Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Qupperneq 17
Hópur sýrlenskra karlmanna hefur
brugðið á það ráð að skuldbinda sig
til að giftast konum sem hefur verið
nauðgað. „Við viljum ekki einung-
is breyta stjórnarháttum í Sýrlandi
heldur einnig svona hlutum,“ segir
32 ára bakari í þorpinu Jisr al-Shugo-
ur sem hermenn réðust á í síðustu
viku. Hann á þá við hugarfar fólks en
fjölskyldur kvenna sem sæta nauðg-
unum drepa þær í sumum tilvikum
til að endurheimta heiður sinn. „Þær
eru fórnarlömb byltingarinnar og við
gerum allt til að vernda þær,“ sagði
lyfsali í sama þorpi. Í upphafi tóku
15 menn undir þessar hugmyndir en
þeir eru einungis fjórir nú.
Dæmi er um að fjórum systrum
hafi verið nauðgað en það hefur ekki
varið staðfest þar sem neitað er að
gefa upp nöfn þeirra til að vernda þær
gegn þeirri skömm sem fjölskyldur
þeirra myndu upplifa í samfélaginu.
Af sömu ástæðu hafa tyrknesk stjórn-
völd ekki birt nöfn flóttamanna sem
hafast við í Tyrklandi.
Sýrlendingar hafast margir við
í tjaldborgum nálægt tyrknesku
landamærunum eftir að hafa flú-
ið bæi og þorp sín sem urðu fyrir
barðinu á hersveitum hliðhollum
stjónvöldum í landinu. Þá hafa yfir 10
þúsund Sýrlendingar flúið yfir landa-
mærin.
Arababandalagið fordæmir
ofbeldið í Sýrlandi
Arababandalagið, sem Sýrland á að-
ild að, fordæmdi ofbeldi yfirvalda
í síðustu viku og bættist þar í hóp
Bandaríkjanna, Evrópusambands-
ins og fleiri. Þá hefur Recep Tayyip
Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands
sem áður var einn helsti bandamað-
ur sýrlenskra yfirvalda, snúið baki við
stjórninni í Damaskus eftir að flótta-
menn tóku að streyma til Tyrklands
og sagt aðgerðir þeirra vera villi-
mannslegar. Nú síðast var ráðist inn
í þorpið Bdama nálægt landamær-
um Tyrklands í því skyni að hindra
flótta Sýrlendinga til Tyrklands en sú
aðgerð mun hindra að vatn og mat-
arbirgðir berist til 2.000 manna sem
hafast við í nálægum fjöllum.
Mannréttindasamtök segja að
minnsta kosti 1.300 óbreytta borg-
ara hafa fallið í mótmælunum síðan í
mars en ekki sér fyrir endann á mót-
mælunum.
Assad kennir nokkrum
skemmdarvörgum um
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
kenndi nokkrum skemmdarvörgum
um mótmælin í ræðu sem hann hélt í
háskólanum í Damaskus á mánudag-
inn. Var þetta í þriðja sinn sem hann
ávarpaði sýrlensku þjóðina. Hann
kallaði eftir samræðum meðal þjóð-
arinnar til að móta framtíð landsins.
Þá biðlaði hann líka til flóttamanna í
Tyrklandi að snúa aftur.
Ræðan hlaut hins vegar dræm-
ar móttökur. Mótmælendur sögðu
al-Assad einungis tala til stuðnings-
manna sinna og sumir kölluðu hann
einfaldlega lygara. Mótmælendur
eru hættir að láta sér nægja að krefj-
ast umbóta og krefjast þess að Assad
fari frá völdum og lýðræði verði kom-
ið á.
Á alþjóðavettvangi var ræðunni
heldur ekki vel tekið. Bandaríkin
sögðust vilja sjá „aðgerðir, ekki orð“
og Abdullah Gul Tyrklandsforseta
fannst ræðan ekki nægja og sagði að
al-Assad hefði átt að lýsa því yfir að
fjölflokkakerfi yrði komið á.
Erlent | 17Miðvikudagur 22. júní 2011
AFSLÁTTUR VINSTRI HÆGRI!
Bara góðar hliðar
Orkulykillinn færir þér svo miklu meira en bara afslátt af ódýrasta* bensíninu
Orkulykillinn hefur ekkert nema góðar hliðar. Hafðu hann á kippunni og tryggðu þér:
Sæktu um Orkulykilinn í dag á www.orkan.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
2
6
9
• 2 kr. afslátt hjá Orkunni
• 4 kr. afslátt hjá Shell
• 5 kr. afslátt á Ofurdögum
• 10 kr. afslátt í fyrstu 2 skiptin
• 10 kr. afslátt á afmælisdaginn
• Afslátt af bílavörum
• Afslátt af smurþjónustu
• Afslátt af bílaþvotti
• Greiðslumöguleika á Stöðinni
• Orkuvernd (verðstefna Orkunnar)
• Reglulega endurgreiðsluleiki
• Sérmerkingar lykla
*Samkvæmt www.bensinverd.is
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is
n Sýrlenskir karlmenn bjóðast til að kvænast konum sem hefur verið nauðgað n Arababanda-
lagið fordæmir ofbeldi Sýrlendinga sem heldur áfram n Ávarp al-Assads fær dræmar undirtektir
Flóttamannabúðir Sýrlenskir flóttamenn hafast við í tjaldbúðum nálægt landamærum
Tyrklands og Sýrlands.
bjarga
konum frá
heiðursmorði
Bashar
al-Assad
Forseti Sýrlands
hélt ræðu í
háskólanum í
Damaskus sem
hlaut dræmar
undirtektir.