Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Qupperneq 19
saman um þegar við vorum að koma
þessari ríkisstjórn saman. Við höf-
um ákveðinn stjórnarsáttmála að
fara eftir. Mér finnst mjög mikilvægt
að eftir honum sé unnið. Hann er
alveg skýr og segir að þjóðin eigi að
fá að greiða atkvæði um aðild þegar
samningur liggur fyrir.“ Hvað með
rök um að rétt sé að ganga til þjóðar-
atkvæðagreiðslu til að ákveða hvort
halda skuli áfram? „Mér þykir mjög
sérkennileg þessi umræða um að
nú eigi, í miðjum klíðum, án þess
að fólki viti hvað við fáum, að fara í
þjóðaratkvæði í þessu máli.“
Stjórnin mun lifa
„Við höfum nú unnið okkur í gegnum
alveg ótrúlega erfiðleika. Margir eru
búnir að spá okkur dauða á undan-
förnum þremur árum. Við mun-
um lifa. Ríkisstjórnin mun vinna sig
í gegnum þetta. Það er mín einlæga
sannfæring.“ Jóhanna segist hafa veru-
legar áhyggjur af þeim erfiðleikum
sem Evrópusambandið er að ganga í
gegnum. „Ég hef fulla trú á að Evrópu-
sambandið verði búið að ná tökum á
ástandinu þegar kemur að því að við
þurfum að greiða atkvæði um inn-
göngu. Við vitum núna að það verð-
ur ekki á þessu kjörtímabili heldur
því næsta. Þá vonum við að það verði
komin upp allt önnur staða í Evrópu
en er núna.“ Aðspurð hvort Samfylk-
ingin leggi ef til vill of mikla áherslu á
Evrópusambandsaðild segist Jóhanna
ekki telja svo vera. „Þetta er sú fram-
tíðarsýn sem við jafnaðarmenn teljum
að sé farsælust fyrir okkar samfélag.“
Evran afar mikilvæg
Jóhanna segir upptöku evru vera afar
mikilvæga fyrir Ísland. „Það er mín
skoðun að evran sé sá gjaldmiðill
sem við eigum að taka upp. Við höf-
um verið í vandræðum með okkar
gjaldmiðil. Ég tel að ef okkur auðn-
ast að greiða atkvæði um þetta og fá
þannig niðurstöðu þjóðarinnar, sem
vonandi verður jákvæð, þá er ég alveg
viss um að það verður það besta fyr-
ir okkar þjóð. Ég held að evran sé til
dæmis leiðin út úr verðtryggingunni,
leið til lægri vaxta og leiðin til þess að
lækka verð á matvælum og tryggja
hér eðlilegra og stöðugra samkeppn-
isumhverfi.“ Erum við samt ekki
raunar komin fjær upptöku evru
vegna skuldastöðu landsins? Varla
uppfyllum við Maastricht-viðmið-
in á næstunni. „Það er alveg rétt að
skuldastaðan er of mikil ef við tölum
um Maastricht viðmiðin. Við þurfum
einhvern tíma til að vinna okkur inn
í viðmiðin.“
Jóhanna segir að aðrir mælikvarð-
ar séu Íslandi í hag, ríkisfjármálin séu
að ná jafnvægi og skuldir taki nú að
lækka, kaupmáttur launa vaxi og at-
vinnuleysið sé með því minnsta sem
þekkist. „Við höfum haldið vel á efna-
hagsmálum og erum að skapa efna-
hagslegt svigrúm til að byggja upp
það norræna velferðarkerfi sem við
viljum sjá hér.“
Heift og ósamstaða
Stjórnarmeirihlutinn leggur mikla
áherslu á að klára endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Jóhanna seg-
ir afar mikilvægt að almenning-
ur taki virkan þátt, meðal annars
með góðri þátttöku, í ráðgefandi at-
kvæðagreiðslu á næstunni. Blaða-
maður spyr hvort sú mikla andstaða
sem breytingar á stjórnarskrá hefur
mætt, komi henni á óvart. „Ég spyr
á móti hver er ástæðan fyrir því að
í marga áratugi hefur ekki náðst í
gegn að endurskoða stjórnarskrána.
Þrátt fyrir nefnd eftir nefnd sem hef-
ur haft það hlutverk að endurskoða
hana. Þetta eru gífurleg átök um
grundvallaratriði samfélagsins eins
og til dæmis auðlindirnar. Ég minni
á að minnihlutastjórnin sem starf-
aði hérna árið 2009 tók drjúgan tíma
af þeim mánuðum sem hún var við
störf, bara í stjórnarskrána. Þar var
veruleg heift ríkjandi og mikil ósam-
staða. Þess vegna var nauðsynlegt að
taka málið út úr þinginu. Ég vona að
þjóðin samþykki að vinna áfram á
grundvelli þeirra tillagna sem liggja
fyrir úr starfi stjórnlagaráðs.“
Árangur alls staðar
„Ég kvíði ekki kosningum. Ég held
að við jafnaðarmenn getum bara
hlakkað til að tala fyrir árangri rík-
isstjórnarinnar og okkar framtíðar-
sýn. Árangurinn blasir alls staðar
við. Við höfum hreinsað til, fleygt út
fúaspýtum og braki frjálshyggjunn-
ar og byggt traustan grundvöll fyrir
farsælt norrænt velferðarsamfélag,
bæði efnahagslega og félagslega.“
Heldurðu að þú standir uppi með
tveggja flokka ríkisstjórn? „Það er
erfitt að segja til um það. Auðvitað
getur allt gerst í kosningum en mér
finnst það mjög erfið tilhugsun ef
kosninganiðurstaðan leiddi til þess
að það yrðu sjálfstæðismenn sem
muni stjórna landinu og halda um
taumana hér í stjórnarráðinu.“
Sérðu fyrir þér ríkisstjórn Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks? „Það er
allt of langt milli stefnu þessa flokka
í mörgum grundvallaratriðum sem
við jafnaðarmenn viljum standa fyr-
ir. Ég sé ekki að það sé einhver raun-
hæfur möguleiki.“ Jóhanna segir að
hún vilji áfram sjá ríkisstjórn jafnað-
armanna og félagshyggjufólks. „Það
getur verið að fleiri aðilar þurfi að
koma að slíkri stjórn. Það eru ýmsir
flokkar sem eru að bjóða fram núna.
Við verðum að sjá til hvernig það fer.
Ég vil sjá stjórn jafnaðarmanna og
félagshyggjufólks. Stjórn sem getur
einbeitt sér að uppbyggingu samfé-
lagsins í anda hugsjóna okkar jafn-
aðarmanna um aukin jöfnuð og
réttlæti. Það getur næsta ríkisstjórn
svo sannarlega gert ef hún byggir á
þeim góða grunni sem nú hefur ver-
ið lagður. Ég trúi ekki að þjóðin vilji
snúa af núverandi braut aukins jöfn-
uðar, réttlætis og samfélagssáttar og
hefja frjálshyggjumerkið aftur á loft.
Það má aldrei aftur gerast en um
það verður kosið í vor“ n
„Ég kvíði ekki kosningum“
Viðtal 19Helgarblað 14.–16. september 2012
„Erfið tilhugsun ef
kosninganiður-
staðan leiddi til þess að
það yrðu sjálfstæðis-
menn sem mundu stjórna
hér landinu.
Evran mikilvægust Jóhanna segist
sannfærð um að upptaka evru sé eitt
mikilvægasta málefni þjóðarinnar. Hún
segir evruna leiðina til afnáms verðbólgu,
lægri vaxta og heilbrigðara samkeppnisum-
hverfis.
„Auðvitað
getum við
í meirihlutanum
gert ýmislegt til
að bæta vinnu-
brögðin okkar