Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 56
Er ekki í Framsókn! n Andrea Ólafsdóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, vill alls ekki að fólk haldi að hún sé gengin til liðs við Framsóknarflokkinn. „Það er best að taka það fram að ég er ekki í Framsókn og er reyndar ekki í neinu stjórnmálaafli,“ skrif- aði hún í athugasemd við mynd sem Framsóknarflokkurinn deildi á Facebook-síðu sinni. Þar sést Andrea sitja við hlið Þórðar Björns Sigurðssonar, starfsmanns Hreyf- ingarinnar, á hádeg- isfundi Fram- sóknarflokksins. Hún ítrekar í athugasemd- inni að hún hafi verið á fundinum til að hlusta á hugmyndir. Hann hefði betur valið veður- fræðina! Ingibjörg með spangir n Athafnakonan Ingibjörg Pálma- dóttir skartar þessa dagana tannspöngum til þess að rétta bit sitt. Ingibjörg er ófeimin við að sýna spangirnar og brosti sínu blíðasta á Haustfagnaði Stöðvar 2 sem fram fór um síð- ustu helgi. Eiginmað- ur hennar, Jón Ásgeir Jóhann- esson, var sjálfur með spangir fyr- ir stuttu en þær hafa verið fjar- lægðar og hann skartar nú þráð- beinu brosi. I ngólfur Þórarinsson, sem oftast er kallaður Ingó veðurguð er sestur á skólabekk. Hann nemur nú heim- speki við Háskóla Íslands. „Ég er náttúrlega að vinna sem tón listarmaður en hef samt heilmik- inn frítíma,“ segir Ingó. „Mig lang- aði að læra eitthvað og hugsaði bara: hví ekki heimspeki?“ Það orð hefur lengi farið af Ingólfi að hann sé mikill pælari. „Ég er nú bara að þreifa mig áfram og veit ekki hvort ég mun neitt fara alla leið með þetta,“ segir hann. Aðspurður hvort hann telji að heim- spekinámið muni gagnast honum í tónlist og textagerð hlær hann góð- látlega. „Ég efast nú um það. Ég held að tónlistin mín verði nú bara með sama sniði og verið hefur.“ En hvers vegna valdi Ingólfur heimspeki? „Ég held að heimspekin falli algjörlega að mínu áhugasviði. Kannski mun hún hjálpa manni að velta hlutunum fyrir sér með opnum huga og breikka hugsunina á einhvern hátt,“ segir Ingólfur íbygginn. Samnemendur Ingólfs láta vel af honum. „Aldrei bjóst ég við að hitta Ingó veðurguð hér í háskólanum,“ segir Ellert Björgvin Schram, nýnemi í heimspeki. „Það er gaman að sitja tíma með Ingó enda ekki á hverjum degi sem maður sest á skólabekk með poppstjörnu.“ Ingó er ekki eina stjarnan við heimspekideild Háskóla Íslands, en Höskuldur Ólafsson sem gerði garðinn frægan með hljóm- sveitinni Quarashi á sínum tíma stundar nú doktorsnám í heimspeki. Ingó er með mörg járn í eldinum þessa dagana. „Maður er að trúba d- orast og svoleiðis af og til,“ segir hann en í vikunni skemmti hann nem- endum Menntaskólans í Reykjavík á Þýska barnum. n „Gaman að sitja tíma með Ingó“ n Ingó veðurguð í heimspekinámi n Ánægðir samnemendur Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 14.–16. SePtemBer 2012 106. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Lærir heimspeki Ingó er ekki viss um að námið gagnist honum í tónlistinni. Ósáttur leikari n Ævar Þór Benediktsson leikari, sem þessa dagana kemur fram í hlutverki Lilla klifurmúsar, er æfur á Facebook yfir vinnu- brögðum netverslunarinnar Amazon. Vill hann meina, þó líklega meira í gríni en alvöru, að netverslunin og íslensk tolla- yfirvöld vinni saman. „Panta 20 bækur á Amazon. Þeir ákveða að senda mér þetta í tveimur pökkum; fyrst ein bók og svo rest,“ segir hann á Facebook-síðu sinni. „Ég er 99% viss um að þeir séu í sam- starfi við Toll- inn... “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.