Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 3. október 2012 Miðvikudagur Jarðbundnir milljarðamæringar n Unnu milljarða í lottói í sumar n Fögnuðu með Domino‘s-pítsu Þ rátt fyrir að vera í hópi lang­ ríkasta fólks Bretlands hafa hjónin Adrian og Gillian Bay­ ford vakið mikla athygli fyrir sparsemi sína. Hjónin urðu milljarða­ mæringar á einni nóttu í ágúst síðast­ liðnum þegar þau unnu 148 milljónir punda, eða rúma 29 milljarða króna, í Euromillions­lottóinu. Þó svo að hjónin þurfi í raun aldrei að vinna fyrir sér framar vinnur Adrian ennþá í hljóðfæraverslun og eiginkon­ an Gillian er ennþá í vinnu á Adden­ brooke‘s­sjúkrahúsinu í Cambridge. Þegar þau unnu þann stóra ákváðu þau að fagna með tveimur börnum sínum, fjögurra og sex ára, með því að panta sér Domino‘s­pítsu. Þá buðu þau foreldrum Gillian í nokkurra daga ferð til Skotlands þar sem flogið var með EasyJet í stað þess að fara í lúxus­ ferð til sólarlanda. Hjónin ákváðu þó að gera vel við sig á dögunum, ef svo má segja, með því að kaupa sér splunkunýja bifreið. Eftir að þau unnu stóra vinninginn sagði Gillian að hana dreymdi um að eignast nýjustu gerðina af Audi Q7 sem kostar um 12 milljónir króna. Í staðinn fyrir að láta þann draum verða að veruleika ákváðu hjónin að fara örlítið ódýrari leið og keyptu sér fjórhjóladrifinn Ford Kuga sem kostaði 3,5 milljónir króna. Lottóvinningurinn sem þau unnu í ágúst er sá næststærsti í sögu Euromillions­lottósins. Samkvæmt úttekt The Sunday Times eru Adrian og Gillian í hópi rúmlega 500 ríkustu einstaklinga Bretlands. Þau eiga álíka mikla fjármuni og kokkurinn Jamie Oliver og tónlistarmennirnir Eric Clapton og Sir Tom Jones. n Forseti með krabbamein Juan Manuel Santos, forseti Kól­ umbíu, hefur verið greindur með krabbamein í blöðruhálskirtli og mun gangast undir aðgerð í dag, miðvikudag. Santos, sem er 61 árs, segir við fjölmiðla að hann sé heppinn að því leyti að krabba­ meinið uppgötvaðist snemma. Hefur hann eftir læknum að bata­ horfur hans séu 97 prósent. „Með vilja Guðs verður þetta aðeins ein af þeim litlu áskorunum sem allir þurfa að takast á í lífi sínu,“ segir forsetinn. Santos hefur verið for­ seti Kólumbíu frá árinu 2010. Vilja banna spilakassa Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa lagt til að spilakassar verði bann­ aðir á pöbbum og kaffihúsum í landinu í viðleitni sinni til að sporna gegn spilafíkn. Verði frum­ varpið að lögum verða spilakassar einungis leyfðir í spilavítum sem hafa sérstakt leyfi til veðmálastarf­ semi. Í frumvarpinu kemur fram að það sé trú yfirvalda að Ung­ verjar – sér í lagi fátækir Ungverjar – eyði of miklum peningum í spilakassa. Verði frumvarpið að lögum þýðir það að stjórnvöld verða af töluverðum skatttekjum, eða tæp­ lega 17 milljörðum króna á ári. Stefna yfirvöld á að ná þeirri upp­ hæð til baka með því að skatt­ leggja veðmálastarfsemi á netinu. Þekkir þú manninn? Pólska lögreglan mátti þola tölu­ verða gagnrýni á dögunum þegar hún leitaði til almennings vegna bankaráns sem framið var í landinu. Ákvað hún að birta mynd af meintum höfuðpaur málsins. Lögregla fékk hins vegar ekki margar vísbendingar enda var ræninginn með lambhús­ hettu yfir andlitinu og sáust að­ eins augu hans. Og til að bíta höf­ uðið af skömminni birti lögregla einnig nafnið á lykilvitni í málinu. „Ræninginn var með lambhús­ hettu á sér og við höfðum ekkert annað til að byggja á,“ segir Tom­ asz Stawarski, talsmaður lögreglu. Lögregla biðlaði til fjölmiðla að birta ekki nafnið á vitninu í mál­ inu. „Þetta voru stór mistök,“ segir Stawarski og bætir við að vitnið sé nú undir verndarvæng lögreglu. Ekkert bruðl Þrátt fyrir að eiga fulla vasa fjár hugsa hjónin vel um í hvað peningarnir fara. Þ rátt fyrir efnahagslægðina sem gengið hefur yfir heimsbyggðina síðustu ár eru eigendur og stjórn­ endur vogunarsjóða í góð­ um málum. Af 400 ríkustu Banda­ ríkjamönnunum hefur 31 auðgast í gegnum vogunarsjóði. Hlutfallið hefur aldrei áður verið jafnhátt. George Soros, maðurinn sem lagði grunninn að vogunarviðskiptum, er á níræðisaldri og hefur sest í helgan stein. Þótt vogunarsjóði hans, Soros Fund Management, hafi verið breytt í fjölskyldufyrirtæki er hann ennþá vellauðugur. Hann er efstur á listan­ um yfir þá sem hafa auðgast í gegn­ um vogunarsjóði og nema eignir hans 19 milljörðum dollara, 2.360 milljörðum króna. Soros er einna þekktastur fyrir að hafa hagnast gríðarlega á afleiðuviðskiptum árið 1992 þegar hann tók stöðu gegn breska pundinu. Upp frá því hefur hann oft verið kallaður „maður­ inn sem felldi pundið“. Bandaríska tímaritið Forbes birti á dögunum lista yfir ríkustu eigendur vogunar­ sjóða í Bandaríkjunum. 76 ára í fullu fjöri Carl Icahn, sem er 76 ára, er í öðru sæti og er hann ennþá í fullu fjöri. Vogunarsjóður hans, Icahn & Co, var sá sjóður sem skilaði einna mestum hagnaði í fyrra og virðist hafa haldið sínu striki, ekki síst vegna stöðutöku gagnvart fyrir­ tækjunum Amylin, Hain Celestian og El Paso Energy. Hrein eign Carls Icahn nemur um það bil 15 millj­ örðum dollara, 1.860 milljörðum króna. Á eftir honum fylgir James Simons sem sagði upp störfum hjá vogunarsjóðnum Renaissance Technologies árið 2010. Hann skiptir sér þó enn af rekstri fyrir­ tækisins og uppsker ríkulega. John Paulson á álíka miklar eignir og James Simons, eða um 11 milljarða dollara, 1.360 milljarða króna. Paulson má muna sinn fífil fegri enda hefur sjóður hans, Paul­ son & Co, tapað gríðarlegum fjár­ hæðum síðustu tvö árin. Konungur vogunarsjóðanna Ray Dalio er konungur vogunar­ sjóðanna í dag, enda stýrir hann stærsta vogunarsjóði í heimi, Bridgewater Associates. Eignir sjóðsins eru metnar á 130 millj­ arða dala. Fyrirtækið hagnaðist gífurlega í fyrra en talsvert minna í ár. Í kjölfarið hefur Dalio, sem er 63 ára, selt starfsmönnum og við­ skiptavinum fyrirtækisins hluti í því. Ef allt gengur að óskum munu nýjar 750 milljóna dala höfuð­ stöðvar rísa undir fyrirtækið fyrir árið 2017 og fjöldi starfsmanna tvöfaldast. Á listanum er einnig að finna Steve Cohen sem metinn er á 8,8 milljarða dala, rétt rúmlega þúsund milljarða króna. 1 George Soros Eignir: 19 milljarðar dala (2.360 milljarðar króna) Soros settist í helgan stein í fyrra og breytti vogunarsjóði sínum í fjölskyldufyrir tæki. Soros fæddist og ólst upp í Búdapest á þeim tíma þegar nasistar hernámu Ungverja­ land. Hann nam í The London School of Economics og stofn­ aði fyrirtæki sitt, Quantum Fund Management, árið 1969. Hann hef­ ur sterkar skoðanir á efnahagsmál­ um og hefur til að mynda enga trú á evrunni. Frá árinu 1979 hefur Soros gefið 8,5 milljarða dala til góðgerða­ mála og menntastofnana. Hann er 82 ára og er trúlofaður Tamiku Bolton sem er 40 árum yngri. 2 Carl Icahn Eignir: 14,8 milljarðar dala (1.860 milljarðar króna) Þó að Ichan sé orðinn 76 ára er hann hvergi nærri sestur í helgan stein. Fyr­ irtæki hans var eitt það öflugasta á síðasta ári og hefur haldið vexti sínum áfram þökk sé góðum ákvörðunum í fjárfestingum í orkufyrirtækjum. 3 James Simons Eignir: 11 milljarðar dala (1.360 milljarðar króna) Simons hætti sem stjórnandi sjóðs síns, Renaissance Technologies, árið 2010. Þrátt fyrir að vera orðinn 74 ára leikur hann enn mikilvægt hlut­ verk hjá fyrirtækinu sem hefur vaxið nokkuð undanfarin misseri. Simons er stærðfræðingur að mennt og var dulmálssérfræðingur hjá banda­ ríska utanríkisráðuneytinu þegar Ví­ etnamstríðið stóð yfir. Hann hætti þar til að taka við starfi hjá SUNY­ Stony Brook og stofnaði Renaissance Technologies árið 1982. 4 4. John Paulson Eignir: 11 milljarðar dala (1.360 milljarðar króna) Paulson hefur ekki verið í miklu stuði undanfarin misseri og hafa Moka inn seðluM á vogunarsjóðuM n 10 ríkustu eigendur vogunarsjóða í Bandaríkjunum n Eiga allir eignir upp á hundruð milljarða króna Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.