Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Side 16
Tekur Ísland fram
yfir Hollywood
16 Umræða 24. september 2012 Mánudagur
Aðalsteinn Kjartansson Ertu
að fara til Hollywood með
Djúpið?
Baltasar Kormákur Það er áhugi á
að sýna hana í Bandaríkjunum. Ein-
hver áhugi hefur verið á endurgerð
á myndinni en formlegar viðræður
hafa ekki hafist. Ef af yrði myndi ég
ekki leikstýra henni sjálfur.
Fundarstjóri Hvaða
Hollywood-leikurum værir þú
mest til í að leikstýra?
Baltasar Kormákur Christian Bale,
Cate Blanchett og Ryan Gosling – og
mörgum fleiri.
Birgir Jóakimsson Hvað með
Fischer-Spassky einvígið?
Eitthvað spáð í að gera mynd
um það, eða Fischer kallinn?
Baltasar Kormákur Reyndar hef ég
lesið frábært handrit um einvígið.
Toby Maguire ætlaði að leika hann
en ég hafði ekki áhuga á að ræða
það frekar. Hann er ekki nema hálfur
Fischer á hæð. Efnið finnst mér mjög
áhugavert.
Ingi Vilhjálmsson Þú ætlar að
búa til kvikmynd eftir
Sjálf stæðu fólki – loksins verður
það gert og gæti orðið epískt ef vel tekst
til. Hversu langt ertu kominn með það
verkefni? Liggur fyrir hver mun leika
Bjart?
Baltasar Kormákur Var rétt að
tryggja mér réttinn. Hef langað til
að gera þetta síðan ég byrjaði að
gera kvikmyndir. Ég er ekki byrjaður
á handritsvinnu og er ekki búinn að
ráða leikara en auðvitað er ég með
nokkra í huga.
Ingi Vilhjálmsson Vinnur þú
handritið að Sjálfstæðu fólki
sjálfur eða verður einhver með
þér í því?
Baltasar Kormákur Ég mun örugg-
lega vinna að því sjálfur. Það getur
þó vel komið til greina að ég vinni
með einhverjum öðrum en ég mun
örugglega byrja vinnuna sjálfur.
Aðalsteinn Kjartansson Hvað
græddirðu mikið á Contraband?
Baltasar Kormákur Það
er einkamál en ábyggilega ekki
eins mikið og fólk heldur. Laun og
greiðslur sem ég fæ fyrir það sem
ég geri erlendis fara inn í fyrirtækið
mitt, Sögn. Peningarnir fara svo
í fjárfestingar tengdar innlendri
kvikmyndagerð.
Hljómsveitin Bárujárn Hverja
af myndum þínum ertu
ánægðastur með?
Baltasar Kormákur Í dag: Djúpið.
Hilmar Garðarsson Hverjir eru
þínir helstu áhrifavaldar i
kvikmyndagerð?
Baltasar Kormákur Milos Forman,
Peter Wier, Steven Soderbergh, Emir
Klimov og margir fleiri.
Eyþór Jóvinsson Finnst þér rétt
að hagnast á óförum annarra
þegar eftirlifendur eru því
mótfallnir?
Baltasar Kormákur Kvikmyndin
Djúpið kostaði á fjórða hundrað
milljónir. Ég tek persónulega áhættu
út af stórum hluta þeirra fjármuna.
Það er ólíklegt að myndin komi
fjárhagslega út í plús. Eftirlifendur
eru þessu ekki mótfallnir og get ég
þá vísað í grein á Vísi.is þar sem sonur
eins af skipverjunum sem fórust lýsir
yfir ánægju sinni með að myndin hafi
verið gerð.
Ingunn Einarsdóttir Að þínu
mati, hver er besta bíómynd
allra tíma?
Baltasar Kormákur Get eiginlega
ekki svarað því. Það eru margar
bíómyndir sem koma upp í hugann.
Til dæmis Komið og sjáið eftir Emir
Klimov. Witness eftir Peter Wier er
meistarastykki. Svona get ég lengi
talið.
Auðunn Valsson Myndi það
freista þín að gera alþjóðlega
kvikmynd um íslenska
bankahrunið?
Baltasar Kormákur Af hverju ekki
bara að gera íslenska mynd um
hrunið? Ef hún verður góð þá getur
hún orðið alþjóðleg. Hvort það myndi
freista mín fer eftir efnistökunum.
Er reyndar með handrit sem ég hef
áhuga á að framleiða með öðrum
leikstjóra sem gerist í hruninu og
tekur að hluta til á þessum málum.
Sigrún Steingrímsdóttir Er
Mark Wahlberg eins sjarmerandi
í raunveruleikanum og hann er á
hvíta tjaldinu?
Baltasar Kormákur Já, jafnvel
meira. Frábær drengur og tryggur
sínum nánustu.
Kristján Benjamínsson Ertu að
fara vinna aftur með Mark
Walhberg?
Baltasar Kormákur Já, það er
mjög líklegt. Við erum með nokkur
verkefni sem við höfum áhuga á að
gera saman.
Erlingur Guðmundsson Hvað
myndir þú ráðleggja ungum
framleiðendum nú til dags til
þess að koma sér á framfæri?
Baltasar Kormákur Reyna að gera
eitthvað sem skiptir þá máli og
leggja allt sem þeir geta í það. Vaxa
af verkum sínum. Gott verk kemur
þér á framfæri.
Atli Martin Ef þú fengir tilboð
um að leikstýra Transformers 4,
myndir þú taka það að þér?
Baltasar Kormákur Nei, sennilega
ekki. Þetta er ekki sú tegund af
kvikmyndum sem ég hrífst af.
Jón Sigvaldason Hver er
uppáhalds íslenska bíómyndin
sem þú leikstýrðir ekki?
Baltasar Kormákur Börn náttúr-
unnar, Hrafninn flýgur, Nói albinói.
Guðmundur Þorsteinsson
Langar þig til að gera mynd eftir
einhverri af Íslendingasögunum,
og ef svo er hvaða sögu og hvers vegna?
Baltasar Kormákur Ég ætlaði
lengi vel að gera Brennu-Njálssögu.
Komst að því, eftir margra ára
handritsvinnu, að það er nánast
ógjörningur. Það þróaðist síðan yfir í
víkingamyndina.Tryggði mér nýlega
réttinn á Gerplu sem er byggð á Fóst-
bræðrasögu. Ég hef áhuga á að gera
það. Það mun liggja einhvers staðar
á milli Fóstbræðrasögu og Gerplu.
Stefán Stefánsson Hvaða
leikhlutverk er eftirminnilegast
á ferlinum?
Baltasar Kormákur Mér þykir sér-
staklega vænt um Óla bítil í Englum
Alheimsins.
Sævar Eyjólfsson Hvað
hræðistu mest?
Baltasar Kormákur Að
missa heilsu og geta því ekki komið
því í verk sem mig langar til að gera.
Ekki af neinni sérstakri ástæðu samt,
ég er við hestaheilsu.
Óskar Páll Elfarsson Hvert
sækirðu allan þann kraft sem
knýr þig áfram, hvaðan kemur
metnaðurinn og viljinn? Í hvaða brunn
leitar þú þegar mikið liggur við ?
Baltasar Kormákur Að einhverju
leyti í íslenska náttúru. Ég held að
metnaður og vilji sé að einhverju leyti
eitthvað sem er manni í blóð borið.
Þekki það til dæmis vel með hesta;
ef þeir eru viljugir þá eru þeir það
yfirleitt frá upphafi.
Óli Gunnarsson Hvað finnst þér
um Kvikmyndaskóla Íslands og
það fólk sem sá skóli hefur verið
að skila inn í kvikmyndabransann?
Baltasar Kormákur Öll menntun í
kvikmyndagerð er auðvitað af hinu
góða. Margt gott sem þessi skóli
hefur komið til leiðar. Tel þó að ríkið
þurfi að girða sig í brók og stofna
kvikmyndaskóla á háskólastigi, eins
og í öðrum listgreinum.
Steinar Ólafsson Ef þú ættir að
mæla með einni sjónvarpsseríu,
hvaða sjónvarpssería væri það?
Baltasar Kormákur Seinfeld er í
miklu uppáhaldi hjá mér. Ég hef því
miður ekki tíma til að fylgjast náið
með sjónvarpsþáttum.
Guðmundur Franklín Jónsson
Ef það er eitthvað eitt sem
stjórnvöld ættu að gera fyrir
kvikmyndaiðnaðinn, hvað væri það?
Baltasar Kormákur Það myndi
hjálpa að hækka endurgreiðsluna
– hún er víða hærri. Það þyrfti að
stofna kvikmyndaskóla á háskóla-
stigi og gera betur við kvikmynda-
sjóð, en mér skilst að það standi til.
Sævar Eyjólfsson Hefurðu
einhvern brennandi áhuga á
einhverju öðru en sem tengist
kvikmyndagerð, leiklist og hestum? Ertu
til dæmis handlaginn?
Baltasar Kormákur Ég keppti mikið
í siglingum þegar ég var yngri og
hefði mikinn áhuga á að taka það
upp. Tók meðal annars að mér að
kenna börnum á Hofsósi siglingar
síðastliðið sumar.
Hilmar Garðarsson Nú ertu að
fara að gera Grafarþögn,
hefurðu hugsað þér að gera fleiri
myndir eftir bókum Arnaldar?
Baltasar Kormákur Ætla nú að
klára hana fyrst en er mjög mikill
aðdáandi Arnaldar þannig að það
kemur vel til greina. Ég ræð því að
sjálfsögðu ekki einn, því Arnaldur
hefur auðvitað mikið um það að
segja.
Brynjólfur Ómarsson Þú virðist
hafa slegið í gegn í Kína líka. Ég
keypti sjóræningjaútgáfu af
Kontraband þar á 140 kr. Færð þú
eitthvað af þeim peningum eða á ég að
borga stefgjöld beint til þín? :)
Baltasar Kormákur Já, ég á að fá
stefgjöld fyrir seldar myndir en þú
skuldar mér tíkall.
Ragnar Bjarnason Hvað með
leikhúsið. Eitthvað á leiðinni
þangað?
Baltasar Kormákur Elska leikhúsið.
En það er feikilega erfitt að sinna
þessu öllu í einu. Síðustu tvær
leiksýningar sem ég ætlaði að gera,
þurfti ég að hætta við vegna anna.
Hannes Þórisson Ef þú
þyrftir að velja á milli þess að
starfa í Hollywood eða á
Íslandi til frambúðar, hvort yrði fyrir
valinu?
Baltasar Kormákur Ég hugsa
að Ísland yrði fyrir valinu. En ég
sé ekki aðstæður þar sem þetta
kæmi upp – nema ef þriðja heims-
styrjöldin hæfist og ekki væri hægt
að fljúga á milli landa.
Steini Thorst Hvaða lausnir
sérð þú sjálfur í baráttunni
gegn ólöglegu niðurhali á
bíómyndum og tónlist, þar sem það er
sjálfsagt helling stolið af þér?
Sigurður Jóhannesson Hefur
þú náð ólöglega í kvikmynd á
netinu?
Baltasar Kormákur Nei, það hef
ég ekki gert. Er ekki nógu góður á
tölvur og þolinmóður til að bíða.
Ég veit að ákveðnir fjölskyldumeð-
limir hafa gert það. Contraband
var mest stolna myndin í heim-
inum um síðustu páska. Veit ekki
hvort ég eigi að líta á það sem hrós
eða vandamál. Þetta er vandamál
sem kvikmyndaiðnaðurinn fæst
við. Auðvitað er ég á móti ólöglegu
niðurhali en boð og bönn eru ekki
alltaf leiðin til þess að takast á við
vanda.
Ísak Hinriksson Er ekkert á
planinu hjá þér að leika
meira?
Baltasar Kormákur Sæll Ísak,
takk fyrir síðast. Það er alltaf verið
að bjóða mér að leika. Það kemur
vel til greina að gera það þegar
rétta djobbið býðst – og tíminn er
nægur.
Björn Guðmundsson Hver er
þín uppáhalds lína úr
Djöflaeyjunni? Þar sem mér
þykir þú fara með mikinn leiksigur.
Baltasar Kormákur Wipe the
windows, check the oil, dollar gas.
Sverrir Lýðsson Hvað er
stærsta verk sem þig hefur
langað að ráðast í en ekki haft
fjármagn til ?
Baltasar Kormákur Ætli það sé
ekki Víkingamyndin – en það lítur
út fyrir að það fari að rætast úr því.
Eiríkur Sigurðsson Hvernig er
að hitta menn eins og
Wahlberg og Denzel í fyrsta
skipti? Er ekkert smá stress í gangi,
allavega spenna?
Baltasar Kormákur Jú, auðvitað
er alltaf spennandi að hitta svona
gaura en kannski ekkert mikið
stress. Reyndar kannski smá þegar
ég hitti Denzel. Hann er svo últra-
svalur og þekktur fyrir að taka
menn á taugum.
Þorkell Magnússon Hvernig
fannst þér að vinna með
Denzel, er hann erfiður eða er
gott að vinna með honum?
Baltasar Kormákur Frábær leikari
og ótrúlega nákvæmur og hæfileika-
ríkur. Kannski ekki sá auðveldasti í
bransanum. Það er af því að honum
er ekki sama; gerir miklar kröfur til
sín og annarra í kringum sig.
Ína Kristín Hvaða liði heldurðu
með í enska boltanum?
Baltasar Kormákur Ég
skipti alltaf á hverju ári. Ég er algjör
fótboltahóra, að minnsta kosti
segja synir mínir það. Ætli ég haldi
ekki bara með City núna.
Þröstur Guðmundsson Ef ég
hugsa um 5 stærstu leikstjóra
sögunnar þá koma upp í
hugann eftirtaldir: Peter Jackson
Steven Spielberg, George Lucas, Martin
Scorsese og Francis Ford Coppola. Hver,
ef einhver, finnst þér bestur?
Baltasar Kormákur Martin
Scorsese er í mestu uppáhaldi af
þessum leikstjórum en Coppola
var frábær á sínum tíma. Hann
bauð mér reyndar út að borða á
La Primavera fyrir nokkrum árum
síðan.
Brynjar Friðriksson Áttu þér
einhverja uppáhalds senu í
kvikmyndasögunni?
Baltasar Kormákur Það er frábær
sena í Short Cuts þar sem hjón
rífast um framhjáhald og konan
er ber að neðan á meðan. Og hún
er með rautt hár – algjör snilld hjá
meistaranum.
Hafsteinn Árnason Ef þú
ættir kost á að endurgera
hvaða íslensku kvikmynd sem
er, hver yrði fyrir valinu og hvers
vegna?
Baltasar Kormákur Útlagann.
Sagan er frábær.
Jón Jakobsson Hvert er drauma
verkefnið þitt sem kvikmynda-
gerðarmanns?
Baltasar Kormákur Sjálfstætt fólk.
Jón Vigfússon Hver er að þínu
mati fallegasti staðurinn á
Íslandi?
Baltasar Kormákur Hálendið eins
og það leggur sig.
Rúnar Carlsson Værirðu til í að
sjá aðra Sódómu Reykjavík á
hvíta tjaldinu?
Baltasar Kormákur Meiri Sódóma?
Því ekki það.
Einar Sigurgeirsson Hvað eru
eiginlega margir klukkutímar í
þínum vinnudegi ?
Baltasar Kormákur 38 – er það ekki
þannig hjá öllum öðrum?
Birgir Birgisson Á að skella sér í
Laufskálaréttir?
Baltasar Kormákur Ekki
spurning. Allavega Unadalsrétt.
Mögnuð rétt.
Brynjar Friðriksson Er Michael
Keaton ekki hinn eini sanni
Bruce Wayne/Batman?
Baltasar Kormákur Mér finnst nú
Christian Bale flottari – kannski bara
of flottur.
Páll Georgsson Áttu hús á fleiri
stöðum en á Íslandi?
Baltasar Kormákur Nei.
Einar Sigurgeirsson Nú sýndir
þú stórleik í Veggfóðri, hvenær
kemur Veggfóður 2 ?
Baltasar Kormákur Það fer alveg
að koma að því. Erum að vinna í
handritinu – nokkrar nektarsenur
sem við erum að diskútera. Myndin
verður ekki gerð aftur nema Ari
Matthíasson snúi aftur sem homm-
inn. Hann er nú framkvæmdastjóri
Þjóðleikhússins – spurning hvort þar
verði árekstrar.
Baltasar Kormákur, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi, sat fyrir svörum á Beinni línu DV á föstudag.
M
y
n
d
IR
JG
nafn: Baltasar Kormákur
Aldur: 46 ára
Starf: Kvikmyndaleikstjóri
og framleiðandi