Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 39
Lífsstíll 39Helgarblað 14.–16. september 2012
Kvalalosti Í herferð Agent
Provocateur situr Monica
Cruz fyrir í ögrandi fatnaði
með keðjur í bakgrunni.
Austræn áhrif La Perla leitar til
Austurlanda eftir áhrifum.
É
g er búin að hanna mikið
af undirfatnaði í gegnum
tíðina og veit með sanni
að undirfatnaður get-
ur verið dulinn munúð,“ segir
Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður.
Steinunn vann um nokkurra
ára skeið sem yfirhönnuður hjá
La Perla og segist eiga mikið af
fallegum undirfatnaði. „Ég er ein
af þeim konum sem safna undir-
fatnaði og á fallegan undirfatnað
úr silki og ull. Þetta er svo-
lítið eins og fjársjóður,“
segir Steinunn.
Hún segir konur oft gleyma
kynþokkanum. „Þegar konur eru
í fallegum undirfötum þá finna
þær leið til að finnast þær kyn-
þokkafullar án þess að aðrir sjái
það. Það er þess vegna sem þessi
dulda munúð er svo kraftmikil.
Konur gleyma kynþokkanum og
þessum þætti í klæðaburði sín-
um. Mér finnst margir leitast við
að klæða sig bara þægilega og
hugsa lítið um undirföt. En að
hugsa um fegurðina í þessu tilliti
er hins vegar svo skemmtileg leið
til að bæta svolítið í sitt innsta eðli.
Þá má ekki gleyma því að nærföt
geta verið einstaklega falleg þótt
þau séu gamaldags í sniði. Eleg-
ansinn er minni í nærfötum sem
eru ágengari, ef ég get tekið svo til
orða, segir Steinunn og hlær og vís-
ar í vinsælan undirfatnað frá Vict-
oria’s Secret.
„Fyrir mér er það að vera í fal-
legum undirfatnaði góð leið til að
láta mér líða vel. Ég leyfi mér líka að
bera skraut sem ekki sést. Geng til
að mynda aldrei með hálskeðjur en
hef gengið með fallegar mittiskeðj-
ur í mörg ár sem strákarnir í ORR
hafa búið til handa mér.“
Undirfötin gegndu hlutverki
í sýningu sem Steinunn stýrði á
Þjóðminjasafninu á árinu og kall-
aðist: TÍZKA – kjólar og korselett.
Á sýningunni eru svokallaðir mód-
el-kjólar sem saumaðir voru eft-
ir pöntun og ýmsir fylgihlutir eins
og skór, hattar, hanskar og undir-
föt. „Ég hef alltaf haft ríkan áhuga á
því hverju konur klæðast til að auka
kynþokkann og mín tilfinning er sú
að þeim líði best sem leggja áherslu
á munúðina.“ kristjana@dv.is
Konur gleyma
kynþokkanum
n Undirfötin fjársjóður sem eykur á munúð
n Gamaldags nærföt geta verið falleg
Brjóstahaldari
„Dulda munúðin
er svo kraftmikil.“
segir Steinunn
sem hannar
undir merkinu
STEINUNN.
Gamaldags og falleg
Steinunni finnst gamal-
dags nærföt falleg.
Munúð „Fyrir mér er það að
vera í fallegum undirfatnaði
góð leið til að láta mér líða vel,“
segir Steinunn sem hefur hann-
að fínleg undirföt um árabil.
Barokk hjá Dolce og Gabbana Skraut, flúr og þung tilfinning einkennir haustlínu Dolce & Gabbana. Undirfötin voru líka í þeim anda.
Gagnsætt og bönd Gagnsæ undirföt eru í forgrunni
flestra stórra undirfatamerkja.
Sést í gegn Glöggt má greina áhrif 10. áratugarins. Undirfötin sjást í gegn.