Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2012, Blaðsíða 11
„Hann nýtist okkur Helling“
Fréttir 11Miðvikudagur 19. september 2012
„Baldur hefur ekki setið aðgerðarlaus
síðan hann hóf afplánun. Hann hefur
meðal annars haldið námskeið sem
miða að því að fræða fangana um fjár-
mál og réttindi þeirra og hlotið góð-
ar viðtökur. Til stendur að hann haldi
fleiri námskeið fyrir fangana, enda er
Baldur reynslumikill maður eftir ára-
tugalangt starf á æðstu stigum stjórn-
sýslu og viðskipta.“ Í fréttinni segir
einnig að Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra sem dæmdur var
af Landsdómi fyrir brot á stjórnar-
skránni hafi heimsótt Baldur. Saman
störfuðu þeir í Eimreiðarhópnum
svokallaða en Geir og Baldur eru
vinir til langs tíma. Baldur hóf, sam-
kvæmt umfjöllun Vísis frá 13. mars á
þessu ári, afplánun dómsins snemma
í marsmánuði.
Allt eftir bókinni
Páll Winkel fangelsismálastjóri vildi
ekki tjá sig um mál Baldurs þegar
DV hafði samband við hann en var
tilbúinn að ræða fangelsismál og úr-
ræði fyrir fanga almennt. „Maður
sem er dæmdur í tveggja ára fangelsi
og á að afplána helming þarf að sitja
í fangelsi í sex mánuði. Næst getur
hann verið fjóra mánuði á Vernd ef
hann er með vinnu eða í námi og
uppfyllir agaskilyrði. Síðan getur
hann verið síðustu tvo mánuðina af
þessum tólf undir rafrænu eftirliti,“
segir Páll en ítrekar að hér sé um al-
mennt dæmi að ræða en ekki eins-
taka mál. Hann segist engan hag
hafa af því að brjóta reglur. Að auki
sé tölvukerfi fangelsismálastofnun-
ar þannig úr garði gert að ekki sé
hægt að skrá inn breytingar á hög-
um fanga sem séu á skjön við lög
eða reglur.
„Ég bara vinn eftir reglum og
lögum. Ég get líka lofað þér að fók-
usinn er það mikill á fangelsismál
að þótt ég hefði áhuga á að sveigja
reglurnar, sem ég hef ekki, þá myndi
ég aldrei komast upp með það. Ég
myndi aldrei komast upp með það,
aldrei.“ Hvort engar reglur séu um
hvar fangar starfi segir Páll að fang-
elsismálastofnun kanni aðeins hvort
vinnustaðirnir séu lögmætir. „Al-
mennt er það þannig að blikksmið-
ur sem fer í afplánun á Vernd fer að
vinna í blikksmiðju, smiður vinnur
við smíðar og svona,“ segir Páll við
spurningunni um hvort eðlilegt sé
að fangi vinni á lögfræðistofu, jafn-
vel stofu sem fari með málsvörn
hans. Um hversu hratt umsóknarferli
fanga eftir vist á Vernd gangi fyrir sig
segir Páll að úrræðið sé afar algengt
og flestir sem uppfylli skilyrðin kom-
ist fljótt á Vernd. „Rúmlega fjöru-
tíu prósent fanga sem fara í fangelsi
ljúka afplánun á Vernd. Þetta er rosa-
lega algengt.“
Ekki náðist í Ögmund Jónasson,
innanríkisráðherra við vinnslu frétt-
arinnar. n
22. júlí 2008 til 16. september 2008
Fundir samráðshóps
Baldur situr sex fundi með samráðshópi fulltrúa
forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, við-
skiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka
Íslands um fjármálastöðugleika og viðbúnað. Á
fundunum komu fram innherjaupplýsingar um þá
kröfu breska fjármálaeftirlitsins að innstæður á
Icesave-reikningum í Bretlandi yrðu fluttar í breskt
dótturfélag. Jafnframt komu fram upplýsingar um
erfiðleika Landsbankans við að verða við kröfunni.
13. ágúst 2008
Fundur með bankastjórum Landsbankans
Baldur situr fundi með bankastjórum Landsbankans þar sem fram
koma upplýsingar um þá ákvörðun breska fjármálaeftirlitsins að setja
fimm milljarða sterlingspunda hámark á samtölu innstæðna á Icesave-
reikningunum og tilmæli breska fjármálaeftirlitsins til bankans um að hamla
vexti innistæðna. Jafnframt koma fram upplýsingar um tilraunir breska
fjármálaeftirlitsins til að takmarka auglýsingastarfsemi Landsbankans.
2. september 2008
Fundur með fjármála-
ráðherra Bretlands
Á fundinum héldu bresk stjórnvöld fast
við kröfur breska fjármálaeftirlitins.
Fjármálaráðherrann gat þess að bresk
stjórnvöld myndu ábyrgjast innstæður
á Icesave-reikningum að fullu og spurði
hverjum ætti að senda reikninginn.
17. og 18. september 2008
Baldur selur bréfin
Baldur seldi öll hlutabréf sín í
Landsbankanum, alls 9 millj-
óna hluti fyrir samtals 192,6
milljónir króna.
29. september 2008
Fall bankanna
Fall íslensku bankanna
er staðreynd með þjóð-
nýtingu Glitnis. Bank-
arnir féllu einn af öðrum
vikurnar eftir. Lands-
bankinn var yfirtekinn
af Fjármálaeftirlitinu 7.
október og síðast féll
Kaupþing – 9. október.
7. apríl 2011
Baldur dæmdur
í héraðsdómi
Baldur er dæmdur í tveggja
ára óskilorðsbundið fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
innherjasvik í opinberu starfi.
17. febrúar 2012
Hæstiréttur
staðfestir
dóminn
Einn hæstaréttar-
dómari, Ólafur Börkur
Þorvaldsson, skilaði
séráliti og vildi að
málinu yrði vísað frá.
13. mars 2012
Afplánun hefst
Vísir greinir frá því
að Baldur hafi hafið
afplánun dómsins í
Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg.
12. apríl 2012
Kennir á
Kvíabryggju
DV greinir frá
því að Baldur sé
kominn í opna
fangelsið á Kvía-
bryggju og haldi
fjármálanámskeið
fyrir fanga.
9. september 2012
Vistaður
á Vernd
Samkvæmt reglum
Fangelsismálastofnun-
ar ætti Baldur að hafa
flutt á áfangaheimilið
Vernd þennan dag.
10. september 2012
Hefur störf hjá Lex
Baldur tekur til starfa á lög-
mannastofunni Lex ehf.
„Heiðarleiki, trún-
aður, fagmennska.
Einkunnarorð Lex
2008 2011 2012