Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Qupperneq 20
AuðkýfingAr viljA
breytA ensku deildinni
n Erlendir eigendur þrýsta á um bandarískt kerfi fyrir enska boltann
Engin kraftaverk hjá Liverpool í ár
n Jose Mourinho ekki að skafa utan af hlutunum n Segir Rodgers ekki geta unnið titilinn
B
rendan Rodgers er ekki að
fara að gera nein kraftaverk
með Liverpool og aðdá
endur liðsins verða að fara
að tileinka sér þolinmæði segir
hinn litríki þjálfari Jose Mourinho
um möguleika síns gamla félaga
Brendan Rodgers stjóra Liverpool.
Þeir þekkjast vel frá tíma Mourin
ho hjá Chelsea.
Mourinho hefur aldrei legið á
skoðunum sínum og reyndar oft
ar en ekki hitt naglann á höfuðið í
spám sínum og yfirlýsingum. Hann
segir fráleitt að ætla að Brendan
Rodgers geti leitt Liverpool til sig
urs í ensku úrvalsdeildinni eins
og einhverjir stuðningsmenn geri
kröfur um en liðið situr í botnsæti
nú þegar fimm umferðir hafa ver
ið leiknar.
„Brendan getur ekki gert þetta
félag að Englandsmeisturum.
Hann getur ekki framkvæmt krafta
verk. Og starfið er enn erfiðara en
ella vegna mikilla væntinga. En
raunveruleikinn er að Liverpool
er ekki besta liðið eins og er og
reyndar langt í frá. Önnur félagslið
eru líka að eyða mun meira fjár
magni og byggja hraðar upp.“
Portúgalinn vildi þó ekki tjá
sig hreint út hvaða félagslið í
Englandi væri líklegast til að taka
titilinn þessa leiktíðina en tiltók
sérstaklega að hann hefði sjald
an verið hrifnari af Arsenal en nú.
„Manchester City hefur frábær
an hóp og getur róterað ört mann
skapnum. Manchester United er
Manchester United og Alex Fergu
son getur ekki hugsað sér tvö
keppnistímabil án sigurs. Annars
er ég hrifinn af því sem Arsene
Wenger er að gera. Hann er að gera
fína hluti og ég yrði ekki hissa ef
Arsenal kemur ekki nokkuð á óvart
þetta keppnistímabilið.“ n
20 Sport 24. september 2012 Mánudagur
E
inungis átta af alls tuttugu
félagsliðum í efstu deild í
Englandi eru að fullu í eigu
enskra eða breskra einstakl
inga eða fyrirtækja. Meirihlut
inn er í eigu erlendra fjárfesta og
fer þeim fjölgandi. Sömu sögu er að
segja af næstu deild fyrir neðan; þar
er rétt tæplega helmingur félagsliða í
eigu erlendra aðila. Í Bretlandi fer al
mennt vaxandi óánægja landsmanna
með síaukinn fjölda innflytjenda til
landsins og þó vellauðugir eigendur
knattspyrnuliða séu engir innflytjend
ur í þeirri merkingu, nær óánægjan
einnig að hluta til, til þessara manna
og síauknum eignarhlut þeirra í göml
um og rótgrónum enskum knatt
spyrnu félögum.
Hagnaður ræður för
Líklega finnast fáir aðdáendur
Manchester City sem gagnrýna
Mansour bin Zayed Al Nahyan frá
Sameinuðu arabísku furstadæm
unum í dag. Hyldjúpar fjárhirslur
hans hafa gert City kleift á mettíma
að breytast úr algjöru miðlungsliði í
stórlið sem veitt getur bestu félags
liðum Evrópu harða keppni fyrir utan
að hampa Englandsmeistaratitlinum
í fyrsta skipti í áratugi. Sömu sögu er
að segja af Chelsea áður en Roman
nokkur Abramovic keypti það félags
lið með húð og hári. Mörg ár á und
an þóttu það tíðindi ef það félagslið
komst nálægt toppnum á deildinni.
Kröfur um breytingar á deildum
En eitt er það sem erlendir eigendur
liða í Englandi hafa þrýst á um gagn
vart enska knattspyrnusambandinu
og gæti sá þrýstingur aukist frekar
ef fjölgar í hópi erlendra eigenda.
Margir þeirra, sérstaklega þeir
bandarísku, vilja gjörbreyta keppnis
fyrirkomulaginu á sama veg og fyrir
finnst í deildum Bandaríkjanna. Þeir
vilja semsagt að í stað þess að félags
lið geti fallið eða farið upp um deildir
verði ávallt sömu lið í sömu deildum.
Þannig fengju liðin að velja efnileg
ustu knattspyrnumennina fyrir leik
tíðina hvert ár í nýliðavali. Þannig
fengju neðstu liðin hverju sinni að
velja fyrst og svo koll af kolli.
Fáum evrópskum knattspyrnu
áhugamönnum líst vel á þetta fyrir
komulag sem vitaskuld er eingöngu
til að vernda hagsmuni eigendanna.
Það er nefnilega svo að þó aðdáend
ur City eða Chelsea eða annarra fé
lagsliða kvarti ekki í dag þá eru þess
ir moldríku erlendu eigendur flestir
hverjir að reyna að græða peninga.
Sé engin hætta á falli um deild er
auðséð að fjárhagslegir hagsmunir
eru tryggðir enda er ávinningurinn af
því að vera í efstu deild annars vegar
og næstu deild fyrir neðan hins vegar
gríðarlegur og munar þar tugmillj
örðum króna í tekjum árlega. Hefur
meðal annarra Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, sagt að verði
slíkt fyrirkomulag tekið upp, þýði
það dauða fyrir enska boltann og í
könnun vegna þessa sem dagblaðið
Guardian stóð fyrir síðastliðinn vet
ur vildu 92 prósent viðhalda því fyr
irkomulagi sem nú gildir.
Svo bregðast krosstré ...
En haldi sú þróun áfram að erlend
ir milljarðamæringar kaupi ensku
félagsliðin má telja víst að enska
knattspyrnusambandið verði, hvort
sem þeim líkar betur eða verr, að
taka tillit til krafna þeirra sem liðin
eiga og reka.
Vandamálið er heldur ekki ein
skorðað við England lengur. Millj
arðamæringar hafa lengi átt félagslið
á Ítalíu og undanfarin ár hafa auð
ugir einstaklingar fengið augastað á
félagsliðum annars staðar í Evrópu.
Síðasta dæmið eru kaupin á franska
liðinu Paris Saint Germain, PSG,
sem á aðeins einu og hálfu ári hef
ur breyst úr allþokkalegum klúbbi í
heimalandinu í stórveldi á evrópsk
an mælikvarða. Og nóg er enn af
auðkýfingum sem vita ekkert hvað
skal gera við peningana sína. n
Félagslið í eigu Breta: Everton,
Newcastle, Norwich, Reading, Stoke,
Tottenham, Wigan, WBA.
Félagslið í eigu útlendinga: Arsenal,
Aston Villa, Chelsea, Fulham, Liverpool,
Manchester City, Manchester United,
QPR, Southampton, Sunderland,
Swansea, West Ham.
Milljarðaliðið
Aðdáendur kvarta
ekkert þegar vel
gengur en erlent
eignarhald gæti einn
daginn haft annað
og verra í för með sér.
Forríkur eigandi City Er ekki einn af
þeim sem hafa orðað breytingar á keppnis-
fyrirkomulaginu í enska boltanum.
Úrslit
Pepsi-deild karla
ÍA – Fram 0–1
0–1 Samuel Tillen (31.)
Valur – Grindavík 4–1
0–1 Hafþór Ægir Vilhjálmsson (16.), 1–1 Haukur Páll
Sigurðsson (21.), 2–1 Matthías Guðmundsson (29.),
3–1 Indriði Áki Þorláksson (57.), 4–1 Indriði Áki
Þorláksson (60.)
Stjarnan – Selfoss 4–2
0–1 Viðar Örn Kjartansson v. (17.), 1–1 Garðar
Jóhannsson (24.), 2–1 Garðar Jóhannsson (34.), 2–2
Jon Andre Röyrane (45.), 3–2 Ellert Hreinsson (61.),
4–2 Baldvin Sturluson (71.)
Fylkir – KR 3–1
1–0 Björgólfur Takefusa (35.), 2–0 Ingimundur
Níels Óskarsson (45.), 3–0 Emil Ásmundarson (51.),
3–1 Viktor Bjarki Arnarsson (64.)
Keflavík – Breiðablik 2–3
0–1 Kristinn Jónsson (31.), 1–1 Hörður Sveinsson
(53.), 1–2 Elfar Árni Aðalsteinsson (68.). 1–3 Nichlas
Rohde (76.), 2–3 Rafn Markús Vilbergsson (88.)
ÍBV – FH 2–2
1–0 Þórarinn Ingi Valdimarsson (57.), 2–0 Ólafur
Páll Snorrason sjm. (75.), 2–1 Björn Daníel
Sverrisson (79.), 2–2 Albert Brynjar Ingason (85.)
Staðan
1 FH 21 14 4 3 49:22 46
2 ÍBV 21 10 5 6 35:19 35
3 Stjarnan 21 8 10 3 44:36 34
4 Breiðablik 21 9 6 6 30:27 33
5 KR 21 9 5 7 36:32 32
6 Fylkir 21 8 6 7 28:37 30
7 ÍA 21 8 5 8 29:35 29
8 Valur 21 9 1 11 33:32 28
9 Keflavík 21 8 3 10 35:35 27
10 Fram 21 7 3 11 29:35 24
11 Selfoss 21 6 3 12 29:41 21
12 Grindavík 21 2 5 14 29:55 11
Enska úrvalsdeildin
Swansea – Everton 0–3
0–1 Anichebe (21.), 0–2 Mirallas (43.), 0–3 Fellaini (82.)
Chelsea – Stoke 1–0
1–0 Cole (85.)
Southampton – Aston Villa 4–1
0–1 Bent (36.), 1–1 Lambert (58.), 2–1 Clyne (63.), 3–1
Clark sjm. (72.), 4–1 Lambert (90.)
WBA – Reading 1–0
1–0 Lukaku (71.)
West Ham – Sunderland 1–1
0–1 Fletcher (9.), 1–1 Nolan (90.)
Wigan – Fulham 1–2
0–1 Rodallega (31.), 0–2 Duff (68.), 1–2 Kone (90.)
Manchester City – Arsenal 1–1
1–0 Lescott (42.), 1–1 Koscielny (82.)
Tottenham – QPR 2–1
0–1 Zamora (33.), 1–1 Faurlin sjm. (60.), 2–1 Defoe (61.)
Liverpool – Manchester United 1–2
1–0 Gerrard (46.), 1–1 Rafael (51.), 1–2 Persie v. (81.)
Newcastle – Norwich 1–0
1–0 Ba (19.)
Staðan
1 Chelsea 5 4 1 0 9:2 13
2 Man.Utd. 5 4 0 1 12:6 12
3 Everton 5 3 1 1 9:5 10
4 WBA 5 3 1 1 7:4 10
5 Arsenal 5 2 3 0 9:2 9
6 Fulham 5 3 0 2 12:7 9
7 Man.City 5 2 3 0 10:7 9
8 Tottenham 5 2 2 1 8:6 8
9 West Ham 5 2 2 1 5:4 8
10 Newcastle 5 2 2 1 6:6 8
11 Swansea 5 2 1 2 10:7 7
12 Sunderland 4 0 4 0 4:4 4
13 Stoke 5 0 4 1 4:5 4
14 Aston Villa 5 1 1 3 5:9 4
15 Wigan 5 1 1 3 5:10 4
16 Southampton 5 1 0 4 9:15 3
17 Norwich 5 0 3 2 2:8 3
18 Liverpool 5 0 2 3 4:10 2
19 QPR 5 0 2 3 3:11 2
20 Reading 4 0 1 3 4:9 1
Spænski boltinn
Zaragoza – Osasuna 3–1
Celta – Getafe 2–1
Betis – Espanyol 1–0
Barcelóna – Granada 2–0
Mallorca – Valencia 2–0
Levante – Real Sociedad 2–1
Atlético – Valladolid 2–0
Rayo – Real Madrid Frestað
Staðan
1 Barcelona 5 5 0 0 14:3 15
2 Mallorca 5 3 2 0 7:3 11
3 Málaga 5 3 2 0 6:2 11
4 Atl. Madrid 4 3 1 0 11:5 10
5 Real Betis 4 3 0 1 8:5 9
6 Sevilla 4 2 2 0 4:2 8
7 Rayo Vallecano 4 2 1 1 6:5 7
8 Levante 5 2 1 2 7:9 7
9 Dep. La Coruna 4 1 3 0 7:5 6
10 Celta 5 2 0 3 6:6 6
11 R. Valladolid 5 2 0 3 4:5 6
12 R. Zaragoza 5 2 0 3 5:6 6
13 R. Sociedad 5 2 0 3 6:9 6
14 Valencia 5 1 2 2 6:8 5
15 Ath. Bilbao 5 1 2 2 8:12 5
16 Real Madrid 4 1 1 2 5:4 4
17 Getafe 5 1 1 3 6:10 4
18 Granada 5 0 2 3 2:8 2
19 Espanyol 5 0 1 4 7:11 1
20 Osasuna 5 0 1 4 3:10 1
Svekkelsi Lífið hjá nýjum stjóra Liverpool er fjarri því auðvelt. Lið hans í bullandi vand-
ræðum og situr eins og er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. Það kemur Jose Mourinho ekki á
óvart.