Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 22. júní 2011 Miðvikudagur
Spænski miðjumaðurinn reynir að komast frá Arsenal til Barcelona:
Fabregas „gerir allt sem hann getur“
Forsvarsmenn Barcelona neita að
borga 35 milljónir punda fyrir Cesc
Fabregas, fyrirliða Arsenal. Talsmað-
ur Barcelona sagði hins vegar við fjöl-
miðla í vikunni að miðjumaðurinn
væri að „gera allt sem hann gæti“ til
að ganga til liðs við liðið.
Fabregas er alinn upp hjá Barce-
lona og hefur aldrei leynt áhuga sín-
um á að ganga til liðs við sitt gamla lið.
Hann hefur hins vegar sagt að hann sé
ánægður hjá Arsenal, þar sem hann
hefur verið frá því hann var 16 ára.
Peter Hill-Wood, stjórnarformað-
ur Arsenal, segir að það sé skiljan-
legt að Fabregas vilji snúa aftur heim.
Svipuð staða kom upp síðasta sumar
þegar Barcelona bauð tvívegis í kapp-
ann en báðum tilboðum var hafnað.
Sandro Rossell, forseti Barce-
lona, ræddi málið við spænska fjöl-
miðla í vikunni: „Pep Guardiola veit
nákvæmlega hversu verðmætir leik-
menn eru og Cesc er metinn á und-
ir 35 milljónum punda. Barcelona
mun ekki bjóða þá upphæð. Ef Arse-
nal samþykkir ekki tilboðið, þá kem-
ur hann ekki til okkar. Guardiola veit
alveg að fjárhagsstaða okkar er ekki
rosalega góð.“
Barcelona virðist þó eiga einhverja
peninga því liðið er um það bil að
ganga frá kaupum á síleska framherj-
anum Alexis Sanchez frá Udinese á Ít-
alíu. Forseti Barcelona segir hins veg-
ar ekkert frágengið varðandi það mál.
Leikmannamál Barcelona eru í
brennideplinum því varnarmaður-
inn Eric Abidal hefur hafnað nýju
samningstilboði frá félaginu og við-
urkennt að hafa rætt óformlega við
Florentino Pérez, forseta Real Mad-
rid.
valgeir@dv.is
André Villas-Boas hætti óvænt sem
knattspyrnustjóri Porto á þriðju-
dag og virðist flest benda til þess
að hann taki við enska stórliðinu
Chelsea innan fárra daga. Villas-
Boas er fæddur 17. október árið
1977 og er hann því einungis 33
ára. Fari svo að hann taki við Chel-
sea mun hann hitta fyrir leikmenn
sem eru litlu yngri en hann sjálf-
ur; fyrirliðinn John Terry er þrem-
ur árum yngri og Frank Lampard
og og Didier Drogba eru einu ári
yngri. Chelsea hefur þó ekki vilj-
að staðfesta að Villas-Boas taki við
liðinu. Guus Hiddink hefur ver-
ið orðaður við stöðuna en breska
ríkisútvarpið, BBC, greindi frá því
á þriðjudag að Villas-Boas yrði
kynntur sem nýr stjóri Chelsea á
næstu dögum.
Fjórir titlar á fyrsta tímabilinu
Afar sjaldgæft er að svo ungir knatt-
spyrnustjórar séu ráðnir til jafn
stórra liða. Af árangri Villas-Boas
með Porto-liðið að dæma lof-
ar hann þó býsna góðu. Hann tók
við stjórnartaumunum hjá Porto í
byrjun júní í fyrra. Í fyrsta alvöru-
leik liðsins, þar sem Porto mætti
Benfica í leik milli deildarmeist-
ara og bikarmeistara síðsumars í
fyrra, vannst sannfærandi 2–0 sig-
ur. Porto rúllaði síðan portúgölsku
deildinni upp; endaði með 84 stig,
heilu 21 stigi á undan erkifjendun-
um í Benfica og tapaði ekki einum
einasta leik. Porto fór síðan alla leið
í portúgalska bikarnum þar sem
liðið rúllaði yfir Vitória de Guim-
arães, 6–2, í úrslitaleiknum. Stærsti
sigurinn var þó án efa sigurinn í
Evrópudeildinni þar sem Falcao
tryggði Porto enn einn titilinn í
1–0 sigri á Braga. Fjórir titlar á einu
tímabili varð niðurstaðan í vor.
Sagður minna á Mourinho
André Villas-Boas er oft nefndur í
sömu andrá og José Mourinho og
það svo sem ekki að ástæðulausu.
Þeir eru báðir portúgalskir, tóku
báðir ungir við stjórnartaumunum
hjá Porto og virðast ætla að eiga
það sameiginlegt að stjórna stórliði
Chelsea. Boas og Mourinho eru þó
afar ólíkir, sérstaklega þegar kem-
ur að samskiptum við fjölmiðla en
ekki síst þegar kemur að leikskipu-
lagi. Þó að Boas sé enn að slípast til
einkenndist leikur Porto í vetur af
blússandi sóknarbolta. Mourinho
þykir varfærnari, eins og stuðn-
ingsmenn Chelsea og Real Mad-
rid ættu að þekkja, og spilar jafn-
an stífan og skipulagðan varnarleik
gegn sterkum sóknarliðum.
Villas-Boas þykir með eindæm-
um hógvær, ólíkt forvera hans hjá
Porto. „Þjálfarinn er aldrei stjarn-
an. Hann er einfaldlega manneskja
sem á að ná fram því besta hjá leik-
mönnum.“
Þó að Jose Mourinho sé oft tal-
inn í hópi færustu knattspyrnu-
stjóra heims tókst Villas-Boas að
toppa kollega sinn í fyrra. Liðið lék
36 leiki í röð í vetur án þess að tapa
leik í öllum keppnum. Fyrra met-
ið hjá Porto átti títtnefndur Mour-
inho, eða 33 leiki.
Pressa, pressa, pressa
Breska blaðið The Sun tók sam-
an nokkur atriði sem stuðnings-
menn Chelsea geti átt von á, verði
Villas- Boas ráðinn til félagsins eins
og margt bendir til. Sem fyrr segir
er aðaleinkenni hans sóknarbolti
og mikil pressa þegar andstæð-
ingarnir eru með boltann, líkt og
Barcelona hefur gert með svo góð-
um árangri. Hann þolir ekki leik-
menn sem vinna ekki fyrir liðið og
lét hafa þetta eftir sér í viðtali fyr-
ir skemmstu: „Ef ég er með miðju-
mann í hópnum sem berst ekki,
þá er ekki pláss fyrir hann í lið-
inu.“ Þó svo að sóknarboltinn sé í
fyrirrúmi leggur hann mikið upp
úr skipulagi. Hann hefur vanið sig
á að halda 30 mínútna fundi dag-
inn eftir hvern leik þar sem farið er
yfir leikskipulag, það sem fór vel og
það sem má betur fara.
Varðandi leikmannakaup bú-
ast sparkspekingar The Sun við
að Villas-Boas muni fyrst um sinn
leita í leikmannahóp Porto. Kól-
umbíumaðurinn Falcao, sem skor-
aði 38 mörk í 42 leikjum með Porto
í vetur, var strax orðaður við Chel-
sea um leið og Villas-Boas sagði
upp. Stuðningsmenn Chelsea bíða
ef til vill spenntir eftir tíðindum
næstu daga. Villas-Boas lofar góðu
og mun án efa láta mikið til sín taka
á komandi árum. Roman Abramo-
vich, eiganda Chelsea, þyrstir í að
sigra í Meistaradeild Evrópu. Og
það er aldrei að vita nema ung-
stirnið André Villas-Boas verði
maðurinn sem láti draum Rússans
ríka rætast.
n Flest bendir til þess að André Villas-Boas verði nýr knattspyrnustjóri Chelsea n Einu ári eldri en Didier
Drogba og Frank Lampard n Vann alla titla sem í boði voru með Porto í vetur n Ólíkur Jose Mourinho
Hógværi sigurvegarinn
sem toppaði Mourinho
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Sigri fagnað Villas-Boas kann lítið
annað en að sigra. Hér fagnar hann
Evrópumeistaratitlinum í vor þegar
Porto lagði Braga að velli í Dublin, 1–0.
MynD REuTERS
n Bjó í sömu blokk og hinn goðsagna-
kenndi Bobby Robson þegar hann
stjórnaði Porto. Þá var Villas-Boas 16
ára.
n Josh Phelan, sem nú er markmanns-
þjálfari Wojciech Szczesny hjá Arsenal,
er góður vinur hans.
n Hann og Phelan stjórnuðu í samein-
ingu landsliði Bresku Jómfrúareyjanna.
Þá var Villas-Boas 21 árs.
n Náði sér í UEFA C þjálfararéttindi í
Skotlandi þegar hann var aðeins sautján
ára.
n Er yngsti þjálfari sögunnar til að vinna
Evróputitil.
n Átti enska ömmu og talar þess vegna
mjög góða ensku.
n Eiginkona hans er Joana Teixeira og
eiga þau tvær dætur. Þau giftu sig árið
2004.
Staðreyndir um
André Villas-Boas
Fabregas Fyrirliði Arsenal reynir
að komast til Barcelona sem vill
ekki borga of hátt verð fyrir hann.