Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 8. ágúst 2011 Mánudagur
Þ
ýskir fjárfestar sem tóku þátt
í fasteignaverkefni í Berlín í
Þýskalandi sem Glitnir fjár
magnaði hafa lagt fram gögn
hjá sérstökum saksóknara
og krefjast þess að fyrrverandi starfs
menn Glitnis verði ákærðir fyrir brot
í starfi. Er um að ræða þá Hilmar
Steinar Sigurðsson og Axel Ómars
son, sem nú starfa hjá Klasi Invest
ment Services og Jóhann Ómarsson,
núverandi stjórnarmann hjá Artic
Trucks. Einnig fara þeir fram á að
Guðjón Hauksson hjá Kapital North
verði ákærður.
Þeir Hilmar, Axel og Jóhann voru
allir háttsettir hjá Glitni en sam
kvæmt heimildum DV var þeim vik
ið frá störfum þar eftir hrun. Ólafur
Þór Hauksson, sérstakur saksóknari
staðfesti í samtali við DV, að emb
ættinu hefðu borist gögn um um
rætt mál. Hins vegar væri ekki hægt
að veita nánari upplýsingar um það.
70 þúsund fermetra lóð í Berlín
Upphaf málsins má rekja til þess að
árið 2007 tilkynnti Hilmar Steinar
Sigurðsson, þáverandi starfsmaður
Glitnis, þeim Klaus Wagner og Mo
ritz Müller, þýskum fjárfestum, að
hann væri með kaupanda að fast
eignum upp á allt að 200 milljónum
evra, eða sem nam um 17 milljörð
um íslenskra króna á þeim tíma.
Hilmar hafði áður komið að
mörgum fasteignaverkefnum í
Berlín sem Glitnir hafði aðkomu að
en hluti þeirra voru fjárfestingar FL
Group. Hann tjáði þeim Klaus Wag
ner og Moritz Müller að hann gæti
útvegað þeim fjárfesti til að kaupa
72 þúsund fermetra lóð í Berlín en
þeir fóru fyrir félaginu R.E.D. Berl
in Development GmbH. Umrædd
lóð er í miðbæ Berlínar, í Friedrichs
hainhverfinu í um fimm mínútna
fjarlægð frá Alexanderplatz. Þar var
áður stærsta járnbrautarverkstæði
Þýskalands, þá í eigu AusturÞýska
lands (DDR) sem var lokað árið 1992
eftir hrun Berlínarmúrsins og sam
einingu Þýskalands.
Fékk sjálfur 8,5 prósenta hlut
Hilmar vildi hins vegar líka fá sinn
skerf og fór fram á að verða sjálfur
hluthafi í verkefninu. Fór hann fram
á að fá 8,5 prósenta hlut og var það
samþykkt. Um þennan hlut stofn
aði Hilmar einkahlutafélagið Kvar
ter. Einkahlutafélagið Winter fékk
síðan 46 prósenta hlut í R.E.D. Berl
in Development. Átti Winter ekki að
greiða fyrir sinn hlut heldur var fé
laginu ætlað að klára fjárhagslega
hlið verkefnisins, kaup og uppbygg
ingu. Upphaflega var félagið þó í
helmingseigu Þjóðverjanna á móti
Kapital North sem Guðjón Hauks
son fer fyrir.
Eftir að Winter og Kvarter komu
inn í hluthafahóp R.E.D. Berlin
Development settust þeir Hilmar og
Guðjón í stjórn félagsins með Klaus
Wagner. Á þessum tíma hafði Hilm
ar útvegað R.E.D. Berlin Develop
ment lán hjá Glitni upp á 4,1 milljón
evra, eða um 350 milljónir íslenskra
króna. Hluthafahópur R.E.D. Berlin
Development í dag samanstendur
af Winter ehf. (46%), Kvarter (8,5%),
Kapital North ehf. (21%) og Red
Berlin Holding GmbH (24,5%). Win
ter var upphaflega stofnað af endur
skoðendaskrifstofunni KPMG undir
nafninu FS 24. Hluthafar í Winter eru
þeir Gunnar Þór Ólafsson, Ragnar
Kristinn Kristjánsson og einkahluta
félögin Johnson og K.V. Mosfell.
Ólögmæt millifærsla?
Í mars árið 2008 voru millifærðar 800
þúsund evrur inn á reikning Winter.
Þjóðverjarnir telja að umrædd milli
færsla upp á 800 þúsund evrur hefði
átt að fara beint til R.E.D. Develop
ment en aldrei borist þangað. Um
er að ræða afborgun númer tvö af
lánasamningi R.E.D. Berlin Deve
lopment við Glitni. Vegna þessa hafa
verið höfðuð 20 dómsmál gegn þeim
Hilmari Steinari Sigurðssyni og Guð
jóni Haukssyni í Berlín og eru þeir
ásakaðir um fjárdrátt. Í samtali við
DV segir Hilmar sjálfur þetta hins
vegar alrangt. Nokkrum dögum áður
en umrædd millifærsla átti sér stað
settist Birgir H. Þórisson í stjórn Win
ter. Hann hefur komið að ýmsum
fasteignaviðskiptum með Sigurjóni
Sighvatssyni, kvikmyndaframleið
anda og mági sínum, en þeir skildu
eftir sig slóð gjaldþrota í Danmörku
vegna nokkurra fasteignafélaga sem
Glitnir fjármagnaði að stórum hluta.
Hilmar og Axel inn í Klasa í fyrra
Þeim Hilmari, Axel Ómarssyni og Jó
hanni Ómarssyni var vikið frá störf
um hjá Glitni eftir hrun. Jóhann var
yfirmaður Hilmars innan bankans
og kom að lánveitingum til Win
ter. Eftir að Hilmar, Jóhann og Axel
hættu störfum hjá Glitni stofnuðu
þeir einkahlutafélagið Mynt. Hilm
ar vill lítið upplýsa um umrætt félag
en segir það ekki lengur í rekstri. Í
upphafi ársins 2010 stofnuðu þeir
Hilmar og Axel síðan fasteignafélag
ið Klasi Investment Services, sem
er dótturfyrirtæki fasteignafélagsins
Klasa. Það félag var stofnað árið 2007
af fyrrverandi framkvæmdastjórum
hjá Glitni sem þá störfuðu með þeim
Hilmari og Axel hjá bankanum.
Eigendur Klasa eru þeir Finn
ur Reyr Stefánsson og Tómas Krist
jánsson sem græddu hvor um sig
nærri milljarð króna þegar þeir seldu
hlutabréf sín í Glitni í maí árið 2007.
Þeir voru á meðal nánustu sam
starfsmanna Bjarna Ármannsson
ar hjá bankanum, voru báðir fram
kvæmdastjórar og hættu á sama tíma
og Bjarni þegar Lárus Welding tók
við bankastjórastöðunni hjá Glitni.
Klasi var upphaflega stofnað af Þor
gils Óttari Mathiesen sem átti þriðj
ungshlut á móti þeim Finni og Tóm
asi þar til Íslandsbanki tók yfir hans
hlut í fyrra.
Á heimasíðu Klasa kemur fram
að meginstarfsemi Klasi Investment
Services sé að vernda og viðhalda
verðmætum erlendra fasteignaverk
efna íslenskra fagfjárfesta. Í stjórn
Klasi Investment sitja þeir Tómas
Kristjánsson, Finnur Reyr Stefáns
son, Axel Ómarsson og Hilmar Stein
ar Sigurðsson. Er félagið í eigu Klasa,
Axels og Hilmars.
Lán R.E.D. Berlin Development
upp á 2,5 milljónir evra er á gjald
daga hjá Íslandsbanka í nóvember á
þessu ári. Samkvæmt heimildum DV
hafa þýsku hluthafarnir komið með
ýmis tilboð um að selja lóð félagsins
í Berlín. Lítill áhugi hafi hins vegar
verið fyrir því hjá Íslendingum.
Flest fasteignaverkefni í Berlín
gengið illa
Heimildarmaður sem DV ræddi við
telur að það hafi þótt mjög vafa
samt að Hilmar Steinar Sigurðsson
hafi sjálfur ákveðið að gerast hlut
hafi í umræddu þýsku fasteigna
félagi á sama tíma og hann var starf
andi hjá Glitni. Þar sé ótvírætt um
mikla hagsmunaárekstra að ræða.
Umrædd fasteignaviðskipti sem áttu
sér stað fyrir bankahrun eru ekki þau
einu tengd Glitni sem talin eru hafa
verið vafasöm.
Samkvæmt fundargerð lána
nefndar Glitnis frá nóvember árið
2007, sem birtist í skýrslu rannsókn
arnefndar Alþingis, óskaði fjárfest
ingafélagið Saxbygg eftir 25 millj
ónum evra, eða sem nam þá 2,2
milljörðum íslenskra króna, að láni
til byggingaverkefna í Berlín. Í fund
argerðinni segir að Saxbygg hafi
þá verið með þrjú verkefni í gangi í
Berlín. Þess skal getið að Björn Ingi
Sveinsson var um tíma bæði fram
kvæmdastjóri Saxbygg auk þess að
sitja í stjórn Glitnis. Hann hefur þó
áður sagt frá því í samtali við DV að
Saxbygg hafi einungis nýtt 4,1 millj
ón evra af umræddri lánsheimild.
Einar Gautur Steingrímsson,
skiptastjóri þrotabús Saxbyggs,
stefndi árið 2010 fyrri eigendum Sax
byggs vegna sölu á erlendum fast
eignaverkefnum til félaga sem tengj
ast þeim. Höfðu þeir veitt sjálfum sér
lán upp á 5,3 milljarða króna sem
meðal annars var notað til að kaupa
fasteignir sem Saxbygg átti í Berlín.
Einnig má nefna að SPRON á enn
400 íbúðir í Berlín sem erfiðlega hef
ur gengið að selja. Þannig er óhætt
að segja að ávinningur íslenskra fjár
festa af fasteignaviðskiptum í Berlín
virðist hafa verið frekar rýr.
n Íslendingar fjárfestu í 72.000 m2 svæði í Berlín árið 2007 n Hilmar Steinar Sigurðsson, þáverandi starfsmaður
Glitnis, tók persónulega þátt n Þýskir fjárfestar hafa óskað eftir rannsókn hjá sérstökum saksóknara
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Glitnistoppar voru
í braski í Berlín
„Hilmar vildi hins
vegar líka fá sinn
skerf og fór fram á að
verða sjálfur hluthafi í
verkefninu. Fór hann fram
á að fá 8,5 prósenta hlut
og var það samþykkt.
Stórhuga fjárfestar Hér má sjá
líkan af framtíðarskipulagi 72 þúsund
femetra lóðarinnar sem enn er í eigu
íslenskra og þýskra fjárfesta í félaginu
R.E.D. Berlin Development.
Athugasemd frá Hilmari Steinari
Athugasemd frá Hilmari Steinari Sigurðssyni vegna skrifa DV um málefni R.E.D. Berlin
Development:
„Íslensku hluthafarnir hafa ráðið þýska lögmannsstofu til þess að verja sína hagsmuni
í verkefninu og eru með í vinnslu um níu ný dómsmál gegn Klaus Wagner, Moritz Müller,
Karl Von Olnhausen og eignarhaldsfélagi þeirra RED Berlin Holding GmbH. Þegar hafa
unnist 8 dómsmál gegn þessum aðilum. Það er þegar búið að stefna þeim í 17 málum
fyrir brot gegn félaginu og íslensku hluthöfunum.
Samkvæmt upplýsingum sem mér hafa verið veittar hafa Klaus Wagner og Moritz
Mueller stundað fjárdrátt með því að taka hluta af leigu félagsins til sín persónulega.
Íslensku hluthafarnir hafa þegar kært Klaus Wagner, Moritz Mueller, og Karl von
Olnhausen til saksóknara í Berlín. Þau mál verða væntanlega tekin fyrir á næstunni.
Hið rétta í málinu er að íslensku aðilarnir allir eru fórnarlömb þessara manna og hafa
nú tekið til varna. Ég vil taka fram að þessir menn eru að misnota fjölmiðla með rang-
færslum til þess að beina athyglinni frá eigin gjörðum.“
*DV fékk staðfestingu frá þýsku lögmannsstofunni Raupach & Wollert-Elmendorff á að
umrædd dómsmál íslensku hluthafanna hefðu unnist fyrir þýskum dómstólum.
Fékk gögn frá Þjóðverjunum Ólafur
Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, stað-
festi í samtali við DV að honum hefðu borist
gögn frá Þjóðverjunum vegna málefna
R.E.D. Berlin Development.