Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Blaðsíða 4
Tom Cruise Meðal þeirra
Hollywood-stjarna sem voru á
Íslandi í sumar var Tom Cruise en
hann kom vegna myndarinnar
Oblivion. Mynd Ingólfur Júlíusson / reuTers
4 Fréttir 24. september 2012 Mánudagur
A
tvinnuvegaráðuneytið þarf
á 545 milljónum krónum
að halda til að geta stað-
ið við skuldbindingar sín-
ar gagnvart kvikmynda-
framleiðendum. Þetta kemur fram
í fjáraukalögum fyrir árið í ár sem
fjármálaráðherra hefur lagt fram á Al-
þingi. Íslenska ríkið hefur endurgreitt
kvikmyndaframleiðendum hluta af
kostnaði sem til fellur við framleiðslu
hér á landi undanfarin ár en endur-
greiðsluhlutfallið var hækkað um sex
prósentustig árið 2009. Fjöldamörg
stór kvikmyndaverkefni hafa komið
hingað til lands á síðustu árum.
Milljarða verkefni
Í sumar voru til að mynda þrjár stór-
ar Hollywood-myndir kvikmyndaðar
hér á landi. Það eru myndirnar Noah,
The Secret Life of Walter Mitty og
Oblivion. Stórstjörnur á borð við Tom
Cruise, Russel Crowe og Ben Stiller
hafa dvalið á landinu hluta ársins en
það eru einmitt verkefnin þeirra auk
fjölda annarra sem ríkið endurgreiðir
kostnað að hluta. Ríkið endurgreiðir
20 prósent af kostnaði við myndirnar
og er ljóst af tölunum sem komið hafa
fram að milljarðar koma með kvik-
myndaverkefnunum hingað til lands.
Nokkur hundruð manns koma að
gerð kvikmynda hér á landi. Til að
mynda voru rúmlega 220 einstak-
lingar sem komu að tökum Nóa hér
á landi og voru Íslendingar þar í
meirihluta. Ben Stiller kom svo og
tók næstum því yfir heilan bæ þegar
hann var við tökur í Stykkishólmi
í sumar en hann lét meðal annars
mála ráðhúsið upp á nýtt.
samkeppnishæf vegna endur-
greiðslunnar
Helga Margrét Reykdal, fram kvæmda-
stjóri framleiðslufyrirtækisins True
North, segir að endurgreiðslan eins
og hún sé nú sé það sem geri Ísland
samkeppnishæft í kvikmyndafram-
leiðslu. Ísland sé að bjóða sambæri-
leg kjör og bjóðast kvikmyndafram-
leiðendum annars staðar. „Við erum
samkeppnishæf í dag en ef þetta
yrði hækkað fengjum við ákveðið
samkeppnisforskot. Það er í raun-
inni ekki mitt að segja hvað er rétt í
því en þetta er það sem við þurfum, til
að geta verið samkeppnishæf og geta
fengið svona verkefni til landsins því
önnur lönd eru að bjóða sambærilegt
og betra.“
Helga Margrét segir að síðustu
ár eftir að endurgreiðslan var hækk-
uð hafi verið meira að gera. „Síðustu
tvö árin hefur verið meira að gera,“
segir hún. „Þetta er bæði innlend og
erlend framleiðsla sem er búin að
stækka,“ bætir hún við og bendir á ís-
lensku kvikmyndina Þór sem frum-
sýnd var á þessu ári. Hún er ekki til-
búin að spá fyrir um hvort næsta
sumar verði jafn gott og það sem nú
er að renna sitt skeið á enda. „Það er
allt of snemmt að spá um það í raun
og veru en við vonum að þetta sé
byrjunin á því sem koma skal. Þetta
er náttúrulega jákvætt fyrir okkur öll
að fá svona stór verkefni til landsins,“
segir Helga Margrét.
Öflug kynning síðustu ár
Einar Tómasson, verkefnastjóri hjá
Íslandsstofu, segir að margir þætt-
ir spili inn í þegar kemur að því að
tryggja að stór kvikmyndaverkefni
komi til landsins. Hann segir að
endurgreiðslan sé mikilvæg en að
öflugt markaðsstarf sem unnið hef-
ur verið á síðustu tíu árum sé líka
útskýring á góðum árangri undan-
farinna ára. „Við höfum unnið mik-
ið markaðsstarf á þessum markaði,“
segir hann.
Einar segir það mjög jákvætt að
ríkið þurfi að greiða meira til baka
en ráðgert var vegna kvikmynda-
framleiðslu á árinu. „Þegar talað er
um aukningu á fjárlögum er það oft
litið neikvæðum augum en ríkið fær
meira í kassann þegar það þarf að
greiða meira til baka,“ segir hann um
aukninguna sem talað er um í fjár-
aukalagafrumvarpinu.
Íslensk fyrirtæki hafa líka staðið
sig vel þegar kemur að því að þjón-
usta kvikmyndaframleiðendur að
mati Einars. Hann segir að mikilvægt
sé að gott orð fari af Íslandi á þessu
sviði til að tryggja að fleiri verk efni
komi til landsins. „Ég var bara að fá
sendan póst frá framleiðanda HBO
sem var að segja hvað Ísland hentaði
frábærlega vel fyrir Game of Thro-
nes og hvað „crewið“ sem hann var
að vinna með var ofsalega gott,“ seg-
ir hann og vísar þar til þeirra sem
vinna að myndunum hér á landi.
Einar segir að orðspor Íslands sé gott
í Hollywood.
Alltaf hægt að bæta sig
Þrátt fyrir velgengni síðustu ára er
mikilvægt að halda áfram kynningu á
Íslandi fyrir kvikmyndaframleiðend-
um. „Þú þarft alltaf að auglýsa vör-
una. Það er mikilvægt að við höldum
áfram og bætum jafnvel í kynningu
á Íslandi gagnvart þessum aðilum,”
segir Einar. Hann segir mikilvægt
að allir aðilar sem skapi samkeppn-
ishæfi Íslands á þessu sviði haldi
áfram að vera á tánum. „Ég myndi
vilja sjá þá þróun að allir haldi áfram
að standa sig vel, að þeir verði ekki
latir heldur verði áfram á tánum og
sinni þessu, það skiptir öllu máli. Það
er voðalega auðvelt að verða latur
og bíða bara eftir verkefnum,“ segir
hann og bætir við að þó að stór ver-
kefni hafi komið, þýði það ekki endi-
lega að fleiri komi sjálfkrafa. n
Stjörnurnar fara
fram úr áætlun
n Endurgreiðslur til kvikmyndaframleiðslu skila aukinni aðsókn„Ég var bara að fá
sendan póst frá
framleiðanda HBO sem
var að segja hvað Ísland
hentaði frábærlega vel
fyrir Game of Thrones.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
fá hrós Framleiðandi hjá HBO-sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum var nýbúinn að senda
Einari Tómassyni, hjá Íslandsstofu, tölvupóst þegar blaðamaður náði í hann á föstudag þar
sem hann hrósaði hópnum sem vann að gerð þáttanna Game of Thrones hér á landi.
Pussy Riot
heiðruð
Rússneska hljómsveitin Pussy Riot
verður verðlaunuð í Viðey þann
9. október, á fæðingardegi Lennons,
þegar kveikt verður á friðarsúlunni.
Hljómsveitin hlýtur friðarverðlaun-
in sem kennd eru við Bítilinn John
Lennon og ekkju hans Yoko Ono.
Þetta kom fram í fréttum Ríkisút-
varpsins á sunnudag.
Stúlkurnar sitja nú í fangelsi í
Rússlandi vegna gjörnings sem
þær frömdu í dómkirkju í landinu,
en eiginmaður einnar konunn-
ar tekur við verðlaununum fyrir
þeirra hönd. Auk hljómsveitar-
innar verða fjórir aðrir heiðraðir.
Það eru bandaríski aðgerðarsinn-
inn Rachel Corrie, sem lést þegar
hún varð undir jarðýtu Ísraelshers
í Rafah árið 2003, leikritaskáldið
Christopher Hitchens og hag-
fræðingurinn John Perkins sem
skrifaði bókina Confessions of an
Economic Hitman. Ekki hefur ver-
ið upplýst um hver fimmti verð-
launahafinn er.
Ökuníðingur grun-
aður um ölvun
Aðfaranótt sunnudags veitti lög-
reglan á Eskifirði bifreið eftirför
sem hafði að engu stöðvunar-
merki hennar, heldur jók hraðann
jafnt og þétt frá Reyðarfirði, yfir
Fagradal áleiðis til Egilsstaða. Á
meðan á eftirförinni stóð mætti
lögreglan þremur ökutækjum en
ökumenn þeirra áttu í erfiðleik-
um með að forðast bifreiðina
sem lögreglan elti. Skammt ofan
við svokallaða Neðstu brú á Dal
þurfti lögreglan að beita þving-
aðri stöðvun, það er, að aka utan
í bifreiðina til að stöðva för henn-
ar. Ökumaður bifreiðarinnar er
grunaður um ölvun við aksturinn.
Lögreglan óskar eftir að heyra frá
þeim ökumönnum sem mættu
bifreiðinni á leið yfir Fagradal
klukkan fjögur aðfaranótt sunnu-
dags í síma 860 3505 og/eða á net-
fangið eski@logreglan.is