Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2012, Side 15
Ég segi mig […] úr Samfylkingunni Ég er heppinn Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. – DV.is Samviska – ráðgefandi eða bindandi? 1 Eftirsóknarverðasta kona heims Leikkonan Jennifer Lawrence, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í Hungurleikunum, hefur verið kosin eftirsóknarverðasta kona heims. 2 „Í björtu báli“ vegna eineltis Akureyrarbær snupraður vegna seinagangs varðandi eineltisvanda innan slökkviliðsins. 3 Föndraði krans með kærast-anum Greta Salóme bjó til eigin aðventukrans. 4 Með kúlu á höfði, mar á hálsi og skurð á hendi eftir gróft lögregluofbeldi Maður, sem lög- reglan á Suðurnesjum beitti harðræði, fékk bætur frá ríkinu. 5 Starfsmaður kjötvinnslu stefnir Jamie Oliver Fyrrverandi starfsmaður bandarískrar kjötvinnslu hefur stefnt kokkinum fyrir að kalla afurð vinnslunnar „bleikt slím“. Mest lesið á DV.is S vo að við séum öll nokkurn veginn á sömu blaðsíðunni er rétt að byrja á því að nefna að í annarri útgáfu af Íslenskri orða­ bók frá 1985 ritstýrðri af Árna Böðvars­ syni er „samvisku“ lýst á þennan hátt: „Siðgæðisvörður vitundarinnar; rödd guðs í manninum; vitundin um ranga eða rétta breytni eða um sam­ ræmi eða misræmi athafna eða hugs­ ana við gildandi siðareglur.“ Samviskan hefur sig kannski ekki jafnmikið í frammi og áður fyrr, alla­ vega ekki í rökræðu stjórnmálanna. Það er heldur ekki hlaupið að því að þekkja rödd samviskunnar frá öðrum röddum sem kunna að hljóma inn­ vortis í manneskjunni með allskonar tilmæli og jafnvel fyrirskipanir án þess að sýna persónuskilríki. Þetta skiptir máli því að hér á landi eru al­ þingismenn, hinir kjörnu fulltrúar, auk stjórnarskrárinnar fyrst og síðast bundnir af samvisku sinni þegar kem­ ur að ákvarðanatöku. Samt fylgja þessari reglu því miður engar leiðbein­ ingar um hvernig megi forðast að rugla saman hófstilltri rödd samviskunnar og skrækri rödd geðþóttans. Samviska þingmanna Vangaveltur þessar um samviskuna og stöðu hennar í nútímanum stafa af því að á mínum vinnustað bregður svo nú við að varla líður sá dagur að ekki sé minnst á samviskuna – og þá eink­ um í sambandi við hið nýja stjórnlaga­ frumvarp. Og samhengið er gjarna að viðkomandi geti ekki „samvisku sinn­ ar vegna“ samþykkt hinar og þessar greinar í stjórnlagafrumvarpinu og vilji endilega hafa þær öðruvísi. Enn fremur er klifað á því að þing­ mönnum beri engin „lagaleg skylda“ til að taka nokkurt einasta mark á ný­ afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu sem opinberaði þann þjóðarvilja að þinginu yrði falið að afgreiða stjórn­ lagafrumvarpið. Þessa augljósu stað­ reynd hafa hámenntaðir stjórnmála­ fræðingar sem fást við stjórnmál á vísindalegum grundvelli fundið sig knúna til að útskýra fyrir þingmönn­ um sem skortir hina vísindalegu sýn á starf sitt. Sem sé að ráðgefandi þjóðar­ atkvæðagreiðsla sé ekki lögfræðilega bindandi. Capisce?? Reyndar hefur ekki nokkur maður mér vitanlega haldið því fram að „ráð­ gefandi“ merki „bindandi“. Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla er eina pottþétta aðferðin til að leiða í ljós vilja þjóðarinnar sem vitanlega er ekki „lögfræðilega“ bindandi heldur „siðferðilega“. Út úr þjóðaratkvæðagreiðslum og yfirleitt öllum lýðræðislegum kosning­ um má svo auðvitað snúa, til dæmis á þann súrrealíska hátt að fullyrða að alls ekki sé vísindalega sannað að þeir sem greiddu atkvæði hafi greitt at­ kvæði í samræmi við vilja þeirra sem ekki greiddu atkvæði – og hananú. Þjóðarvilji Hvað svo sem líður þjóðaratkvæða­ greiðslum og þjóðarvilja er hins vegar ekkert sem skuldbindur kjörna full­ trúa til að vera sammála þjóðinni í öllum greinum og öllum hennar fjöl­ breytileika. Það er eitt að lúta þjóðar­ vilja og annað að vera honum sam­ mála að öllu leyti. Það síðarnefnda er yfirleitt spurning um smekk, skoðun eða geðþótta og geðþótti og samviska eru ekki sami hluturinn. Geðþótti minn og smekkur gera margar athugasemdir við stjórnlaga­ frumvarpið. Samviska mín segir mér að mér beri að virða vilja þjóðarinn­ ar í stað þess að láta stjórnast af eigin geðþótta. Til þess að samviskan bannaði mér að fara að þjóðarvilja í stjórnarskrár­ málinu þyrftu hin nýju stjórnskipunar­ lög að innihalda greinar brytu gróflega í bága við viðtekið siðferði og gildismat og ógnuðu lýðræðinu sem er grund­ völlur okkar þjóðskipulags. Samviskan muni aldrei taka í mál að samþykkja lög sem til að mynda fælu í sér að innleiða dauðarefs­ ingu eða heimila pyntingar ellegar skerðingu á kosningarrétti eða öðrum mannréttindum. Og hún væri heldur ekki til viðtals um takmörkun á trú­ frelsi, tjáningarfrelsi eða skoðanafrelsi. Sem betur fer er ekkert af slíku að finna í hinni nýju stjórnarskrá. Eflaust verður mjög fróðlegt og gef­ andi í framtíðinni að fylgjast með því hvernig akademískir vísinda­ og fræði­ menn útlista í lengra og lengra máli að orðin „ráðgefandi“ og „bindandi“ hafi ekki sömu merkingu „lögfræði­ lega séð“. Og ekki væri síður spennandi að fá fram álit okkar bestu og fjöl­ miðlavænstu fræðimanna á því hvort samviskan sé lögfræðilega bindandi fyrir stjórnmálamenn eða einungis ráðgefandi eins og þjóðaratkvæða­ greiðslur virðast vera þegar það hentar samvisku af ákveðinni gerð? Svellkaldur Frosið vatn hefur um aldir heillað unga sem aldna. Sú er raunin á Reykjavíkurtjörn þessa dagana enda hefur kári verið kaldur undanfarið. Vissast er þó að fara að öllu með gát eins og parið á myndinni. Það kann ekki góðri lukku að stýra að vera laus á svellinu, ef þannig má að orði komast. Mynd EyÞór ÁrnaSonMyndin Umræða 15Mánudagur 17. desember 2012 Við erum frábærar Jóna Ósk Pétursdóttir skrifaði handbók um breytingaskeið kvenna. – DV Jóhannes Jónsson kaupmaður berst aftur við krabbamein. – DV.is Kjallari Þráinn Bertelsson „Samviskan hefur sig kannski ekki jafn- mikið í frammi og áður fyrr, allavega ekki í rökræðu stjórnmálanna. „María Birta þú mátt fá verslunina okkar lánaða ef það gæti hentað þér, er í Hafnarfirði í Helluhrauni 10, ég gæti mögulega reddað lager- húsnæði líka :) Sendu mér bara skilaboð ef þetta er eitthvað sem gæti hent- að.. Kveðja Frank.“ Frank Höybye fyrir hönd verslunarinnar Slökkvitæki ehf. við frétt um að Maríu Birtu hafi verið gert að fara með tilboðsmarkað sinn úr Kringlunni en hún hafði fengið lánaða aðstöðu þar. „Flott hjá þér og átt heiður skilið að segja frá! Þar sem margir eru að glíma við geðrask- anir og glíma við eigin fordóma og fordóma annarra ert þú að hjálpa mörgum með því tjá þig. Tek ofan fyrir þér og gangi þér vel!“ Eymundur Eymundsson var ánægður með það að Högni Egilsson, söngvari í Hjaltalín, skyldi stíga fram og segja frá því að hann væri með geðsjúkdóm. „Prufum að snúa þessari frétt aðeins við og segja sem svo að tveir íslenskir pörupiltar fengu drukkna mey til að afklæð- ast og skoppa í nokkra hringi....Hvernig skildu svo kommentin hljóma?“ Þorsteinn Jónsson undir frétt um tvær ungar íslenskar konur sem plötuðu erlendan ferðamann úr fötunum og létu hann hlaupa hring í kringum Stjórnarráðið og létu sig hverfa með föt mannsins á meðan. „Farið bara að VINNA og kaupið ykkur íbúð eins og annað fólk.“ Sigurbjörn Halldórsson undir frétt um listakonuna Steinunni Guðlaugsdóttur sem sagði í fyrsta skipti opinberlega frá atviki sem var kært til ríkis- saksóknara vegna hústökunnar á Vatnsstíg 2009. Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni 19 16 115 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.