Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Side 13
Erlent 13Mánudagur 24. september 2012
Á
hverjum klukkutíma, stund-
um á tuttugu mínútna fresti,
komu þeir og börðu okk-
ur með prikum,“ segir ung-
ur flóttamaður frá Eritreu í
samtali við CNN. Á norðanverðum
Sínaískaga sem tilheyrir Egyptalandi
er hættulegt svæði sem nefnist Al
Mehdia. Á þessu svæði, sem liggur að
landamærum Egyptalands að Ísrael,
ríkir hálfgerð skálmöld; þetta er griða-
staður glæpamanna enda er engin
löggæsla sýnileg á svæðinu. Mansal
og mannrán eru daglegt brauð og ein
helsta tekjulind þessara glæpahópa.
Ungum Afríkumönnum, sem reyna
að komast frá Afríku til Ísraels í leit að
betra lífi, er gjarnan rænt og lausnar-
gjalds krafist.
Hátt lausnargjald
Ungi Eritreumaðurinn sem vitn-
að er í hér að framan er einn af fjöl-
mörgum Afríkubúum sem lent hafa í
klónum á þessum krimmum. Flestir
þeirra koma frá bláfátækum ríkjum á
borð við Eritreu og Súdan. Þeir upp-
lifa pyntingar í sérstökum pyntingar-
búðum sem herská glæpagengi
bedúína stjórna. Mannræningjarn-
ir krefjast lausnargjalds fyrir fanga
sína, frá fjórum milljónum króna til
rúmlega sjö milljóna. Þá eru dæmi
þess að þeir sem ekki geta borgað –
eða þekkja engan sem getur borgað
– upplifi þá hörmung að mikilvæg
líffæri úr þeim séu fjarlægð og þau
síðan seld spilltum læknum. Ekk-
ert nema dauðinn bíður þeirra sem
upplifa það.
Góðhjartaðir bedúínar
Þó að skálmöld hafi ríkt á þessu svæði
um langt skeið er það ekki svo að all-
ir á svæðinu séu ótýndir glæpamenn.
CNN fjallaði ítarlega um stöðu mála á
svæðinu á dögunum og þar kom fram
að hópur góðhjartaðra bedúína á
norðanverðum Sínaískaga hafi feng-
ið nóg af ástandinu. Einn þeirra er
Sheikh Mohammed Abu Billal, höfð-
ingi Sawarka-ættbálksins, sem hef-
ur komið upp aðstöðu til að aðstoða
fórnarlömb mannrána og pyntinga
á svæðinu. Mohammed er Salafisti,
íhaldsamur íslamisti, og mannvinur
að eigin sögn. „Það sem þessir glæpa-
hópar gera er gegn vilja guðs,“ segir
hann.
Skelfilegar pyntingar
Í búðunum sem Mohammed hef-
ur komið upp njóta flóttamennirnir
verndar, mennirnir sem sloppið hafa
úr klóm glæpagengjanna. „Ef afrískur
flóttamaður slapp úr haldi hér áður
fyrr var auðvelt að handsama hann
aftur. Þessir braskarar dirfast ekki að
stíga fæti inn á okkar land. Við gefum
þeim mat, vatn og föt og komum þeim
undir læknishendur ef þeir þurfa,“
segir Mohammed.
Blaðamaður CNN fékk að heim-
sækja búðirnar fyrir skemmstu. Þar
dvöldu fjórtán Eritreumenn sem all-
ir höfðu sloppið úr pyntingabúðum
nokkrum dögum fyrr. Þeir báru all-
ir greinileg merki þess að hafa orðið
fyrir skelfilegum pyntingum eins og
meðfylgjandi myndir bera með sér.
Aðferð sem virkar
„Þeir hlekkjuðu hendur okkar og fæt-
ur saman og hengdu okkur upp. Síðan
börðu þeir á iljarnar á okkur, bræddu
plast á líkama okkur og börðu okkur
stanslaust. Þeir sögðu að ef við mynd-
um ekki borga þeim myndi enginn
okkar komast lífs af,“ segir einn
Eritreu maðurinn þegar hann lýs-
ir reynslu sinni. Það kann að hljóma
einkennilega að milljóna króna sé
krafist af bláfátækum einstaklingum
sem eiga ekkert nema fötin sem þeir
klæðast. Í umfjöllun CNN kemur fram
að glæpahóparnir hafi komið sér upp
kerfi sem virkar. Meðan á pyntingum
stendur sé ekkert annað í stöðunni
fyrir flóttamennina en að hringja í
einhvern nákominn og grátbiðja um
peninga. Stundum gengur það og þá
er flóttamönnum sleppt. Ef það geng-
ur ekki eiga þeir sér litla von.
„Við sjáum yfirleitt merki um
pynt ingar og nauðganir. Þeir koma
hingað oft í mjög slæmu ásigkomu-
lagi,“ segir Sheikh Mohammed. Það
eru ekki bara karlmenn sem koma í
búðirnar heldur einnig konur sem
stundum eru óléttar eftir að hafa ver-
ið nauðgað.
Beittir þvingunum
Sheikh Mohammed er hvergi bang-
inn enda á hann öfluga bandamenn
– bandamenn sem stundum eru sjálf-
ir krimmar. Einn þeirra er Sheikh
Ibrahim al Munai, stoltur smyglari
sem á nokkur jarðgöng sem notuð
eru til að smygla varningi frá Egypta-
landi til Gaza. Ibrahim stendur með
Sheikh Mohammed í baráttunni og er
ánægður með árangurinn sem hefur
náðst. Forsprökkum þessara glæpa-
hópa hefur fækkað mikið á undan-
förnum misserum og þvingunum er
beitt gegn þeim. Þannig mega versl-
anir á svæðinu ekki selja varning til
meðlima glæpagengjanna. „Við höf-
um látið verslanir fá lista með nöfnum
þessara manna. Þeir eru sniðgengnir
og sumir feður á svæðinu leyfa þess-
um mönnum ekki að kvænast dætr-
um sínum. Ibrahim og Mohammed
segja að lokum að þeir hafi bjarg-
að nokkur hundruð Afríkumönnum
úr klóm mansalsmanna. Þeir viður-
kenna þó að enn sé langur vegur fyrir
höndum. n
Hryllilegar pyntingar á
afrískum flóttamönnum
„Þeir hlekkj-
uðu hend-
ur okkar og fætur
saman og hengdu
okkur upp
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
n Berjast gegn krimmum á Sínaískaga n Líffæri fjarlægð ef lausnargjald berst ekki
Standa saman Sheikh Mohammed Abu Billal og Sheikh Ibrahim al Munai standa saman í
baráttunni gegn mansalsmönnum á svæðinu.
Ljót ör Hér sjást flóttamenn í búðun-
um sem Mohammed hefur komið upp.
Plast var brætt yfir líkama þeirra.