsk-
um stjórnvöldum liggja á að grípa
til harkalegra aðgerða gegn Íran fyr-
ir kosningarnar. Barack Obama hef-
ur ekki stutt Ísraelsríki jafn eindreg-
ið og fyrirrennarar hans og talið er að
Ísraelsmenn óttist að Obama verði enn
tregari í taumi á seinna kjörtímabili
sínu, verði hann endurkjörinn. Því sé
æskilegast að ráðast strax inn í Íran
sem fyrst og tryggja sér stuðning og
jafnvel þátttöku Bandaríkjanna.
Undanfarið hafa ísraelsk dag-
blöð greint frá vísbendingum um
að kjarnorkuáætlun Írana sé mun
lengra komin en áður var talið. Tak-
ist Írönum að koma sér upp kjarn-
orkuvopnum hefði það í för með
sér verulegar breytingar á valdajafn-
væginu í Mið-Austurlöndum. Ísrael-
ar óttast þetta og hefur Benjamin
Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels,
margoft lýst því yfir að Ísraelum
standi ógn af kjarnorkuáformunum.
Yfirmenn í her Atlantshafsbanda-
lagsins hafa þó varað við afleiðing-
um þess að ráðast inn í Íran, enda
geti átökin þá breiðst út um Mið-
Austurlönd.
Því hefur verið haldið fram að
Bandaríkjunum stafi fremur efna-
hagsleg en hernaðarleg ógn af
írönskum stjórnvöldum. Þau hafa
tekið forystu á sviði olíuviðskipta í
öðrum gjaldmiðlum en Bandaríkja-
dollar sem hefur verið nær einráður
á olíumarkaðnum í hálfa öld. Barack
Obama þykir þó ólíklegur til að taka
þátt í árásunum á Íran. Vænta má að
ísraelsk stjórnvöld renni hýru auga
til Mitt Romneys sem gagnrýnt hef-
ur Obama fyrir ónægan stuðning við
Ísraelsríki.
johannp@dv.is
14 Erlent 15. ágúst 2012 Miðvikudagur
Hjón unnu 28
milljarða í lottó
n Dóttirin bað um pizzu n Ættingjar munu njóta góðs af vinningnum
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Lífið verður
mikið auð-
veldara núna
Hellti hlandi
yfir farþega
Lögreglan í London styðst nú
við myndir úr öryggismynda-
vélum lestarkerfis borgarinnar
til að hafa upp á ungum manni
sem veittist að saklausri konu
með fremur ógeðfelldum hætti.
Konan sat í lest við hálfopinn
glugga og beið eftir að hún færi
af stað þegar maðurinn gekk
upp að glugganum og hellti úr
flösku fullri af þvagi yfir kon-
una. Lét hann sig síðan hverfa.
Hlandárásin átti sér stað í maí
síðastliðnum en samgöngulög-
reglan birti mynd af manninum
í vikunni.
Braust inn
hjá Steve Jobs
35 ára karlmaður, Kariem
McFarlin, var handtekinn á
dögunum grunaður um að hafa
brotist inn og stolið tölvum og
raftækjum að andvirði 60 þús-
und dala af heimili Steve heitins
Jobs í Palo Alto í júlí. McFarlin
kom þýfinu í verð en var síðan
handtekinn. Lögreglan seg-
ir ekkert benda til að McFarl-
in hafi vitað hver átti húsið og
rekur val hans frekar til þess að
í Palo Alto hefur undanfarið ár
geisað innbrotafaraldur. Tíðni
innbrota hefur aukist um 63
prósent og eru lögregluyfirvöld
ráðþrota og auðugri íbúar svæð-
isins uggandi.
Lét lífið á
flóttasundi
Lík flóttakonu rak á land í norð-
ur Frakklandi á dögunum, en yf-
irvöld þar telja að konan hafi
verið að reyna að synda yfir
Ermarsundið í leit að betra lífi.
Konan var með áttavita, orku-
stangir og föt í fórum sínum í
lokuðum plastpokum. Fullvíst er
að konan hafi drukknað á
leiðinni og andlát hennar er
ekki talið hafa borið að með sak-
næmum hætti. Sundleiðin er
rúmir 33 kílómetrar og er mjög
erfið yfirferðar. Fram kemur að
konan sé af asísku bergi brotin
og á fertugsaldri. Hún hafði
smurt sig vaselíni til að verjast
kuldanum í sjónum og var í
blautbúningi. Hana rak á land
við strandbæinn Wimereux á
sunnudagskvöld.
Benjamin uggandi Talið er að Benja-
min Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels,
liggi á að stöðva kjarnorkuáform Írana fyrir
forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.