Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Qupperneq 11
Vill bætur frá björgólfi
thor Vegna blekkinga
Fréttir 11Mánudagur 24. september 2012
Kastanía Höfðatorgi, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík, sími 577 5570
Arna Verslun Grímsbæ, Efstalandi 27, 108 Reykjavík, sími 527 1999
Junik Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, sími 571 7700
Sirka Skipagötu 6, 600 Akureyri, sími 461 3606
Paloma Víkurbraut 62, 240 Grindarvík, sími 426 8711
Cleopatra Austurvegi 4, 800 Selfossi, sími 482 2144
Heildsöludreifing:
Óm Snyrtivörur ehf, Tunguvegi 19, 108 Rvík. sími 568 0829, om@om.is
Útsölustaðir
Stöndum saman
gegn einelti
og sýnum stuðning með
GOOD WORK(s)
leðurarmböndunum
Falleg áminning um
trú, ást og kærleika
ingar Björgólfs Thors skilað sér í því
að starfsmenn Landsbankans höfðu
orðið hagsmuni af því að leyndinni
var viðhaldið: ,,Af því leiddi að allir
starfsmenn og stjórnendur bankans
höfðu orðið beina hagsmuni af því
að viðhalda hinu ólögmæta ástandi.“
Í beiðninni segir að ef upplýsingar
um raunverulegt eignarhald Björg-
ólfs Thors í Landsbankanum og ef
umfang lánveitinga bankans til hans
hefði legið fyrir þá sé ólíklegt að fjár-
festar hefðu keypt hlutabréf í Lands-
bankanum. ,,Beiðandi byggir á því að
ef hið gríðarlega umfang lánveitinga
til Björgólfs Thors, hefði legið fyrir op-
inberlega, í síðasta lagi um áramótin
2005/2006, hefði hann ekki fjárfest í
bankanum. Sama á við ef fyrir hefði
legið að Landsbanki Íslands hf. væri
dótturfélag Samson eignarhaldsfélags
ehf. Er í huga beiðanda ljóst að
sú dreifing á áhættu sem reglu-
verk um bankastarfsemi á að tryggja,
hafi ekki verið fyrir hendi hjá Lands-
bankanum og að hann hafi verið mun
háðari Björgólfi Thor, og árangri hans
í viðskiptum, en reikningar hans gáfu
til kynna. Beiðandi telur óhugsandi að
hann eða aðrir fjárfestar hefðu fjárfest
í bankastofnun sem bryti gegn reglum
um stórar áhættuskuldbindingar eins
gróflega og Landsbankinn gerði vegna
lána til Björgólfs Thors.“
Á þessari forsendu mun skaða-
bótamálið gegn Björgólfi Thor
verða höfðað ef af því verður eftir
vitnamálið.
Skýrslutökur yfir
feðgunum
Þeir sem Vilhjálmur fer fram á að
gefi vitnaskýrslu í málinu eru með-
al annarra Björgólfsfeðgar, fyrrver-
andi bankastjórar Landsbankans, þeir
Sigurjón Árnason og Halldór J. Krist-
jánsson, Kjartan Gunnarsson, fyrr-
verandi varaformaður bankaráðs
Landsbankans, og Andri Sveinsson
og Birgir Már Ragnarsson sem um
árabil hafa verið nánustu samverka-
menn Björgólfs Thors. Þá er einnig
um að ræða aðra háttsetta starfsmenn
Landsbankans svo sem eins og yfir-
lögfræðinginn Ársæl Hafsteinsson, yf-
irmann skattasviðsins, Kristján Gunn-
ar Valdimarsson, regluvörðinn Þórð
Örlygsson og innri endurskoðandann,
Sigurbjörn Geirsson.
Skýrslutökurnar yfir þeim ættu því
að geta orðið fróðlegar og upplýsandi
í meira lagi. Héraðsdómur Reykjavík-
ur mun þurfa að taka afstöðu til beiðni
Vilhjálms áður en vitnaskýrslurnar
fara fram. Í kjölfarið gæti verið höfð-
að skaðabótamál gegn Björgólfi Thor á
grundvelli þeirra upplýsinga sem vitn-
in veita: ,,Beiðandi telur nauðsynlegt
að leita sönnur á þau atvik sem fyrr
greinir svo hann geti metið hvort höfða
eigi skaðabótamál gegn Björgólfi Thor
Björgólfssyni,“ segir í einni síðustu
setningu beiðninnar. n
„Beiðandi byggir á
því að ef hið gríðar-
lega umfang lánveitinga til
Björgólfs Thors, hefði legið
fyrir opinberlega [...] hefði
hann ekki fjárfest í bank-
anum.“
Grunnur að skaðabótamáli
Vitnamálið sem Vilhjálmur reynir nú að
höfða er grunnur að skaðabótamáli gegn
Björgólfi Thor Björgólfssyni sem 350 fyrr-
um hluthafar bankans hyggjast höfða.n Héraðsdómur fékk beiðni um vitnamál á föstudaginn n 350 hluthafar bíða eftir niðurstöðu