Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Blaðsíða 8
„Ég er hvorki
kjördæma- nÉ
flokkaflakkari“
n Vigdís útilokar ekki varaformannsframboð n Hörð átök í Framsókn
„Brugðust hárrétt við“
n Hamar stendur með verkum gæslumanna
K
nattspyrnudeild Hamars segist
standa heil að baki ákvörðun-
um og verkum gæslumanna
sinna en harmar um leið at-
vikið sem átti sér stað og einhliða
fréttaflutning af því. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem Hamar hef-
ur sent frá sér vegna atviks sem átti
sér stað á knattspyrnuleik Hamars
og Knattspyrnufélags Fjallabyggðar á
sunnudag þegar stuðningsmaður KF
slasaðist eftir að gæslumaður á vell-
inum hafði afskipti af honum.
Samkvæmt tilkynningunni á
stuðn ingsmaðurinn að hafa farið út
fyrir afmarkað svæði áhorfenda og
í átt að keppnisvellinum og gæslu-
maður því stjakað við honum. Stuðn-
ingsmaðurinn á þá að hafa runnið til
í blautu grasinu og dottið. Vegna at-
viksins hafi myndast mikil múgæs-
ing meðal stuðningsmanna KF sem
hafi þá gert aðsúg að gæslumönnum
vallarins, „svo mikinn að sá sem féll
mátti teljast heppinn að hafa ekki ver-
ið troðinn niður í hamaganginum.“
Í tilkynningunni stendur jafn-
framt að gæslumenn vallarins hafi
brugðist hárrétt við er þeir reyndu
að halda aftur af æstum stuðnings-
mönnum KF og myndað skjól í
kringum þann sem lá niðri svo hægt
væri að veita honum aðhlynningu.
Strax var kallað á sjúkrabíl og fluttu
gæslumenn þann sem féll, á sjúkra-
börum inn í félagsaðstöðu Hamars
til aðhlynningar þar til sjúkrabíllinn
kom. Ekki var atvikið alvarlegra en
svo að umræddur stuðningsmað-
ur var mættur á áhorfendasvæðið
nokkrum mínútum síðar og tók svo
aftur upp á því að fara út fyrir áhorf-
endasvæðið og inn á völlinn til að
fagna með leikmönnum KF.
Knattspyrnudeild Hamars biðst
jafnframt afsökunar á því að hafa
ekki meinað ölvuðum gestum að-
gang að vellinum. n
8 Fréttir 24. september 2012 Mánudagur
Í hverri Milljónaveltu drögum við að auki út
5 stakar milljónir, aðeins úr seldum miðum.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
22
71
4
Miðasala á www.hhi.is, í síma 563 83OO
eða hjá næsta umboðsmanni.
ÞÚ GETUR
ENN VERIÐ
MEÐ!
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA Á
WWW.HHI.IS
EÐA Í SÍMA
563 83OO
DRÖGUM
25.
SEPTEMBER
6O MILLJÓNIR
Á EINN MIÐA
HEFURÐU PLÁSS FYRIR MILLJÓNIR?
Áttu miða í Milljónaveltunni?
Slasaðist Gæslumenn stumra yfir stuðningmanni KF eftir að hann féll í jörðina og slasaðist.
SkjáSkot af Myndbandi
É
g er hvorki kjördæma- né
flokkaflakkari,“ sagði Vigdís
Hauksdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi suður, þegar DV náði
tali af henni á sunnudag. Orðrómur
hefur verið uppi um að Vigdís ætli að
færa sig um set, yfir í Suðurkjördæmi,
þar sem hún á rætur. Hún segir það
ekki rétt. Nokkurra hræringa gæt-
ir innan Framsóknarflokksins og nú
hefur losnað um sæti varaformanns
flokksins eftir að Birkir Jón Jónsson
tilkynnti að hann ætli að draga sig í
hlé úr pólitík næsta vor.
Sigmundur skiptir um kjördæmi
Á sameiginlegum fundi landsstjórn-
ar og þingsflokks Framsóknarflokks-
ins á Akureyri tilkynnti formaðurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að
hann ætlaði að flytja sig úr Reykja-
víkurkjördæmi norður yfir í Norðaust-
urkjördæmi. Þar sækist Sigmundur
eftir fyrsta sæti á lista. Þetta vekur ekki
síst athygli í ljósi þess að daginn áður
hafði Höskuldur Þór Þórhallsson, 6.
þingmaður Norðausturkjördæmis,
gefið út að hann stefndi á efsta sætið
í kjördæminu og kom ákvörðun Sig-
mundar honum í opna skjöldu.
Skemmst er að minnast þess að
þeir tveir, Höskuldur og Sigmund-
ur, háðu baráttu um formanns-
sætið í Framsóknarflokknum í jan-
úar 2009. Þá hafði Sigmundur betur
eftir dramatískar kosningar þar sem
Höskuldur Þór var fyrst krýndur sig-
urvegari vegna mistaka í talningu.
Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 að
kvöldi sunnudags vill Sigmundur að
Höskuldur víki fyrir sér og sækist eft-
ir öðru sætinu. Ekki náðist í Höskuld
við vinnslu fréttarinnar.
ágreiningurinn opinber
Vigdís segir í samtali við DV að yfir-
lýsing Sigmundar hafi komið henni
á óvart, hún hafi ekki haft veður af
því áður en það varð opinbert. Hún
segist vonast til að þetta gangi yfir,
eins og hún orðar það, en þeir sem
til þekkja í flokknum segja að mál-
ið hljóti að valda titringi innan hans.
Ágreiningur innan flokksins sé nú
orðinn opinber.
Birgir Guðmundsson stjórnmála-
fræðingur tók í sama streng í viðtali
við norðlenska fréttamiðilinn Viku-
dag. Hann segir lengi hafa legið fyr-
ir að Sigmundur og Höskuldur hafi
ekki gengið í takt innan flokksins.
„Nú er þetta orðið að opnum átökum
sem lítið er reynt að fela, eins og sjá
má af því að þeir Birkir Jón Jónsson
og Sigmundur Davíð annars vegar
og Höskuldur hins vegar hafa ekk-
ert rætt þessi framboðsmál sín á milli
og samtalið á sér stað í beinni út-
sendingu fjölmiðla.”
Varaformannsframboð
kemur til greina
Úr því að Birkir Jón Jónsson er á leið
út úr pólitík, sem hann segir vera af
persónulegum ástæðum, liggur fyrir
að varaformannsembættið er laust.
Sigurður Ingi Jóhannsson, vara-
formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins, hefur þegar gefið kost á
sér. En hvað ætlar Vigdís að gera?
„Ég skoða alla möguleika. Það var
skorað á mig síðast en þá fannst mér
mig vanta reynslu. Ég loka ekki á
neitt.“ n
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
átök Sigmundur Davíð tilkynnti að hann ætli að bjóða sig fram til fyrsta sætis á lista
Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þetta kom flatt upp á Höskuld Þór. Stjórnmála-
fræðingur segir átök innan flokksins augljós.
Hættir Birkir Jón Jónsson kveður í vor.
Höskuldur Gæti tekið annan slag.
„Ég loka
ekki á neitt