Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 22
Sandkorn Þ ingsetningin er fyrirboði þess að meiri sáttfýsi svífi yfir vötn- um en áður. Eftir rifrildi og ill- deilur undanfarinna ára virð- ist sem sjatnað hafi í mestu ólgunni. Sumir þingmenn voru meira að segja að hluta sanngjarnir í garð andstæðinga sinna. Þetta er líklega til vitnis um að þingmenn eru að vakna til vitundar um að þjóðin hefur sára- lítið álit á þinginu og þeim sem þar sitja. Allt frá hruni hafa þingmenn allra flokka lamað þingið með því að magna upp úlfúð og passa upp á að næra eld ósamlyndis. Guðmundur Steingrímsson, þing- maður Dögunar, vakti máls á þessu ástandi við þingsetninguna. Þingmað- urinn benti á að girðingarnar framan við þinghúsið segðu það sem segja þarf um ástandið. Undanfarin ár hafa þingmenn orðið að láta lögregluna slá skjaldborg um vinnustaðinn og víggirða húsið til þess að verða ekki fyrir skaða af völdum kjósenda sinna. Óttinn er ekki ástæðulaus því þús- undir manna hafa gert að þeim hróp. Og þeir hafa verið grýttir af fólki sem allajafna er dagfarsprútt en er ofboð- ið vegna kæruleysis þingmanna sem átti sinn þátt í því að steypa þjóðinni í hörmungar hrunsins. Í vor verða kosningar þar sem al- menningur fær þess kost að skipta út fólki á Alþingi. Það er líklega ótt- inn við kosningar sem veldur því að þingmenn eru með prúðasta móti við upphaf kosningavetrar. Atvinna þeirra er undir og vinnuveitandanum er nóg boðið. Það er öllum ljóst að ástandið á vinnustaðnum Alþingi er þannig að verklag er afleitt og skilvirkni sára- lítil. Menn beita öllum brögðum til að bregða fæti fyrir andstæðingana. Til- gangurinn hefur helgað meðalið. Það er nauðsynlegt að stokka ræki- lega upp í þingliðinu. Allir flokkar og samtök sem bjóða fram til Alþing- is verða að taka til í sínum röðum og henda út skemmdum eplum. Spill- ingarkólfar og styrkjakóngar eiga að víkja fyrir nýju og óspilltu fólki. Upp- stokkunin, auk þess að þingmenn ger- ist málefnalegir í vetur, getur orðið til þess að þjóðin taki þingið í sátt. Það er óboðlegt að æðsta stofnun þjóðar- innar hafi á sér álit sem er eitt það minnzsta á meðal þjóðarinnar. Nú eiga stjórnmálamenn allra flokka leik. Hæddist að Geir n Ráðamennirnir fyrrver- andi Jón Baldvin Hannibalsson og Geir H. Haarde eru forn- ir fjendur í pólitíkinni sem hafa ekki grafið stríðsöxina. Jón Baldvin mætti á fyrir- lestur kóresks hagfræðings í Háskólan- um í síðustu viku og bar upp spurningu. Benti hann á að Geir væri með tvær hagfræði- gráður frá virtum bandarísk- um háskólum en það hefði þó ekki aftrað honum frá því að keyra heilt þjóðfélag í þrot. Spurði Jón Baldvin hvort ekki væri æskilegt að Geir fengi skólagjöldin endurgreidd. Smala hent út n Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, er viðkvæmur maður. Á mið- vikudaginn fleygði hann út af Facebook-síðu sinni bloggar- anum og kosningasmalan- um Guðmundi Sigurðssyni sem unnið hefur fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Ástæðan mun vera sú að Bjarni setti inn færslu um skattagleði vinstri- manna. Guðmundur skrifaði athugasemd þar sem hann minnti á að ríkissjóður ætti eftir að borga klúðrið vegna Sjóvár. Bjarni brást skjótt við og henti út eigin kosninga- smala. „Bjarni er meiri kerl- ing en flestir aðrir sem ég þekki til í stjórnmálum,“ voru viðbrögð Guðmundar. Strigakjaftur n Þráinn Bertelsson alþingis- maður er einn mesti striga- kjaftur þingsins. Hann hefur í gegnum tíðina reglulega stuðað fólk með yfir- lýsingum á borð við þá að hátt hlut- fall íslensku þjóðarinn- ar sé fávit- ar. Síðasta uppnámið varð þegar hann kallaði bréfritara sem voru nafnlausir und- ir Tunnunum „nafnlausa aumingja“. Tunnurnar hafa látið sig varða framgöngu Alþingis í þágu almennings og vildu svör við fáeinum spurningum en voru hund- skammaðar af þingmannin- um sem vildi ekki fleiri bréf frá nafnlausum aumingjum. Ánægður þingmaður n Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, var ánægð með breytingar sem gerðar voru á öryggisgæslu við þingsetn- inguna á þriðjudag. Lög- reglan kom rammgerðum öryggisgirðingum sínum fyrir talsvert lengra frá þing- húsinu en áður hefur verið gert við þingsetningu. Hún mun hafa hrósað lögreglu- mönnum í þinghúsinu og sagt að svona hefði þetta auðvitað átt að vera síðast. Bilið frá þinghúsinu var svo mikið við þingsetninguna nú að mótmælendur hefðu þurft að vera talsvert góð- ir kastarar til að ná að drífa eggjum í höfuð þingmanna. Ég er náttúrulega mjög ósáttur við þetta Hótanir hafa aldrei beygt Íslendinga Páll Sverrisson var nafngreindur í úrskurði Persónuverndar. – DV Össur Skarphéðinsson um makríldeiluna. – DV.is Skemmd epli„Vinnuveit- andanum er nóg boðið M örgum helstu stefnumálum Sjálfstæðisflokksins er hag- anlega fyrir komið í frum- varpi stjórnlagaráðs til nýrr- ar stjórnarskrár. Sama á við um aðra flokka: stefnu þeirra sér einnig stað í frumvarpi stjórnlagaráðs eins og eðli- legt getur talist í lýðræðisríki, þar sem þjóðkjörnum og þingskipuðum full- trúum var falið að semja frumvarp til nýrrar stjórnarskrár. Allir flokkar eiga auðlindaákvæðið Allir stjórnmálaflokkarnir eiga t.d. ríkan þátt í ákvæði frumvarpsins um auðlindir í þjóðareigu. Davíð Odds- son forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins lagði fram á Al- þingi stjórnarfrumvarp 1995, þar sem gert var ráð fyrir nýju ákvæði um nátt- úruauðlindir í stjórnarskrá. Ákvæðið hljóðaði svo: „Nytjastofnar á hafsvæði því sem fullveldisréttur Íslands nær til eru sameign íslensku þjóðarinnar.“ Þarna er skýrt kveðið á um auðlindir í þjóðareigu með orðunum „sameign ís- lensku þjóðarinnar“. Orðalagið „sameign íslensku þjóð- arinnar“ er náskylt orðalagi frum- varps, sem dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra og formaður stjórn- arskrárnefndar 1978–83, lagði fram á Alþingi 1983 og gerði ráð fyrir nýju ákvæði um náttúruauðlindir í stjórnar- skrá. Ákvæðið hljóðaði svo: „Náttúru- auðlindir landsins skulu vera ævar- andi eign Íslendinga. Auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu eru þjóðareign. Eignarrétti að öðrum nátt- úruauðæfum skal skipað með lögum.“ Takið eftir, að Gunnar Thoroddsen notaði orðið „þjóðareign“. Orðalagið „ævarandi eign Íslend- inga“ var sótt í lögin um þjóðgarðinn á Þingvöllum frá 1928, en þar segir: „Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Al- þingis og ævinleg eign íslensku þjóðar- innar. Það má aldrei selja eða veðsetja.“ Þingvallalögin frá 1928 lýsa inntaki þjóðareignarhugtaksins: Þjóðareign er eign, sem „má aldrei selja eða veðsetja“. Börnin okkar mega aldrei vakna upp við það, að auðlindirnar, sem okkur bar að varðveita handa þeim, séu komnar í annarra hendur. Þessi skilningur er lagður í hugtakið þjóðareign í frumvarpi stjórnlagaráðs. Þar segir: „Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameig- inleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða var- anlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja.“ Frumvarp ríkisstjórnar Geirs H. Haarde forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins og Jóns Sigurðssonar iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og formanns Framsóknarflokks- ins á Alþingi 2007 lagði til orðalagið: „Náttúruauðlindir Íslands skulu vera þjóðareign...“ Ríkur samhljómur Stjórnlagaráð tók Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn á orðinu, og það var auðvelt, þar eð aðrir stjórn- málaflokkar höfðu einnig lagt fram frumvörp á Alþingi um auðlindir í þjóðareigu. Mestu skipti þó, að þjóð- fundur og stjórnlaganefnd skipuð af Alþingi lýstu eftir ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir í þjóðareigu. Af þeim 23 kjörnu fulltrúum í stjórnlagaráði, sem svöruðu spurningum DV fyrir stjórn- lagaþingskosninguna 2010, sögðust 22 vera hlynntir þjóðareign á auðlindum. Samhljómurinn gat varla ríkari verið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur með líku lagi beitt sér á fyrri tíð fyrir jöfn- un atkvæðisréttar og haft forustu um breytingar á kjördæmaskipaninni. Um þetta segir á vefsetri flokksins (xd.is): „Barátta gegn óréttlátri kjördæmaskipan Fyrstu 10 árin var Sjálfstæðisflokk- urinn lengst af í stjórnarandstöðu, ef undanskilið er tímabilið frá miðju ári 1932 til miðs árs 1934, þegar flokk- urinn tók þátt í ríkisstjórn í fyrsta sinn. Aðalviðfangsefni hennar var að koma á umbótum á kjördæmaskip- an landsins, er var orðin mjög úrelt og óréttlát. Flokkurinn hefur ítrekað síðan barist fyrir umbótum og auknu réttlæti í þeim efnum.“ Stjórnmála- ályktun 31. landsfundar flokksins 1993 gaf Morgunblaðinu tilefni til að birta forustugrein undir yfirskriftinni „Jafnt vægi atkvæða“. Sjálfstæðisflokk- urinn á því ríkan þátt í kosningaákvæði frumvarps stjórnlagaráðs, en þar seg- ir í anda sjálfstæðisstefnunnar frá 1993: „Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt.“ Tvö af mikilvægustu ákvæðum frumvarps stjórnlagaráðs, ákvæðin um auðlindir í þjóðareigu og jafnt vægi atkvæða, virða hugsjónir sjálfstæðis- manna eins og þær hafa birst í stefnu flokksins og frumvörpum flokksmanna fyrr og síðar. Í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni 20. október gefst kjósendum færi á að leiða auðlindir í þjóðareigu og jafnt vægi atkvæða til öndvegis í stjórn- arskrá lýðveldisins. Látum færið okkur ekki úr greipum ganga. Kjósum. Ríkur samhljómur Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 22 14.–16. september 2012 Helgarblað „Sjálfstæðisflokk- urinn á því ríkan þátt í kosningaákvæði frumvarps stjórnlagaráðs. Formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson talar á fundi í Valhöll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.