Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Page 18
Allir leikir verði jafnlangir
n Graham Poll leggur til róttæka breytingu í fótboltanum
Þ
að á ekki að vera í höndum
dómara knattspyrnuleikja að
ákvarða uppbótartímann í
leikjum eða sjá um tímagæslu
yfir höfuð. Þetta segir knattspyrnu-
dómarinn fyrrverandi Graham Poll
í pistli sem hann skrifaði í breska
blaðið Daily Mail á dögunum. Til-
efni pistilsins voru orð sem Sir
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, lét falla eftir
3–2 tapleikinn gegn Tottenham um
helgina. Þá gagnrýndi Sir Alex dóm-
ara leiksins, Chris Foy, fyrir að bæta
einungis fjórum mínútum við leik-
inn.
„Ég leit svo á að Ferguson væri
bitur – sérstaklega þar sem mér
fannst að ákvörðun Foy væri nokkurn
veginn rétt,“ segir Poll um ummæli
Ferguson. „Þrátt fyrir það gefa þessi
ummæli tilefni til nánari skoðun-
ar. Hann lagði það til að uppbótar-
tíminn ætti að vera tekinn úr hönd-
um dómara. Ég veit sem er að margir
dómarar yrðu ánægðir ef einhver
annar sæi um að ákvarða viðbótar-
tímann,“ segir Poll sem vill þó ganga
mikið lengra en Ferguson.
Hann vill að leiktíminn verði
ákvarðaður af því hversu lengi bolt-
inn er í leik hverju sinni. „Við höf-
um séð það í Meistaradeildinni að
boltinn er í leik í aðeins 25 mín-
útur í hvorum hálfleik,“ segir Poll.
Það þýðir að boltinn í sumum leikj-
um er ekki í leik nema í 50 mín-
útur á meðan leikurinn er – eða á
að vera – 90 mínútur. Leggur Poll
það til að sú nýbreytni verði að
leiktíminn verði 2 sinnum 30 mín-
útur og boltinn verði að vera í leik
allan þann tíma. Þannig sé hægt að
tryggja að allir leikir séu jafnlangir.
„Þetta myndi þýða að leiktafir yrðu
úr sögunni því leikmenn myndu
ekki sjá neinn tilgang í því að tefja.
Og dómararnir yrðu að auki látnir í
friði,“ segir Poll.
Poll tekur einnig fram í pistl-
inum að það sé engin furða þó Sir
Alex vilji fá lengri uppbótartíma
enda hafi United skorað ófá mörkin
í blálok leikja. Hann bendir einnig
á að á síðasta tímabili hafi leikir
United, sem þeir voru að tapa, ver-
ið að meðaltali 74 sekúndum lengri
en leikir sem þeir voru að vinna. n
18 Sport 3. október 2012 Miðvikudagur
F
ranski Senegalinn Demba Ba
er markahæstur í ensku úr-
valsdeildinni. Um helgina
skoraði hann tvö mörk – bæði
mörk liðsins – í jafntefli gegn
nýliðum Southampton. Fyrra mark-
ið var stórglæsilegt; hann fékk háa
sendingu frá eigin vallarhelmingi,
fram allan völlinn, tók boltann á lofti
og þrumaði honum í markið. Síðara
markið skoraði hann með hendinni
en hann baðst eftir leikinn afsökunar
á því. Ba er kominn með sex mörk í
deildinni, sem er nýhafin, og virðist
ætla að fylgja eftir frábæru tímabili
sem hann átti í fyrra, þar sem hann
skoraði 16 mörk.
Stóðst ekki skoðun hjá Stoke
Demba Ba er 27 ára en komst ekki
að í alvöru liði fyrr en hann gekk
í raðir 1899 Hoffenheim 22 ára að
aldri. Hann hefur skorað mörk hvar
sem hann hefur komið. Hjá franska
þriðjudeildarliðinu Rouen skoraði
hann 22 mörk í 26 leikjum, þá tvítug-
ur. Árið eftir skoraði hann 8 mörk í 12
leikjum fyrir belgíska liðið R. Excelsi-
or Mouscron, sem sló Fylki út úr
Evrópukeppninni árið 2002, en lagði
upp laupana vegna gjaldþrots árið
2009.
Hann gekk í raðir Hoffenheim
árið 2007 þar sem hann skoraði 37
mörk í 97 leikjum.
Hann vildi komast frá félaginu og
fór í janúar í fyrra til reynslu til Stoke
City. Þar stóðst hann ekki læknis-
skoðun svo West Ham greip tækifær-
ið og fékk hann til liðs við sig út leik-
tíðina. Þar sló hann í gegn með hraða
sínum og hæfileikum því hann skor-
aði 7 mörk í 12 leikjum.
Það var nóg til að vekja athygli
Newcastle sem fékk hann fyrir lítið
frá West Ham sem féll um deild.
Hann er í dag einn öflugasti fram-
herji deildarinnar en samvinna hans
við landa sinn, Papiss Cissé, hefur
verið til fyrirmyndar. Cissé skoraði 13
mörk á síðasta keppnistímabili.
Hafnað af Barnsley og Watford
Ba er sjötta barnið í hópi sjö systkina.
Hann fæddist í Frakklandi en er af
senegölskum ættum. Hann er því
með tvöfalt ríkisfang.
Áður en hann hóf atvinnumanns-
ferilinn kunni Ba best við sig sem
djúpur miðjumaður. En ferillinn
hefur ekki alltaf verið dans á rósum.
Fjölmörg stærri og smærri lið töldu
sig ekki hafa not fyrir Demba Ba árin
2004 og 2005. Hann fór til reynslu til
risanna í Lyon – sem höfðu enga trú
á honum – og Auxerre sem höfnuðu
honum á þeim forsendum að hann
kæmi ekki í gegn um knattspyrnu-
akademíu. Hann reyndi líka fyrir
sér hjá minni liðum í Frakklandi
áður en hann hélt á vit ævintýranna
á Bretlandi. Hann var til reynslu hjá
Watford en stjóraskipti urðu þess
valdandi að ekkert varð af samning-
um. Neðrideildarliðið Barnsley vildi
heldur ekki semja við hann.
Ba sneri aftur heim til Frakklands
og spreytti sig á æfingum hjá þriðju-
deildarliðinu Amiens. Þar fékk hann
heldur ekki samning.
Það var ekki fyrr en hann fékk eins
árs samning við FC Rouen sem bolt-
inn fór að rúlla. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Markahæstur á tímabilinu n Byrjaði sem afturliggjandi miðjumaður
Erfið fæðing Fjölmörg lið vildu ekki semja
við Ba áður en hann sló í gegn.
MarkadeMba
frá Senegal Á skotskónum Demba Ba er markahæstur í ensku úrvals-deildinni.
Verður feitur
í framtíðinni
Antonio Cassano, framherji Inter,
segist reikna með því að feta í
fótspor hins brasilíska Ronaldo
þegar hann leggur skóna á hill-
una. Ronaldo hefur átt í vandræð-
um með þyngd sína síðan hann
lagði skóna á hilluna og þykir vera
helst til þungur. „Ég er sannfærð-
ur um að þegar ég hætti í fót-
bolta muni ég hlaupa í spik,“ segir
Cassano sem segir þó að sá tími
sé ekki næstum því kominn. Hann
ætli að halda áfram að spila fót-
bolta meðan hann hafi heilsu til.
„Ég hef líklega aldrei skorað jafn
mikið en mér finnst ég geta gert
mun betur. Mér líður vel og það er
það mikilvægasta.“
Litið á klukkuna Sir Alex Ferguson gagnrýndi Chris Foy um helgina fyrir að bæta einungis
fjórum mínútum við í viðureigninni gegn Tottenham.
Karabatic í
kuldanum
Franski landsliðsþjálfarinn í
handknattleik karla Claude
Onesta hefur ákveðið að velja
ekki Nikola Karabatic í landsliðs-
hóp Frakka fyrir komandi verk-
efni. Karabatic, auk fleiri franskra
handboltamanna, hefur viður-
kennt að hafa veðjað á leik eigin
liðs. Montpellier, sem þegar hafði
tryggt sér meistaratitilinn tapaði
öllum að óvörum gegn botnliðinu
í síðustu umferðinni á síðasta
keppnistímabili og svo virðist sem
Karabatic hafi hagnast á því.
Onesta lét hafa eftir sér við
franska fjölmiðla að leikmennirn-
ir hafi augljóslega gert stór mistök
og að þeir ættu að hljóta viðeig-
andi refsingu ef þeir yrðu fundnir
sekir um að hafa hagrætt úrslit-
um. Ekkert pláss sé fyrir menn
sem svindla í franska lands-
liðinu. Fram hefur komið að leik-
mennirnir gætu átt þriggja ára
fangelsisdóm yfir höfði sér.
Stjarnan
vildi Heimi
Almar Guðmundsson, formaður
knattspyrnudeildar Stjörnunnar,
staðfesti í þættinum Boltanum á
útvarpsstöðinni X97,7 að félag-
ið hafi rætt við Heimi Hallgríms-
son aðstoðarlandsliðsþjálfara, um
að taka við liðinu. Hann sagði þó
að Knattspyrnusamband Íslands
hefði sett sig upp á móti því að
hann tæki við Stjörnunni. Bjarni
Jóhannesson var nokkuð óvænt
látinn fara frá félaginu fyrir fáein-
um dögum og félagið leitar nú að
eftirmanni hans.
Heimir hefur ekki þjálfað fé-
lagslið síðan hann hætti með ÍBV
í fyrrahaust en hann er aðstoðar-
maður Lars Lagerbäck landsliðs-
þjálfara.