Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 15
Neytendur | 15Mánudagur 8. ágúst 2011 Í rannsókn sem var fram- kvæmd fyrir tveimur árum kemur fram að Toshiba og Asus séu áreiðanlegustu fram- leiðendurnir á tölvum. Hlut- fall bilana í fartölvum hjá þess- um fyrirtækjum var rúmlega 15 prósent á þriggja ára tíma- bili, sem er 40 prósentum lægra hlutfall en hjá óáreiðanlegasta framleiðandanum. Hæsta hlut- fallið var hjá framleiðendunum Hewlett-Packard, Gateway og Acer, á bilinu 23,3 til 25,6 prósent. Engir hagsmunir Það var Square Trade Inc. sem fram- kvæmdi rannsóknina en fyrirtækið sérhæfir sig í því að tryggja raftæki. Um er að ræða þriðja aðila sem hefur ekki hagsmuna að gæta hjá tölvuframleiðendum. Í þeirri rann- sókn sem hér er kynnt var könnuð bilanatíðni 30.000 nýrra fartölva sem tryggðar voru hjá Square Trade frá 2006 til 2009. Skoðuð var tíðni bilana eftir framleiðendum annars vegar og fartölvugerð hins vegar. Blaðamaður gat ekki fundið nýlegri sambærilega rannsókn. Hlutfall bilaðra tölva Í niðurstöðum rannsóknarinn- ar kemur fram að fartölvur bila al- mennt mjög oft. Þegar kannað- ar voru 30.000 fartölvur án tillits til framleiðanda, kom fram að á þremur árum bila um 20,4 prósent þeirra. Á sama tímabili skemmast 10,6 prósent fartölva vegna hnjasks, og því er hlutfall bilaðra fartölva um 31 prósent eftir þrjú ár, eða um ein af hverjum þremur. Asus með lægstu bilanatíðni Fimm framleiðendur eru undir meðallagi í tíðni bilana og fjórir yfir. Lægsta tíðnin er hjá Asus-framleið- andanum, en 15,6 prósent tölva frá þeim hafa bilað eftir þrjú ár. Fast á hæla Asus fylgir Toshiba, en Sony og Apple eru einnig með lága bil- anatíðni. Dell er undir meðallagi, en hefur þó um 0,9 prósent hærri tíðni bilana en Apple, sem er með þá fjórðu lægstu. Oftast bila fartölv- ur frá Hewlett-Packard, Gateway, Acer og Lenovo. Ástæða til að taka tillit til áreiðanleika Úr niðurstöðum rannsóknarinn- ar má lesa að hvað áreiðanleika tölvu varðar skiptir mun meira máli frá hvaða framleiðanda hún er en hversu mikið hún kostar. Tölvur frá HP bila tæplega 40 prósent oftar en tölvur frá Asus. Hærra verð skil- ar sér að einhverju leyti í áreiðan- leika, því að dýrari fartölvur bila al- mennt sjaldnar. En það skiptir meira máli frá hvaða framleiðanda tölvan er, sérstaklega þegar um meira en hundrað þúsund króna fjárfestingu er að ræða. Því er full ástæða til þess að taka tillit til áreiðanleika þegar fartölva er keypt. Hafðu þetta í huga við tölvukaupin Netkort Þráðlaust netkort er alltaf innbyggt í fartölvur og fistölvur og það er því ekki eitthvað sem þarf að hafa áhyggjur af. Drif/skrifari Það er alltaf að færast meira í aukana að nota usb-lykla eða flakkara. „Maður er ekki að skrifa á diska leng- ur sem tekur 15 mínútur þegar það tekur hálfa mínútu að færa efni yfir á usb-lykil. Einnig eru nú oftast í boði í skólum svokölluð heimasvæði þar sem nemendur geta vistað gögnin sín og afritað svo á flakkara.“ Hátalarar og myndavélar Þessir hlutir eru í flestöllum tölvum í dag og eru vissulega nauðsynlegir þeim sem nota til dæmis skype-for- ritið. Ábyrgð Allar tölvur er með tveggja ára neyt- endaábyrgð eins og lög gera ráð fyr- ir. Einnig eru verslanir að bjóða upp á kaskótryggingar og þá bætist oftast ár við ábyrgðartímann. Aðspurður hvort hann mæli með kaskótrygg- ingu segir Óskar að hann geri það tvímælalaust. „Þú greiðir um það bil 15.000 krónur fyrir kaskó á 100.000 króna vél og þá er hún tryggð fyr- ir óhöppum í þrjú ár. Það er engin verðrýrnun og engin sjálfsábyrgð svo ef þú missir hana í gólfið og hún eyðileggst þá færðu hana bætta.“ n Square Trade Inc. kannaði bilanatíðni fartölva n Rannsóknin náði til 30.000 fartölva n Verð og áreiðanleiki fara ekki alltaf saman Bilanatíðnin lægst hjá Toshiba og Asus Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is margfaldan kraft og orkusparnað sem hefur aldrei sést áður. Allra nýjustu skjákortin eru frá ATI og heita , HD6470, HD6550 og álíka nöfnum, en mestu nýjungarnar eru í skjákjarna sem heitir ATI HD6520G þar sem öll nýjasta tækni er til staðar. Frá nVidia eru svo nýustu skjákortin með heitin GT520 og GT540 en það eru sérhæfð, mjög öflug leikjaskjákort og eru í allra öflugustu Intel-fartölvunum. Skrifari l er hlutur sem er alltaf minna og minna notaður en helsta notagildið í dag er að skrifa hljómdiska og setja inn tölvuleiki og önnur forrit. Hátalarar l eru mjög mismunandi eftir tölvum. Ef menn vilja vera vissir um gæði hátalara er hægt að leita að viðurkenndum merkingum eins og Dolby Home Theater eða álíka. Myndavél l flestar fartölvur eru með vef- myndavél. Nýrri fartölvur eru með meiri upplausn, fleiri ramma á sekúndu og geta jafnvel tekið upp hreyfimyndir í 720p háskerpuupp- lausn. Gamli tíminn Fyrir ekki svo löngu voru þetta áhöldin sem nemendur í menntaskólum notuðu við námið. „Úr niðurstöðum rannsóknarinnar má lesa að hvað áreiðan- leika tölvu varðar skipt- ir mun meira máli frá hvaða framleiðanda hún er en hversu mikið hún kostar. Tegund Áreiðanleikinn er mismunandi eftir tegundum. MyND: PHoToS.coM Fartölvur Þær eru nú eðlilegur hluti kennslustofunnar í framhaldsskólum landsins. MyND: RóbERT REyNISSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.