Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Side 11
Samsung Galaxy Mini 2
Nettur og þunnur en engu að síður með
góða vinnslu og stóran, skarpan skjá.
32.990 kr. 3.090 kr. á mán.*
Samsung Galaxy Ace II
Ný útgáfa hins vinsæla Ace síma.
Öflugur, með góðan skjá og myndavél.
49.990 kr. 4.590 kr. á mán.*
Jólin eru komin
hjá Vodafone
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is/jol
*M
.v.
1
2.
m
án
uð
i.
Vi
ð
af
bo
rg
un
ar
ve
rð
b
æ
tis
t g
re
ið
sl
ug
ja
ld
, 3
40
k
r.
á
m
án
uð
i.
Jólapakki Vodafone
Fylgir þessum símum og fleiri
snjall tækjum hjá Vodafone.
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Ónýtar skólplagnir
geta skaðað heilsuna
n Rottur geta leynst í veggjum húsa þar sem skolplagnir eru ónýtar
Þ
að koma nokkrum sinnum á
ári upp svona tilvik. Þá hefur
það stundum gerst að rottur
eru komnar inn í hús, undir
innréttingar og oft inn í milli-
veggi,“ segir Stefán Ólason, fram-
kvæmdastjóri Proline á Íslandi, sem
sér um lagnaviðgerðir í húsum að-
spurður hvort algengt sé að lagnir séu
svo illar farnar í húsum að ástandið
sé heilsuspillandi fyrir íbúa þess.
DV fékk fregnir af húsi í Þing-
holtunum í Reykjavík þar sem
skolplagnir voru svo illa farnar að
skolp var farið að leka inn í veggi í
húsinu og hafi haft heilsuspillandi
áhrif á íbúa þess. Rottur hafi verið
komnar inn í veggi hússins og lagn-
irnar ónýtar. Stefán segist ekki þekkja
til tiltekins dæmis en það komi fyrir
að þeir komi að húsum þar sem lagn-
ir séu svo illa farnar að þær séu farn-
ar að spilla heilsu fólks. Algengast sé
það í eldri hverfum Reykjavíkur þar
sem hús eru gömul og lagnir orðnar
ónýtar. Gömul og brotin klóakrör eru
helstu búsetuskilyrði fyrir rottur.
Getur verið óheilsusamlegt
„Fólk hefur veikst vegna afleiðinga
af skemmdum skolplögnum. Myglu-
sveppir hafa verið mikið í um-
ræðunni undanfarið en þeir eru oft
fylgifiskur ónýtra lagna. Það er mikið
af bakteríum sem lifir í skolpi eðli
málsins samkvæmt og í mörgum
húsum þar sem skolplagnir eru lekar
er húsnæðið mjög óheilsusamlegt,“
segir Stefán. „Fólk hefur bæði veikst
af myglusvepp og afleiðingum hans.
Oft er skolplykt og í sumum tilfellum
verður fólk samdauna, það er oft mik-
il fúkka- og rakalykt sem fylgir þessu.“
Komnar á tíma
Skoplagnir í eldri hverfum Reykja-
víkur eru margar hverjar komnar
á tíma og Stefán segir að þar sem
ekki sé búið að skipta um sé kom-
inn tími á viðhald. „Reykjavík er að
eldast og frárennslislagnir á höfuð-
borgarsvæðinu eru líka að eldast
hratt. Þetta fer oft mjög leynt þang-
að til einhver alvarleg atvik eiga sér
stað þar sem lagnir fara að gefa sig
og þá gerist það mjög hratt. Það er
vitað að í 101, þar sem ekki er búið
að gera við, er viðgerðarþörf á skol-
plögnum, sérstaklega undir húsum,“
segir hann.
Fyrirbyggja skaðann
Það getur kostað mikil fjárút-
lát þegar þarf að skipta algjör-
lega um lagnir í húsum. „40–45
ára gamlar steinlagnir eru komn-
ar á viðhaldsstig en í flestum til-
fellum hægt að fóðra. Þegar fólk
býr í eldri húsum þá þarf það að
láta kanna ástandið hjá sér lagn-
irnar svo hægt sé að bregðast við
áður en illa fer. Það eru þó nokk-
ur dæmi sem við sjáum þar sem
lagnir eru bara ónýtar og þar er
ekki hægt að bjarga með fóðrun
eins og við erum að gera. Þetta
eru mjög kostnaðarsamar aðgerð-
ir þar sem brjóta þarf upp gólf og
veggi og endurleggja lagnir. Í flest-
um tilfellum verður fólk að flytja
út meðan á viðgerð stendur.“ n
Fréttir 11Mánudagur 17. desember 2012
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Fólk hefur veikst
af afleiðinga af
skemmdum skolplögnum.
Heilsuspillandi Stefán
segir hús þar sem skolplagn-
ir eru ónýtar geta verið
hættulegar heilsu fólks.