Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 6
Borgum meira til NATO n Framlög Íslands til Atlantshafsbandalagsins hækka lítillega F ramlög Íslands til NATO aukast lítillega á milli ára samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2013. Framlög Íslands til Atlantshafs- bandalagsins hafa aukist umtalsvert á árunum eftir hrun og er helsta skýr- ingin veikt gengi krónunnar og aukin útgjöld vegna byggingar nýrra höfuð- stöðva bandalagsins. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi rík- isstjórnarinnar á að verja 254 milljón- um króna til bandalagsins. Það er um 5,7 milljónum krónum meira en sam- kvæmt fjárlögum ársins í ár. Ekki er hægt að tala um mikla aukningu á út- gjöldum ríkisins vegna NATO en sveifl- ur í gengi krónunnar gætu kallað á endurmat í fjáraukalögum. Undanfarin ár hafa framlög Íslands til NATO tvöfaldast frá því sem var fyr- ir hrun. Mesta hækkunin átti sér stað árið 2010 en þá fóru framlögin úr 87,6 milljónum króna upp í 216,4 milljón- ir króna. Í fjárlögum ársins 2010 var ekki gert ráð fyrir jafn mikilli hækkun og raunin varð en það var leiðrétt í fjár- aukalögum sem samþykkt voru í lok ársins 2010. Þrátt fyrir að Íslendingar borgi sífellt meira til NATO borga þeir minnst allra aðildarsjóða bandalagsins. Kostnaður- inn við bandalagið skiptist í ákveðnu hlutfalli á milli allra aðildarríkjanna og bera þau mismikinn kostnað hvert. Bandaríkin standa undir langstærstum hluta þess. Framlög Íslands til NATO eru með því hæsta sem greitt er til al- þjóðastofnana samkvæmt fjárlögum en aðeins er greitt meira í þróunarsjóð EFTA og til alþjóðlegar friðargæslu undir liðnum alþjóðastofnanir. n adalsteinn@dv.is 6 Fréttir 14.–16. september 2012 Helgarblað G engi íslensku krónunn- ar hefur veikst mikið á undanförnum vikum. Eft- ir nær stöðuga styrkingu íslensku krónunnar frá því um páska hefur gengisvísitalan hækkað um tæp tíu stig. Á sama tíma og gengisvísitalan hækkar veikist gengi íslensku krónunn- ar gagnvart erlendum gjaldmiðl- um. Gengi krónunnar hefur ver- ið sveiflukennt en krónan hafði styrkst jafnt og þétt mánuðina fyrir sumar og yfir sumartímann. Halla fór undan fæti í kringum aðra viku ágústmánaðar þegar gengisvísi- talan fór að hækka á ný. Gengis- vísitalan er á svipuðum stað núna og hún var um miðjan júlí. Ekki hefur komið jafn mikill kippur í gengisvísitöluna síðan sumarið 2009, stuttu eftir að hrunið varð. Gengi krónunnar hefur verið til- tölulega stöðugt miðað við þróun- ina eins og hún var mánuðina fyrir og eftir hrun en núna virðist vera breyting á. Óvissa með framtíðina Þórólfur Matthíasson, prófess- or í hagfræði við Háskóla Íslands, segir lítið hægt að útskýra þessar breytingar öðruvísi en á þann hátt að Seðlabankinn hafi talið gengið verið orðið of hátt. Gjaldeyrishöft eru við lýði og genginu er meira og minna handstýrt. „Seðlabankinn getur nátt- úrulega bara aukið eða minnkað gjaldeyrisvarasjóðinn. Hann þarf ekkert að fara eftir árstíðasveifl- um í aðstreymi og frástreymi,“ segir hann aðspurður um gengis- breytingarnar og hvort lok ferða- mannatímabilsins geti verið skýr- ingin. „Menn eru ekki að leika sér að því að fá alltof mikinn kaup- eða söluþrýsting þannig að það er látið fljóta aðeins upp og niður eft- ir því sem hentar. En það eru nátt- úrulega höft og enginn möguleiki að standa í spekúlasjónum um hvernig gengið verði í framtíð- inni.“ Kostir og gallar við gengisbreytingar „Það eru freistingar fyrir þá í báðar áttir og það fer eftir því hvernig þeir meta stöðuna hverju sinni,“ seg- ir Þórólfur. Þegar krónan styrkist skilar það sér út í verðlag og ætti að hafa þau áhrif að það dragi úr verð- bólgu. Á sama tíma verður hins vegar til pressa frá krónueigendum að koma eignum sínum úr landi ef gengið verður of sterkt. „Menn hafa verið fundvísir á aðferðir og búið til ný form skuldabréfa, eða eitt- hvað þess háttar, til að leika á kerf- ið og þá hefur Seðlabankinn þurft að vera með mótleiki við því,“ seg- ir hann og bætir við að menn gangi á hnífsegg. „Menn verða að passa sig að ganga ekki út af henni eða að skera sig á löppunum.“ Gengisvísitalan er reiknuð af Seðlabanka Íslands út frá gengi mismunandi gjaldmiðla gagnvart krónunni. Erlendir gjaldmiðlar hafa mismunandi mikið vægi við útreikning á íslensku gengisvísi- tölunni og skiptir þar máli hversu mikil viðskipti eiga sér stað á milli Íslands og þeirra svæða þar sem viðkomandi gjaldmiðill er í notk- un. „Krónan getur og á að sveiflast innan hafta jafnvel þótt þau virk- uðu fullkomlega. Vöru- og þjón- ustuviðskipti eru frjáls, fyrirtæki og stofnanir geta auðvitað greitt af sínum erlendu lánum, allt fjár- magnsinnstreymi og það útstreymi sem af því leiðir er frjálst og allir þessir þættir geta sveiflast,“ sagði Már í ræðu sinni á ársþingi Seðla- bankans í mars síðastliðnum. Ekki er víst hvernig hann, eða Seðla- bankinn, meta sveiflurnar nú. Seðlabankinn vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og var vísað í að stefna bankans væri ekki að tjá sig um stöðu krónunnar til skamms tíma litið. n Krónan aftur á niðurleið n Gengisvísitalan tekur kipp n Sveiflukennt gengi hefur gríðarleg áhrif „Það eru freistingar fyrir þá í báðar áttir Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Sept. 2011 200 210 220 230 Nóv. 2011 Jan. 2012 Mars 2012 Maí 2012 Júlí 2012 Sept. 2012 Þróunin síðustu tólf mánuði Hér sést hvernig gengisvísitalan hefur þróast síðustu mánuði. Eins og sést á myndinni hefur ekki komið jafn mikill kippur í gengisvísi- töluna í nokkra mánuði. Á síðustu fjórum vikum hefur gengisvísi- talan hækkað um tíu stig en hækkun hennar þýðir veikari króna. Handstýrt Þórólfur segir að gengi krónunnar sé meira og minna handstýrt og að árstíða- sveiflur hafi í raun lítil áhrif á krónuna. Mynd KArl Petersson Borgum minnst Ísland stendur undir minnstum hluta kostnaðar við NATO af öllum aðildarríkjunum 28. Mynd reuters Fagna launa- hækkuninni Stjórn Bandalags háskólamanna fagnar því sérstaklega að velferð- arráðherra hafi ákveðið að verð- launa Björn Zoëga, forstjóra LSH, með launahækkun. Það staðfesti í eitt skipti fyrir öll að laun háskóla- menntaðra hjá ríkinu standist hvorki samanburð við laun á al- mennum markaði né heldur er- lendis. Sem kunnugt er ákvað Guð- bjartur Hannesson velferðarráð- herra í sumar að hækka einhliða og án samráðs laun forstjóra Landspítalans til að koma í veg fyrir að hann tæki betur launuðu starfi erlendis. Er því fagnað af hálfu stjórn- ar BHM sem bendir þó á að mun fleiri en sá forstjóri hafi lagt sig sérstaklega fram í starfi sínu. Það sé til eftirbreytni að vinnufram- lag utan starfslýsingar sé metið með aukagreiðslum. Þó vant- ar mikið á að laun sérfræðinga hérlendis verði samanburðarhæf við það sem gerist erlendis og meðan svo er stafar hætta af því að sérfræðingar flytjist utan. Ít- rekar stjórnin nauðsyn þess að kjarasamningar háskólamennt- aðra verði endurskoðaðir á sömu forsendum og réttlæta launa- hækkun forstjóra LSH. Neitar launa- vanda hjá Val „Það er alls ekki rétt og ég myndi heldur aldrei fara að ræða slíkt opinberlega,“ segir Harald- ur Daði Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri íþróttafélagsins Vals, aðspurður hvað sé hæft í að félagið standi það höllum fæti fjárhagslega að laun til þjálfara og starfsfólks skili sér vikum of seint. Fyrir slíku hefur DV heimild- ir sem herma að það hafi dregist ítrekað í ákveðnum tilfellum að greiða laun á tilsettum tíma. Þá hafa sögusagnir um erfiða stöðu félagsins lengi gengið meðal stuðningsmanna liðsins. Framkvæmdastjórinn dregur ekki fjöður yfir að rekstur félags- ins hafi verið þungur en leiðin liggi upp á við. Hann segir alls ekki rétt að starfsmenn og þjálf- arar fái ekki greitt á réttum tíma. Hann viðurkennir þó að hafa heyrt orðróm um slæma stöðu félagsins en segir ekkert hæft í honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.