Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Blaðsíða 10
Vill bætur frá björgólfi
thor Vegna blekkinga
10 Fréttir 24. september 2012 Mánudagur
F
yrrverandi hluthafi í Lands
bankanum krefst þess að
sautján fyrrverandi eigendur
og starfsmenn Landsbank
ans og viðskiptafélagar þeirra
verði látnir bera vitni fyrir Héraðs
dómi Reykjavíkur vegna skaðabóta
máls sem 350 fyrrverandi hluthaf
ar íhuga nú að höfða gegn Björgólfi
Thor Björgólfssyni, aðaleiganda
bankans. Hluthafinn sem um ræðir
er Vilhjálmur Bjarnason, lektor í Há
skóla Íslands.
Beiðni um skýrslutökurnar yfir
Landsbankamönnunum og nán
um samstarfsmönnum Björgólfs
Thors var lögð fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur á föstudaginn í síð
ustu viku. Jóhannes Bjarni Björns
son lögmaður skrifar beiðnina fyr
ir hönd Vilhjálms. Ef Héraðsdómur
Reykjavíkur tekur undir málflutn
ing Vilhjálms munu fara fram vitna
leiðslur í dómnum fyrir opnum tjöld
um. Þessar vitnaleiðslur geta síðan
orðið grundvöllur að skaðabótamáli
gegn Björgólfi Thor. Slík málshöfð
un yrði sú fyrsta sinnar tegundar hér
á landi eftir bankahrunið og yrði þar
af leiðandi söguleg. Þá eru jafnframt
ekki mörg dæmi þess í heiminum að
hluthafar í fjármálafyrirtæki á mark
aði höfði skaðabótamál gegn stærsta
hluthafanum.
Vilhjálmur segist aðspurður
ekki vilja ræða um málið þar sem
hann hafi það fyrir reglu eftir að
mál eru komin til kasta dómstóla
að ræða ekki um þau opinber
lega. Ekki náðist í Ragnhildi Sverr
isdóttur, talskonu Björgólfs Thors,
á sunnudagskvöldið.
Blekkingar með eignarhald
Í stuttu máli byggir beiðni Vilhjálms
á því að sterkar vísbendingar séu fyr
ir hendi um að Björgólfur Thor hafi
beitt blekkingum til að leyna raun
verulegu eignarhaldi sínu á hluta
bréfum í Landsbankanum á árunum
fyrir hrunið. Inntakið í gagnrýninni
er að Björgólfur Thor hafi látið nána
samstarfsmenn sína halda utan
um lítinn eignarhlut í bankanum í
gegnum eignarhaldsfélagið Samson
þannig að óbeint eignarhald hans
sjálfs færi niður fyrir 20 prósent. Í
beiðninni er rakið hvernig Björgólf
ur Thor er talinn hafa falið eigið
eignarhald í bankanum með því að
láta undirmenn sína halda utan um
hlutabréf í bankanum í gegnum fé
lögin Hersi og Valhamar Group,
sem síðan áttu hlutabréf í Samson
og Givenshire ltd., félaginu sem hélt
utan um hlut Björgólfs Thors í Sam
son.
Með þessu móti hafi eignarhald
Björgólfs Thors farið niður fyrir 20
prósent. Fyrir vikið var Björgólfur
Thor ekki skilgreindur sem tengd
ur aðili í bankanum og þurftu lán
veitingar til hans því ekki að fara
fyrir lánanefnd, auk þess sem
hann gat fengið hærri lán í bank
anum en ella. Orðrétt segir um
þetta í beiðninni: ,,Beiðandi telur
vísbendingar um að kaup Hersis
á hlut í Samson eignarhaldsfélagi
ehf. og félags í eigu starfsmanna
Novators á hlut í Givenshire hafi
verið sýndargerningar, gerð
ir í þeim tilgangi að halda form
legu eignarhaldi Björgólfs Thors í
Landsbankanum fyrir neðan 20%
mörkin sem kveðið er á um í IAS 24
staðli þannig að formleg skylda til
að skilgreina Björgólf sem tengd
an aðila í reikningsskilum bank
ans yrði ekki virk.“
Ótengdur Actavis
Þá er rakið hvernig starfsmenn
Landsbankans og Björgólfur Thor
hafi tekið sig saman um að koma í
veg fyrir að áhættuskuldbindingar
til Björgólfs Thors og Actavis yrðu
tengdar saman í bankanum en slíkt
hefði aukið áhættu Landsbankans
vegna lánveitinga til Björgólfs Thors.
Björgólfur Thor, eða félög í hans eigu,
voru bæði stærstu eigendur Lands
bankans og Actavis. Bent er á það
að lánveitingar til Björgólfs Thors og
tengdra félaga hafi, samkvæmt mati
Fjármálaeftirlitsins á lánum Lands
bankans til hans, numið rúmlega 51
milljarði króna, eða sem nam 49,7
prósentum af eiginfjárgrunni bank
ans. Á sama tíma nam skilgreining
Landsbankans á lánveitingum til
Björgólfs Thors rúmum 33 milljörð
um króna eða tæpum 34 prósentum
af eiginfjárgrunni bankans.
Inntakið í beiðninni er því í aðal
atriðum tvíþætt: Annars vegar að
komast að því hvort átt hafi sér stað
blekkingar með eignarhaldið á
hlutabréfum í Landsbankanum – til
hagsbóta fyrir Björgólf Thor – og hins
vegar hvort stjórnendur Landsbank
ans hafi tekið þátt í því með Björgólfi
Thor að blekkja eftirlitsaðila með
því að tengja fyrirtæki og félög sem
hann átti ekki saman sem sameigin
legar áhættuskuldbindingar. Orðrétt
segir í beiðninni: ,,Beiðandi telur að
fyrirliggjandi gögn gefi vísbendingu
um að stjórnendur Landsbankans
og Björgólfur Thor hafi í samein
ingu lagt á ráðin um það með hvaða
hætti mætti víkja sér undan eða
komast framhjá reglum um stórar
áhættuskuldbindingar vegna útlána
Landsbankans til Björgólfs Thors og
tengdra félaga.“
Telur bankann hafa spilað með
Þá segir lögmaður Vilhjálms að hann
telji að leynd á þessum umfangs
miklu lánveitingum til Björgólfs
Thors ,,hafi verið orðin nauðsynleg
til að viðhalda rekstrarhæfi hans og
trúverðugleika“. Þannig hafi blekk
Biður um málið Vilhjálmur Bjarnason bað um það formlega í Héraðsdómi Reykjavíkur að vitnamálið verði höfðað.
Landsbankinn með í ráðum Í beiðninni
koma fram þær grunsemdir að forsvars-
menn Landsbankans hafi tekið þátt í blekk-
ingunum með Björgólfi. Sigurjón Árnason
var bankastjóri Landsbankans.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Héraðsdómur fékk beiðni um vitnamál á föstudaginn n 350 hluthafar bíða eftir niðurstöðu
Vill þessa í vitnastúku:
Björgólfur Thor
Björgólfsson
fyrrverandi aðaleig-
andi Landsbankans og
fjárfestir.
Björgólfur
Guðmundsson
fyrrverandi aðaleig-
andi og stjórnarfor-
maður Landsbankans.
Andri Sveinsson
samverkamaður Björg-
ólfs Thors, fyrrverandi
starfsmaður Novators
og einn eiganda Hersis.
Birgir Már Ragnarsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri Samson,
fyrrverandi stjórnarmaður í Novator og
einn eiganda Hersis.
Kjartan Gunnarsson
fyrrverandi varafor-
maður bankaráðs
Landsbankans.
Þór Kristjánsson
fyrrverandi samverkamaður Björgólfs
Thors og fyrrum stjórnarmaður í Lands-
bankanum og Hersi.
Gunnar Valdimarsson
fyrrverandi forstöðumaður
skattasviðs Landsbank-
ans.
Ársæll Hafsteinsson
fyrrverandi aðallög-
fræðingur Landsbankans.
Halldór J.
Kristjánsson
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans.
Sigurjón Þ. Árnason
fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans.
Vignir Rafn Gíslason
löggiltur endurskoðandi.
Tómas Ottó
Hansson
einn eigenda Hersis og
fyrrverandi
stjórnarmaður í Novator.
Sigþór Sigmarsson
þáverandi og núverandi
stjórnarmaður í Novator.
Vífill Harðarson
fyrrverandi starfsmaður
Novators.
Þórður Örlygsson
fyrrverandi regluvörður Landsbankans.
Haukur Þór
Haraldsson
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjár-
mála- og rekstrarsviðs
Landsbankans.
Sigurbjörn Guðbjörn Geirsson
fyrrverandi innri endurskoðandi
Landsbankans.