Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2012, Qupperneq 21
Framarar að bjarga sér á elleftu stundu
n Syrtir í álinn hjá Selfyssingum í Pepsi-deild karla
M
eð 0–1 útisigri Fram á Skaga-
mönnum í Pepsi-deild karla í
knattspyrnu um helgina hefur
þetta fornfræga félag líklegast
bjargað sér frá sneypulegu falli í neðri
deild. Að sama skapi færðust Selfyss-
ingar skrefi nær brúninni eftir stórtap í
Garðabæ gegn Stjörnunni.
Fyrir þessa næstsíðustu umferð
Pepsi-deildarinnar þetta árið var orðið
ljóst að FH yrði Íslandsmeistari og
Grindvíkingar féllu niður um deild. Eft-
ir stendur þá aðeins hvaða annað félag
fellur og hvaða lið næla sér í Evrópusæti
ásamt Íslandsmeisturunum.
Lið Fram, sem spáð var einu af
efstu sætunum af þjálfurum liðanna
fyrir mótið í ár vann 0–1 sigur á ÍA á
Skaganum meðan Selfoss lá 4–2 fyr-
ir Stjörnunni en Garðbæingarnir náðu
þannig þriðja sætinu í deildinni á eftir
FH og ÍBV en þau lið gerðu einmitt 2–2
jafntefli í Eyjum.
Bæði Fram og Selfoss eiga heima-
leiki í síðustu umferðinni en Fram
hefur nú þriggja stiga forskot og tölu-
vert betri markatölu. Bendir því allt
til þess, nema mjög mikið gangi á, að
Fram haldi sér í efstu deild en Selfoss
falli. n
Sport 21Mánudagur 24. september 2012
Kúgarinn frá
N-Írlandi
Kylfingurinn Rory McIlroy hefur
fengið viðurnefnið Kúgarinn af
hálfu Tiger Woods. Hafa þeir fé-
lagar grínast með að gamla kemp-
an Greg Norman lét þau orð falla
í viðtali að McIlroy væri orðinn
svo góður kylfingur að hann drægi
allan kjark úr Woods þegar þeir
tveir mættust. Woods hefur vissu-
lega leikið betur um ævina en því
fer fjarri að hann sé sérstaklega
hræddur við Írann unga. Þvert á
móti hafa þeir tveir grínast upp-
hátt með nýja viðurnefnið.
Framlengja
við Messi
Hvort sem tímasetningin er tilvilj-
un eður ei skal ósagt látið en for-
ráðamenn Barcelóna vilja nú ólm-
ir framlengja samning liðsins við
stórstjörnu sína Leo Messi og það
þótt enn séu fjögur ár eftir af gild-
andi samningi. Helst vilja Börs-
ungar framlengja út feril Argent-
ínumannsins en óvíst er hvort
það gengur eftir. Fregnir bárust af
því nýlega að stjórn Real Madrid
ætlaði að endurnýja samning við
Cristiano Ronaldo en þessir tveir
kappar eru óumdeilanlega stærstu
nöfnin í spænska boltanum.
Loks tapaði
Dortmund
Um helgina töpuðu meistar-
ar Borussia Dortmund 3–2 fyrir
Hamborg sem væri kannski lítt
í frásögur færandi nema vegna
þess að ósigurinn var sá fyrsti hjá
þeim gulklæddu í 31 leik. Leiktíð-
in hefur þó ekki verið leikur einn
en Dortmund er þó í fjórða sæti
Bundesligunnar með sjö stig með-
an Bayern Munchen situr á toppn-
um með tólf stig en bæði liðin
hafa leikið fjóra leiki.
Mourinho í
málaferlum
Alltaf stuð í kringum Jose Mourin-
ho. Nú hefur karlinn höfðað mál
á hendur ritstjóra Marca, stærsta
og vinsælasta íþróttablaði Spánar,
þar sem ritstjórinn lýsti þjálfar-
anum portúgalska sem „manni
sem yfirgefur slysstað eftir að hafa
valdið slysinu.“ Þetta segir Mour-
inho of langt gengið en það má
hann þó eiga að ólíkt mörgum
öðrum í bransanum hefur Mo-
urinho sjaldan farið í mál vegna
skrifa um sig í blöðum.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram Fram hefur ekki staðið undir væntingum í sumar.