Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Qupperneq 18
É
g hef sagt að ég muni gefa mér
góðan tíma og láta vita um mín
áform,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir, forsætisráðherra og for-
maður Samfylkingarinnar, að-
spurð hvort hún hyggist leiða flokk
sinn í næstu kosningum. „Ég mun
standa við það að tilkynna með fyrir-
vara en sá tími er ekki kominn.“ Sam-
fylkingin hyggur á prófkjör á næstunni
þar sem valið verður á framboðslista
flokksins. Talið er líklegt að prófkjör-
ið fari fram í nóvember næstkomandi
en Jóhanna segir það þó ekki afráðið.
Áhyggjur af Alþingi
„Við höfum vaxandi áhyggjur af
stöðu þingsins í samfélaginu,“ seg-
ir Jóhanna spurð hvort Alþingi eigi
undir högg að sækja sökum þess
hve traust til stofnunarinnar mælist
lítið í skoðunarkönnunum. Jóhanna
segir formenn stjórnmálaflokkanna
hafa fundað á síðustu dögum og rætt
sín á milli hvernig bæta megi ásýnd
þingsins. „Þetta er einu sinni lög-
gjafarsamkoman. Ég gat ekki heyrt
betur en að forystumenn flokkanna
ætli að reyna að leggja sig fram við
að taka sig á svo þingið geti breyst.“
Hún segir stjórnarflokkana hafa gert
tilraun til að leggja sitt af mörkum til
betra þings. Tíminn verði að leiða í
ljós hvort almenn samstaða náist um
bætt vinnubrögð og betra þing.
Tólf í átta
Hvort málþóf um breytta skipan ráðu-
neyta sé til þess fallið að bæta ásýnd
löggjafans út á við segist Jóhanna
undrast þá miklu umræðu sem það
mál krafðist. „Skipan ráðuneyta og
verkaskipting málaflokka milli ráðu-
neyta á að vera í höndum hverrar rík-
isstjórnar. Þannig er þetta hjá mörgum
þeirra þjóðþinga sem við berum okk-
ur saman við. Þess vegna er það mjög
sérkennileg krafa að farið sé svona
nákvæmlega og í langri málþófsum-
ræðu ofan í skipan á stjórnarráðinu,“
segir Jóhanna og bætir við að margar
ríkisstjórnir á undan núverandi stjórn
hafi haft sameiningu ráðuneyta á
stefnu sinni. „Ég tel reyndar að þetta
sé eitt af stóru umbótamálum þessar-
ar ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn hef-
ur fækkað ráðuneytum úr tólf í átta.
Ég held að það hafi verið markmið
margra ríkisstjórna þótt ekki hafi þær
náð því fram.“
Jóhanna bendir á rann-
sóknarnefnd Alþingis máli sínu til
stuðnings. „Rannsóknarnefndin
lagði raunverulega til að ráðuneytin
yrðu gerð stærri og öflugri. Þetta er
eitt af því sem ég held að þessi rík-
isstjórn geti verið mjög stolt af. Nú
erum við að sjá eitt atvinnuvegaráðu-
neyti sem ég er búin að heyra af svo
lengi sem ég man.“ Um mikilvægi
hins nýstofnaða atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytis segir hún; „Við
erum að skapa jafnræði með öllum
atvinnugreinum, það hefur ekki verið.
Það er mjög miklu náð fram með því.“
Með því að færa málefni auðlinda
inn í nýtt sameinað umhverfis- og
auðlindaráðuneyti segir Jóhanna að
stjórnarflokkarnir séu að senda skýr
skilaboð um að flokkarnir ætli sér að
lyfta verulega undir umhverfismál.
„Ég er viss um að þar verða veru-
legar breytingar. Þetta tvennt á að
geta unnið saman, það er að segja at-
vinnuvegir landsins og nýja atvinnu-
vegaráðuneytið og umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið.“ Jóhanna segir að því
miður hafi reynslan sýnt að hingað til
hafi umhverfismál annars vegar og at-
vinnumál hins vegar verið álitin and-
stæður en þannig þurfi það alls ekki að
vera. Spurð hvort málþófið um skipan
ráðuneyta síðasta vetur hafi ef til vill
snúist um annað mál segir Jóhanna að
það sé ekki ólíklegt. „Ég get alveg tek-
ið undir það að það var mjög sérstakt
að ganga í gegnum allt þetta málþóf á
síðasta þingi. Það varð til þess að ýta til
hliðar mörgum veigamiklum málum.
Það átti ekkert að þurfa þess. Skipan
ráðuneyta á bara að afgreiða með for-
setaúrskurði hverju sinni.“
Ólíklegustu mál
„Oft þegar menn taka upp málþóf
í ólíklegustu málum þá er verið að
reyna að koma í veg fyrir að önnur
mál komist á dagskrá. Jafnvel reynt
að koma í veg fyrir að þau nái fram
að ganga. Birtingarmyndin er oft í
ólíklegustu hlutum, til dæmis þegar
menn tala lengi í málum sem allir eru
sammála eða lítill ágreiningur er um.
Þegar þingmenn eru að fara í and-
svar við flokksfélaga sína aftur og aft-
ur. Þá verður birtingarmyndin mjög
sérstök.“ Jóhanna telur einföldun að
kenna stjórnarandstöðunni einni um
það sem aflaga hefur farið í þinginu.
„Auðvitað getum við í meirihlutanum
gert ýmislegt til að bæta okkar vinnu-
brögð. Mál geta komið fyrr fram og af
okkar hálfu má bæta skipulagið. Það
er það sem ég og Steingrímur J. Sig-
fússon, atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðherra höfum verið að ræða við
stjórnarandstöðuna og Ástu Ragn-
heiði, forseta þingsins.“
Hún vonast til að samkomulag
milli formanna stjórnmálaflokkanna
um framlagningu stærri mála gangi
eftir. Þegar hafa tveir fundir allra for-
manna flokkanna verið haldnir í
stjórnarráðinu en þar var rætt hvort
hægt væri að semja um þann tíma
sem mörg stærri mál líkt og breyting
á stjórn fiskveiðistjórnunar, Rammaá-
ætlun og breytingar á stjórnarskrá, fái
í þinginu. „Ég vona að við náum sam-
stöðu um það hvenær þessi mál komi
til umræðu. Hversu langan tíma þau
taka í nefndum og hvenær þau fari til
annarrar og þriðju umræðu.“ Jóhanna
bendir á að þessi háttur sé hafður
um fjárlög og víða í þjóðþingum í ná-
grannalöndum okkar. „Um þetta hef-
ur enn ekki náðst samstaða.“
Sérðu fram á samkomulag?
„Ég þori ekkert að segja um það en ég
finn að það er vilji til þess að breyta
þingstörfum. Menn voru samt ekki
enn tilbúnir á þeim fundum sem við
höfum setið, að semja um einhverja
tímalínu.“ Þá segir Jóhanna að hún
hafi óskað þess að funda reglulega
með formönnum stjórnarandstöð-
uflokkanna í allan vetur í stað þess
sem verið hefur en hingað til hafa
reglulegir fundir aðeins verið í kring-
um jólaleyfi og þinglok. „Þetta er
til þess að þingstörfin verði ekki til
vansa fyrir þingið í vetur.“
Ekki komin alla leið
„Við erum ekki komin alla leið í sjáv-
arútvegsmálum. Við erum samt
komin hálfa leið og búin að ná fram
mjög stóru máli. Búin að stíga mjög
stórt skref í átt til þess að arður-
inn renni til þjóðarinnar og sam-
félagsverkefna. Því höfum við náð
með stórauknu veiðigjaldi. Á næstu
tveimur til þremur árum munu þess-
ar tekjur renna til samfélagsverkefna
og félagslegra umbóta.“ Hún nefn-
ir nýjan Herjólf sem dæmi um fjár-
festingu sem ráðist verði í fyrir tekj-
ur af veiðigjöldum. Þá nefnir hún að
Norðfjarðargöng og Dýrafjarðargöng
verði flýtt um leið og framlög verði
stóraukin í vísinda- og tæknisjóði.
„Þetta er sú leið sem Finnar og Svíar
fóru, að stórauka framlög í slíka sjóði
þegar þeir voru að vinna sig út úr sín-
um kreppum.“ Hún segist óttast að
þessar breytingar gangi til baka kom-
ist Sjálfstæðisflokkurinn til valda. „Ég
vona að sjálfstæðismenn standi ekki
við það sem þeir hafa raunar hót-
að að gerist ef þeir komast til valda.
Að þeir taki veiðigjöldin til baka. Þá
verður að slá á allar þessar fram-
kvæmdir.“
Lénsherrakerfið
Krafan um breytt fiskveiðistjórn-
unarkerfi er ekki ný af nálinni. Raun-
ar hefur sjávarútvegur verið eitt
stærsta pólitíska deilumál landsins
síðustu áratugi. Upptaka kvótakerf-
is var á sínum tíma afar umdeild en
ekki er að greina að deilurnar um
kerfið hafi minnkað eftir upptöku
þess. Raunar hefur kvótakerfinu
verið líkt við lénsherrakerfi af Svani
Kristjánssyni, stjórnmálafræðingi.
Spurð hvort hún taki undir þá lík-
ingu segir Jóhanna; „Ég held að þessi
samlíking sé ekkert fjarri lagi en það
er það sem við erum að vinda ofan af
núna.“ Jóhanna bendir á að sökum
þess hve umdeilt núverandi kerfi er,
sem og hve umdeildar breytingarnar
eru, sé málið afar flókið. „Það er al-
veg ljóst að mjög skiptar skoðanir eru
um fiskveiðistjórnunarmálið. Það
eru skiptar skoðanir um hvernig á
að breyta því og örugglega verða ekki
allir sáttir. Ég held að við séum búin
að ná því fram sem við stefnum að
með þeim breytingum sem fyrirhug-
aðar eru í vetur. Við erum komin eins
langt og verður komist, að minnsta
kosti núna.“ DV spurði Jóhönnu hvort
hún telji ekki rétt að undirliggjandi í
kosningaloforðum stjórnarflokk-
anna hafi verið það loforð að brjóta
á bak aftur þá miklu samþjöppun
valds sem kvótakerfið hefur myndað.
Sérstaklega þegar talað er um smærri
byggðarlög sem treysti verulega á út-
gerð. „Með breytingunum erum við
svo sannarlega að færa arðinn aft-
ur til þjóðarinnar. Arðurinn af auð-
lindinni hefur í allt of miklum mæli
gengið til örfárra aðila í sjávarútvegi.
Nú viljum við koma fleirum að.“
Rammaáætlun í stað henti-
stefnu
„Rammaáætlun er sú hugsun í stjórn-
málum sem ég vildi sjá. Þar er ver-
ið að beita mjög faglegum rökum og
ákvarðanir hingað til, hvað þennan
málaflokk varðar, voru handahófs-
og tilviljanakenndar. Þær voru á valdi
fárra aðila og oft teknar án nægjan-
legs tillits til heildarhagsmuna eða
náttúruverndarsjónarmiða. Það þarf
að huga að náttúrunni og verndun
ekki síður en nýtingu. Í rammaáætl-
un hefur verið unnið mjög faglega
að málum og þess vegna er það eitt
af lykilatriðunum að við náum þessu
máli fram.“ Óttastu að það sé ein-
faldlega ekki vilji til þess í íslenskum
stjórnmálum og að svona mál mótist
af hentistefnu? „Stundum já, og eins
hvaða sjónarmið eru lögð til grund-
vallar. Hvort það eru kjördæma-
sjónarmið eða heildarhagsmunir
sem lagðir eru til grundvallar.“
ESB erfitt
Erfiðasta mál núverandi ríkisstjórn-
ar er aðildarumsókn að Evrópusam-
bandinu. Samfylkingin er einn flokka
með aðild að Evrópusambandinu
á stefnuskrá sinni. Samstarfsflokk-
urinn VG er hins vegar andsnúinn
aðild þótt flokkurinn hafi gengist
undir stjórnarsáttmála sem gerir ráð
fyrir að sótt verði um og leitað verði
samninga. „Ég hef alveg fullan skiln-
ing á að þetta mál hafi verið VG erfitt
eins og þeirra stefna er. Það vita all-
ir að þetta var erfiðasta málið að ná
„Ég kvíði ekki kosningum“
18 Viðtal 14.–16. september 2012 Helgarblað
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingar, býr sig undir lokaþing kjörtímabils-
ins. Alþingi var sett í vikunni. Atli Þór Fanndal hitti Jóhönnu í tilefni af komandi þingi til að fara yfir málefni
kjörtímabilsins og sýn hennar á þingið. Jóhanna settist í stól forsætisráðherra með skömmum fyrirvara árið
2009. Þá í minnihlutastjórn Samfylkingar, VG og Framsóknar. Kosið var til Alþingis í apríl sama ár en í kjöl-
farið var ríkisstjórn Samfylkingar og VG mynduð, fyrsta ríkisstjórn lýðveldissögunnar mynduð af vinstriflokk-
um einum. DV hitti formenn stjórnmálaflokka og nýrra framboða í tilefni af þingsetningu.
Atli Þór Fanndal
atli@dv.is
Viðtal
Óvissa með áframhald
Jóhanna Sigurðardóttir
er ekki tilbúin að gefa upp
hvort hún ætli sér að leiða
Samfylkinguna í næstu
kosningum. Mynd EyÞÓR ÁRnASon
Ódrepandi ríkisstjórn „Við höfum lifað þetta allt af,“ segir Jóhanna spurð hvort hún
óttist að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði ríkisstjórninni að falli.
„Við höfum vaxandi
áhyggjur af stöðu
þingsins í samfélaginu.