Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Page 8
8 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur
Landeigendur og sumarbústaða-
eigendur í Mosfellsdal krefj-
ast þess að heilbrigðiseftirlitið og
bæjarstjórn Mosfellsbæjar grípi
til aðgerða gegn Ásgeiri Péturs-
syni eiganda minkaræktunarbús-
ins Dalsbús ehf. í Helgardal. Í bréfi
sem Bryndís Gunnlaugsdóttir lög-
fræðingur landeigendanna sendi
á helstu stjórnsýslustofnanir sem
hafa með heilbrigðis- og umhverfis-
mál að gera er þess krafist að „starf-
semi minkabúsins verði stöðvuð í
það minnsta á meðan unnið er að
fullnægjandi frágangi.“
Landeigendurnir staðhæfa að
mengun frá minkabúinu sé svo
mikil að hún setji líf fólks og dýra á
svæðinu í hættu. Þessu hafnar Ás-
geir algjörlega. Hann segist raun-
ar ekki hafa frétt af kvörtun næstu
nágranna sinna fyrr en DV bar efni
hennar undir hann.
Beitarland liggi undir
skemmdum
Málið snýst um að minkabúið hefur
verið starfrækt án tilskilinna leyfa
síðan 4. apríl árið 2007 og meðal
annars á þeim forsendum er þess
krafist að búinu verði lokað. Ná-
grannarnir segja læk sem renn-
ur að hluta til um jörðina og einn-
ig við sumarhúsaland fyrir neðan
búið vera svo stórkostlega meng-
aðan að hann sé hættulegur heilsu
fólks. Minkabúið stendur uppi í
fjallshlíð og fyrir neðan það eru
meðal annars bújörð og sumarbú-
staðabyggð. Flestir næstu nágrann-
ar búsins hafa því tekið sig saman og
krafist aðgerða. Nágrannarnir stað-
hæfa einnig að beitarland fyrir hesta
hafi orðið fyrir skemmdum vegna
mengunar frá búinu. Ásgeir og aðr-
ir starfsmenn Dalbús vísa ásök-
ununum hins vegar á bug og telja
að þeir séu að verða fyrir einelti af
hálfu nágranna sinna og fullyrða að
búið, þar sem á annan tug þúsunda
hvolpa eru, hafi varið milljónum til
að tryggja að minkabúið mengi ekki
umhverfi sitt.
Nágrannarnir telja hins vegar
að hreinlætismál hjá minkabúinu
séu í stórkostlegum ólestri og segja
landeigendurnir í bréfinu að „eig-
endur og starfsmenn Dalbús hafi
með ámælisverðri umgengni sinni
og ólögmætri losun og meðferð á
bæði minkaskít og úrgangi úr fóður-
eldhúsi stofnað heilsu mannfólks,
sauðfés, hesta og annarra dýra á
svæðinu í mikla hættu.“
Saurmengaður lækur
Í bréfi Bryndísar er vísað í rann-
sókn Matís á vatnsgæðum í Katla-
gilslæk sem rennur á jörðinni og
framhjá sumarhúsabyggð neðar í
dalnum. Rannsókn Matís var gerð
19. maí síðastliðinn og samkvæmt
henni mældust 48.000 saurgerl-
ar í 100 millilítra sýni úr Katlagils-
læk. Til þess að ástand vatns teljist
fullnægjandi mega ekki vera 1.000
saurgerlar í slíku sýni. Í læknum var
því magn saurgerla 48 sinnum yfir
heilsuverndarmörkum. Á svæðinu
sem lækurinn rennur um eru bæði
hestar og kindur á beit auk þess sem
sumarbústaðasvæði Kennarafélags
Laugarnesskóla er við lækinn og þar
eru börn oft að leik. Bréfið sem er
dagsett 26. maí 2011 var sent á bæj-
arstjórn Mosfellsbæjar, heilbrigðis-
eftirlitið, umhverfisráðuneytið og
Umhverfisstofnun. Eigendur Dal-
bús fréttu hins vegar ekki af kær-
unni fyrr en eftir að DV spurði þá
um málið.
Án starfsleyfis
Sem fyrr segir rann starfsleyfi Dal-
bús út í apríl 2007 og hefur búið
því starfað í leyfisleysi í rúm fjögur
ár. Forsvarsmenn Dalbús sóttu um
endurnýjun leyfis hjá Heilbrigðis-
eftirliti Kjósarsvæðis í maí 2008.
Málið var ekki tekið fyrir á fundi fyrr
en í september 2009 þar sem árétt-
að var að fylgigögn með umsókn um
starfsleyfi hefðu ekki borist. Eftir-
litið hefur ekki afgreitt umsóknina
síðan þá og því er ljóst að búið er
starfrækt án leyfis. Gerðar eru at-
hugasemdir við að loðdýrabúið hafi
fengið að starfa áfram án leyfis sér-
staklega í ljósi þess að ítrekað hef-
ur verið kvartað til Heilbrigðiseftir-
lits Kjósarsvæðis vegna þess hvernig
gengið er frá úrgangi á svæðinu,
bæði frá minkabúinu og fóðurstöð
búsins.
Aðspurður um ástæður þess að
minkabúið sé án starfsleyfis vísar
Ásgeir ábyrgðinni af því yfir á aðra.
Hann hafi sótt um leyfin en það sé
ekki hans að svara fyrir það hvers
vegna umsóknin hafi ekki verið af-
greidd.
Lögfræðingurinn vísar í afrit
af bréfi Heilbrigðiseftirlits Kjósar-
svæðis frá því 14. ágúst 2009 þar sem
kemur meðal annars fram að við
skoðun heilbrigðisfulltrúa á svæð-
inu hafi komið í ljós að seyru og úr-
gangi úr safnþró hafi verið dælt up
í haug utan við húsið. Úr haugnum
hafi verið grafinn mjór skurður í átt
að gilinu ofan við búið og mátti sjá
seyruslóðina niður eftir öllu gilinu
sem endaði við lækinn. Fyrir ofan
þann stað var lækurinn hreinn en
fyrir neðan þann stað voru hrúgur
af seyru og eðju í botninum með til-
heyrandi ólykt.
Ásgeir segir hins vegar að börn
hafi leikið sér í læknum í áratugi og
aldrei orðið meint af. Í eitt skipti hafi
reyndar orðið mengunarslys sem
starfsfólk búsins hafi fúslega viður-
kennt og reynt hafi verið að tryggja
að það endurtæki sig ekki.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
„Landeigendurn-
ir staðhæfa að
mengun frá minkabúinu
sé svo mikil að hún setji líf
fólks og dýra á svæðinu í
hættu. Þessu hafnar Ás-
geir algjörlega.
Nágrannar krefjast
lokunar á minkabúi
n Kvarta undan bónda í Mosfellsdal n Segja mengun frá minkabúi stofna lífi fólks í mikla hættu
n Eigandi minkabúsins sakar nágranna sína um einelti n Kannast ekki við að menga umhverfi sitt
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Ásgeir Pétursson Eigandi minkabúsins
fullyrðir að hann hafi varið umtalsverðum
fjármunum til að tryggja að umhverfis- og
mengunarmál séu í lagi hjá búinu.
Mynd RóBERt REyniSSon
dalbú Nágrannar deila hart á minkabúið og segja það menga nærliggjandi svæði.