Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Blaðsíða 16
16 Neytendur 3. október 2012 Miðvikudagur Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr. Algengt verð 257,2 kr. 260,4 kr. Höfuðborgarsv. 257,1 kr. 260,3 kr. Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr. Algengt verð 259,6 kr. 260,6 kr. Melabraut 257,2 kr. 260,4 kr. Eldsneytisverð dd. mmm Bensín Dísilolía Frábær þjónusta n Lofið fá starfsmenn Hamborgara- búllu Tómasar við Geirsgötu. „Málavextir voru þeir að dóttir mín pantaði tvö hamborgara tilboð sem ég átti að taka á leið heim úr vinnunni. Þegar á staðinn kom könnuðust starfsmennirnir sem voru glaðlegir ungir menn ekki við neina pöntun og í ljós kom að dótt- ir mín hafði fyrir mistök pantað á Búllunni í Bankastræti. Þegar ég ætlaði að þjóta af stað upp í Banka- stræti buðust starfsmennirnir til að hringja þangað og láta vita að pöntunin yrði afgreidd hjá þeim ef ég nennti að bíða í nokkrar mínútur meðan þeir steiktu hamborgar- ana. Þetta gerðu þeir með bros á vör og án þess að taka neitt aukagjald fyrir ósótta pöntun í Banka- stræti. Frábær þjón- usta og við feng- um nýsteikta hamborgara,“ segir ánægður viðskiptavinur. Fékk ekki aðstoð n Lastið fær Dýraspítalinn í Víðidal en hundaeigandi sendi eftirfarandi: „Ég þurfti að hafa samband við dýralækni nú um helgina þar sem hundurinn minn hafði nýlega farið í aðgerð og hafði rifið upp saumana. Þar sem allir dýraspítalar eru einkareknir hér á landi, ber þeim ekki skylda til þess að aðstoða mig ef hundurinn fór ekki í aðgerð hjá þeim. Ég ákvað samt að prófa að hafa samband því ég var með mjög einfalda spurningu og fékk samband við dýralækni á bakvakt á Dýraspítalanum í Víðidal. Hann spurði mig hvar hundurinn hefði farið í aðgerð og þegar ég sagði honum að það hafði ekki verið hjá þeim, breyttist viðmót hans. Hann var ekki tilbúin til þess að svara því hvernig ég ætti að halda sárinu hreinu yfir helgina eða þangað til hann kæmist aftur í aðgerð til þess að loka sárinu, heldur sagði mér að hringja eitthvert annað, þar sem þau kæmu þessu máli ekki við.“ DV leitaði viðbragða hjá Dýraspít- alanum. „Allar dýralæknastofur á höfuðborgarsvæðinu auglýsa bak- vakt hjá sér og ber því að sinna henni. Eðli- legt er að sú dýra- læknastofa sem framkvæmt hefur aðgerðina svari spurningum við- skiptavina sinna og svari vaktsíma. Ef um neyðartilvik er að ræða sinnum við þeim að sjálf- sögðu.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is Farsímar geta skaðað heilann n Varhugavert að halda því fram að farsímar hafi engin skaðleg áhrif M eð því að nota heyrnar- tól eða handfrjálsan bún- að á farsímana komum við í veg fyrir þann skaða sem þeir geta valdið. Þetta segir Sanjay Gupta hjá CNN þar sem hann fjallar um skaðleg áhrif farsímanotk- unar á heila okkar og þá sér í lagi heila barna. Gupta er taugaskurðlæknir, lektor við Emory University School of Medicin og aðstoðaryfirlækn- ir á taugaskurðlækningadeild Grady Memorial-sjúkrahússins í Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum. Farsíminn of ungur Það hafa komið fram ýmsar kenn- ingar um hvort farsímanotkun sé hættuleg en þó nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að sú sé ekki raunin. Þær rannsóknir hafa þó verið gagn- rýndar og gengur sú gagnrýni helst út á það að ekki sé liðinn nægilega langur tími frá því að farsími komst í almenna notkun. Gupta er sammála þessu og segir reglulega notkun okk- ar á farsímum hafa byrjað í kringum 1996 og það sé mikilvægt að hafa í huga að til að fá marktækar niður- stöður úr slíkum rannsóknum þurfi lengri tími að líða en það geti tekið nokkra áratugi. Það sé því varahuga- vert að segja að farsímanotkun hafi engin skaðleg áhrif á mannslíkamann því það sé ekki vitað ennþá. Árið 2011 ákvað Alþjóðaheilbrigðisstofnunin að flokka farsíma með hugsanlegum krabbameinsvöldum vegna geislunar frá þeim og telur þá jafn varasama og kaffi og klóróform. Farsímar og geislun Vísindamenn segja að það megi líkja áhrifum geislunar frá farsíma á heil- ann við það þegar egg sé eldað. Við vitum þó ekki hve langan tíma það tekur þar til við sjáum áhrif þess á heilann. „Við vitum að fólk notar farsíma meira en áður, að við erum Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Við vitum að fólk notar farsíma meira en áður sífellt yngri þegar við byrjum að nota þá og að margir eru útsettir fyrir geisl- un frá þeim allan daginn. Það er þetta sem við þurfum að hafa áhyggjur af,“ segir Gupta. Ráðleggingar framleiðenda Gupta bendir á að fæstir lesi þær leið- beiningar sem fylgi með nýjum sím- um. Þar standi þó oftast að gott sé að halda símanum um það bil 2,5 sentímetra frá eyranu. Það séu afar fáir sem geri það en annar valkostur sé að nota handfrjálsan búnað, svo sem heyrnartól eða stilla símann á hátalara. „Allar rannsóknir benda til þess og lausnin er mjög einföld. Við vitum ennþá ekki nógu mikið um áhrifin og það væri slæmt að kom- ast að því eftir 10 til 15 ár að farsímar orsaki sannanlega krabbamein og að við hefðum getað komið í veg fyrir það.“ Geislunin er mismikil Geislun frá símum er ekki alltaf sú sama. Ef skilyrðin eru slæm þá þarf síminn að vinna meira til að ná í sendinn, hann notar meiri orku og sendir frá sér meiri geislun. „Þegar maður sér á símanum eða heyrir að skilyrðin eru slæm ætti maður að leggja símann frá sér,“ segir Gupta. Hann bendir einnig á að börn séu viðkvæmari fyrir geisluninni. „Heilar þeirra eru viðkvæmari og höfuðkúpur þeirra þynnri og því auðveldara fyrir geislana að komast í gegn. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að við vorum flest orðin fullorðin þegar við fórum að nota símana. Þau hafa notað þá frá unga aldri og gera alla ævi.“ Hann tel- ur því mikilvægt að gera þær ráðstaf- anir sem við getum í dag. n Farsímanotkun – nokkur ráð Á síðunni Environmental Working Group eru gefin ráð um hvernig við ættum að umgangast farsíma til að koma í veg fyrir geislun: Notið heyrnartól og hátalara Heyrnartól gefa frá sér mun minni geislun en síminn sjálfur. Notið annaðhvort heyrnartól með snúrum eða þráðlaus. Vísindamenn eru ekki sammála um hvort sé hættuminna en sum þráðlaus heyrnartól senda frá sér stöðuga geislun, í litlum mæli. Það er því gott ráð að taka þau úr eyrunum þegar þú ert ekki að tala í símann. Með því kveikja á hátölurunum minnkar þú geislun við höfuðið. Haltu símanum frá höfðinu Haltu símanum frá eyranu og líkamanum á meðan þú talar í hann. Ef þú notar þráðlausan búnað, ekki setja símann í vasann eða festa hann á beltið. Settu hann frekar í veskið eða leggðu hann hann á nálægan stað. Það þarf ekki mikla fjarlægð til að minnka magn geislunar- innar. Sendu skilaboð í stað þess að tala Síminn sendir minni geislun frá sér þegar skila- boð eru skrifuð en þegar talað er í hann auk þess sem hann í meiri fjarlægð frá höfðinu. Notaðu símann þegar skilyrðin eru góð Þegar skilyrði eru slæm þarf síminn að vinna meira til að ná sambandi við sendinn. Reyndu því eftir fremsta megni að tala einungis í símann þegar skilyrðin eru góð. Rann- sóknir sýna að geislunin eykst til muna eftir því sem skilyrðin eru lakari. Takmarkaðu símanotkun barna Heilar ungra barna eru mun viðkvæmari og geta tekið við helmingi meiri geislun en heilar full- orðinna. Það er því mikilvægt að takamarka tíma barna í símanum og þar með áhrifin. Sýna mælanleg áhrif Vilhjálmur Ari Arason læknir fjallaði um rannsókn á skaðsemi farsíma árið 2011 á bloggsíðu sinni. Hann segir að rannsóknin fjalli um áhrif 50 mínútna notkunar farsíma á heilabörkinn, nánar tiltekið sykurefnaskiptin sem séu aukin á þeim stað þar sem rafgeislunin er mest undir símanum. Með rannsókn- inni sé í fyrsta sinn sýnt með vísindalegri rannsókn að það séu marktæk mælanleg áhrif á efnaskiptin í heilaberkinum af völdum farsíma. Rannsóknin sýni mælanleg áhrif sem hugsanlega geti valdið frekari breytingum í heilaberkinum með endurtekinni mikilli notkun og sem styðji þá tilgátu um hugsanleg tengsl við hættu á æxlismyndun síðar. Vilhjálmur bendir einnig á að það sé ekki síður þörf á að hafa áhyggjur af hugsanlegum áhrifum á heilabörk barna og unglinga sem séu að taka mikl- um þroskabreytingum, enda noti þau farsíma mikið og í vaxandi mæli. Hann segir að raf- geislun farsíma sé mismunandi eftir tegundum og það hljóti að hafa áhrif á kaupendur. Handfrjáls búnaður Dregur úr geislun við höfuð. MynD PHotos.coM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.