Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Page 19
8 algengar áhyggjur
tilvonandi mæðra
Lífsstíll 19Mánudagur 24. september 2012
1 Þú breytist í mömmu þína Það er óhjákvæmilegt að leiða
hugann að því hvernig þú varst alin
upp þegar þú ert sjálf orðin mamma.
Sama hvaða skoðun þú hefur á
uppeldisaðferðum móður þinnar
muntu án efa heyra rödd hennar
koma út úr munni þínum áður en þú
veist af. Þetta er óumflýjanlegt.
Mamma þín er sterkasta fyrirmyndin
þegar kemur að uppeldi. Lykillinn að
því að ákveða sjálf hvernig móðir þú
vilt verða, í stað þess að apa í blindni
eftir því kunnuglega, er vitund.
Hugsaðu um það sem þú lærðir af
mömmu þinni og ákveddu hvað þú
vilt tileinka þér og hvað þú vilt
forðast.
2 Þú týnir sjálfri þér Þegar þú breytist úr sjálfstæðri mann
eskju í foreldri þarftu að geta haldið í
þau atriði sem skipta þig máli en
kvatt önnur sem hafa ekki lengur
merkingu fyrir það hver þú ert. Þótt
þú hafi þroskast í nýja útgáfu af sjálfri
þér, þýðir það ekki að þú þurfir að
kveðja þær hugmyndir að eilífu.
Vissulega mun það breyta þér til
frambúðar að verða mamma en samt
sem áður ertu sama manneskjan.
3 Ástarsambandið breytist Þetta er að vissu leyti satt.
Koma barns breytir virkni fjölskyld
unnar – en það þarf ekki að vera til
hins verra. Að eignast og ala upp
barn saman býr til nýjan vettvang
fyrir for eldra. Uppeldi er mikil vinna
en ef þið eruð ástfangin ætti
sam band ið að verða sterkara fyrir
vikið.
4 Þú ferð á hausinn Börn eru dýr í rekstri en þau börn sem
alast upp við heimilisaðstæður þar
sem peningar vaxa ekki á trjánum
læra að fara með peninga. Þú kemst
af án þess að kaupa allt sem er í boði,
allt sem þig langar að kaupa og allt
sem barnið biður um.
5 Þú verður slæmt foreldri Við lifum á tímum ýktra uppeldis
aðferða þar sem „sérfræðingar“
leynast í hverju horni. Það er ekkert
skrítið að við höfum áhyggjur af því
að standa okkur ekki. Allir hafa
skoðun en í rauninni er þín skoðun
sú sem skiptir máli. Muntu einhvern
tím ann verða fyrir von brigðum með
sjálfa þig? Pottþétt. En það þýðir ekki
að þú sért slæm mamma, þú ert
bara mannleg. Að vera góð
mann eskja er fyrsta skrefið að því að
verða góð mamma.
6 Þér á eftir að finnast móðurhlutverkið leiðinlegt
Allar nýbakaðar mömmur efast
einhvern tímann á fyrstu vikunum,
mánuðunum eða jafnvel fyrstu árin
og hugsa um hvað í fjandanum þær
hafi komið sér í. En börn eru alltaf að
breytast og upplifunin af móðurhlut
verkinu breytist með þeim. Þú átt
eftir að upplifa yndislegar stundir en
líka erfiðar stundir. Ekki hafa
áhyggjur þótt þér finnist litla sæta
barnið þitt bara pínulítið leiðinlegt.
Þú kemst yfir það áður en þú veist af
því.
7 Þú hefur misst kynþokkann Fæðing og brjóstagjöf gefa
þeim líkamshlutum sem áður
tengd ust kynlífi nýtt hlutverk.
Sífelld ur ótti við truflun vegna
barns gráts gerir okkur ekki auðvelt
með að slaka á og það getur verið
erfitt að finna sér stað og tíma þegar
börnin sofa upp í. En mundu, börnin
eru lítil í svo stuttan tíma. Það tekur
kannski tíma fyrir þig að sjá þig aftur
sem kynveru en það mun takast.
8 Þú verður föst Um leið og þú verður foreldri þá geturðu ekki
hætt við. Héðan í frá munu ýmiskon
ar reglur, varnarleysi og áhyggjur
tilheyra veröld þinni. Það hljómar
kannski þunglyndislega en fljótlega
verður þetta það sem skiptir þig
mestu máli.
A
llar mömmur vita að það breytist margt þegar fyrsta barnið kemur í
heiminn. Það er því ekkert skrítið að verðandi og nýbakaðar mömm
ur hafi áhyggjur af hinu og þessu varðandi móðurhlutverkið og upp
eldi. Hér eru átta atriði sem margar verðandi mömmur hafa áhyggj
ur af og ráð til þess að njóta meðgöngunnar þrátt fyrir breytingarnar sem
framundan eru.
n Fáðu svörin við spurningunum sem þú þorðir ekki að spyrja
Útsölumarkaður vikuna 24-28 sept
að Álfheimum 2-4
Flottar vörur á frábæru verði!
ATH einnig stórar stærðir
OPIÐ verður 13-18 alla dagana