Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 12
„Traustur og styrkur sálusorgari og
kennimaður,“ voru orð sem Karl Sig-
urbjörnsson biskup notaði yfir for-
vera sinn Ólaf Skúlason þann 29.
desember 1999. Tilefnið var sjötugs-
afmæli Ólafs en þrjú ár voru þá liðin
frá því að Sigrún Pálína Ingvarsdóttir
og Dagbjört Guðmundsdóttir leituðu
til Karls og sögðu honum söguna af
því hvernig Ólafur braut á þeim kyn-
ferðislega.
„Hvorki fugl né fiskur“
Rannsóknarnefnd Kirkjuþings sagði
að það hefðu verið mistök af hálfu
Karls að taka á móti þeim og því hlut-
verki að leita sátta fyrir þeirra hönd
degi eftir að hann skrifaði undir
stuðningsyfirlýsingu við Ólaf. Sér til
varnar sagði Karl að kirkjuráðsmenn
hefðu verið undir mikilli pressu og að
yfirlýsingin hefði verið „hvorki fugl né
fiskur“. Rannsóknarnefndin gat ekki
fallist á þá túlkun hans að yfirlýsing-
in hefði verið „almenn og hlutlæg í
garð allra hlutaðeigandi“ og ástæðan
var setningar á borð við: „Kirkjuráð
harmar þær ásakanir sem bornar eru
fram á hendur biskupi og eru alvar-
leg atlaga að æru hans,“ og: „Kirkjuráð
vottar biskupi Íslands dýpstu samúð
og kærleika,“ sem geta ekki talist hlut-
lægar.
Þjónustuár Ólafs „tímar
mikillar grósku“
Þremur árum eftir að Karl hlýddi á
sögur þeirra Sigrúnar Pálínu og Dag-
bjartar, sá sársaukann sem málið olli
þeim og fjölskyldum þeirra og reyndi
árangurslaust að leita sátta fyrir
þeirra hönd, lofaði hann Ólaf hástert
í afmælinu hans. Sagði meðal annars:
„Þjónustuár hans á biskupsstóli voru
tímar mikillar grósku kirkjustarfs,“ og
þakkaði Karl honum fyrir hönd Þjóð-
kirkjunnar fyrir þjónustu hans, leið-
sögn og trúmennsku í þágu þjóðar og
kirkju fyrr og síðar.
„Glaðsinna og bjartsýnn atorku-
maður“
Sagði hann einnig um Ólaf: „... glað-
sinna og bjartsýnn atorkumaður, sem
jafnan kann manna best að fagna
góðu dögunum, en um leið traustur
og styrkur sálusorgari og kennimað-
ur.“ Og að gæfa Ólafs biskups væri að
eiga frú Ebbu sér við hlið því „hlýja og
birta, umhyggja og kærleikur fylgja
henni jafnan. Samhent takast þau
hjónin á við verkefni daganna, gleði
og raunir, samstillt í öllum góðum
vilja og verki. Gestrisin eru þau, höfð-
ingleg heim að sækja.
Við hjónin samfögnum þeim
hjónum báðum á tímamótum. Og
við mælum fyrir munn hinna mörgu
sóknarbarna og samstarfsfólks fyrr
og síðar er við biðjum þeim heilla og
ríkulegrar blessunar. Við biðjum þess
að þau geti horft með gleði og þökk
yfir starfsferilinn sem að baki er og
fundið virðingu, hlýju og kærleika
okkar, og íslensku þjóðkirkjunnar
allrar, fylgja sér til framtíðar.“
„Hún var útgrátin“
Nú hafa sjö konur stigið fram og
sagt að Ólafur Skúlason hafi beitt
þær kynferðislegu ofbeldi. Organisti
Ólafs lýsti því einnig þegar hann kom
óvænt inn til hans og sá stúlku liggja
þar á bekk og Ólaf ofan á henni: „Hún
var útgrátin. Ólafur reis snöggt upp
við innkomu mína og var lausgirtur.
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðr-
ið, en prestur brást hinn versti við og
vandaði mér ekki kveðjurnar fyrir að
ryðjast svona inn.
Ólafur átti oft mjög erfitt með að
hemja skap sitt. En hann gat mjög
fljótt og áreynslulaust brugðið sér í
auðmjúkan prest og veitt hlutaðeig-
andi huggun eins og góður leikari. Ég
varð oft vitni að því.“
„Hvað er að þér, kona?“
Þó að Ólafur hafi leikið tveimur
skjöldum fékk Karl fékk engu að síð-
ur vitneskju um skuggahliðar Ólafs.
Eins og fyrr segir leitaði Sigrún Pálína
til hans árið 1996 og sagði honum
frá því að Ólafur hefði ráðist á hana
árið 1979 og reynt að nauðga henni
í litlu herbergi í Bústaðakirkju. Dag-
björt sagði Karli einnig frá því þegar
12 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Lofræða
KarLs
um ÓLaf
n Karl Sigurbjörnsson lofaði Ólaf í hástert árið 1999 n Þremur árum eftir að hann
tók á móti Sigrúnu Pálínu og Dagbjörtu n Sagði tíð Ólafs tíma „mikillar grósku“
„Við biðjum
þess að þau
geti horft með gleði
og þökk yfir starfs-
ferilinn sem að baki er
og fundið virðingu,
hlýju og kærleika okkar.
Þriðjungur þjóðkirkjupresta vill að biskup Íslands segi af sér:
Prestastéttin klofin vegna Karls
Fáir prestar hafa stigið fram og kallað eftir afsögn biskups. Miðað
við könnun DV, sem 70 prósent íslenskra presta svöruðu, eru þó
fleiri sem vilja að biskup axli ábyrgð með því að segja af sér. Könn-
unin var nafnlaus því margir prestar vildu ekki svara henni öðruvísi.
Áberandi fleiri prestar sem svöruðu spurningunni með jái – það er
að Karl ætti að segja af sér – vildu ekki koma fram undir nafni. Einn
prestur vildi hins vegar ekki taka afstöðu til spurningarinnar þar
sem könnunin var nafnlaus.
Fáir prestar hafa tjáð skoðanir sínar opinberlega en það hefur
Sigríður Guðmarsdóttir prestur í Guðríðarkirkju þó gert: „Biskup
Íslands þarf að kannast við það, að kirkjunni kemur betur að annar
taki við lyklavaldi hans. Eftir því sem hann situr lengur í embætti
verðru skaði kirkjunnar meiri og sárari og tiltrú fólksins á kirkjunni
dvínar.“ adalsteinn@dv.is, kristjana@dv.is
Ólafur króaði hana af á veitingahúsi í
Kaupmannahöfn og reyndi að koma
vilja sínum fram við hana. Þær sögðu
Karli frá og hann hlustaði.
Báðar konurnar höfðu menn sér
við hlið þegar þær ræddu við Karl.
Þáverandi eiginmaður Dagbjartar
brotnaði niður og grét frammi fyr-
ir honum. „Karl gekk að honum og
á milli ekkasoganna náði hann að
stynja því upp hvernig í ósköpunum
það gæti verið að sannleikurinn væri
svona sár. Hvernig það væri hægt
að snúa svona máli gegn okkur. Karl
gat ekki veitt honum neina huggun,“
sagði Dagbjört. „Án þess að það væri
sagt berum orðum fékk ég þau skila-
boð að ég hefði átt að taka þetta með
mér í gröfina. „Hvað er að þér, kona?“
Ég skynjaði það þannig. Karl vissi allt-
af að ég væri að segja satt.“
Sárt að sjá Karl í Kastljósi
Þá sagði hún einnig að það hefði ver-
ið sárt að horfa á Karl í Kastljósvið-
tali þegar málið kom upp aftur í fyrra.
„Ég heyrði hvað hann var tregur til að
segja að hann tryði okkur og hugsaði
á meðan ég hlustaði hvort hann hefði
einhvern tíma þurft að kyngja svona
miklum sársauka.“
Sigrúnu Pálínu blöskraði einnig
þar sem Karl tók það fram í viðtalinu
að Ólafur hefði átt sínar góðu stund-
ir, en líka átt til breyskleika. Fannst
Sigrúnu Pálínu ekki við hæfi að taka
það fram í umræðu um kynferðis-
brot hans. „Maðurinn var kynferð-
isafbrotamaður. Hann var nauðgari,
hann var barnaníðingur. Er það að
hafa breyskleika? Það er bara að vera
alvarlega sjúkur. Auðvitað átti hann
einhverjar góðar stundir, en af hverju
er verið að setja það í sömu setningu?“
Ítrekuð mistök Karls
Rannsóknarnefndin gerði ekki at-
hugasemdir við þessa lofræðu Karls
um Ólaf, jafnvel þótt séra Vigfús Þór
Árnason væri gagnrýndur fyrir að hafa
brugðist þegar hann lýsti yfir stuðningi
við biskup þar sem hann hafði áður
veitt Sigrúnu Pálínu sálusorg.
Karl er aftur á móti sagður hafa
gert mistök, bæði þegar hann skrif-
aði undir yfirlýsinguna, sem Geir
Waage hélt reyndar að Karl hefði
jafnvel skrifað sjálfur þar sem hún
bæri sterk stíleinkenni hans, og líka
þegar hann tók á móti þeim Sigrúnu
Pálínu og Dagbjörtu. Var aðkoma
hans jafnvel talin hafa dregið úr lík-
um á sáttum í málinu vegna fyrri af-
skipta og tengsla við Ólaf. Mistök
Karls eru fleiri samkvæmt rannsókn-
arnefnd kirkjuþings, og þau eru al-
varleg og ámælisverð.
Á Karl biskup að hætta?
Starfandi prestar innan þjóðkirkjunnar eru klofnir í afstöðu
sinni gagnvart því hvort Karl Sigurbjörnsson biskup eigi að
víkja þar sem rannsóknarnefnd kirkjuþings telur að Karl hafi
brugðist í hlutverki sínu. Voru prestarnir spurðir hvort Karl
ætti að hætta.
Svarhlutfall: 70% Karlar: 74% Konur: 67%
Svara ekki
16
%
15
%
16
%
Nei
32
%
38
%
33
%
Já
34
%
38
%
35
%
Óviss
18
%
8%
15
%
n Karlprestar
n Kvenprestar
51,5%
48,5%
n Segi af sér
n Sitji áfram
„Gestrisin eru
þau, höfðingleg
heim að sækja.
Sr. Karl Sigurbjörnsson
um Ólaf Skúlason og eiginkonu hans