Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 22
22 | viðtal 22. júní 2011 Miðvikudagur
„Ég hljóp bara beint út. Ég hugsaði
með mér að ég ætlaði að komast aft
ur að landamærunum og fara aftur til
Kanada. Ég var bara rétt hjá. Sá sem
fór með mig yfir var búinn að segja
mér að hringja í sig ef ég lenti í ein
hverjum vandræðum og ég ætlaði að
gera það. Ég byrjaði bara að hlaupa.
Þetta var svo óraunverulegt.“
Næstu klukkutímunum eyddi
Linda í felum í litla bænum Platts
burgh. Hún faldi sig í görðum og
litlum götum.
„Innan við klukkustund eftir að
ég fór vissi ég að þeir voru farnir að
leita að mér. Þá voru lögreglubílar og
þyrlur úti um allt. Þá hugsaði ég: Guð
minn góður, hvað er ég búin að gera?
Ég hélt að þeir myndu ekkert fara að
leita að mér. Einhverjum ómerkileg
um Íslendingi. En þeir hugsuðu fyrst
hún er að flýja þá hlýtur hún að hafa
eitthvað að fela. Ég hljóp bara um
grátandi og bað guð að hjálpa mér.“
Svona lýsir Linda Björk stundinni
þegar hún flúði úr dómhúsi í Platts
burgh í New Yorkríki. Mikil leit hófst
og lögregla hafði mikinn viðbúnað
sem vakti töluverða athygli. Settir
voru upp vegatálmar, liðsauki var
kallaður út og þyrlur sveimuðu yfir
svæðinu. Fréttir af strokinu fóru um
sem eldur í sinu og bárust fljótt til Ís
lands. Linda náðist nokkrum klukku
tímum síðar og var færð aftur í fang
elsi.
Fékk ekki að koma inn í landið
Forsaga málsins er sú að árið 2009
var Linda stoppuð í Minneapolis
og fékk ekki að koma inn í landið.
Þá hafði hún verið búsett í borginni
Sacramento í Kaliforníu í níu ár. Hún
var að bíða eftir endurnýjun á vega
bréfsárituninni sinni og þurfti þess
vegna reglulega að fljúga heim til Ís
lands svo hún héldist lögleg í Banda
ríkjunum. „Við ákváðum að fara heim
árið 2008 og vorum að íhuga hvort
við ættum að flytja heim. Við sökn
uðum fjölskyldunnar okkar heima
en hjarta okkar var í Kaliforníu svo
það varð ofan á að við færum þangað
aftur,“ segir Linda.
„Þarna var ég að ferðast á vísa
„wave“inu sem Íslendingar geta
ferðast á. Ég var að fara í gegnum
Minnea polis þegar ég var stoppuð.
Þar stoppaði tollvörður mig því hon
um fannst grunsamlegt hvað ég var
með mikinn farangur. Ég náttúrulega
átti hús úti og allt mitt líf var þar. Hann
vildi senda mig aftur heim því hon
um fannst skrítið hvað ég væri tengd
Bandaríkjunum en væri ekki með
vegabréfsáritun. Þeir hafa svo rosa
lega mikið vald og það er á þeirra valdi
hvort þeir hleypa þér inn eða ekki.“
Linda fékk ekki að koma inn í
landið og var send til baka með sömu
vél aftur til Íslands. Þar var henni sagt
að það gæti tekið hana marga mán
uði, allt upp í ár, þangað til pappír
arnir yrðu tilbúnir og hún kæmist á
ný til Bandaríkjanna. Dóttir hennar
var komin út, húsið hennar var úti
og hún átti kærasta í Kaliforníu. Þetta
þýddi að hún kæmist ekki heim til
sín kannski næsta árið.
Reyndi að komast í gegnum
Kanada
Þá voru góð ráð dýr og Linda leit
aði leiða til að flýta fyrir því að hún
kæmist aftur út. „Ég átti vini í Kan
ada sem bentu mér á að ég ætti að fá
kanadíska áritun. Þá gæti ég komist
á auðveldari hátt til Bandaríkjanna
í gegnum Kanada með því að vinna
þar í smá tíma. Þeir sögðu að ef ég
kæmi að vinna þarna í einhverja
þrjá mánuði þá myndi ég fá grænt
kort í Kanada til bráðabirgða og það
myndi gefa mér leið til að komast yfir
löglega. Ég var að vinna í því. Ég var
með lögfræðing sem ætlaði að vinna
þessa pappíra fljótt fyrir mig. Ég var
ekkert að spyrja hvernig eða af hverju
hann fengi það í gegn svona fljótt.“
Það fór þó ekki allt á þann veg
sem hún hafði ráðlagt. „Síðan klikk
aði þetta og mín samskipti við þetta
vinafólk þarna úti og ég var bara á
milli steins og sleggju í Kanada. Þá
Linda Björk Magnúsdóttir varð þekkt á Íslandi eftir að fréttir af stroki hennar frá lögreglu í Bandaríkjunum birtust í flestum fjöl-
miðlum landsins. Hún komst ólöglega inn í Bandaríkin með indíána á spíttbát. Hún strauk úr dómhúsi þegar hún beið þess að fá dóm
fyrir að koma ólöglega inn í landið. Víðtæk leit var gerð að henni og hún náðist eftir nokkrar klukkustundir á flótta. Linda sem er dóttir
tónlistarmannsins Magnúsar Þórs Sigmundssonar sagði Viktoríu Hermannsdóttur frá því hvernig það kom til að rúmlega fertug
tveggja barna móðir var handtekin í Bandaríkjunum og af hverju hún stakk af.
„Guð minn góður, hvað
er ég búin að gera?“
„Það var svona svo-
lítið djammtímabil
á manni, ég var nýskilin
og það var allt einhvern
veginn að gerast á sama
tíma.
Hljóp út Linda lagði á flótta til að reyna að komast aftur að landamærunum. Mynd RóBeRt ReyniSSon
Faðir Lindu Hún segir fjölskyldu sína
hafa verið mjög hrædda þegar hún heyrði
af handtökunni og svo strokinu. Magnús
Sigmundsson tónlistarmaður er faðir Lindu.