Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Page 23
Í fótspor
frægustu
fyrirsæta
heims
Fólk 23Miðvikudagur 3. október 2012
S
igurlaug Birna Guðmundsdóttir,
14 ára Reykjavíkurmær, stóð uppi
sem sigurvegari í Elite-fyrirsætu-
keppninni sem fram fór um síðustu
helgi. Alls kepptu 17 glæsilegar stúlkur
á aldrinum 14 til 19 ára. Næst á dag-
skrá hjá Sigurlaugu er Elite Model
Look World í Shanghaí í Kína en
þar koma saman sigurvegar-
ar frá 70 löndum. Sigurlaug
Birna fetar þannig í fótspor
heimsfrægra fyrirsæta á
borð við Cindy Crawford,
Lindu Evangelista, Steph-
anie Seymour og Gisele
Bündchen en þær voru allar
uppgötvaðar í gegnum Elite
Model Look-keppnina.
n 14 ára sigurvegari
Þrjár efstu Sigurlaug
Birna ásamt þeim stelpum sem
þóttu einnig skara fram úr.
Lék á als oddi Rúnar Freyr var kynnir kvöldsins.
Fylgdust með Ragga Gísla, Birkir, Eldur Aron og Þóra horfðu á keppnina.
Flott
Sigurlaug Birna
á eflaust eftir
að ná langt í
bransanum.
Á leið til
Shanghaí
Sigurvegari Elite
Model Look er hin 14
ára Sigurlaug Birna
Guðmundsdóttir frá
Reykjavík.
Myndir PressPhotos.biz
Auddi Blö hitti
Wayne Rooney
S
jónvarpsmaðurinn Auðunn
Blöndal, sem er harður
Manchester United-maður,
skellti sér á leik með United
og Tottenham í ensku úr-
valsdeildinni á Old Trafford á
laugardaginn. Það fór ekki betur en
svo að United beið ósigur og því lítið
um sigurgleði á vellinum hjá Audda.
Heldur hljóp þó á snærið hjá Audda
á flugvellinum þar sem hann rakst
á allt knattspyrnulið Manchester
United sem var á leið til Rúmeníu að
keppa í Meistaradeildinni. Kappinn
varð að sjálfsögðu himinlifandi og
lét smella myndum af sér, bæði með
Wayne Rooney og Robin van Persie.
Afraksturinn birti hann á fésbókar-
síðu sinni: „Að fara á tapleik á Old
Trafford er ekki gaman, en að hitta
allt liðið á flugvellinum priceless !!!“
Myndin af Audda ásamt Rooney
vakti mikla lukku hjá fésbókarvin-
um hans og virtist sem einhverjir
væru jafnvel öfundsjúkir. Auddi er
nú komin með myndina sem for-
síðumynd á fésbókinni en myndin
af honum og Persie prýðir opnuna.
Undir þeirri mynd kemur fram að
Audda hafi langað að faðma Persie,
en hafi þó setið á sér.
n Auðunn Blöndal fór á tapleik á Old
Trafford en hitti liðið á flugvellinum
draumur rætist Auddi
Blö var í skýjunum eftir að
hafa hitt knattspyrnulið
United á flugvellinum.
Svínslegt sumar
í Danmörku
Þ
ess vegna ætla ég að bjóða
mig fram til Alþingis, seg-
ir borgarfulltrúinn Björk
Vilhelmsdóttir hlæjandi
þegar hún er spurð út í
feril skrá sína þar sem fram kem-
ur að Björk hafi bæði unnið sem
svínahirðir og fangavörður.
Björk vann sem svínahirðir á
Jótlandi árið 1994. „Þar sinnti ég
300 svínum og 80 beljum svo ég
var eiginlega bæði kúa- og svína-
bóndi. Ég fór út til að læra dönsku
og hafði gaman af því að sinna
svínunum. Á bóndabænum átum
við flesk alla morgna og fengum
svínakjöt í kvöldmatinn. Þetta var
því ansi svínslegt sumar í Dan-
mörku,“ segir Björk sem segist þó
ekki hafa fengið nóg af svínakjöti
eftir þessa reynslu. „Ég borða það
ennþá og finnst grísir ekki þannig
sætir. Svo kann ég líka að herma
eftir svínum og geri það oft fyrir
barnabörnin.“
Björk starfaði í þrjú sumur sem
fangavörður í Hegningarhúsinu.
„Þá var ég í háskólanum að læra
félagsráðgjöf. Þetta var óskaplega
mikil og góð reynsla og þar lærði
maður að umgangast þá sem eru
allra verst settir í þjóðfélaginu
vegna fíknisjúkdóma og félagslegra
erfiðleika. Þar komst ég líka að því
að vald er vandmeðfarið. Mað-
ur þarf að geta beitt aga en hann
þarf að vera jákvæður. Ætli það sé
ekki þaðan sem ég hef lært að vera
svona ströng.“
Aðspurð segir Björk bæði störfin
koma sér vel á Alþingi Íslendinga.
„Ég held að öll reynsla skipti máli.
Mestu skiptir að fá fólk með sem
fjölbreyttasta reynslu en ekki bara
fólk úr háskólum, lögfræði og hag-
fræði. Því fleira sem maður hefur
prófað því meira getur maður sett
sig inn í.“
n Björk Vilhelmsdóttir
hefur unnið sem svína-
hirðir og fangavörður
Kann að herma eftir svíni Björk
Vilhelmsdóttir hefur margvíslega reynslu á
ferilskrá sinni en hún vann til að mynda sem
svínahirðir í Danmörku. Þar lærði hún að
herma eftir svínum.