Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Side 16
16 Fréttir 14.–16. september 2012 Helgarblað
R
ekstur íslenskra sendiráða
hefur dregist saman frá
hruni ef litið er á kostnað
sem til fellur í þeim gjald-
miðli sem er í gildi á þeim
stöðum þar sem sendiráðin eru. Í
tölum sem Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra birti í svari sínu
við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur,
þingkonu Framsóknarflokksins, frá
því í apríl kemur fram að rekstur ell-
efu sendiráða hefur dregist saman
frá hruni en sex aukist. Af þeim ell-
efu þar sem rekstrarkostnaður er
minni hefur tveimur sendiráðum
verið lokað.
Talsverður sparnaður
Ljóst er að gengisfall íslensku krón-
unnar frá hruni hefur sett strik í
reikninginn þegar kemur að rekstri
sendiráða. Rekstrarkostnaðurinn,
að launum flutningsskyldra starfs-
manna undanskildum, er í þeirri
mynt sem notuð er í hverju landi
fyrir sig en það þýðir að samhliða
veikara gengi þarf fleiri krónur til að
borga sama rekstur og áður. Því þarf
að skera meira niður ár frá ári til að
ná tiltölulega litlum niðurskurði í ís-
lenskum krónum talið.
Niðurskurðurinn í hverju sendi-
ráði hefur farið upp í allt að 45 pró-
sent. Mestur niðurskurður var að
sjálfsögðu í þeim sendiráðum sem
lögð voru niður eða sameinuð öðr-
um. Þess utan var skorið mest niður
í Japan, Nýju Delí, París og Berlín. Á
öllum þessum stöðum hefur niður-
skurðurinn numið meira en 20 pró-
sentum miðað við þann gjaldmiðil á
hverjum stað fyrir sig.
Meiri sparnaður á næsta ári
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta
árs á enn að spara í rekstri sendi-
ráða. Í fjárlögum 2012 var gert ráð
fyrir 2.800 milljóna króna kostnaði
en í nýja frumvarpinu lækkar þessi
kostnaður um 20 milljónir króna.
Sé rýnt í tölurnar er þó gert ráð fyrir
að almennur rekstur sendiráðanna
standi nokkurn veginn í stað í krón-
um talið. Það gæti þó þýtt að skera
þurfi niður engu að síður.
Gengi íslensku krónunnar getur
verið mjög sveiflukennt og hefur
krónan til að mynda veikst mikið á
síðustu vikum. Breytingar á genginu
gætu haft mikil áhrif á endanlegan
rekstrarkostnað sendiráðanna og
þá hagræðingarkröfu sem gerð er á
hvert sendiráð fyrir sig. n
Rekstur
sendiráða
Hér má sjá hlutfallslegan sparnað hvers
sendiráðs á kostnaði sem fellur til í
hverju ríki fyrir sig. Kostnaðurinn sem
hér um ræðir er kostnaður í þeirri mynt
sem gildir í því landi þar sem sendi-
ráðin eru. Til viðbótar við þetta telst
launakostnaður og annar kostnaður
sem fellur til í íslenskum krónum en
sá kostnaður er ekki inni í tölunum til
að hægt sé að ná samanburði óháð
gengisáhrifum. Tvö sendiráð hafa verið
lögð niður og eru ekki í listanum hér fyrir
neðan. Það eru sendiráðin í Róm á Ítalíu
og Pretoríu í Suður-Afríku.
Niðurskurður
Tókýó, JPY 45,26%
Nýja Delí, EUR 26,97%
París, EUR 25,13%
Berlín, EUR 20,48%
Stokkhólmur, SEK 6,03%
Ottawa, CAD 5,63%
London, GBP 3,95%
Helsinki, EUR 2,90%
Peking, CNY 2,25%
Kostnaðaraukning
Kaupmannahöfn, DKK 0,14%
Brussel, EUR 0,67%
Washington, USD 2,42%
Vín, EUR 6,63%
Osló, NOK 10,62%
Moskva, EUR 13,88%
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
n Rekstur sendiráða hefur dregist saman frá hruni n Niðurskurðurinn er mestur í Tókýó
Sendiráð fá minna
Hagræðing Gera má ráð fyrir að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra þurfi að hagræða eitthvað í rekstri sendiráða á næsta ári en ekki
er gert ráð fyrir miklum breytingum á útgjöldum vegna þeirra. MyNd SigTryggur Ari