Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2012, Blaðsíða 20
A
llar stelpurnar vita að okk-
ur dugar jafntefli. Við erum
að einbeita okkur að því að
vinna leikinn,“ segir Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson,
landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna
í knattspyrnu. Í dag, miðvikudag,
rennur upp stór stund í sögu ís-
lenskrar knattspyrnu. Stelpurnar
mæta Noregi í Osló og dugar jafn-
tefli til að tryggja þátttökurétt sinn á
EM í Svíþjóð á næsta ári. Það væri í
annað sinn sem íslenskt A-landslið
kemst á stórmót en Sigurður Ragnar,
eða Siggi Raggi, stýrði stelpunum inn
á EM sem haldið var í Finnlandi árið
2009. Í kvöld er úrslitastund enda er
um að ræða síðasta leikinn í riðlin-
um. Ísland vann fyrri leik liðanna 3–1
á Laugardalsvelli.
Nokkuð um meiðsli
Stelpurnar lögðu sterkt lið Norð-
ur-Íra á Laugardalsvelli um helgina
með flottum leik, 2–0. Sigurinn var
aldrei í hættu og því gat Siggi Raggi
leyft sér að taka þá leikmenn af velli
í síðari hálfleik sem hafa verið að
glíma við meiðsli. Þegar DV náði tali
af honum á mánudaginn var ekki
komið í ljós hvernig þeir leikmenn
komu undan leiknum. „Við tók-
um rólega æfingu í gær [sunnudag,
innsk.blm.] til að jafna okkur. Þær
sem voru í meiðslum fóru í sund og
hvíldu sig,“ segir hann en það voru
þær Katrín Jónsdóttir fyrirliði, Edda
Garðarsdóttir og Fanndís Friðriks-
dóttir.
Þá tók Margrét Lára Viðarsdótt-
ir, markahæsti leikmaður Íslands í
riðlinum, ekki þátt í öllum þáttum
æfingarinnar að sögn Sigga Ragga.
Spurður hversu mikilvæg hún sé
liðinu segir hann að það sé afar já-
kvætt að hún skuli hafa gefið kost
á sér í verkefnið. Margrét Lára hef-
ur lengi glímt við meiðsli sem hafa
haldið aftur af henni. „Hún verður
vonandi leikfær enda er hún aðal
markaskorarinn okkar. Það er já-
kvætt að hún stóð sig vel um helgina
en það er dagamunur á meiðslun-
um.“ Hann bindur vonir við að geta
valið úr öllum leikmönnum hóps-
ins í leikinn mikilvæga, en segir að
það sé ekki öruggt. „Við erum hins
vegar með breiðan hóp og það er já-
kvætt,“ segir hann.
Álíka sterk lið
Spurður hvernig hann muni leggja
leikinn upp segir hann að það sé
alltaf fyrsta markmið að halda mark-
inu hreinu. Það hafi gengið vel hing-
að til í riðlinum enda hafi liðið aðeins
fengið á sig tvö mörk í níu leikjum.
„Við vitum að Noregur er með mjög
gott lið og það hafa verið erfiðir leikir
við þær undanfarin ár, leikir sem liðin
hafa skipst á að vinna.“ Hann segir að
liðin séu álíka sterk og að leikurinn
verði mjög erfiður. „Þær spila fast og
eru líkamlegar sterkar. Þær eru góðar
í föstum leikatriðum en fyrir okkur er
mikilvægt að skora,“ segir hann.
Sama um reynsluna
Hann segist ekki geta svarað því hvort
hann muni gera miklar breytingar á
byrjunarliðinu frá leiknum á laugar-
dag. Hann segir þó að Noregur sé
öðruvísi lið en Norður-Írland og við
því þurfi hann að bregðast. „Við ákveð-
um ekki liðið fyrr en kvöldið fyrir leik-
inn. Vonandi verða allar leikfærar en
það getur verið að við breytum eitt-
hvað.“ Spurður hvort reynsla leik-
manna ráði valinu segist hann ekki
hugsa um það. „Ég hugsa bara um fót-
boltalega getu. Mér er alveg sama hvað
þær eru reyndar og gamlar.“
Þrjár 17 ára
Jafnvel þó margir reynslumiklir leik-
menn séu enn í landsliðshópnum
er Siggi Raggi með nokkuð yngra lið
í höndunum en það sem hann var
með á EM 2009. Nokkur endurnýjun
hefur átt sér stað en þó voru 12 stúlk-
ur í hópnum á móti Norður-Írum
sem spiluðu með liðinu í Finnlandi
2009. Sem dæmi um endurnýjunina
má nefna að þrjár 17 ára stúlkur eru
núna í hópnum; sóknarmennirnir
Elín Metta Jensen og Sandra María
Jessen, sem voru markahæstu leik-
menn Pepsi-deildarinnar í sumar
auk varnarmannsins öfluga Glódísar
Perlu Viggósdóttur. „Þær eru mjög
efnilegar og þekkja það að ná árangri
og fóru til dæmis í fjögurra liða úr-
slit í U17 Evrópukeppninni. Þær eru
góðar miðað við aldur en það tekur
tíma að koma inn í sterkt A-landslið.“
Siggi Raggi segist ekki meðvit-
að vera að yngja upp hópinn. Hann
20 Sport 19. september 2012 Miðvikudagur
„Ég hugsa bara um
fótboltalega getu.
Mér er alveg sama hvað
þær eru reyndar og gamlar.
Frábær árangur Siggi Raggi stefnir á
sigur á móti Noregi.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Mikilvægt að skora“
Góðu marki fagnað
Með sigrinum á Norður-
Írum náði liðið að
tryggja sér umspilsleiki
um þátttöku á EM
2013. Stig gegn Norð-
mönnum tryggir liðinu
beinan þátttökurétt.
„Það verður fagnað vel og lengi“
n Víkingur Ólafsvík spilar í fyrsta sinn á meðal þeirra bestu
Þ
að er gríðarleg stemning í bæn-
um. Hvar sem maður kemur er
talað um fótbolta,“ segir Jónas
Gestur Jónasson, formaður
knattspyrnudeildar Víkings frá Ólafs-
vík. Félagið tryggði sér um helgina sæti
í Pepsi-deild karla, með 4–0 sigri á KA
fyrir norðan. Félagið mun því á næsta
ári spila í deild þeirra bestu, í fyrsta
sinn frá stofnun félagsins. Yfir 100
stuðningsmenn fögnuðu með liðinu í
leikslok, en þeir fylltu tvær stórar rút-
ur auk þess sem margir komu á eig-
in bílum af Snæfellsnesinu. Fram og
til baka er leiðin hátt í 900 kílómetrar.
Jónas segir að stuðningurinn hafi skipt
miklu en fyrsta mark leiksins leit ekki
dagsins ljós fyrr en seint í leiknum.
Jónas segir að næstkomandi laug-
ar dag verði fagnað í Ólafsvík; eftir
lokaleikinn gegn Víkingi Reykjavík
verður herjarinnar ball í Víkinni. „Það
verður fagnað vel og lengi.“
Um 300 manns hafa að jafnaði í
sumar, stutt liðið á heimavelli að sögn
Jónasar, en hann á von á því að þeim
muni fjölga næsta sumar. Hann bind-
ur vonir við að félagið fái undanþágu
frá kröfum KSÍ vegna stúkunnar en
hún rúmar um 330 manns. Lágmark-
ið er 500 sæti auk þess sem byggja þarf
þak yfir sætin.
Í 19 manna hópi Víkings í sumar
voru sjö uppaldir heimamenn. Fimm
erlendir leikmenn voru í liðinu og að
auki voru leikmenn fengnir frá félög-
um í efstu deild; leikmenn sem fengu
ekki að spila með úrvalsdeildarfé-
lögunum. Jónas á von á því að hópur-
inn verði áþekkur næsta sumar, enda
séu góðir leikmenn í liðinu. „Það verða
engar hallarbyltingar í þessu. Við erum
með mjög flotta leikmenn og berum
traust til þeirra.“
Ríflega 1.000 manns búa í Ólafsvík
en um 1.700 í Snæfellsbæ öllum. Það
er því ekki mjög fjölmennt byggðarlag
sem stendur að baki liðinu. Spurður
hvernig gangi að fjármagna rekstur
félagsins segir Jónas að það sé alltaf
basl. „Það er erfitt að ná í fjármagn en
við pössum vel upp á peningana og
það er allt í skilum. Það eru mörg fyr-
irtæki hér sem styrkja okkur vel,“ seg-
ir hann.
Árið 2003 var núverandi þjálfari,
Ejub Purisevic, ráðinn til félagsins. Þá
lék liðið í 3. og neðstu deild. Jónas seg-
ir aðspurður að það hafi verið vendi-
punktur í viðsnúningi félagsins. Liðið
fór þá taplaust í gegn um þriðju-
deildina og tapaði ekki leik fyrr en í
ellefta leik í annarri deild. Félagið fór
beint upp úr annarri deildinni og hef-
ur leikið í fyrstu deild síðan, ef eitt ár
er frátalið. „Lykillinn var að fá Ejub til
starfa,“ segir Jónas og bætir við að fé-
lagið hafi verið mjög heppið að fá gott
fólk til að starfa.
Hann segir aðspurður að fyrsta
markmiðið í Pepsi-deildinni að ári
verði að halda sér í deildinni. n
baldur@dv.is
Fagnað með stuðningsmönnum eftir leikinn Yfir 100 manns keyrðu um 900 kíló-
metra leið til að styðja liðið til sigurs gegn KA. MyNd HelGi kriStjÁNSSoN
Árni gerði þriggja
bardaga samning
Bardagaíþróttakappinn Árni Ísaks-
son hjá Mjölni hefur gert þriggja
bardaga samning í blönduðum
bardagaíþróttum við írska Cage
Contender sambandið. Árni hef-
ur áður barist í Cage Contender
en hann bar sigurorð af heima-
manninum Ronan McKay í Belfast
í nóvember 2010 með armlás í
þriðju lotu. Þess má geta að Gunn-
ar Nelson hjá Mjölni hefur einnig
tvisvar barist undir merkjum Cage
Contender og var í bæði skiptin
aðalbardagi keppninnar. Gunn-
ar sigraði báða bardaga sína þar
í fyrstu lotu. Árni átti að berjast í
Cage Contender þegar Gunnar
barðist þar síðast en andstæðingur
hans náði ekki tilskilinni vigt og því
varð ekkert af bardaganum. Gam-
an er að geta þess að Írinn Cathal
Pendered er veltivigtarmeistari
Cage Contender en hann dvelur
nú á Íslandi til að aðstoða Gunnar
Nelson við undirbúning fyrir UFC
bardaga Gunnars sem fram fer í lok
september.
Árni Ísaksson á 15 bardaga
að baki í MMA, 11 sigra og 4 töp.
Hann keppti síðast gegn Frakkan-
um Gael Grimaud í Jórdaníu í sept-
ember í fyrra og beið lægri hlut í
annarri lotu.
Stórlið berjast
um Oliveira
Nelson Oliveira, 21 árs leikmaður
Benfica í Portúgal, er á góðri leið
með að verða einn eftirsóttasti
framherji Evrópu. Oliveira var
lánaður til Deportivo la Coruna
á Spáni fyrir tímabilið og hann
hefur þegar skorað tvö mörk í
fjórum fyrstu leikjum tímabils-
ins. Leikmaðurinn hefur verið
orðaður við Manchester City
og Chelsea undanfarin misseri
en breska blaðið the Daily Mail
greinir frá því að Manchester
United sé komið í kapphlaupið.
Þá eru Barcelona og Real Madrid
sögð áhugasöm en umboðsmað-
ur Oliveira er Jorge Mendes sem
er einnig umboðsmaður Jose
Mourinho, stjóra Real Madrid.
Talið er að það lið sem ætlar
sér að hreppa þennan unga og
stórefnilega leikmann þurfi að
punga út rúmum 20 milljónum
punda, tæpum fjórum milljörð-
um króna.
n Stór stund í íslenskri knattspyrnu n Jafntefli gegn Noregi tryggir sæti á EM n Yngra lið en 2009